Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.07.2005, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 02.07.2005, Qupperneq 28
BMW 3-línan með fimm stjörnur Besti árangurinn í sínum flokki. 4 2. júlí 2005 LAUGARDAGUR Fólksbílar öruggari en jeppar þegar ekið er út af Vegna þyngdar sinnar og hæðar velta jeppar frekar en fólksbílar. Guðmundur Freyr Úlfarsson hefur borið saman meiðsli öku- manna jeppa og fólksbifreiða í umferðarslysum. Guðmundur Freyr byggir niður- stöður sínar á tölfræðilegri rann- sókn sem gerð var á síðasta ári. Frá þessu er greint í nýjasta hefti tímaritsins Björgun. Í rannsókninni var reynt að tengja meiðsli í umferðarslysum við ýmsa áhrifaþætti. Margt getur haft áhrif á meiðsli öku- manna í bílslysum. Má þar nefna bílbeltanotkun, áfengisneyslu og ökuhraða auk utankomandi þátta eins og hálku. Ökutækið sjálft skiptir líka gríðarlegu máli og getur haft áhrif á það hve mikið ökumenn slasast. Þegar skoðuð voru slys án árekstrar við annað ökutæki, svo sem útafakstur og bílveltur, komu ökumenn jeppa verr út en öku- menn fólksbíla. Í það minnsta ef slysið átti sér stað í dreifbýli. Þetta kemur töluvert á óvart enda telja flestir sig öruggari í jeppum og stórum bílum. Jeppum er hins vegar hættara við að velta en fólksbílum og vegna þyngdar sinnar beyglast jeppar minna en fólksbílar, þeir gefa því minna eftir sem gerir höggið meira og meiðslin þar af leiðandi alvar- legri. Við árekstur milli tveggja bíla komu jeppar betur út fyrir sína ökumenn en reyndust öku- mönnum fólksbíla hættulegri. Ökumenn fólksbíla slösuðust meira ef þeir lentu í árekstri við jeppa heldur en í árekstri við ann- an fólksbíl og að sama skapi slös- uðust ökumenn jeppa minna ef þeir lentu í árekstri við fólksbíl heldur en annan jeppa. Hér kem- ur hæðar og þyngdarmunur jepp- unum til góða en gerir þá að sama skapi hættulegri í umferðinni. ■ BMW 3-línan fékk fimm stjörnur af fimm mögulegum fyrir örygg- isbúnað í síðustu árekstrarpróf- unum Euro NCAP. Alls hlaut 3-lín- an 35 stig í almenna hluta prófun- arinnar, sem var besti árangurinn að þessu sinni í flokki stærri fjöl- skyldubíla. Stigagjöfin skiptist þannig að fyrir árekstur á fram- anverðan bílinn hlaut 3 línan fullt hús stiga og fyrir hliðarárekstur 94% mögulegra stiga. Þá hlaut línan fjórar stjörnur af fimm mögulegum fyrir öryggisbúnað barna, sem er einnig yfir meðal- lagi, og eina stjörnu fyrir öryggi gagnvart gangandi vegfarendum. Árekstrarprófanir Euro NCAP eru þrískiptar og vega niðurstöður úr almenna hlutan- um þyngst, sem mælikvarði fyrir öryggi viðkomandi bíls gagnvart bílstjóra og farþegum. Stjörnugjöfinni fyrir öryggi barna annars vegar og öryggi gangandi vegfarenda hins vegar er síðan ætlað að gefa gleggri mynd af einstökum þáttum öryggisbúnaðarins. ■ Bílaframleiðandinn Toyota ætlar að opna nýja verksmiðju í Kanada, sem verður sjöunda bílaverksmiðja fyrirtækisins í Norður-Ameríku. Verksmiðjan verður í Woodstock í Ontario en þetta er liður í áætlunum fram- leiðandans um að auka heims- framleiðslu á Toyota-bifreiðum. Uppi eru raddir um að Toyota, annar stærsti bílaframleiðandi í heimi, ætli að byggja aðra verk- smiðju í Norður-Ameríku þar sem sala og gróði fyrirtækisins vex og dafnar á því svæði. Toyota er með þrjár verk- smiðjur í Bandaríkjunum; í Kentucky, Indíana og Kaliforníu og ein í viðbót verður opnuð í Texas á næsta ári. Einnig eru verksmiðjur í Mexíkó og Kanada. ■ Ökuþrjótar gómaðir Í Noregi er hart tekið á hraðakstri. Nú er unnið að því að þróa nýjan búnað sem á að tryggja að enn fleiri öku- níðingar náist. Toyota-verksmiðja í Ontario Bílaframleiðandinn breiðir úr sér á bílamarkaðinum í Norður- Ameríku. Toyota notar tegundarheitið Lexus í Norður-Ameríku. Í Noregi eru há- markshraðamörk með því lægsta sem gerist í Evrópu en sektir eru hins vegar hærri þar en víðast annars staðar. Að því er fram kemur á vef FÍB hafa norsk yfirvöld nú ákveðið að herða enn refsingar við hraðakstri. Víða í vegköntum eru eins konar fuglahús eða kassar með hraðamyndavélum sem sjálfvirkt mynda alla þá bíla sem ekið er of hratt. Fram til þessa hefur verið til- tölulega auðvelt að sleppa fram hjá myndavélunum því þær eru vel sýnilegar og því auðvelt að hemla og gefa aftur í þegar maður er kominn fram hjá. Nú á hins vegar að vinna bug á þess háttar ökulagi með nýjum tækni- búnaði sem mælir meðalhraða milli tveggja myndavéla. Búnaðurinn tekur þá tímann sem það tekur bílinn að aka á milli tveggja kassa og í seinni kassan- um er tekin mynd af bílnum ef hann hefur keyrt of hratt. Búnaður af þessu tagi verður settur upp í tilraunaskyni í byrjun þessa mánaðar og gefi hann góða raun má búast við nýrri lagasetn- ingu með haustinu. ■ Í Noregi er há- markshraði með því lægsta sem gerist. BMW 3 kom vel út út úr síðustu árekstrar- prófum Euro NCAP. www.nysprautun.is Viðurkennt CABAS-verkstæði FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.