Fréttablaðið - 02.07.2005, Side 39
15
ATVINNATILKYNNINGARFUNDIR/KENNSLA
Aðalfundur FUF RS 9. júli. 2005
Félag ungra framsóknarmanna í Reykjavíkurkjördæmi suður
boðar til aðalfundar laugardaginn 9. júlí 2005 klukkan 17:30
í húsakynnum Framsóknarflokksins Hverfisgötu 33, 3. hæð.
– Sérstök athygli er vakin á á ákvæði í lögum félagsins um að
framboð þurfi að hafa borist í síðasta lagi sólarhing fyrir aðalfund.
1. Setning.
2. Kosning starfsmanna.
a) Fundarstjóra.
b) Þingritara.
c) Kjörstjórn.
3. Skýrsla stjórnar og umræður.
4. Skýrsla gjaldkera og umræður.
5. Lagabreytingar.
6. Kosningar
a) Formaður.
b) Stjórn og varastjórn.
c) Endurskoðendur reikninga.
d) Kjördæmafulltrúar.
7. Önnur mál.
Dagskrá
Alvöru fluguveiði
kennsla í Vatnsdalsá.
Flugukennsla verður í Vatnsdalsá 2. – 5. ágúst nk.
Kennari verður hinn lunkni fluguveiðimaður Guðmundur
Guðmundsson sem gjörþekkir silungsveiðisvæði Vatns-
dalsár og ef fleiri en fimm skrá sig, verður Pálmi Gunnars-
son eða einhver annar félagi Guðmundar með honum.
Frábært fyrir byrjendur sem og aðra sem illa hefur gengið
að veiða hingað til á flugu. Möguleiki á stórlaxi.
Nánari upplýsingar hjá Magnúsi, s. 898 5695 /
452 4495 og Guðmundi í síma 893 7654.
Kópavogsbær.
Lindir 4.
Hugmyndir að skipulagi. Kynning.
Þriðjudaginn 5. júlí nk. verða kynntar hugmyndir að
nýju deiliskipulagi Linda 4 (Skógarlind). Á svæðinu,
sem afmarkast af Fífuhvammsvegi í suður, Reykjanes-
braut í vestur og norður og Lindavegi í austur er fyrir-
hugað að rísi verslunar- skrifstofu og þjónustuhús-
næði alls um 25.000 m2 að flatarmáli. Í kynningunni
verður m.a. gerð grein fyrir yfirbragði fyrirhugaðrar
byggðar á svæðinu og umferð.
Kynningin fer fram í Lindaskóla og hefst hún kl.
20:30. Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarfulltrúi og for-
maður skipulagsnefndar mun stýra fundinum.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
Óskað er eftir sjálfboðaliðum á aldrinum 18-75 ára til
þátttöku í klínískri rannsókn á rannsóknarlyfinu CEP-1347.
CEP-1347 tilheyrir nýjum flokki lyfja sem hamlar virkni
MAP3K9 erfðavísisins, en talið er að við það muni blóð-
styrkur ýmissa bólguþátta lækka og það hafi áhrif á fram-
vindu astma. Rannsóknin hefur fengið leyfi Vísindasiða-
nefndar, Persónuverndar og Lyfjastofnunar. Aðalrannsak-
andi er Unnur Steina Björnsdóttir, sérfræðingur í lyflækn-
ingum, ofnæmis- og ónæmissjúkdómum og meðrann-
sakendur hennar eru læknarnir Andrés Sigvaldason, Dav-
íð Gíslason, Dóra Lúðvíksdóttir, Eyþór Björnsson, Gunnar
Guðmundsson, Ólafur Baldursson og Kolbeinn Guð-
mundsson.
Megintilgangur rannsóknarinnar er að athuga verkun, ör-
yggi og þol mismunandi skammta af CEP-1347 svo og
áhrif þeirra á blóðþéttni ýmissa bólguþátta sem taldir eru
skipta máli í astma.
Áhætta af þátttöku felst í mögulegum aukaverkunum af
notkun rannsóknarlyfsins, bæði þekktum og ófyrirséðum.
Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur fái langvarandi bata
af meðferð með rannsóknarlyfinu en niðurstöður rann-
sóknarinnar geta leitt til framfara í læknisfræðilegum
rannsóknum og meðferð á astmasjúkdómi.
Um 160 astmasjúklingar munu taka þátt í rannsókninni
sem verður framkvæmd á Læknasetrinu ehf., Mjódd,
Þönglabakka 1 og 6, 109 Reykjavík og á rannsóknarsetri
Íslenskra lyfjarannsókna ehf. – Encode, Krókhálsi 5d, 110
Reykjavík. Eitt af inntökuskilyrðum í klínísku rannsóknina
er að þátttakendur séu/verði arfgerðagreindir með tilliti
til breytileika í MAP3K9 erfðavísinum en sú arfgerðar-
greining fer fram samhliða hjá Íslenskri erfðagreiningu í
tengslum við rannsókn á erfðum astma og ofnæmis.
Einungis þeir sem bera ákveðna breytileika í MAP3K9
erfðavísinum geta tekið þátt í klínísku rannsókninni.
Klíníska rannsóknin tekur yfir 10-12 vikna tímabil og gert
er ráð fyrir 7 heimsóknum á rannsóknarsetur.
Þeir sem kynnu að hafa áhuga og þeir sem ekki hafa tek-
ið þátt í erfðarannsókninni eru beðnir um að leita frekari
upplýsinga hjá Höllu S. Arnardóttur hjúkrunarfræðingi
klínísku rannsóknarinnar í síma 510 9900.
Tekið skal fram að þeir sem svara auglýsingunni hafa á eng-
an hátt skuldbundið sig til að taka þátt í rannsókninni. Taki
þeir þátt, geta þeir dregið sig út úr rannsókninni hvenær sem
er, án þess að gefa sérstaka ástæðu fyrir ákvörðun sinni.
Hefur þú áhuga á að taka
þátt í klínískri lyfjarannsókn
á nýju lyfi við astma?