Fréttablaðið - 02.07.2005, Síða 58
SÍMI 551 9000
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 14 ára
★★★
ÓÖH DV
Sýnd kl. 3.20, 5,40, og 8 B.i. 16 ára
„Skotheld frá A-Ö“
„Afþreying í
hæsta klassa“
★★★ 1⁄2 K&F- XFM
★★★ Blaðið
„Þrælgóð
skemmtun“
★★★ Ó.Ö.H. DV
★★★★ Þ.Þ. FBL
Yfir 28.000 gestir!
★★★
MBL
Sýnd kl. 3.45, 6, 8.30 og 10.40
Hinn eini rétti
Hefur aldrei verið eins rangur!
Frábær gamanmynd sem fór beint
á toppinn í USA.
★★★★★ Fréttablaðið
★★★★1/2 kvikmyndir.is
★★★★ MBL
★★★★ X-FM
★★★1/2 SJ Blaðið 1/2
★★★1/2 Kvikmyndir.com
Yfir 38.000 gestirAðsóknarmestamynd ársins
Sýnd kl. 3, 6 og 9 B.i. 16 ára
★★★ HL MBL
Sýnd kl. 10.10 B.i. 16 ára
SÍÐUSTU SÝNINGAR
SÍÐUSTU SÝNINGAR
★★★ ÓÖH DV
Miðasala í Skífunni,
á event.is og í 575-1522
Gömlu „eitís“ kempurnar í Duran
Duran voru ekkert að tvínóna við
hlutina á frábærum tónleikum sín-
um í Egilshöll á fimmtudaginn. Þeir
byrjuðu á laginu (Reach up for the)
Sunrise af nýjustu plötunni sinni en
keyrðu svo beint í Hungry Like the
Wolf og lýðurinn trylltist enda voru
sennilega fæstir komnir til þess að
heyra nýtt efni frá köppunum.
Duran Duran eiga greinilega
svolítið erfitt með að sætta sig við
það að þeir lifa fyrst og fremst á
fornri frægð og tróðu því nýrra efni
inn á milli í dagskránna og stemn-
ingin datt óneitanlega nokkuð niður
þegar lög á borð við What Happens
Tomorrow, Chains og Taste the
Summer voru tekin en salurinn var
hins vegar vel með á nótunum þeg-
ar Simon Le Bon kyrjaði Come
Undone og Ordinary World sem eru
óumdeilanlega bestu lög sveitarinn-
ar á síðari árum. Simon fékk svo
pásu í Tiger Tiger, instrúmental
lagi, en að því loknu má segja að
tónleikarnir hafi byrjað fyrir alvöru
með The Chauffeur. Gæsahúðin
spratt fram við fyrstu tónana og
hélt út það sem eftir var. Það þarf
auðvitað ekki að hafa mörg orð um
það hversu Save a Prayer hitti í
mark en Simon lét salinn syngja
lungann úr laginu. Drengirnir tóku
Wild Boys með ótrúlegum krafti og
þar kannaðist maður við sína menn;
John mátulega hress á öðrum kant-
inum en Andy dýrvitlaus á hinum
með sólgleraugun og logandi sígar-
ettuna. Uppklappið var svo í einu
orði sagt meiriháttar. Salurinn valdi
lagið Reflex og Girls on Film fylgdi
á eftir og inni í því miðju kynnti
Simon bandið með geggjuðum til-
þrifum. Nánast fullkomnu
prógrammi var svo slúttað með Rio
þannig að þeir allra hörðustu fengu
í rauninni allt.
Það fór aldrei á milli mála að
þarna voru miklir fagmenn á ferð.
Bandið klikkaði hvergi í spila-
mennskunni og Simon, sem á það til
að vera falskur, sló aldrei feilnótu. Í
raun var enginn munur á Duran
Duran þarna og fyrir tuttugu árum.
Úthaldið magnað og stemningin
keyrð upp af stakri snilld. Mér
skilst að þessir tónleikar hafi verið
miklu hressari en stærri tónleikar
Duran Duran í London fyrir tveim-
ur árum og að sveitin hafi gefið
miklu meira af sér í Egilshöll
þannig að það er ljóst að kapparnir
kunnu vel að meta hlýjar móttökur
þeirra þúsunda sem höfðu beðið
þeirra í tvo áratugi.
Tónleikarnir verða öllum alvöru
Duran Duran-aðdáendum ógleym-
anlegir en þeir sem skemmtu sér
ekki í Egilshöllinni á fimmtudaginn
hafa verið á röngum stað á röngum
tíma og hefðu aldrei átt að leggja
leið sína þangað. Þeir sem þekkja
Duran Duran og kunna að meta þá
fengu hins vegar allar óskir sínar
uppfylltar. Enginn þarf að segja
mér að Duran Duran eigi fleiri en
10.000 aðdáendur á Íslandi og þeir
sem sátu heima geta nagað sig í
handarbökin það sem eftir lifir.
Þetta var æði!
Þórarinn Þórarinsson
Ben Affleck og Jennifer Garner
hafa gengið í það heilaga. Þau
giftu sig við látlausa athöfn á
karabískri eyju á miðvikudags-
kvöld. Jennifer er ófrísk að
fyrsta barni þeirra hjóna sem er
væntanlegt í heiminn í nóvember.
Aðeins átján mánuðir eru síðan
Ben sleit trúlofun sinni við aðra
Jennifer, dívuna miklu Jennifer
Lopez. Garner þótti geislandi fal-
leg í hvítum kjól með litla
bumbu. Þetta er fyrsta hjóna-
band Afflecks en Garner var gift
leikaranum Scott Foley. ■
TÓNLEIKAR DURAN DURAN
Í EGILSHÖLLINNI 30.JÚNÍ 2005
Á REYKJAVÍK ROCKS
NIÐURSTAÐA: Enginn þarf að segja mér að
Duran Duran eigi fleiri en 10.000 aðdáendur á
Íslandi og þeir sem sátu heima geta nagað sig í
handarbökin það sem eftir lifir. Þetta var æði!
[ TÓNLEIKAR ]
UMFJÖLLUN
JENNIFER GARNER OG BEN AFFLECK
hafa ekkert viljað tjá sig um samband sitt
við fjölmiðla.
Magna›, ma›ur, magna›!Garner og Affleck í fla› heilaga
Paul McCartney og U2 spila saman
Paul McCartney og U2
hefja Live 8 tónleikana
í Hyde Park-garði
Lundúna í dag með
sameiginlegri útgáfu af
hinu ógleymanlega
Bítlalagi Sgt. Pepper's
Lonely Hearts Club
Band. Þetta sögulega
samstarf er enn einn
gullmolinn sem hægt er
að verða vitni að á þess-
um stærsta tónlistar-
viðburði sögunnar.
Önnur stórfrétt
tengd tónleikunum er
að hugsanlega munu
rokkgoðsagnirnar í
Pink Floyd stíga á svið en það
hefur enn ekki fengist stað-
fest. Það væri í fyrsta skipti í
24 ár sem hljómsveitin spilaði
saman með Roger Waters inn-
anborðs.
Fyrir þá sem ekki nutu
þeirra forréttinda að sjá Dur-
an Duran í Egilshöll á
fimmtudagskvöld geta þeir í
sárabætur séð kappana á Live
8 þar sem þeir verða aðal-
hljómsveitin í Róm.
PAUL MCCARTNEY Hann kom fram
á Live Aid fyrir tuttugu árum síðan
eins og Bono.