Fréttablaðið - 02.07.2005, Page 59

Fréttablaðið - 02.07.2005, Page 59
FRÉTTIR AF FÓLKI Innrásin er girnileg sumarskemmtun, poppkornsmynd af bestu gerð! HHH SV, MBL Ekta stórslysamynd HHH ÓÖH, DV HHHh Kvikmyndir.is HHH ÓHT, RÁS2 George Clooneystefnir nú að því að hitta Tony Blair undir fjögur augu til að ræða málefni Afríku. Leikarinn ætlar að fara til Edin- borgar á G8 fundinn eftir Live 8-tónleik- ana í London. „Ég hef ekki tekið þátt í mannúðarmálum mjög lengi og ætti að hafa byrjað fyrr því margir vinir mínir hafa sinnt þessu í mörg ár,“ viðurkenndi George, en benti á að batnandi mönnum væri best að lifa. Russell Crowe,sem lamdi hótel- starfsmann með síma á dögunum, hefur beðið eigin- konu sína fyrirgefn- ingar með tutttugu milljón króna dem- antshring. Eiginkona hans og barnsmóðir, Danielle Spencer, varð nefnilega alveg æf þegar hún heyrði af líkamsárásinni. Russell vildi með þessari gjöf sýna henni að þótt hann tapi jafnvel frelsinu fyrir atvikið vilji hann alls ekki missa hana. Þegar ColinFarrell og Jamie Foxx kynnt- ust sögðu ein- hverjir vinir Colins að þar hefði skratt- inn hitt ömmu sína. Báðir eru þeir þekktir fyrir að skemmta sér óheyri- lega og fundu því góðan drykkjufé- laga í hvor öðrum. Nú nýlega voru þeir á skemmtistað í Miami og sýndu ekkert farasnið á sér þegar loka átti staðnum. Húsvörður staðarins benti þeim á að klukkan væri orðin sjö að morgni en þá sagði Colin einfaldlega, „við förum ekki fet. Við skulum passa að ónáða þig ekki.“ Leikkonan Heather Locklear, semflestir muna eftir úr Melrose Place, hefur nú talað opinberlega um ástarsamband sitt við Tom Cru- ise. „Ég held að við höfum aldrei kysst. Þetta var meira bara eins og góð vinátta,“ sagði leikkonan snoppufríða. Parið var saman í nokkra mánuði árið 1982 en hún segist aldrei hafa náð góðum tengslum við hann. „Hann var aldrei í bænum og þekkti engann svo ég sagðist geta fylgt honum um allt. Hann þáði það ekki og mér fannst und- arlegt að hann kallaði mig alltaf fröken.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.