Fréttablaðið - 07.08.2005, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
VONSKUVEÐUR um sunnan- og
vestanvert landið með slagveðursrigningu.
Úrkomulítið á Norðaustur- og Austurlandi
og heldur hægari vindur. Hiti 8-15 stig.
VEÐUR 4
SUNNUDAGUR
7. ágúst 2005 - 210. tölublað – 5. árgangur
Frægir tónlistarmenn á
leiðinni til landsins
Fimm tónlistarmenn í
eldri kantinum heiðra
Íslendinga með
nærveru sinni á
næstunni. Von er á
þeim Joe Cocker,
Patti Smith,
Michael Bolton,
Bobby
McFerren og
Alice Cooper.
TÓNLIST 20
Börnum mismunað í
tónlistarnámi
Þegar tvö börn, sem gætu heitið Jón
og Gunna, sækja um tónlistarnám í
tónlistarskóla í Reykjavík er viðbúið að
aðeins annað þeirra komist í námið.
Jón kemst að en Gunna þarf að bíða í
að minnsta kosti ár.
SKOÐUN 8
VEÐRIÐ Í DAG
HRÓKURINN TIL GRÆNLANDS
Minnist Haraldar Blöndal sem var
einn af stofnfélögum Hróksins.
MENNING 29
ÞRÁINN BERTELSSON:
Ósáttur við endurútgáfu
gamanmynda sinna.
FÓLK 34
SKÁKHÁTÍÐ Í TASIILAQ:
LÍFSMYNDIR Á
KLÓSETTPAPPÍR
Búast má við að talsverðar breytingar verði gerðar á virðisaukaskatti:
Skattur á matvæli gæti lækka›
EFNAHAGSMÁL Meðal þeirra tillagna
sem nú eru ræddar innan stjórn-
arflokkanna er að neðra þrep
virðisaukaskatts verði lækkað
niður í allt að sjö prósent. Fyrir-
hugaðar breytingar á tekjuskatts-
kerfinu þar sem tekjuskattur
verður lækkaður um tvö prósent
um næstu áramót eru umfram
þau skattalækkunaráform sem
koma fram í stjórnarsáttmála rík-
isstjórnarinnar. Í honum er gert
ráð fyrir því að tekjuskattur
lækki um fjögur prósent á kjör-
tímabilinu og þar af um eitt pró-
sent um næstu áramót.
Ari Edwald, framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins,
segir að stjórnmálamenn verði að
meta stöðuna í efnahagsmálum og
á vinnumarkaði áður en ákveðið
verður að lækka tekjuskatt.
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðusambands
Íslands, segir að mikilvægara sé
að lækka skatta á matvæli en að
lækka tekjuskatt því að tekju-
skattslækkanir skili sér fyrst og
fremst til þeirra efnameiri.
- hb / sjá síðu 2
FJÖR Á HINSEGIN DÖGUM Rúmlega fjörutíu þúsund manns fögnuðu Gay Pride-deginum í miðborg Reykjavíkur í gær. Hinsegin dagar í
Reykjavík voru haldnir í sjöunda skiptið um helgina. Gleðigangan er fastur liður hátíðarinnar þar sem gengið er niður Laugaveginn í átt til
hátíðarhaldanna við Lækjargötu. Sjá síðu 16
Sí›asti dagurinn!
Útsölulok
ALLT A‹
90% AFSLÁTTUR
MARKA‹UR
Patrekur ætlar sér titilinn
Handknattleiksmaðurinn Patrekur
Jóhannesson er kominn heim til sinna
gömlu félaga í
Stjörnunni eftir
langa dvöl erlendis
sem atvinnumaður.
Hann segist hlakka
mikið til tímabilsins
hér heima og ætlar
sér stóra hluti með liði
sínu í vetur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
JAFNRÉTTI Árni Magnússon félags-
málaráðherra styður heilshugar
helsta baráttumál homma og
lesbía um að öðlast fullan rétt á
við gagnkynhneigða til fjöl-
skylduþátttöku. Þetta kom fram
í ræðu sem Árni hélt á Hinsegin
dögum sem haldnir voru í mið-
borg Reykjavíkur í gær.
„Ég trúi því að innan tíðar
verði réttur homma og lesbía til
að ættleiða börn til jafns á við
gagnkynhneigð pör,“ sagði Árni.
„Að lesbíur í staðfestri samvist
njóti sama réttar og aðrar konur
til tæknifrjóvgunar á sjúkra-
stofnunum og að þess verði ekki
heldur langt að bíða að prestum
og forstöðumönnum safnaða
verði heimilaður réttur, óski
þeir þess, til að gerast vígslu-
menn þeirra sem hyggjast
ganga í staðfesta samvist.“
Árni sagði að árið 1996 hefði
verið stigið stórt skref í jafn-
réttisbaráttu samkynhneigðra
þegar lög um staðfesta samvist
voru sett. Hann sagði hins vegar
að ekki ætti að láta þar staðar
numið. Ættleiðingar og tækni-
frjóvganir samkynhneigðra
væru á meðal þess sem þyrfti að
taka til alvarlegrar skoðunar.
„Ég tek undir það sjónarmið
að meginmarkmið ættleiðingar
er að útvega barni fjölskyldu en
ekki að útvega fjölskyldu barn.
Nauðsynlegt er að tryggja barni
bestu hugsanlegar aðstæður og
ég tel þær geta allt eins verið að
finna hjá samkynhneigðum sem
gagnkynhneigðum foreldrum.“
Í ræðu sinni kallaði Árni á
opnari og hreinskiptari umræðu
um rétt samkynhneigðra til fjöl-
skyldulífs.
„Við þurfum að auka fræðslu
til skólabarna um þessi mál sem
og almennings, til að sporna við
fordómum, því við viljum
standa vörð um að mannvirðing
sé í heiðri höfð í okkar sam-
félagi.“
trausti@frettabladid.is
Vill aukin réttindi
samkynhneig›ra
Félagsmálará›herra vill a› samkynhneig›ir ö›list fullan rétt á vi› gagnkyn-
hneig›a til fjölskylduflátttöku. Hann vill opnari og hreinskilnari umræ›u um
réttindi samkynhneig›ra og auka fræ›slu skólabarna um málefni fleirra.
Formaður Samtakanna '78:
Mjög ánæg›
me› rá›herra
JAFNRÉTTI „Mér þykir gríðarlega
ánægjulegt að hann skuli ganga
svona langt,“ segir Hrafnhildur
Gunnarsdóttir, formaður Samtak-
anna '78, um ræðu Árna Magnús-
sonar félagsmálaráðherra á
Hinsegin dögum í gær.
„Síðan skýrslan um réttarstöðu
samkynhneigðra kom út í fyrra hef-
ur okkur fundist þetta vera sá póll
sem tekinn er í hæðina af stjórn-
málamönnum almennt. Við vorum
þó ekki viss um viðhorf stjórnar-
flokkanna og því er ræða Árna
ánægjuleg,“ segir Hrafnhildur.
Hún segist bíða spennt eftir að-
gerðum og segir að þegar þessum
áfanga verði náð þá verði flest stóru
vígin unnin í réttindabaráttunni.- oá
ÍÞRÓTTIR 26