Fréttablaðið - 07.08.2005, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 07.08.2005, Blaðsíða 10
AFMÆLI Andrés Indriðason, rit- höfundur og dagskrár- gerðarmaður er 64 ára. FÆDDUST fiENNAN DAG 1876 Mata Hari dansari og njósnari. 1904 Ralph Bunche hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1950. 1937 Magic Slim blúsgítaristi. 1960 David Duchovny leikari. 1975 Charlize Theron leikkona. Í sumar hefur verið unnið að lagfæringum á listaverkum Samúels Jónssonar í Selárdal í Arnarfirði. Verkin höfðu látið mjög á sjá enda hafa þau staðið fyrir opnu hafi í hartnær hálfa öld án viðhalds. Félagsskapur áhugamanna var stofnaður fyrir nokkrum árum og hefur hann það meðal annars að markmiði að gera við listaverkin og mann- virki Samúels. Þýski myndhöggvarinn Ger- hard König hóf viðgerðirnar í fyrra og hefur haldið þeim áfram í sumar. Honum hefur orðið vel ágengt og vinnur nú að tengingu vatnsbúnaðarins í ljónagosbrunninum. Ljónagosbrunninn vann Sam- úel með hinn fræga gosbrunn við Alhambra-höllina í Granada á Spáni sem fyrirmynd. Sex ljón mynda boga og snúa kjöftunum út. Hægt er að veita vatni á kerfi sem liggur um ljóninn þannig að vatnsbogi kemur út um kjafta þeirra. Ólafur Engilbertsson, einn áhugamannanna um endurreisn mannvirkjanna í Selárdal, telur að hátt í fjörutíu ár séu síðan vatni var síðast veitt um ljóna- gosbrunninn en Samúel flutti á braut 1967. Því er sögulegrar stundar að vænta í Selárdal í vikunni þegar ljónin spúa úr sér vatni á ný. - bþs „Þetta leggst vel í mig. Ég tel að að þetta sé spennandi og ögrandi starf og hlakka til að takast á við það,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, nýráðinn dagskrárstjóri Rásar 2 og forstöðumaður svæðisstöðva Ríkisútvarpsins. Hvaða breytingar boðar væntanlegur dagskrárstjóri? „Fyrst ætla ég að tala við starfs- fólk og heyra þeirra hugmyndir. Þá vil ég gjarnan ræða við frá- farandi útvarpsstjóra og heyra hans sögu sem og nýráðinn út- varpsstjóra. Eftir það kynni ég áform mín; ég er búin að vera lengi í burtu og held að það sé ekki gáfulegt að vera með stór orð að sinni um hvernig ég ætla að taka á þessu.“ Sigrún hefur búið í Dan- mörku undanfarin átta ár þar sem hún var yfirmaður upplýs- ingadeildar norrænu ráðherra- nefndarinnar og norðurlanda- ráðs. Starfið segir hún hafa ver- ið lærdómsríkt og gefandi en henni fannst vera kominn tími til að söðla um og sló til þegar hún sá stöðu dagskrárstjóra aug- lýsta. „Mér fannst þetta passa vel við það sem mig langaði að taka mér fyrir hendur næst og er mjög glöð yfir að hafa fengið starfið.“ Dagskrárstjóri Rásar 2 er staðsettur á Akureyri og það hugnast Sigrúnu vel enda er hún Akureyringur sjálf. „Fjölskyld- an mín er öll þarna og ég hlakka mikið til að verja tíma með henni.“ Sigrún fer daglega á heimasíðu Moggans og skoðar fasteignaauglýsingar. „Ég vil helst búa sunnan við Glerá, helst uppi á Brekku.“ Hún er búin að setja húsið sitt í Danmörku á sölu og býst við að flytja heim um leið og það selst. „Svo á ég líka eftir að segja upp gömlu vinnunni, þetta er svo nýtilkom- ið,“ segir hún og hlær. Mörgum leikur forvitni á að vita hvort rödd Sigrúnar sjálfrar eigi eftir að hljóma í viðtækjum landsmanna á ný og hún útilokar ekkert í þeim efnum. „Það er aldrei að vita, ég ætla bara að sjá hvernig tíminn leggst. Mér finnst útvarpið skemmtilegur og heillandi miðill sem býður upp á endalausa möguleika.“ ■ 10 7. ágúst 2005 SUNNUDAGUR RABINDRANATH TAGORE (1861-1941) lést þennan dag. Leitar að húsi á Akureyri SIGRÚN STEFÁNSDÓTTIR RÁÐIN DAGSKRÁRSTJÓRI RÁSAR 2: „Ef þú lokar dyrunum fyrir öllum mistökum mun sannleikurinn lokast úti.“ - Rabindranath Tagore var indverskt skáld sem hlaut bókmennta- verðlaun Nóbels árið 1913. timamot@frettabladid.is ANDLÁT Valdimar Jónsson, húsgagna- smíðameistari frá Kringlu í Miðdölum, lést 4. ágúst síðastliðinn. Jóna Benediktsdóttir, Vöglum, Eyjafjarðarsveit, lést 31. júlí síðastliðinn. Guðmundur Benediktsson, fyrrverandi útgerðarmaður frá Árgerði, Árskógs- sandi, lést 2. ágúst síðastliðinn. Magnús G. Helgason, frá Lambastöðum, Seltjarnarnesi, lést í Svíþjóð 2. ágúst síðastliðinn. Guðjón Sævar Jóhannesson, læknir, frá Kleifum í Gilsfirði, lést 1. ágúst síðastliðinn. SIGRÚN STEFÁNSDÓTTIR Hugnast vel að flytja á Akureyri eftir langa fjarveru og geta varið tíma með fjölskyldu sinni. Á þessum degi árið 1958 sneri áfrýjunardómstóll við dómi sem leikskáldið Arthur Miller hafði hlot- ið ári áður fyrir að sýna óamerísku nefnd fulltrúadeildar Bandaríkja- þings vanvirðingu. Miller hlaut dóminn rúmlega ári áður, eftir að hann neitaði að upplýsa nefndina um nöfn meintra kommúnista úr röðum rithöfunda sem hann hafði sótt fund með árið 1947. Skáldið kvaðst ekki vilja koma öðrum mönnum í vandræði með því að gefa upp nöfn þeirra. Lögmaður Millers hélt því fram að eini tilgangur nefndarinnar væri að afhjúpa Miller sjálfan en hefði ekk- ert með misnotkun vegabréfa að gera eins og haldið var fram. Arthur Miller og Marilyn Monroe gengu í hjónaband um svip- að leyti og yfirheyrsl- urnar áttu sér stað og fullyrti lögmaður hans að það væri engin til- viljun, heldur til þess gert að málið fengi sem mesta athygli og til að auka á niðurlæg- ingu Millers. Áfrýjunardómstóllinn hafnaði þessum rök- semdum en sneri þó dómnum við því hann taldi að Miller hefði verið fenginn til skýrslutöku á fölskum forsendum. Miller hafði svarað öllum spurningum um sig fúslega, en bað nefndina um að krefja sig ekki um nöfn annars fólks. Formaður nefndar- innar kvaðst myndu verða við beiðninni en annað kom síðar á daginn. Arthur Miller sagði síðar að eina ástæð- an fyrir réttarhöldun- um væri sú að hann hefði neitað einum nefndarmanni leyfi um að mynda sig með Marilyn Monroe. ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1727 Eldgos hefst í Öræfajökli og stendur í heilt ár. 1772 Útilegumennirnir Fjalla-Ey- vindur og Halla eru hand- tekin á Sprengisandi og færð til byggða. 1959 Fyrsta ljósmyndin er tekin af jörðinni úr gervihnetti. 1960 Fílabeinsströndin hlýtur sjálfstæði frá Frakklandi. 1987 Bandarísk kona verður fyrst til að synda frá Bandaríkj- unum til Sovétríkjanna. 1997 Fyrsti íslenski geimfarinn, Bjarni Tryggvason, fer í geimferð með Discovery. 1998 Bandarísk sendiráð í Kenýu og Tansaníu eru sprengd samtímis. Um 200 látast. 2000 Flugvél á leið frá Vest- mannaeyjum ferst í Skerja- firði. Sex látast í slysinu og í kjölfar þess. Arthur Miller fær uppreist æru Tilkynningar um merkisatbur›i, stórafmæli, andlát og jar›arfarir í smáletursdálkinn hér a› ofan má senda á netfangi› timamot@frettabladid.is. Augl‡singar á a› senda á auglysingar@frettabladid.is e›a hringja í síma 550 5000. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Geir Jóhann Geirsson vélstjóri, Hagamel 30. lést á heimili sínu þriðjudaginn 2. ágúst. Útför hans fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 9. ágúst kl. 13.00. Eybjörg Sigurðardóttir Nína Geirsdóttir Þorvaldur Geirsson Geir Helgi Geirsson Helga Guðjónsdóttir Lovísa Geirsdóttir Valgerður Geirsdóttir Viktor Arnar Ingólfsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Gunnar Jóhannsson smiður, Blikabraut 10, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 9. ágúst kl. 14.00. Hildur Gunnarsdóttir Vilhjálmur Skarphéðinsson Jóhann Gunnarsson Anna María Aðalsteinsdóttir Guðmundur Gunnarsson Gróa Hávarðardóttir Guðrún Bríet Gunnarsdóttir Kolbrún Gunnarsdóttir Gísli Garðarson Hrefna Gunnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn www.steinsmidjan.is UNNIÐ AÐ VIÐGERÐUM Á VERKUM SAMÚELS Í SELÁRDAL: Ljónin fá vatn í munninn á n‡ MEÐ LJÓNUM Þýski myndhöggvarinn Gerhard König hefur dvalið í Selárdal að undan- förnu og lagfært listaverk Samúels Jónssonar. 7. ágúst 1958
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.