Fréttablaðið - 07.08.2005, Side 2

Fréttablaðið - 07.08.2005, Side 2
2 7. ágúst 2005 SUNNUDAGUR Dönsk stjórnvöld kanna hvort þörf sé á auknum hryðjuverkavörnum: Lagasetning vegna hry›juverkahættu DANMÖRK Í kjölfar hryðjuverkanna í London hefur danska ríkisstjórnin skipað nefnd sem á að kanna þörf- ina á lagasetningu til að bregðast við hættunni á hryðjuverkum. Einnig á að meta þörfina á að auka viðbúnað til að bregðast við hryðju- verkaárásum. Þetta er haft eftir Anders Fogh Rasmussen, forsætis- ráðherra Danmerkur, í dönskum fjölmiðlum í gær. Hann segir þó að fara verði var- lega í sakirnar og ekki megi breyta Danmörku í lögregluríki, þar sem myndavélar séu á hverju götuhorni. Á hinn bóginn verði Danir að horfast í augu við hættuna. Forsæt- isráðherrann vill þó ekki stíga jafn stórt skref og Bretar hafa gert í kjölfar hryðjuverkaárásanna og takmarka starfsemi trúarhópa öfga- fullra múslima. Hann segir dönsk yfirvöld þó munu fylgjast með framgangi mála í Bretlandi. Samkvæmt skoðanakönnun, sem danska blaðið Børsen framkvæmdi í vikunni, vilja þrír af hverjum fjór- um Dönum leyfa videóupptökur á opinberum stöðum. Anders Fogh segir þessa niðurstöðu ekki breyta sinni skoðun. Hann vilji ekki setja myndavélar upp á víð og dreif held- ur vilji hann vinna með forsvars- mönnum danskra múslima í því að minnka hættuna á hryðjuverka- árásum í Danmörku. - ks LÖGREGLUMÁL Til stimpinga kom á Dalvík snemma í gærmorgun milli nokkurra manna og enduðu þær með því að einn nefbrotnaði og var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Málsatvik eru talin ljós og að sögn lögreglu verður kært fyrir líkamsárás. Tveir gistu fanga- geymslur lögreglunnar vegna máls- ins. Alls voru fjórir skikkaðir til að gista fangageymslur vegna slags- mála og ölvunarláta á Dalvík í fyrri- nótt. Þrír komust fyrir í fanga- geymslunum á Dalvík en flytja þurfti einn til Akureyrar vegna plássleysis. Margt var um manninn á Dalvík í gærdag á Fiskideginum mikla en að sögn lögreglu fór allt vel fram. Tjaldað var á hverjum einasta tún- bletti í og við bæinn og alls voru til- tækir 110 þúsund matarskammtar úr um 11 tonnum af fiski. Að sögn Júlíusar Júlíussonar, framkvæmda- stjóra fiskidagsins, voru áreiðan- lega fleiri á hátíðinni nú en í fyrra, en þá komu 27 þúsund manns. Lögreglan á Dalvík var með auk- inn viðbúnað í gærkvöld og fékk að- stoð lögregluembættanna bæði í Ólafsfirði og á Akureyri. - oá Hagsmunasamtök vara vi› lækkun tekjuskatts Framkvæmdastjóri Alfl‡›usambands Íslands segir forgangsverkefni a› bæta kjör hinna lægst launu›u og varar vi› skattalækkunum. Samtök atvinnulífsins telja varasamt a› lækka skatta ef upplausn ver›ur á vinnumarka›i. EFNAHAGSMÁL „Með því að bæta skattalækkunum ofan á þá þenslu sem nú er í þjóðfélaginu þá teljum við að verðbólga getið farið af stað enn frekar en nú er orðið og við höfum varað mjög við þessum tímasetningum,“ segir Gylfi Arn- björnsson, framkvæmdastjóri ASÍ. Fréttablaðið greindi frá því í gær að búast megi við því að tekjuskattur lækki um áramótin um tvö prósent og einnig má búast á næstunni við því að neðra þrep virðisaukaskatts, sem einkum leggst á matvæli og nauðsynja- vörur, lækki verulega. Gylfi segir að brýnna sé að bæta kjör þeirra sem lægst hafa launin svo og atvinnuleysisbætur, bætur til öryrkja og ellilífeyris- þega. „Þessir hópar hafa ekki fengið að njóta sömu hækkana og mér finnst að þegar ríkissjóður er af- lögufær eigi að bæta stöðu þess- ara hópa áður en ráðist er í skatta- lækkanir. Lækkun skattprósent- unnar er mun hagstæðari fyrir þá tekjuhærri en þá tekjulægri, þess vegna höfum við verið mun já- kvæðari gagnvart lækkun á virð- isaukaskatti á matvæli og fögnum henni ef af verður,“ segir Gylfi. Ari Edwald, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins, segir erfitt að tjá sig um möguleg- ar breyttar tillögur því þær hafi ekki verið kynntar opinberlega enn sem komið er. „Ég held það hljóti hins vegar að vera svo að það spili inn í af- stöðu stjórnmálamanna hvernig staðan í efnahagsmálum og á vinnumarkaði er. Þá er ég að vísa til þess að ef einhver upplausn verður á vinnumarkaði um ára- mótin vegna endurskoðunar kjarasamninga þá teldi ég mikla goðgá að spila skattalækkunum inn í þá stöðu,“ segir Ari. Ari segir að viðbrögð Samtaka atvinnulífsins á skattalækkunar- tillögur ríkisstjórnarinnar hafi verið jákvæð og telur að frekari skattalækkanir þurfi ekki að að velda meiri þenslu en nú er. Hann segist gera sér vonir um að skattalækkanir fyrir almenning og að sá kaupmáttur sem fólk fær út úr þeim ráðstöfunum til viðbót- ar við launahækkanir, mælist vel fyrir og verði til þess að treysta frið á vinnumarkaði og stuðla þannig að stöðugleika í efnahags- lífinu. hjalmar@frettabladid.is Fyrrum utanríkisráðherra Breta: Cook er látinn LONDON, AP Robin Cook, fyrrver- andi utanríkisráðherra Bretlands, hné niður þegar hann var að ganga á fjallið Ben Stack í hálönd- um Skotlands. Hann var sóttur með sjúkraþyrlu og honum flogið á spítala í Inverness þar sem hann lést í gær. Að sögn félaga hans var Cook í góðu formi og stundaði mikla úti- veru. Ekki hefur enn neitt verið gefið út um dánarorsök hans. Cook gegndi embætti utanríkis- ráðherra í ríkisstjórn Tonys Blair á árunum 1997-2001 en sagði þá af sér vegna andstöðu við utanríkisstefnu stjórnarinnar. Hann varð 59 ára. ■ ÆTTINGJAR FÓRNARLAMBA Saksóknarinn í Palermo útilokar ekki að hryðjuverkamenn kunni að hafa orsakað flugslysið. Flugslys við Sikiley: Nítján létust RÓM, AP Nítján létust þegar túnísk farþegaflugvél fórst við strend- ur Sikileyjar í gærmorgun. Vélin var á leið frá ítölsku borginni Bari til borgarinnar Djerba í Túnis þegar hún brotlenti á Mið- jarðarhafinu. Tuttugu manns lifðu slysið af. Saksóknarinn í Palermo á Sikiley, Piero Grosso, sagði or- sakir slyssins óljósar en útilok- aði ekki að hugsanlega væri um hryðjuverk að ræða. Flugmenn neyddust til að nauðlenda vélinni í kjölfar bilunar í tækjabúnaði. ■ Bankar um afnám vaxtabóta: Stjórnmála- menn ákve›a RÍKISFJÁRMÁL Gera þarf skýran greinarmun á almennum lánveit- ingum og félagslegum stuðningi vegna umræðunnar um afnám vaxtabóta, að sögn Guðjóns Rún- arssonar, framkvæmdastjóra Samtaka banka og verðbréfa- fyrirtækja. Hann segir að núver- andi ríkislánasjóður geri ekki slíkt í dag. „Vaxtagjöld eru ein af fleiri mögulegum leiðum til að veita þeim sem þess þurfa félagslegan stuðning við að koma sér þaki yfir höfuðið, og vel þekkt leið í ná- grannalöndum. Það í hvaða formi hann er og hversu mikill slíkur stuðningur er, verður hins vegar alltaf ákvörðun stjórnmálamanna á hverjum tíma,“ segir Guðjón. - hb Pantaðu þitt eintak strax í dag og kíktu í heimsókn á heimasiðu okkar www.kuoni.is. Nýir og glæsilegir ferðabæklingar Holtasmára 1 • 201 Kópavogur Sími: 5 100 300 • Símbréf: 5 100 309 Netfang: langferdir@langferdir.is Heimasíða: www.kuoni.is Opnunartímar alla virka daga frá 10:00-17:00 Á vit fjarlægra sólarstranda og stórborga Með Apollo í sólin a í allan vetur! Glæsilegar og vandaðar sérferði r með fararstjórum um allan heim SPURNING DAGSINS Heimir, hvernig líst flér á Árna? Árni hefur allt til brunns að bera sem prýðir góðan karlmann og heiðarlegan stjórnmálamann. Árni Magnússon félagsmálaráðherra sagði í ræðu sinni á Gay Pride í gær að honum þætti rétt að samkynhneigðir ættu að njóta sömu réttinda og gagnkynhneigðir til fjölskyldulífs. Heimir Már Pét- ursson er framkvæmdastjóri Hinsegin daga. ANDERS FOGH RASMUSSEN Forsætisráðherra Danmerkur vill fara varlega og ekki stíga jafn stórt skref og Bretar hafa gert. Í BÁRUGÖTU Í GÆRKVÖLD Um fimm hundruð manns gæddu sér á grillmat að lokinni vel heppnuðum degi þar sem þrjátíu þúsund manns komu saman. Þrjátíu þúsund gestir á Fiskideginum mikla á Dalvík: Einn nefbrotinn og fjórir í fangelsi ARI EDWALD telur að skattalækkanir verði að vera í takt við stöðuna á vinnumarkaði en segir að skattalækkunaráform ríkisstjórnarinnar hafi verið mjög jákvæð. Gylfi Arnbjörnsson telur að mikilvægara sé að lækka skatta á matvæli en tekjuskatt þar sem lækkun tekjuskatts- prósentu sé hagstæðari fyrir þá tekjuhærri. ROBIN COOK Hné niður í fjallgöngu í Skotlandi og lést í kjölfarið. Bílvelta nærri Húsavík: Gruna›ur um ölvun LÖGREGLUMÁL Karlmaður um tví- tugt velti bíl sínum í Aðaldals- hrauni á Norðausturvegi skammt sunnan Húsavíkur um klukkan sex í gærmorgun. Maðurinn var einn í bílnum þegar atvikið varð og slasaðist nokkuð við bílveltuna. Var hann því fluttur með sjúkrabíl á Fjórð- ungssjúkrahúsið á Akureyri. Að sögn lögreglunnar á Húsavík er maðurinn grunaður um að hafa verið ölvaður undir stýri. Nokkuð var af fólki á Húsavík í gærnótt vegna Mærudaga sem þar eru haldnir hátíðlegir. Að sögn lögreglu fóru hátíðarhöldin vel fram. - oá M YN D /A U Ð U N N N ÍE LS SO N

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.