Fréttablaðið - 07.08.2005, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 07.08.2005, Blaðsíða 4
LÖGREGLUMÁL Bandarískur her- maður hlaut skurði í hópslags- málum utan við skemmtistaðinn Traffic við Hafnargötu í Reykja- nesbæ á þriðja tímanum í fyrri- nótt. Hermaðurinn fór svo sjálf- ur ásamt félögum sínum með leigubíl á hersjúkrahúsið á her- stöðinni þar sem hann gekkst undir aðgerð. Hann er ekki tal- inn vera í lífshættu. Fjórir Íslendingar og einn er- lendur ríkisborgari voru í kjöl- farið handteknir og vistaðir í fangageymslum lögreglunnar í Keflavík í fyrrinótt. Þeir voru svo yfirheyrðir í gær af rann- sóknalögreglunni í Keflavík og höfðu tveir verið látnir lausir í gær þegar blaðið fór í prentun. Til slagsmála hafði komið milli tveggja hópa, annars vegar sex varnarliðsmanna og hins vegar þeirra fimm sem hand- teknir voru. Lögregla telur lík- legt að hermanninum hafi verið veittir áverkarnir með brotinni glerflösku. Talsvert blæddi úr honum á götuna og var Hafnar- götunni því lokað um tíma í gærnótt á meðan lögregla kann- aði vettvang. Margt fólk var á ferli í miðbæ Keflavíkur þegar atvikið átti sér stað. Skurðirnir sem maðurinn hlaut voru nokkr- ir, misalvarlegir og djúpir. Í nóvember í fyrra lést danskur hermaður í kjölfar hnefahöggs sem honum var veitt í deilum sem upp komu á skemmtistaðnum. Þá er tæpt ár síðan kærð var líkamsárás sem framin var á staðnum en þá braut ungur Keflvíkingur glas í andliti manns með þeim afleið- ingum að hann hlaut alvarlegan skurð á gagnauga. Þá eru enn ótalin nokkur önnur líkamsárás- armál sem upp hafa komið vegna ryskinga inni á staðnum á því rétt rúma ári sem hann hefur verið starfræktur í nú- verandi mynd. Lögregla leitar enn fólks sem getur gefið upplýsingar um at- burði næturinnar og bendir þeim öllum á sem eitthvað vita að hafa samband í síma 420 2400. oddur@frettabladid.is KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 63,42 63,72 112,77 113,31 78,4 78,84 10,505 10,567 9,937 10,995 8,402 8,452 0,5675 0,5709 92,97 93,53 GENGI GJALDMIÐLA 05.08.2005 GENGIÐ HEIMILD: Seðlabanki Íslands SALA 109,1413 4 7. ágúst 2005 SUNNUDAGUR Rússneskur kafbátur fastur á 190 metra dýpi: Bandaríkjamenn og Bretar hjálpa RÚSSLAND, AP Breskir og banda- rískir sjóliðar komu til Kam- tjaska-skaga í gærmorgun með ýmsan búnað til að aðstoða við björgun rússnesks kafbáts sem strandaði á 190 metra dýpi út af skaganum á fimmtudaginn. Strandið bar til þegar netadræsa festist í skrúfu bátsins. Sjö menn eru um borð í kaf- bátnum og áttu loftbirgðir þeirra að duga þar til nú í nótt. Ekki hafði tekist að bjarga þeim þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld. Í gærmorgun náðist talstöðvar- samband við áhöfnina og Vyatsjeslav Milasjevskí, 25 ára gamall skipstjóri kafbátsins, sagði ástand sinna manna viðun- andi þrátt fyrir að hitinn í bátnum væri einungis rétt um fimm gráð- ur. Athygli vekur að Rússar báðu þegar um aðstoð erlendis frá þeg- ar fréttist af strandinu, öfugt við það sem þeir gerðu þegar kafbát- urinn Kúrsk fórst fyrir fimm árum með yfir hundrað sjóliða innanborðs. Í fyrrakvöld tókst að festa taug í kafbátinn en hún slitn- aði þegar reynt var að draga hann upp á grunnsævi. Í gær átti svo að kanna aðstæður á strandstað með fjarstýrðum bandarískum kafbát- um og jafnvel reyna að nýta þá til að klippa á netadræsurnar. - oá Skorinn lífshættulega me› brotinni glerflösku Kjarnorkuáætlun Írana: Semja ekki vi› ESB TEHERAN, AP Íranar höfnuðu í gær sáttaboði Evrópusambandsins. Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, sagði felast í sáttatilögunni að Íran hefði ekki rétt til þess að auðga úran. Úran sem er lítið auðgað er nýtt í kjarnaofna kjarnorkuvera en sé það auðgað meira er það not- hæft í kjarnorkusprengjur. Ahma- dinejad sagði við embættistöku sína í síðasta mánuði að kjarn- orkuver þyrftu til að svara orku- þörf landsins en ekki stæði til að nýta úran til að búa til sprengjur. Ýmsir forkólfar Vesturlanda hafa þó staðhæft að Íranar áætli að koma sér upp kjarnavopnum. ■ GEIMFERJAN DISCOVERY Búist er við ferj- unni aftur til jarðar á morgun. Geimferjan Discovery: Lög› af sta› til jar›ar HOUSTON, AP Geimferjan Discovery er lögð af stað aftur til jarðar eftir ferð að alþjóðlegu geimstöðinni. Ef allt gengur að óskum er búist við því að hún lendi á morgun. Í gær var hún losuð frá alþjóð- legu geimstöðinni þangað sem fluttar voru vistir og mannskapur. Síðast þegar reynt var að lenda geimferju fyrir hálfu þriðja ári fórst geimferjan Columbia með geigvænlegum afleiðingum. Allir áhafnarmeðlimir létust og tæpum fjörutíu tonnum af braki rigndi yfir Texas og Louisiana. ■ HJÁLPARSTARF Rauði kross Íslands ætlar að leggja þrjár milljónir í hjálparstarf vegna hungursneyð- ar sem nú ríkir í Afríkulandinu Níger og nálægum löndum. Karl Sæberg Júlíusson fer svo á næstu dögum til landsins sem sendifull- trúi Rauða kross Íslands og hefur umsjón með öryggismálum vegna hjálparstarfsins. Milljónir þjást nú af næringar- skorti í landinu og sérstaklega er óttast um afdrif barna. Uppskeru- brestur varð í landinu í fyrra og er ástandið að verða nokkuð al- varlegt. - oá VEÐRIÐ Rá›ist var á bandarískan hermann vi› skemmtista›inn Traffic í Keflavík. Ma›urinn var skorinn lífshættulega en kom sér sjálfur á sjúkrahús. Fimm voru handteknir vegna málsins. fietta er flri›ja hættulega líkamsárásin á skemmtista›num á einu ári. PILTUR Í NIGER Milljónir barna þjást af næringarskorti og er ástandið víða orðið mjög alvarlegt. M YN D /A P Rauði kross Íslands: Sendir a›sto› til Nígers FJARSTÝRÐUR KAFBÁTUR Bandarískir sjóliðshermenn undirbúa fjarstýrðan Scorpio-kafbát fyrir björgunarleiðangur að strandstað rússneska kafbátsins á hafsbotni á fimmtudag. SKEMMTISTAÐURINN TRAFFIC Fimm menn voru handteknir vegna hnífstungu við skemmtistaðinn í gærnótt. VÍ KU R FR ÉT TI R/ ÞO RG IL S LOTTÓ ENGINN MEÐ FIMM RÉTTAR Eng- inn var með fimm tölur réttar í lottóinu í gær en heildarfjárhæð fyrsta vinnings var rúmlega þrjár milljónir króna. Þá var eng- inn með fjórar tölur og bónustölu en hæsta vinningsupphæðin var rúmlega sjö þúsund krónur. Einn fékk fjóra rétta í jókernum og hlaut hundrað þúsund krónur í vinning.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.