Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.08.2005, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 07.08.2005, Qupperneq 12
Á þeim sex áratugum sem liðnir eru frá lokum síðari heimsstyrjaldar og samþykkt lýðveldisstjórnarskrár- innar árið 1944 hafa orðið miklar breytingar á hinu alþjóðlega sam- starfsumhverfi Íslands. Þau fáeinu ákvæði stjórnarskrárinnar sem snerta alþjóðatengsl íslenska ríkis- ins hafa staðið óbreytt allan lýð- veldistímann. Þetta veldur því að meðal þess sem helst er til skoðun- ar að breyta í stjórnarskránni eru ákvæðin sem að þessu lúta. Björg Thorarensen, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, á sæti í sérfræðinganefnd þeirri sem er stjórnarskrárnefnd til ráðgjafar um endurskoðun stjórnarskrárinn- ar. Hún segir alþjóðlega samvinnu hafa bein áhrif á líf og umhverfi borgaranna, sem endurspeglist ekki nema að mjög litlu leyti í stjórnar- skránni að óbreyttu. „Það eru nokkur atriði sem er vert að hafa í huga þegar maður skoðar þessi auknu alþjóðlegu áhrif á íslenskt samfélag,“ segir Björg í samtali við Fréttablaðið. Hún bendir á að það er bara eitt ákvæði í stjórnarskránni þar sem segir að forsetinn geri samninga við önnur ríki og eins og endranær er það ráðherra sem framkvæmir það vald hans. Forseti, sem æðsti emb- ættismaður ríkisins, undirritar alla þjóðréttarsamninga sem Ísland verður aðili að og aðeins í ákveðn- um tilvikum þarf að bera slíka samninga undir þingið. Eða eins og segir í 21. grein stjórnarskrárinnar, ef verið er að afsala landi eða setja kvaðir á land eða landhelgi eða er horfa til breytinga á stjórnarhögum ríkisins, þá þarf að bera þessa samninga undir Alþingi. „Í reynd hafa milliríkjasamning- ar verið bornir undir þingið í mikl- um mæli enda er ákvæðið túlkað svo að allir þjóðréttarsamningar sem kalla á lagabreytingar þurfi samþykki Alþingis,“ segir Björg. „En það sem er áberandi í þróun síð- ustu áratuga á þessu sviði er að sumir þjóðréttarsamningar leggja víðtækar skyldur á íslenska ríkið til framtíðar til að koma í framkvæmd ákvöðrunum alþjóðastofnana á til- teknum sviðum í löggjöf eða með öðrum hætti. Þetta er einkennandi fyrir Evrópusamvinnuna og það skipulag sem EES-samningurinn byggir á,“ segir hún. Heimild til framsals ríkisvalds Stjórnarskráin byggir á því að þrír séu æðstu handhafar ríkisvaldsins, löggjafar-, framkvæmda- og dóms- valdið. Og af annarri grein stjórnar- skrárinnar hefur verið talið að það sé ekki hægt að fela einhverri er- lendri stofnun að taka ákvörðun sem er bindandi fyrir þessa hand- hafa ríkisvaldsins, því þeir eru sam- kvæmt stjórnarskránni æðstir, hver á sínu sviði. En Björg segir þróunina vera þá, að í sívaxandi alþjóðlegri samvinnu, sérstaklega í Evrópusamvinnunni, séu alþjóðastofnanir að taka ákvarðanir sem hafa mikil áhrif hér á landi, sem íslenska ríkið hefur til- tölulega litla möguleika á að hafa áhrif á en er skyldugt að innleiða. „Því má velta því fyrir sér hvort verið sé að framselja ríkisvald, sem stjórnarskráin eins og hún er í dag heimilar ekki,“ segir Björg. Samkvæmt orðanna hljóðan er framsal ríkisvalds til erlendra al- þjóðastofnana ekki mögulegt sam- kvæmt stjórnarskrá. En að sögn Bjargar er alþjóðasamvinna engu síður farin að binda handhafa ríkis- valdsins í talsvert miklum mæli. „Það er spurning hvort Ísland þurfi ekki að taka af skarið um að alþjóðlegum stofnunum sé veitt heimild til að taka slíkar ákvarðan- ir,“ segir hún. Það þurfi ekki að vera af hinu slæma, enda um að ræða samvinnu sem yfirleitt sé til hags- bóta fyrir samfélagið. Allar hinar Norðurlandaþjóðirnar – og reyndar flest Evrópuríki – eru að sögn Bjargar búnar að setja ákvæði um heimild til að framselja ríkisvald á afmörkuðum sviðum til alþjóðlegra stofnana, í sínar stjórnarskrár. Þetta sé þó vandmeðfarið. Viss hætta sé á að lýðræðislegt lögmæti ákvarðana verði minna ef þær eru teknar af einhverjum öðrum en kjörnum fulltrúum þeirra sem síð- an eiga að fara eftir þeim ákvörðun- um. En til þess að tryggja að það sé raunverulega vilji þjóðarinnar að fela mönnum að framselja ríkisvald þá er gerð krafa um það til dæmis í stjórnarskrá Danmerkur, en einnig Noregs, Svíþjóðar og Finnlands, að aukinn meirihluta þurfi á þingi ef framselja á ríkisvald til alþjóðlegra stofnana. Björg segir að á Íslandi hafi verið talið að til dæmis aðildin að Evrópska efnahagssvæðinu hafi ekki falið í sér framsal sem brjóti gegn stjórnarskránni. Það mat hafi verið umdeilt á sínum tíma. „Sumir hafa talað um að það hafi skapast stjórnskipunarvenja fyrir því að framselja megi ríkisvald til al- þjóðastofnanan í takmörkuðum mæli, þrátt fyrir að slíka heimild sé ekki hægt að leiða beint af orða- lagi stjórnarskrárinnar. Þetta er eitt af því sem hlýtur að vera nauð- synlegt að skoða varðandi endur- skoðun á stjórnarskránni,“ bendir Björg á. Óumdeilanlega hafi eng- inn alþjóðasamningur haft jafn víð- tæk áhrif á íslenskt samfélag og EES-samningurinn. Alþjóðleg mannréttindasamvinna stór þáttur Annar stór áhrifaþáttur sé alþjóð- leg mannréttindasamvinna. „Við erum aðilar að fjöldamörgum al- þjóðlegum mannréttindasamning- um sem eru farnir að hafa æ meiri áhrif á íslenskan rétt og íslenskir borgarar eru farnir að byggja rétt á þessum ákvæðum, með vísun til samninga eins og Mannréttinda- sáttmála Evrópu, en hann hefur verið lögfestur hér á landi,“ segir Björg. Þó megi segja að stjórnar- skráin taki nú mið af þessu, vegna þess að mannréttindakafla stjórn- arskrárinnar var breytt verulega árið 1995 og færður til samræmis við þessar alþjóðlegu skuldbind- ingar. En Björg segir vert að velta því fyrir sér hvort ekki væri rétt, mið- að við það hversu mikil áhrif al- þjóðasamninga eru á íslenskan rétt, að geta þess í stjórnarskránni sérstaklega að Ísland taki mið af og virði slíkar alþjóðlegar mannrétt- indaskuldbindingar. Jafnvel mætti taka skýrar fram, jafnvel í inn- gangsákvæðum stjórnarskrárinn- ar, að mannréttindi séu einn af hornsteinum lýðræðisins og að ís- lenska ríkinu beri að taka þátt í al- þjóðlegri samvinnu um mannrétt- indi og fylgja alþjóðlegum skuld- bindingum þar að lútandi. Svona ákvæði er að sögn Bjargar til dæm- is í finnsku stjórnarskránni. „Þetta er spurning um það hvort við eigum að viðurkenna mannrétt- indi sem eins af hornsteinum ís- lensku stjórnskipunarinnar og þá með vísan til þeirrar stöðugu þró- unar sem er í gangi á alþjóðlegum vettvangi,“ segir Björg. - aa 12 3. júlí 2005 SUNNUDAGUR STJÓRNARSKRÁ ÍSLANDS Endursko›u› VI. HLUTI Fátt að finna um alþjóðatengsl Samkvæmt 21. grein stjórnarskrárinnar, sem hef- ur staðið efnislega óbreytt frá því að Ísland varð fyrst fullvalda ríki fyrir hálfum níunda áratug, gerir þjóðhöfðingi landsins samninga við önnur ríki, en þó þarf samþykki Alþingis til ef slíkir samningar fela í sér afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða horfa til breytinga á stjórnarhögum. Fleira er ekki að finna í stjórnarskránni um Ísland og umheiminn. Enda er skiljanlegt að þegar verið var að setja Konungsríkinu Íslandi grundvallar- reglur stjórnskipunar sinnar – í beinu framhaldi af heimsstyrjöldinni fyrri – skyldi ekki vera talin þörf á að víkja að alþjóðatengslum landsins með ítarlegri hætti en þetta. Er þjóðhöfðinginn breytt- ist úr konungi í þjóðkjörinn forseta samkvæmt lýðveldisstjórnarskránni árið 1944 varð engin önnur breyting á þessum ákvæðum stjórnarskrár- innar. En á þeim sex áratugum sem síðan eru liðn- ir hefur margt breytst. Áhrifin mikil Eins og Björg Thorarensen lagaprófessor benti á í erindi sem hún flutti á ráðstefnunni „Stjórnarskrá til framtíðar“ fyrr í sumar, snerta alþjóðatengsl lýðveldisins víðara svið íslenskrar stjórnskipunar en álykta mætti af 21. grein stjórnar- skrárinnar. Áhrif alþjóðasamvinnu á lög og réttarframkvæmd eru orðin gríðarlega mikil hér á landi, ekki síst fyrir tilstilli að- ildarinnar að Evrópska efna- hagssvæðinu. En auk Evrópu- samvinnunnar hefur til dæmis aðild Íslands að alþjóðlegum mannréttindasáttmálum lagt kvaðir á handhafa íslensks rík- isvalds og fært íslenskum borg- urum og lögaðilum rétt sem þeir hafa getað sótt til stofnana utan Íslands, svo sem Mannréttindadóm- stóls Evrópu. Af þessu tilefni lagði Björg í ráð- stefnuerindi sínu til að spurt yrði: „Er fullveldið sem gerði Íslendingum kleift að verða virkur þátt- takandi í alþjóðasamfélaginu að fara halloka?“ Önnur spurning er hvort sú merking fullveldis- hugtaksins, sem fram kemur í þessari retórísku spurningu Bjargar, sé úrelt. Krefjast breyttir tímar sívaxandi milliríkja- samvinnu breytts skilnings á full- veldinu? Í stjórnarskránni er ekki gert ráð fyrir því að heimilt sé að framselja neitt af íslensku ríkis- valdi til erlendra eða alþjóðlegra stofnana. Slíkt heimildarákvæði er nú að finna í stjórnarskrám allra hinna Norðurlandanna, og reyndar flestra ríkja Evrópu. Þetta atriði er dæmi um það sem blasir við að at- hugað verði hvort skuli breyta, nú þegar stjórnar- skráin er til endurskoðunar. Auðunn Arnórsson Fullveldi ríkja Hugtak um fullveldi ríkja hefur tekið nokkrum breytingum með auknum al- þjóðasamskiptum. Á einfaldastan hátt má segja að ríki sé fullvalda, hafi það full yfirráð yfir eigin málum, það er að segja að innlend stjórnvöld hafi æðsta löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald. Það hefur einkarétt á beitingu valds inn- an landamæra ríkisins, lagasetningu og eftirliti með framkvæmd laga. Ríkið lýtur því ekki erlendu valdi, hvort sem vald- boðið kemur frá erlendum ríkjum eða stofnunum. Með alþjóðasamningum samþykkja ríki að skerða ákvörðunarrétt sinn, í vissum málum, í skiptum fyrir hagsmuni sem metnir eru meiri en rétturinn til að ríkið geti sjálft tekið allar ákvarðanir, án tillits til óska annarra fullvalda ríkja. Slíkir samningar geta bæði verið gerðir við eitt eða fleiri önnur ríki, eða að mörg ríki geri samning undir nafni alþjóðlegra stofnanna sem þau eru aðili að. Þrátt fyrir að ríki hafi gert slíka samninga, sem skerða ákvörðunarrétt ríkja, er um það deilt hvort þeir skerði fullveldi ríkj- anna. Þeir sem telja að fullveldið sé skert, bera því við að hluti fullveldisins hafi verið framselt með alþjóðasamning- um þar sem ríkið hafi ekki lengur full yf- irráð yfir eigin málum. Aðrir telja að full- veldið sé óskert, að svo miklu leyti sem hægt er að tala um full yfirráð yfir eigin málum. Það eru fullvalda ríki sem ákveða að taka þátt í alþjóðasamning- um, ákvörðun sem hægt er að taka til baka. Það er því að fúsum og frjálsum vilja sem ríki samþykkja að haga sínum málum í samræmi við þá samninga sem fulltrúar ríkisins hafa gert. Slíkt í sjálfu sér þarf ekki að skerða fullveldi, nema samningarnir krefjist þess að ríkisvaldið þurfi í veigamiklum málum að snúast gegn hagsmunum eigin ríkis. Stjórnarskráin, Ísland og umheimurinn „fia› sem er áberandi í flró- un sí›ustu áratuga á flessu svi›i er a› sumir fljó›réttar- samningar leggja ví›tækar skyldur á íslenska ríki› til framtí›ar“ Spurningum, ábendingum og hugmyndum um efni á stjórnarskrársí›u Fréttabla›sins er unnt a› koma á framfæri í tölvupósti. NETFANGIÐ ER: stjornarskra@frettabladid.is Breytt alfljó›atengsl kalla á breytta stjórnarskrá Miklar breytingar hafa or›i› á alfljó›aumhverfinu á l‡›veldistímanum. A› mati Bjargar Thorarensen laga- prófessors eru áhrif flessa mikil á íslenskt samfélag og flau kalla á a› stjórnarskráin endurspegli flau. BINDANDI ALÞJÓÐATENGSL Heimild til framsals ríkisvalds til alþjóðastofnana skortir í stjórnarskrána. BJÖRG THORARENSEN Prófessor við lagadeild Háskóla Íslands og á sæti í sérfræðinganefnd til ráðgjafar stjórnarskrárnefnd um endurskoðun stjórnarskrárinnar. Hún segir alþjóðlega samvinnu hafa bein áhrif á líf Íslendinga, sem endurspeglist ekki í íslensku stjórnarskránni. > Fullveldi > í stjórnarskrá • Hvergi kemur beint fram í stjórn- arskránni að Ísland sé fullvalda ríki. • Hins vegar segir í 1. grein að „Ís- land er lýðveldi með þingbundinni stjórn.“ • Í 2. grein segir „Alþingi og forseti Íslands fara saman með löggjafar- valdið. Forseti og önnur stjórnar- völd samkvæmt stjórnarskrá þess- ari og öðrum landslögum fara með framkvæmdarvaldið. Dóm- endur fara með dómsvaldið.“ • Ein grein fjallar um samninga við önnur ríki, en það er 21. grein. Þar segir: „Forseti lýðveldisins gerir samninga við önnur ríki. Þó getur hann enga slíka samninga gert, ef þeir hafa í sér fólgið afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef þeir horfa til breytinga á stjórnar- högum ríkisins, nema samþykki Al- þingis komi til.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.