Fréttablaðið - 07.08.2005, Blaðsíða 52
NÝJU MENNIRNIR Þeir Alex-
ander Hleb hjá Arsenal og
Shaun Wright-Phillips hjá
Chelsea munu væntanlega
koma eitthvað við sögu í
leiknum á eftir. Báðir hafa
þeir staðið sig framar
vonum á undirbúnings-
tímabilinu og fallið
einstaklega vel inn í leik
sinna liða. Hér til hægri
má sjá líkleg byrjunarlið
liðanna í leiknum í dag
og eins og sjá má er
um nokkuð hefð-
bundna uppstillingu að
ræða á báðum víg-
stöðvum, en hjá
Chelsea er Hollend-
ingurinn Arjen Robben
tæpur vegna meiðsla.
Þetta verður enginn æfingaleikur
7. ágúst 2005 SUNNUDAGUR
Chelsea og Arsenal eigast vi› í dag í hinum árlega leik um Samfélagsskjöldinn í Englandi. Ei›ur Smári
Gu›johnsen ver›ur væntanlega í byrjunarli›i Chelsea og mun spila sem fremsti ma›ur á mi›junni.
FÓTBOLTI Það má segja að enska
knattspyrnan fari formlega af
stað í dag þegar Chelsea og
Arsenal mætast í hinum árlega
leik deildarmeistara og bikar-
meistara um Samfélagsskjöldinn.
Leikurinn fer fram á á hinum
glæsilega Þúsaldarvelli í Cardiff
og er talið líklegt að Eiður Smári
Guðjohnsen verði í byrjunarliði
ensku meistaranna og leiki rétt
fyrir aftan sóknarmanninn Hern-
an Crespo.
Frank Lampard, leikmaður
Chelsea, kveðst búast við
skemmtilegum leik þar sem létt-
leikinn verði allsráðandi, þrátt
fyrir að baráttan í þessum leik
vilji oft verða meiri en leikmenn
og stjórar vilja meina áður en
hann hefst.
Chelsea hefur enn ekki náð að
sigra Arsenal undir stjórn Jose
Mourinho en báðir deildarleikir
liðanna á síðustu leiktíð enduðu
með jafntefli. „Við ætlum að
breyta því í ár. Við höfum heldur
ekki tapað fyrir þeim en við þurf-
um að sigra þá sem fyrst til að
þekkja tilfinninguna sem fylgir
því. Þetta verður enginn
æfingaleikur,“ segir Lampard.
„Arsenal er með frábært lið og
ég held að ákvörðun Arsene Wen-
ger um að gera Thierry Henry að
fyrirliða muni færa ró yfir leik
þeirra. Hann er mikill persónu-
leiki, innan vallar sem utan, og ég
ber mikla virðingu fyrir honum,“
segir Lampard.
Umræðan í Bretlandi um leik-
inn snýst að miklu leyti um hvern-
ig Ashley Cole hjá Arsenal muni
plumma sig, en eins og einhverjir
muna eftir átti hann í leynilegum
viðræðum við forráðamenn Chel-
sea á síðustu leiktíð sem ollu
miklu fjaðrafoki í Englandi. „Ég
ætla bara að láta lítið fyrir mér
fara, spila eins vel og ég get og
vona að það hjálpi okkur að sigra
Chelsea í þessum leik,“ segir Cole
en viðurkennir að hann þurfi að
vinna sér inn traust stuðnings-
manna Arsenal á ný eftir að hafa
skrifað undir nýjan samning við
félagið.
„Ég komst í stöðu þar sem ég
gat ekki unnið. Hefði ég farið frá
félaginu hefði mér verið slátrað
en ég kaus að vera áfram og enn
eru margir sem segja að það hafi
eingöngu verið vegna pening-
anna,“ segir Cole sem fær rúmar
átta milljónir króna í vikulaun.
„En það er ekki satt. Mér líður vel
hjá Arsenal og eina leiðin til að
sýna það er að gera mitt besta í
öllum leikjum. Og ég mun ávallt
leggja mig 100% fram í treyju
Arsenal,“ segir Cole. - vig
2 fyrir 1 til
Ítalíu
11. og 18. ágúst
frá kr. 19.990
Síðustu sætin
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Bologna á Ítalíu þann
11. og 18. ágúst. Nú er tækifæri til að leggja Ítalíu að fótum sér.
kr. 19.990
Flugsæti báðar leiðir með sköttum. 2
fyrir 1 tilboð, 11. og 18. ágúst. Netverð
á mann.
> Við óttumst ...
að farsanum um hvaða þjóð kemur í
heimsókn á Laugardalsvöllinn þann 17.
ágúst til að spila vináttulandsleik við Ísland
sé ekki lokið. Þannig kæmi
það ekkert sérlega á óvart
ef knattspyrnusamband S-
Afríku skyldi fljótlega eftir
helgi hætta við að koma til
Íslands, þar sem það land er
jú enn lengra frá Íslandi
en Kolumbía.
Sæti í A-deild tryggt
Íslenska unglingalandsliðið í körfubolta,
skipað leikmönnum 16 ára og yngri,
tryggði sér áframhaldandi þátttökurétt í
A-deild Evrópumótsins með því að
leggja Belga af velli, 64-56. Hefðu
íslensku strákarnir tapað leiknum hefði
það komið í þeirra hlut að falla niður í
B-deild.
60
SEKÚNDUR
Meiðsli eru... leiðinleg.
Valur, KR eða Þór? Sitt lítið af hverju.
Besta liðið á Íslandi í dag? FH er efst
í deildinni.
Willum Þór er... besti þjálfari landsins
í dag.
Erfiðasti andstæðingur? Meiðslin.
Skora eitt eða leggja upp tvö?
Leggja upp tvö, þá eru meiri líkur á
sigri.
Besta lið sem þú hefur spilað með?
KR 1999, þegar við unnum tvöfalt.
KR er... í öldudal þetta árið.
Besti íslenski íþróttaþulurinn? Ég
hef gaman að Herði Magnússyni.
Stuðningsmenn Vals... hafa staðið sig
frábærlega og gera það vonandi
áfram.
Kaffi eða te? Kaffi, takk.
Besti samherjinn er... allt Valsliðið.
Rokk eða popp? Tek frekar smá rokk.
Besti leikmaður heims er... Zidane.
Íslenski boltinn er... ágætur af
áhugamennsku að vera.
Efnilegasti leikmaður landsins er...
Theodór Elmar Bjarnason hjá Celtic.
GUÐMUNDUR
BENEDIKTSSON
sport@frettabladid.is
LEIKIR GÆRDAGSINS
1. deild karla:
BREIÐABLIK–ÞÓR 1–0
1–0 Kristján Óli Sigurðsson (44.)
VÖLSUNGUR–HK 2–0
1–0 Birkir Vagn Ómarsson (60.),
Arngrímur Arnarsson (90.).
KA–VÍKINGUR Ó. 1–0
1–0 Jóhann Þórhallsson (74.)
STAÐAN:
BREIÐABLIK13 11 2 0 24–7 35
VÍKINGUR R. 13 8 4 1 31–7 28
KA 13 7 3 3 26–12 24
HAUKAR 13 4 3 6 16–17 15
HK 13 3 6 4 12–13 15
VÍKINGUR Ó. 13 4 3 6 10–25 15
VÖLSUNGUR 13 3 3 7 12–18 12
FJÖLNIR 13 4 0 9 19–28 12
ÞÓR 13 3 3 7 16–29 12
KS 13 2 5 6 11–21 11
Enska 1. deildin:
CREWE–BURNLEY 2–1
CRYSTAL PALACE–LUTON 1–2
DERBY–BRIGHTON 1–1
HULL–QPR 0–0
SOUTHAMPTON–WOLVES 0–0
IPSWICH–CARDIFF 1–0
NORWICH–COVENTRY 1–1
READING–PLYMOUTH 1–2
Ívar Ingimarsson lék allan leikinn fyrir
Reading og Bjarni Guðjónsson gerði það
einnig fyrir Plymouth.
SHEFFIELD UTD–LEICESTER 4–1
Jóhannes Karl Guðjónsson lék allan
leikinn á miðju Leicester.
STOKE–SHEFF. WED. 0–0
Þórður Guðjónsson lék ekki fyrir Stoke
vegna meiðsla.
WATFORD–PRESTON 1–2
Skoska úrvalsdeildin:
ABERDEEN–KILMARNOCK 1–2
CELTIC–DUNDEE UTD. 2–0
INVERNESS–RANGERS 0–1
LIVINGSTON–FALKIRK 0–2
MOTHERWELL–DUNFERMLINE 1–0
Þýska úrvalsdeildin:
FC KÖLN–MAINZ 1–0
HAMBURG–NURNBERG 3–0
HANNOVER–HERTHA B. 2–2
DUISBURG–STUTTGART 1–1
W. BREMEN–BIELEFELD 5–2
WOLFSBURG–DORTMUND 2–2
24
> Við vonum ...
.... að hegðun Viggós Sigurðssonar,
landsliðsþjálfara í handbolta, komi ekki
niður á unglingalandsliðinu á HM í
Ungverjalandi sem hefst eftir tæpar
tvær vikur. Miklar væntingar eru
gerðar til íslenska liðsins, sem er
byggt á sama kjarna leikmanna
og urðu Evrópumeistarar u-18
ára liða fyrir tveimur
árum.
Arsenal 4-4-2
Lauren
Kekic
ColeToure
Senderos
Fabregas Gilberto
Hleb Pires
Henry
Reyes
Crespo
Duff Wright-Phillips
Eiður Smári
LampardMakelele
Cech
TerryGallas
FerreiraDel Horno
Chelsea 4-3-3
Stjórn HSÍ hélt áfram að funda um mál Viggós Sigurðssonar í gær:
HANDBOLTI Viggó Sigurðsson,
landsliðsþjálfari í handknattleik,
mun halda starfi sínu að minnsta
kosti fram yfir heimsmeistara-
mót U-21 landsliðs karla í Ung-
verjalandi, en það fer fram dag-
ana 15.-28. ágúst.
Eins og greint var frá í Frétta-
blaðinu í gær, sendi Handknatt-
leikssamband Íslands frá sér yf-
irlýsingu þar sem framkoma
Viggós í flugvél Flugleiða þegar
piltalandsliðið var að koma til Ís-
lands frá Kaupmannahöfn var
hörmuð, en hann hafði þar áfengi
um hönd og var með dólgslæti.
Viggó segist sjálfur ætla að
fara snúa sér að handboltanum
enda stutt í mót. „Ég ætla að
halda mínu striki sem landsliðs-
þjálfari og vonast til þess að ná
sem bestum árangri í Ungverja-
landi. Landslið Íslands í þessum
aldurshópi er virkilega gott og er
til alls líklegt á mótinu.“
Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, segir málefni
Viggós hafa verið rædd til hlítar
og vonast til þess að piltalands-
liðið fái frið til þess að undirbúa
sig fyrir mikilvægt mót í Ung-
verjalandi. „Það eru mikilvægir
leikir framundan hjá piltalands-
liðinu og við ætlum ekki að láta
þetta atvik eyðileggja neitt fyrir
leikmönnum liðsins, sem gætu
vel náð góðum árangri á mót-
inu.“ - mh
Viggó áfram fram yfir HM í Ungverjalandi
VIGGÓ SIGURÐSSON
Miklar vonir eru bundnar
við U-21 landslið Íslands
í handknattleik, en marg-
ir leikmanna liðsins urðu
Evrópumeistarar U-18
ára landsliða fyrir tveim-
ur árum.