Fréttablaðið - 07.08.2005, Page 58
Maður á víst ekki að dæma bók
eftir kápunni og hvað þá hljóm-
sveit eftir útliti liðsmanna. Sjón-
varpið er orðið svo sterkur miðill
í tónlist í dag að það er orðið nær
ómögulegt fyrir hæfileikaríkt
feitt tónlistarfólk að fá sæmilegt
tækifæri. Annars lagið mæta þó
rúsínubollur á svæðið sem skapa
svo upplífgandi tónlist að útlitið
skiptir litlu sem engu máli. Þetta
er ömurlegt, ég veit það, en svona
virðist þetta vera engu að síður.
The Magic Numbers er sett
saman af tveimur systkinapörum
sem búa til ótrúlega aðgengilega
tónlist. Tónlistin er einhverstaðar
á milli The Mama’s and the Papa’s
og Deus. Hljóðfæraskipan er að
mestu hefðbundin, en þau skreyta
lögin með krúttlegum hljóðfær-
um eins og melódíku, klukkuspili
eða einmana fiðlum. Lögin eru
flest á uppsveiflunni og radd-
útsetningar systkina spila stóran
þátt í að skapa afar sérstakan og
merkilega vinalegan hljóðheim.
Textarnir eru flestir vangaveltur
um ástina. Ekki ólíklegt að söngv-
arinn hafi verið að jafna sig á
brunasárum ástarinnar á þeim
tíma sem lögin voru samin. Setn-
ingar á borð við „One more drink
and I’ll be fine, one more girl to
get you off my mind,“ er eitthvað
sem er hættulega auðvelt að
tengja sig við.
Það er engin furða að þessar
rúsínubollur séu tilnefndar til
Mercury-verðlaunanna eftirsóttu.
Þau eru vel að tilnefningunni
komin, það er langt síðan ég hef
heyrt plötu sem ég gæti jafn auð-
veldlega ímyndað mér að höfði til
15 ára indístelpna og matargesti
Bjarna Arasonar. Ég held að það
sé nær ómögulegt að renna þess-
ari elsku í gegn án þess að heillast
með. Þetta er frumraun sem flest-
ar upprennandi sveitir dreymir
um að gera. Plata sem á eftir að
hljóma eins fersk eftir tíu ár og
hún gerir í dag. Fyrir alla þá sem
trúa á lækningarmátt tónlistar.
Birgir Örn Steinarsson
Systkinakærleikur á plasti
THE MAGIC NUMBERS: THE MAGIC
NUMBERS
NIÐURSTAÐA: Niðurstaða: Frumraun The Magic
Numbers er afbragð. Plata fyrir þá sem sækja í
góðar lagasmíðar og vingjarnlega strauma. Fal-
leg plata sem gerir daginn örlítið betri.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI