Fréttablaðið - 27.08.2005, Side 18

Fréttablaðið - 27.08.2005, Side 18
Umsjón: nánar á visir.is Milljóna útsending Bræðurnir í Bakkavör kynntu uppgjör félags- ins í gærmorgun fyrir áhugasömum fjárfest- um og greinendum bankanna. Þetta er fyrsta ársfjórðungsuppgjörið þar sem rekstur Geest kemur við sögu og því margir spenntir að sjá hina nýju Bakkavör í raunstærð, ef svo má að orði komast. Uppgjör Bakkavarar var í stórum dráttum í samræmi við vænting- ar og búast forráðamenn félagsins við að niðurgreiðsla skulda verði komin á það stig í lok næsta árs að félagið sé þá skuldsett í sam- ræmi við framtíðarskipan fjármagns í félaginu. Allt er því á áætlun hjá þeim bræðrum. Ágúst ávarpaði gesti í upphafi fundar og sagði fundinn nú fara fram á ensku í fyrsta sinn. Honum væri varpað yfir netið. „Það eru því milljónir manna sem fylgjast með fundinum,“ sagði Ágúst og glotti við kátínu fundarmanna. Viðvörun hjá Greenspan Á fáa menn í heiminum er betur hlustað en öldunginn Alan Greenspan. Hann hóf upp raust sína og varaði við því að með hækkandi eignaverði væri hætta á að fjárfestar gættu ekki nauðsynlegrar var- úðar. Slíkt gæti endað illa á fjármála- mörkuðum. Menn ættu ekki að taka þeim stöðugleika sem Bandaríkjamenn hafa búið við sem gefnum. Greenspan telur hins vegar að bandarískt efna- hagslíf hafi góðar forsendur til að mæta skyndilegum mótbyr, en sagði verndarstefnu og halla á fjárlögum helstu ógn efnahagslífsins. Þótt hér sé af- gangur af fjárlögum er eflaust margt sem Íslendingar geta tekið til sín í orðum hins vísa öldungs. MESTA HÆKKUN ICEX-15 4.550,4 Fjöldi viðskipta: 246 Velta: 3.944 milljónir +0,29% MESTA LÆKKUN MARKAÐSFRÉTTIR... P/F Atlantic Petroleum tapaði 1,3 milljónum danskra króna á öðrum árs- fjórðungi, eða 13 milljónum íslenskra króna. Hagnaður Landsvirkjunar á fyrstu sex mánuðum ársins nemur 2.008 milljón- um króna samanborið við 645 milljóna króna tap á sama tíma í fyrra. Hlutabréf Pixar Animation Studios Inc. lækkuðu um tvö prósent eftir að bandaríska fjármálaeftirlitið óskaði eftir nánari upplýsingum um uppgjör annars ársfjórðungs. Merck hefur tilkynnt að það hyggist ljúka einhverjum kærum vegna auka- verkana lyfsins Vioxx með sáttum en þúsundir kæra liggja fyrir á félagið. 18 27. ágúst 2005 LAUGARDAGUR Peningaskápurinn… Actavis 41,70 -0,2% ... Bakka- vör 42,00 +1,4%... Burðarás 17,50 +1,2% ... FL Group 15,50 +0,00% ... Flaga 4,05 -0,7% ...HB Grandi 8,55 +0,00% ... Íslands- banki 15,10 +0,00% ... Jarðboranir 20,80 +0,00% ... KB banki 580,00 -0,3% ... Kögun 57,5 +0,00% ... Landsbankinn 21,70 +2,8% ... Marel 62,8 -0,3% ... SÍF 4,70 -2,1% ...Straumur 13,25 - 0,4% ... Össur 88,5 +0,6% Landsbankinn 2,8% Og fjarskipti 2,6% Bakkavör 1,4% SÍF -2,1% Atorka -1,4% Mosaic Fashions -0,8% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Síminn hagnaðist um tæpa 2,2 milljarða á fyrri helm- ingi ársins. Það er betri af- koma en greiningardeildir bankanna spáðu. Hagnaður Símans fyrstu sex mán- uði ársins var tæpir 2,2 milljarðar króna. Á sama tíma í fyrra nam hagnaðurinn rúmum 1,2 milljörð- um. Tekjur félagsins hafa aukist meira en útgjöld á þessum tíma. Mest var tekjuaukningin á far- símasviði, um 450 milljónir króna. Í uppgjörinu munar þó mest um hagnað af sölu hlutabréfa í Straumi fjárfestingarbanka, sem var 702 milljónir króna. Einnig voru seld hlutabréf í gervihnatta- félagi sem skilaði 106 milljónum í hagnað. Arðsemi eigin fjár hækk- aði úr 16 prósentum í tæpt 31 pró- sent. Í tilkynningu Símans til Kaup- hallar Íslands í gær segir að fjar- skiptamarkaðurinn sé í örum vexti og framtíðarhorfur fyrir- tækisins góðar. Síminn hafi ráð- ist í stóra uppfærslu á ADSL- kerfinu til að geta sinnt sjón- varpsþjónustu Símans. „Að upp- færslunni lokinni verður hraðinn meiri, sjónvarpsstöðvum í sjón- varpsþjónustu mun fjölga auk þess sem gagnvirkt sjónvarp er handan við hornið,“ segir í til- kynningunni. Í uppgjörinu kemur fram að Síminn á tæp 90 prósent hluta- fjár í Íslenska sjónvarpsfélaginu, sem rekur Skjá einn. Á tímabil- inu breytti Síminn 750 milljón króna skuld sjónvarpsfélagsins í hlutafé. Ekki er gefið upp á hvaða gengi Síminn keypti hluta- bréfin í Skjá einum. Bæði greiningardeild Lands- bankans og KB banka segja rekstrarárangur Símans á öðrum ársfjórðungi betri en spáð var. Starfsfólk beggja bankanna gerði ráð fyrir því að Síminn myndi hagnast um 780 milljónir króna. Niðurstaðan var hins vegar 928 milljóna króna hagnaður. bjorgvin@frettabladid.is Gagnvirkt sjónvarp handan við hornið KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf ] Fjárfestingarfélagið Atorka Group tapaði um 241 milljón króna á öðrum ársfjórðungi en hagnaðist hins vegar um 659 milljónir á þeim fyrsta. Tapið skýrist af lækkun á stórum eignarhlutum í bresku iðnaðarfyrirtækjunum Low and Bonar og NWF Group en sú lækkun hefur gengið til baka á þriðja ársfjórðungi. Meðal ann- arra eigna Atorku eru Austur- bakki, LÍF og Promens, sem keypti nýverið Bonar Plastics. Arðsemi eigin fjár var rúm tíu prósent á ársgrundvelli, sem er undir markmiðum stjórnar félagsins. Heildareignir voru hinn 30. júní um sautján millj- arðar króna og eigið fé um 8,5 milljarðar. - eþa STYRMIR ÞÓR BRAGASON, FOR- STJÓRI ATORKU Félagið tapaði á öðrum ársfjórðungi um 240 milljónum króna. Hagn- aður varð af starfseminni á fyrri hluta árs. Atorka skilar tapi Hagna›ur Samherja dregst lítillega saman Samherji hagnaðist um 1.065 milljónir króna á fyrstu sex mán- uðum ársins samanborið við 1.098 milljónir króna árið áður. Rekstrartekjur samstæðunnar voru 11,6 milljarðar króna á tíma- bilinu og hafa aukist um helming milli ára en þær voru 7,2 milljarð- ar árið áður. Veltufé frá rekstri nam 1.038 milljónum króna samanborið við 747 milljónir árið áður. Eiginfjárhlutfall Samherja í lok júní var 41 prósent. - dh UM BORÐ Í LOÐNUSKIPI SAMHERJA Rekstrartekjur aukast mikið milli ára. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M LANDSSÍMI ÍSLANDS Þetta er í síðasta sinn sem Síminn skilar uppgjöri á meðan hann er í ríkiseigu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.