Fréttablaðið - 27.08.2005, Blaðsíða 50
Ég fékk málin á aðalleikurun-um og þurfti að finna ein-hverja sem voru svipað
byggðir og jafn háir og þeir,“ segir
Alexía Björg Jóhannesdóttir hjá
Casting, en hún réðst í það verk-
efni að finna menn sem gætu verið
staðgenglar fyrir þá Ryan Phill-
ippe, Jesse Bradford og Jamie Bell
í kvikmyndinni Flags of Our
Fathers á meðan tækniliðið gerði
allt klárt fyrir tökur. „Til þess að
hlífa aðalleikurunum er brugðið á
það ráð að fá fólk sem líkist þeim
að stærð og gerð til að leysa þá af
þegar tæknifólkið þarf að stilla
upp tækjum og tólum. Það getur til
dæmis verið nauðsynlegt að hafa
„stand in“ þegar verið er að stilla
ljósin svo ekki sé verið að þreyta
leikarana að óþörfu.“
Þrír íslenskir strákar, John
Ingi Matta, Atli Þór Albertsson
og Ragnar Snorrason, vinna nú
við að setja sig (bókstaflega) í
spor leikaranna Jesse Bradford,
Ryan Phillippe og Jamie Bell.
Þótt mikill tími fari, að þeirra
sögn, í að sitja á stól og bíða er
„stand in“-starfið gott tækifæri
til að fræðast um allt sem tengist
kvikmyndagerð. Þeir hafa húmor
fyrir starfinu og kalla sig postu-
línsdúkkur leikaranna en að öllu
gamni slepptu fer „stand in“-
starfið fram í návígi við tæknilið-
ið, leikarana og síðast en ekki síst
leikstjórann Clint Eastwood.
Dýrasta Hollywood-mynd ársins
„Þetta er dýrasta myndin sem er
framleidd á þessu ári í Hollywood,“
segir John Ingi en hann hefur
komið að leik í fjölmörgum inn-
lendum og erlendum auglýsingum,
meðal annars fyrir Sony á erlend-
um markaði, og stefnir á nám í
kvikmyndaleik eða kvikmynda-
gerð í Bandaríkjunum. „Fyrir kvik-
myndaáhugamann er ótrúlegt að fá
tækifæri til að fylgjast með
hvernig hlutirnir virka í svona
stórri mynd.“
Atli Þór Albertsson útskrifaðist
úr leiklistardeild Listaháskóla Ís-
lands í vor. Hann tekur undir orð
Johns Inga og segir það mjög fróð-
legt að verða vitni að svona stórri
framleiðslu. „Þó ég sé ekki að leika
í myndinni er frábært að fá að
skyggnast inn í þennan heim og
fyrir gaurinn í mér er þetta toppur-
inn. Þetta er allt svo mikið „mega“.
Að vera inni í platheimi með skrið-
dreka, sprengjum og vélbyssum er
náttúrlega það sem maður þráði
sem krakki,“ segir Atli af einlægri
innlifun.
„Mér finnst líka svolítið snið-
ugt að bera þessa kvikmyndagerð
við það sem ég hef kynnst af leik-
listarheiminum hér heima. Það
virðist vera mun skýrari verka-
skipting og goggunarröð í svona
stórum myndum. Til dæmis
flæddi vatn yfir nokkrar töskur
sem voru notaðar sem leikmunir.
Einhverjar förðunarstelpur hlupu
þá til, til að koma til aðstoðar, en
þeim var sagt að skipta sér ekki af
því að töskurnar væru á sviði bún-
ingadeildarinnar.“
Bannað að reykja nálægt
Eastwood
Atli Þór og John Ingi eru sammála
um að það geisli enn af gamla
spagettívestrasjarmörnum Clint
Eastwood. „Allir á settinu bera
mjög mikla virðingu fyrir Clint,
ekki síst aðalleikararnir. Meira að
segja Ryan Phillippe talar um
myndina sem tækifæri lífs síns,“
segir John Ingi. „Eastwood er al-
gjör goðsögn í Hollywood og það
sem hefur komið mér mest á
óvart er í hversu góðu formi hann
er. Þó hann sé 75 ára hefur hann
kraft á við miklu yngri mann.
Hann klifrar út um allt, er ofan í
bátum klukkutímum saman og vill
enga aðstoð við neitt. Hann er
bara eins og hann birtist í bíó-
myndunum, hefur þetta útlit og er
í einu orði sagt töffari.“
„Maðurinn er eldri en afi
minn,“ segir Atli Þór. „Þótt afi sé
sprækur og elti kanínur út um allt
tún er það afrek út af fyrir sig að
Clint Eastwood standi í þessu öllu
saman. Maður sér hann oft val-
hoppa í Sandvíkinni en af því að
hann er kominn vel á aldur sér
maður hann stundum setjast
þreyttan niður til að pústa.“
„Svo er hann líka hættur að
reykja,“ bætir John Ingi við.
„Maðurinn sem var með vindilinn
saumaðan í kjaftinn fílar nú alls
ekki að hafa sígarettureyk í kring-
um sig. Hann reykti í fjöldamörg
ár en nú er sagt í gríni að enginn
megi reykja í 300 metra radíus frá
honum.“
Slúðrað um stjörnurnar
Töluvert slúður hefur verið birt í
íslensku blöðunum að undan-
förnu um stjörnurnar í Flags of
Our Fathers. Fylgst er með hvert
leikararnir fara út til að
skemmta sér og kenningar hafa
verið í blöðunum um að Ryan
Phillippe hafi látið taka til sín í
kvennamálunum. „Þetta er allt
saman kjaftæði,“ segir John Ingi.
„Það stóð til dæmis í einu blaðinu
að Ryan Phillippe hefði verið að
reyna við einhverja gellu á Kaffi
Óliver á laugardagskvöldið en
hann fór ekki einu sinni þangað
þetta kvöld.“
Á settinu er hins vegar banda-
rískur maður að nafni Sean
Michael Gross sem gæti tengst því
máli því hann þykir ansi líkur Ryan
Phillippe. „Við höfum ekki hitt tví-
farann en líklegast er að þetta sé
áhættuleikarinn hans,“ segir John
Ingi. „Þetta gæti líka verið einhver
Sauðkræklingur með amerískan
hreim,“ leggur Atli Þór til. „Annars
virðast þessir strákar ekki hafa
neinar áhyggjur af kjaftasögunum.
Þeir reyna ekkert að fylgjast með
því hvað er skrifað um þá en stund-
um er komið að máli við þá og lesið
upphátt fyrir þá hvað stendur í
blöðunum,“ segir John Ingi. „Það
er þó satt sem sagt er að þeir hafa
tekið ástfóstri við Prikið.“
Venjulegir töffarar eins og við
„Það sem hefur komið mér hvað
skemmtilegast á óvart við að
fylgjast með gerð þessarar mynd-
ar er að hvort sem þú ert leikari á
Íslandi, í London eða Hollywood
virðist þetta alltaf ganga út á það
sama,“ segir leikarinn Atli Þór.
„Sumir í Flags of Our Fathers eiga
ekki enn fyrir salti í grautinn og
fyrir marga sem eru hér er þessi
mynd ansi stórt tækifæri. Maður
les oft um það í blöðunum að fólk
virðist verða hissa á því þegar það
kynnist stórstjörnum og fattar að
það er bara venjulegt fólk. En við
hverju býst það? Það erum við hin
sem hefjum þau upp til skýjanna
en ekki þau sjálf,“ segir Atli Þór.
Jafnvel þó að stór nöfn úr kvik-
myndaheiminum séu í þessari
mynd eru þessir strákar ekkert
öðruvísi en Björn Hlynur eða
Björgvin Franz. Þó þetta séu
töffarar sem eru fyrir löngu búnir
að hasla sér völl eru þetta líka
bara gæjar í harkinu eins og við
hinir.“
Alexía hjá Casting segir stór-
stjörnurnar vera mjög ánægðar
með lífið og tilveruna á Íslandi og
ekki síst í höfuðborginni Reykja-
vík. „Þetta er mikið ævintýri fyrir
þá og þeir eru svaka glaðir. Hér fá
þeir að vera óáreittir og líður vel á
litlu krúttlegu kaffistöðunum þar
sem enginn er að bögga þá.“
Áætlað er að tökunum hér á
landi ljúki 8. september. „Um
helgina eru stórar tökur í Sandvík
og Krýsuvík og hingað til hefur
allt gengið glimrandi vel og allir
eru glaðir.“
fiegar áhorfandinn hallar sér aftur me› poppkorni› og kóki› í bíó lei›ir hann
sjaldnast hugann a› öllu umstanginu sem fylgir kvikmyndager›inni. Fjöldamörg
störf eru unnin aftan vi› tjöldin og eru algjörlega ós‡nileg áhorfandanum, flar á
me›al starf sem kallast á tungumáli kvikmyndanna „stand in“. fióra Karítas
ræddi vi› flá Atla fiór Albertsson og John Inga Matta, sem eru sta›genglar í
Hollywood og segjast vera postulínsdúkkur leikaranna.
30 27. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Í FÓTSPORUM HOLLYWOOD-STJARNANNA
Innritun í málmiðndeild
kvöldskóla Borgarholtsskóla
Síðasti innritunardagur
í dag
Sími: 535-1716 í málmdeild
www.bhs.is
Kvöldskóli BHS
RAGNAR SNORRASON Aðstoðar Jamie Bell á settinu en er á leið til Prag í tungu-
málanám og kvikmyndagerð.
JOHN INGI MATTA Er sláandi líkur Jesse Bradford og því ekki að undra að hann hafi
verið valinn til verksins.
ATLI ÞÓR ALBERTSSON Fer beint úr leiklistarskólanum í spor Ryan Phillippe.
CLINT EASTWOOD Það er
af sem áður var því nú má
ekki reykja neins staðar
nálægt spagettívestra-
sjarmörnum.