Fréttablaðið - 27.08.2005, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 27.08.2005, Blaðsíða 60
40 27. ágúst 2005 LAUGARDAGUR Ég hef lengi verið með þá kenningu að frasinn „ég elska þig“ sé mjög lítið notaður í íslensku og samsvari engan veginn ensku útgáfunni „I love you“. Svo virðist vera sem „ég elska þig“ sé bara sparifrasi og sé aðallega notaður í ástarsam- böndum en sjaldan við börn eða á milli vina. Hins vegar nota Banda- ríkjamenn „I love you“ sem hvers- dagslega kveðju eins og þeir eigi lífið að leysa. Þegar ég var að horfa á róman- tíska bandaríska gamanmynd í sjónvarpinu um daginn fékk ég sönnun á kenningunni minni. Heimilisfaðirinn á vídeóinu er að faðma dóttur sína og litla stelpan segir þá „I love you“. Nema hvað, þetta var þýtt „þú ert bestur!“ Þýð- andinn ákvað greinilega að það væri óeðlilegt að þýða frasann „beint“ og greip þess í stað til þess ráðs að nota ennþá klaufalegri þýð- ingu á orðatiltæki sem er ekki not- að í íslensku, „you’re the best.“ (Prófið þið að segja „þú ert best(ur)“ næst þegar þið kveðjið einhvern. Ég segi ekki meira.) Bæði enska og íslenska ástar- játningin hafa kosti og galla. „Ég elska þig“ er óneitanlega flottari að því leyti að hún er sterkari, enda ekki ofnotuð. Enska útgáfan státar af meira notagildi en er að sama skapi orðin útþynnt og merkingar- lítil. En Bandaríkjamenn mega þó eiga það að heildarfjöldi ástarjátn- inga per mann á ári er örugglega meiri, á meðan flest okkar á Ísland- inu notum „ég elska þig“ bara við hátíðleg tilefni og þegjum annars. Já, þegjum eða grípum til þess ráðs að sletta með „I love you“ í staðinn. Bæði málin vantar sem sagt annað orð yfir „ég elska þig“ svo hægt sé að nota eitt spari og annað hversdags. Einu sinni gerði ég til- raun til þess að fylla gatið í málinu með „mér þykir vænt um þig“ en það féll ekki í góðan jarðveg. Hér með óska ég því eftir tillögum að nýrri íslenskri ástarjátningu. En nú hætti ég þessum orðaleng- ingum. Ég er að fara á vit hamborg- aralandsins á ný (til að klára námið, það er að segja, ekki vegna ham- borgaranna) og kveð ykkur að sinni. STUÐ MILLI STRÍÐA RÓSA SIGNÝ GÍSLADÓTTIR ÓSKAR EFTIR TILLÖGUM AÐ NÝRRI ÁSTARJÁTNINGU Gat í íslenskunni? M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli 3 2 8 4 1 1 6 9 8 7 5 6 9 7 5 8 3 8 1 4 7 1 2 6 1 8 4 6 2 9 3 4 3 2 6 5 ■ SUDOKU DAGSINS Fylltu út í reitina þannig að hver lína, hver dálkur og hver 3x3 kassi rúmi allar tölurnar á bilinu 1 til 9. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar sinnum í sömu línu, sama dálki eða sama 3x3 kassa. Engin stærðfræðikunnátta er nauðsynleg þó leikið sé með tölum. Þrautin er leyst með rökhugsun og útsjónarsemi. Lausnir, ráðleggingar og upplýsingar eru á www.sudoku.com. Lausn þrautarinnar birtist á sama stað í blað- inu á morgun. 6 5 1 2 4 7 9 3 8 7 8 4 3 9 1 2 5 6 2 3 9 6 5 8 7 4 1 9 1 5 8 2 6 3 7 4 3 7 2 4 1 5 8 6 9 8 4 6 9 7 3 5 1 2 1 9 3 7 6 2 4 8 5 4 6 7 5 8 9 1 2 3 5 2 8 1 3 4 6 9 7 Lausn á gátu gærdagsins Jæja... Þú rannst eftir eldhúsgólfinu og lentir á agúrku? Sem nú situr föst? Það passar! Einmitt! Þá skulum við undirbúa skurðstofu B! Já, læknir! Flissifliss Flissiflissi flisssss Við vorum hræðileg! Læknir og hjúkrunar- kona í óstjórnlegu miskunnarlausu hláturskasti! Ég vona að hann fari ekki með þetta í blöðin! Engar áhyggjur! Þetta mál fer varla lengra! Þetta er flott lag, strákar... Hvað heitir það? „Drullusuga í brúnni sósu“. Ég hélt að við ætluð- um að kalla það „Skotinn í þér“? Það fer eftir því hver spyr. Ojbara! Ég vil ekki heyra meira! Við höfum fegurðarþamkeppni og þú getur valið þann þem er þætaþtur! Ó, en gaman. Hmmm... Þetta verður erfitt félagar... M alim alim ali Vúúú vúúú gjúg- gígjúgg Ma - ma Ég var að borða há- degismat. Æ, Hannes! Þetta er þriðja sokkaparið sem þú týnir í boltalandinu í þessum mánuði! Fyðið- gefðu. Solla, geturðu - Engar áhyggjur mamma! Ég skal finna þá! Jæja...? Ég er með góðar fréttir og slæmar fréttir...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.