Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.08.2005, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 27.08.2005, Qupperneq 62
Dansleikhúsverkið, No, he is white, verður sýnt á opnunarhátíð Reykjavík Dance Festival í kvöld. Höfundar og flytjendur verksins vinna með ólík tungumál, sækja innblástur í sígarettu- pásur og segjast vilja brjóta múra milli listgreina. „Við höfum unnið að dansverkinu í þrjár vikur uppi í Borgarleik- húsi,“ segir þýska leikkonan Anne Tismer en hún er mjög þekkt í heimalandi sínu enda á hún að baki tuttugu ára farsælan leik- hússferil í Þýskalandi. Anne kynntist íslenska dansaranum Margréti Söru Guðjónsdóttur í Berlín þar sem Margrét hefur starfað með framúrstefnu- hópnum Dorky Park. Margrét leiddi Anne og svissnesku leikkonuna Rakel Svaoldelli til fundar við dansarann Svein- björgu Þórhallsdóttur til að semja opnunarverk á Reykjavik Dance Festival. Stelpurnar segja að ekki sé að finna hefðbundinn söguþráð í verkinu No, he is white og að í raun sé best að reyna að skilja sem minnst í því sem fyrir augu ber. „Hugmyndirnar fáum við héðan og þaðan en sýningin verður enn í þróun þegar við flytjum hana á opnuninni í kvöld.“ Innblásturinn sækja listakon- urnar meðal annars í skrafið í kaffipásum. „Við fáum okkur oft ferskt loft fyrir utan leikhúsið,“ segir Rakel Savoldelli. „Þá höfum við meðal annars komið auga á starfsmenn verslunarinnar Bónus þegar það fer út í sígarettupásu. Þar eru bæði Íslendingar og Kín- verjar sem reyta af sér brandara og hlæja mikið saman en við höf- um haft gaman af að fylgjast með því hvernig þau tjá sig við hvert annað.“ „Við erum að vinna mikið með ólík tungumál,“ útskýrir Anne. „Fyrir utan það að hópurinn okkar samanstendur af þýskri og sviss- neskri leikkonu sem tala á ensku við íslenska dansara þá er tungu- mál dansarans og leikarans líka mjög ólíkt. Dansarar nálgast hlut- ina út frá ryþma og hreyfingu en leikarinn nálgast hlutverkið oft út frá sálfræðilegum þáttum. Í þessu verkefni erum við ekki síst að kanna hvað við getum lært hver af annarri.“ Stelpurnar að baki No, he is white taka vinnuaðferðir Dorky Park-listahópsins sér til fyrir- myndar. Stærstu leikhúsin í Berlín berjast nú um að fá að vinna með Dorky Park en stefna hópsins er að brjóta niður múra milli ólíkra listgreina. „Í Dorky Park eru tónlistarmenn fengnir til að dansa og dansarar fengnir til að tala. Þetta er mjög nútíma- legt form og í raun mótmæli við hefðbundinni verkaskiptingu í leikhúsinu,“ segir Rakel. „Í No, he is white blöndum við líka saman ólíkum stílum í söng, dansi, tali og tónlist,“ segir Anne en blústónlist skipar til dæmis veigamikinn sess í dansleikhús- verkinu. „David Kiers hefur samið fyrir okkur tónlist og á mikinn þátt í að skapa undirtón verksins. Við höfum hins vegar ekkert vit á blústónlist og vísar titillinn No, he is white í þrætur okkar um hvort blússöngvarinn sé svartur eða hvítur. Fólk á það til að tala um eitthvað sem það skilur ekki og það getur verið mjög fyndið að hlusta á þess konar sam- ræður.“ Aðeins ein sýning hér á landi verður á verkinu No, he is white en hún verður á Nýja sviði Borg- arleikhússins í kvöld klukkan 20. Að því loknu halda listakonurnar með verkið til Berlínar. Opnunar- hátíð Reykjavík Dance Festival hefst í kvöld klukkan 19 en sjálf hátíðin stendur yfir dagana 1-4. september í Borgarleikhúsinu. thorakaritas@frettabladid.is 42 27. ágúst 2005 LAUGARDAGUR > Ekki missa af ... ...djasshátíðinni Jazz undir fjöllum sem hefst á Skógum undir Eyjafjöllum klukkan 15 í dag. ...opnun á myndlistarsýningu sex ungra myndlistarmanna í húsnæði Vinstrihreyfingarinnar – græns fram- boðs í Hafnarstræti 98 á Akureyri klukk- an 15 í dag. ...tónleikum hljómsveitanna Norton, Sex, Funk og Spilabandsins Runólfs á Grand Rokk klukkan 23 í kvöld. Á vordögum voru tólf listamenn sendir út af örkinni í pörum, sviðslistamaður með mynd- listarmanni, að kanna landamæri listgrein- anna og sækja innblástur til samstarfs. Í fimm daga návígi í óbyggðum Íslands unnu listamannapörin drög að samstarfsverkum. Nú er komið að því að sýna afraksturinn. Verkefnið kallast Break the Ice og er alþjóð- legt norrænt menningarverkefni. Dagskráin hefst klukkan 18 í kvöld í Borgar- leikhúsinu þar sem Jaanis Garancs, Kelly Davis og Peder Bjurman munu sýna verk sitt. Klukkan 20 í Klink og Bank er svo komið að Catherine Kahn og Lise Skou. Dagskránni í dag lýkur svo klukkan 21 á verki Söndru Jogeva, performanslistakonu frá Eistlandi. Dagskrá uppskeruhátíðarinnar heldur svo áfram á morgun, sunnudag og hefst klukkan 18 í Öskjuhlíð og stendur fram eftir kvöldi. menning@frettabladid.is Uppskeruhátí› Break the Ice Blaðrað af fáfræði um blús ! STÓRA SVIÐ KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren Í dag kl 14, Su 28/8 kl 14, Lau 3/9 kl 14, Su 4/9 kl 14, Su 11/9 kl 14 EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON Stórtónleikar Fö 2/9 kl 20 - UPPSELT Fö 2/9 kl 22:30 - UPPSELT KYNNING LEIKÁRSINS Leikur, söngur, dans og léttar veigar Su 11/9 kl 20 Opið hús og allir velkomnir NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN REYKJAVIK DANCE FESTIVAL Nútímadanshátíð 1.-4. september Í kvöld kl. 20 No, he was white (forsýning) höf: Sveinbjörg Þórhallsdóttir, Margrét Sara Guðjóns- dóttir, Anne Tismer og Rahel Savoldelli Videoverk Jared Gradinger Lau 27/8 kl 20. 10 verk eftir 14 höfunda Miðaverð kr 2000 Passi á allar sýningarnar kr 4000 ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Lau 3/9 kl 20, Fi 8/9 kl. 20, Fö 9/9 kl 20, Lau 10/9 kl 20, Su 11/9 kl 20, Fi 15/9 kl. 20 Miðasölusími 568 8000 midasala@borgarleikhus.is Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudag Endurnýjun áskriftarkorta er hafin! Sala nýrra áskriftarkorta hefst laugardaginn 3. september - Það borgar sig að vera áskrif- andi 10. sýn. sun. 28/8 kl. 16 nokkur sæti laus 11. sýn. fim. 1/9 kl. 19 nokkur sæti laus 12. sýn. sun. 4/9 kl. 16 sæti laus ÞÝSKUNÁMSKEIÐ GOETHE ZENTRUM www.goethe.is 551 6061 Kabarett í Íslensku óperunni Næstu sýningar Laugardaginn 27. ágúst kl. 20.00 Sunnudaginn 28. ágúst - Örfá sæti laus Föstudaginn 2. september Laugardaginn 3. september Miðar í síma 511 4200, og á www.kabarett.is Leikhópurinn Á senunni í samstarfi við SPRON “Söngur Þórunnar er í einu orði sagt stórfenglegur...” SH, Mbl. Hamrahlíðarkórinn frumflytur þrjú verk hér á landi á tónleikum sínum á Kirkjulistahátíð í dag. Tónleikarnir hefjast í Hallgríms- kirkju klukkan 18. Verkin sem frumflutt verða eru eftir finnska tónskáldið Olli Kortekangas, Þor- kel Sigurbjörnsson og Atla Heimi Sveinsson. Olli Kortekangas er meðal þekktari samtímatónskálda Finna. Kortekangas óskaði eftir að semja verk fyrir Hamrahlíðarkórinn í tilefni af Soundstreams-tónlistar- hátíðinni í Toronto 2005. Divinum mysterium er tileinkað Hamra- hlíðarkórnum og Þorgerði Ing- ólfsdóttur, stjórnanda kórsins. Verkið Á raupsaldrinum eftir Þorkel Sigurbjörnsson var sumar- kveðja til Þorgerðar vorið 2005. Ljóðið er eftir Þorgeir Svein- bjarnarson (1905-1971) og er í ljóðabók hans Vísum jarðarinnar (1971). Hamrahlíðarkórinn frum- flutti verkið á tónlistarhátíðinni Soundstreams Northern Voices í Toronto í Kanada í júní 2005. Atli Heimir samdi tvo söngva við ljóð Stefáns Harðar Grímsson- ar (1920-2002) fyrir Hamrahlíðar- kórinn og Grím Helgason klar- inettleikara vorið 2005. Grímur og kórinn frumfluttu tónverkið í júní á tónlistarhátíðinni í Toronto. Húm I er upphafsljóð og Húm II er loka- ljóð í ljóðabók Stefáns Harðar, Tengslum, sem kom út 1987. Auk ofantalinna verka syngur kórinn Fjögur íslensk þjóðlög í útsetningu Hafliða Hallgrímsson- ar, tvö íslensk þjóðlög, Úr Lilju og Heilagi Drottinn himnum á í útsetningu Þorkels Sigurbjörns- sonar, Kveðið í bjargi og Vor- kvæði um Ísland eftir Jón Nordal, Vikivaka eftir Atla Heimi Sveins- son, Vorið það dunar eftir Þorkel Sigurbjörnsson og Fögnuð eftir Hauk Tómasson auk verks eftir eistneska tónskáldið Arvo Pärt. HAMRAHLÍÐARKÓRINN Söngvarar Hamrahlíðarkórsins, sem eru á aldrinum 16-22 ára, hafa verið glæsilegir fulltrúar íslenskrar kórtónlistar á söngmótum víða um heim, nú síð- ast á Soundstreams Northern Voices tónlistarhátíðinni í Toronto í sumar. Kórinn frumflytur þrjú verk í Hallgrímskirkju klukkan 18 í kvöld. UPPSKERUHÁTÍÐ Sandra Jogeva og Þórunn Arna Þorgrímsdóttir á fyrsta fundi Break the Ice í vor. Þrjátíu höfundar taka þátt í Bókmennta- hátíðinni í Reykjavík sem verður haldin í sjöunda sinn dagana 11.-17. september. Hátíðin fagnar jafnframt 20 ára afmæli sínu í ár. Höfundar munu lesa úr verkum sínum í Iðnó á hverju kvöldi klukkan 20 á meðan á hátíðinni stendur og verða ís- lenskar og enskar þýðingar aðgengilegar þar sem við á. Flesta daga vikunnar verð- ur dagskrá í Norræna húsinu klukkan 12 og 15 þar sem spjallað verður við erlenda rithöfunda um verk þeirra. Þess má geta að fjölmargar þýðingar á verkum erlendu höfundanna verða gefnar út á næstunni. Vefsíða hátíðarinnar er á slóðinni www.bokmenntahatid.is NO, HE IS WHITE Stelpurnar segja verkið meðal annars lýsa því hvernig fólk á til að skeggræða um hluti sem það hefur alls ekkert vit á. Hamrahlí›arkórinn á Kirkjulistahátí›
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.