Fréttablaðið - 27.08.2005, Qupperneq 63
LAUGARDAGUR 27. ágúst 2005 43
■ ■ TÓNLEIKAR
15.00 Djasshátíðin Jazz undir
fjöllum hefst á Skógum undir Eyja-
fjöllum. Hátíðin er samstarfsverkefni
Áhugahóps um Jazz undir fjöllum og
Byggðasafnsins á Skógum. Skipu-
leggjandi tónlistaratriða er Sigurður
Flosason, saxófónleikari. Alls koma
fram 8 landsþekktir jazztónlistar-
menn, en þeir munu leika saman í
ýmsum samsetningum. Þáttakendur
eru eftirfarandi: Björn Thoroddsen,
Gunnar Gunnarsson Matthías Hem-
stock, Ómar Guðjónsson, Óskar
Guðjónsson,Pétur Grétarsson, Sig-
urður Flosason og Tómas R. Einars-
son.
16.00 Á tólftu tónleikum sumar-
tónleikaraðar veitingahússins Jóm-
frúarinnar við Lækjargötu, laugar-
daginn 27. ágúst, kemur fram stór-
söngvarinn Ragnar Bjarnason
ásamt Tríói Þóris Baldurssonar.
Auk Þóris sem spilar á Hammond
orgel skipa tríóið þeir Jón Páll
Bjarnason á gítar og Erik Qvick á
trommur. Þetta verða lokatónleikar
sumartónleikaraðarinnar á Jóm-
frúnni í ár. Tónleikarnir hefjast kl. 16
og standa til kl. 18. Leikið verður ut-
andyra á Jómfrúartorginu ef veður
leyfir, en annars inni á Jómfrúnni.
Aðgangur er ókeypis.
18.00 Hamrahlíðarkórinn frum-
flytur þrjú verk hér á landi á tónleik-
um í Hallgrímskirkju. Verkin eru eft-
ir Olli Kortekangas, Þorkel Sigur-
björnsson og Atla Heimi Sveinsson.
Auk þess syngur kórinn verk eftir
Arvo Pärt, Jón Nordal, Hauk Tómas-
son og Hafliða Hallgrímsson.
23.00 Norton, Sex, Funk og Spila-
bandið Runólfur leika á Grand
Rokk.
■ ■ OPNANIR
14.00 Arnar Tryggvason opnar sýn-
inguna Húsin í bænum á Café Karó-
línu á Akureyri. Þetta er fyrsta einka-
sýning Arnars, sem útskrifaðist sem
grafískur hönnuður á Akureyri 1995.
15.00 Sex ungir myndlistarmenn
opna húsnæði Vinstrihreyfingarinnar
– græns framboðs í Hafnarstræti
98 á Akureyri með samsýningu.
Þettu eru þau Agnar Hólm Daníels-
son, Baldvin Ringsted, Dögg Stefáns-
dóttir, Hanna Hlíf Bjarnadóttir, Jóna
Hlíf Halldórsdóttir og Karen Dúa
Kristjánsdóttir sem öll sameiginlegt
að hafa stundað nám við Myndlista-
skólann á Akureyri. Opið alla föstu-
daga klukkan 16-18.
15.00 Eiríkur Smith sýnir ný mál-
verk í Hafnarborg. Myndlistarmaður-
inn varð áttræður 9. ágúst síðastlið-
inn.
18.00 Þrjár óvur opna sýningu í
Gallerí Gyllinhæð, Laugavegi 23.
Innsetningar og innri andstæð öfl.
Sýning stendur yfir til 4. sept.
18.00 Darri Lorenzen opnar sýn-
inguna STAÐ SETT í GalleriBOX á
Akureyri. Á sýningunni vinnur Darri
hljóðverk, ljósmyndir og teikningu
sérstaklega inn í rýmið.
■ ■ UPPÁKOMUR
14.00 Myndlistarkonan Habbý
fremur Gjörning nr. 3 við Nonnahús
á Akureyri.
■ ■ BREAK THE ICE
18.00 Uppskeruhátíð norræna
menningarverkefnisins Break the
Ice hefst í Borgarleikhúsinu. Jaanis
Garancs, Kelly Davis og Peder Bjur-
man kynna samstarfsverkefni sitt
sem þau unnu í návígi í óbyggðum
Íslands.
20.00 Catherine Kahn, Irma
Stanaityte og Lise Skou kynna sam-
starfsverkefni sitt í Klink og Bank.
21.00 Sandra Jogeva og Peter
Anderson kynna samstarfsverkefni
sitt, sem kallast Guestbook of the
Heart, í Nýlistasafninu.
Ekki or› á Akureyri
Menningarnótt Akureyrar stend-
ur yfir í allan dag og fram á
rauða nótt. Fjölbreytt dagskrá er
í boði í bænum en klukkan 15
verður opnuð yfirlitssýning á
verkum Jóns Laxdals Halldórs-
sonar í Listasafninu á Akureyri.
Jón Laxdal hefur starfað sleitu-
laust að myndlist sinni í yfir tutt-
ugu ár og er vel þekktur á Akur-
eyri en sýningin sem opnar í dag
og ber heitið „Ekki orð“ mun
bera hróður Jóns víðar en um
Akureyrarbæ.
„Þetta eru mest myndaraðir
eða seríur sem hafa orðið til á
tveimur, þremur árum,“ segir
listamaðurinn Jón Laxdal. „Í
hverri seríu eru allt frá þremur
myndum upp í ríflega hundrað,“
en verkin vinnur Jón aðallega úr
pappír. „Oftast eru þetta kallaðar
klippimyndir en þetta eru þó ekki
teiknimyndafígúrur í anda Errós
heldur klippi ég verkin úr bók-
um, dagblöðum og tímaritum. Ég
tek það sem verður á vegi mínum
en oft raðast brotin upp í verk
sem hægt er að lesa eitthvað
skemmtilegt út úr.“
Gagnrýnandinn Jón Proppé
hefur nú tekið saman bók um
listamanninn að frumkvæði
Listasafnsins á Akureyri í tilefni
af þvi að í vetur verða verk Jóns
til sýnis í Spielhaus Morrison-
galleríinu í Berlín. „Það kom
þýskur galleríisti hingað í Lista-
safnið og sá af tilviljun nokkur
verk eftir mig. Það fór svo að hún
bauð mér að koma til Berlínar til
að halda þar sýningu í mars á
næsta ári,“ segir Jón en ástæðan
fyrir komu þýska galleríútsend-
arans til Íslands gæti ef til vill
verið sú að verk Gabríelu Frið-
riksdóttur hafa áður verið til
sýnis í galleríinu.
Á opnuninni í dag mun Álfrún
Örnólfsdóttir leikkona flytja ljóð
eftir Jón Laxdal en áður en Jón
sneri sér að myndlistinni átti
ljóðagerðin hug hans allan. Sýn-
ingin er unnin í samstarfi við
Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar, og þang-
að fer hún þegar henni lýkur á
Akureyri 23. október. Um svipað
leyti verða verk eftir Jón til sýn-
is í Safni, nútímalistasal Péturs
Arasonar við Laugaveg í Reykja-
vík. Eftir ferðina til Berlínar
endar sýningin svo í Listasafninu
í Færeyjum. ■
JÓN LAXDAL Hefur lengi verið þekktur á
Akureyri en nú fer listasýning hans í ferða-
lag út fyrir bæjarmörkin og endar í Færeyj-
um með viðkomu í Reykjavík og Berlín.
M
YN
D
/S
PE
SS
I
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
24 25 26 27 28 29 30
Laugardagur
ÁGÚST