Fréttablaðið - 27.08.2005, Qupperneq 70
Að hafa húmor fyrir sjálfum sér. Það er mikill og góðurkostur að geta haft húmor fyrir sjálfum sér því eins og
flestir vita er gagnrýni bara eitt form hróss. Það er ekkert
smart að verða brjálaður ef bent er á eitthvað sem betur
mætti fara því oftast er það gert með góðum ásetningi eða
til að slá á létta strengi. Það ber vott um það hversu fólk er
öruggt með sig og sitt athæfi ef það tekur gagnrýninni vel
og hlær bara að öllu saman.
Töskuskraut. Nú er ekki málið að hengja nælur og auka-hluti á sjálfan sig heldur á að skreyta töskuna sína með
öllu mögulegu og ómögulegu. Gamlir stakir eyrnalokkar,
sniðugar lyklakippur og ýmislegt annað er kjörið sem tösku-
skraut. Síðan eiga örugglega allar konur á Íslandi stóra nælu
eftir þá tískubólu, svo nú er um að gera að losa hana úr
peysunni og næla henni í töskuna.
Stórir treflar. Risastórir, prjónaðir treflar eru algjörlegainni. Það er strax byrjað að kólna ískyggilega í veðri og
þá getur stór trefill verið algjör bjargvættur. Þá er líka
hægt að vera í létta jakkanum örlítið lengur og fresta því
þannig að draga fram dúnúlpuna. Góður ullartrefill er eins
og notalegt og móðurlegt faðmlag.
Að vera góður með sig. Einu sinni þótti voða flott að láta rignaaðeins upp í nefið á sér til að sýna og sanna stöðu sína. En
nú þegar stærstu Hollywood-stjörnurnar eru alveg orðnar lausar
við alla stjörnustæla og vilja ekkert fremur en að vera eins og
hver annar meðaljón, þá eru egótripp almúgans alveg úti á túni!
Barmnælur. Nælur geta verið óskaplegafallegar en þegar allar konur eru farnar að ganga með
eins nælur í barminum eru þær bara úti. Hvert sem litið er
eru konur með stórar semalíunælur festar í sig. Nælurnar
virka þó í einstaka tilvikum þegar þær passa inn í heildar-
myndina en þær eru ekkert flottar við einlita pólyesterboli
eins og flestar konur nota þær.
Örmjóir pallíettutreflar. Þessar glitrandi ræmur sem hvereinasta manneskja og hundurinn hennar líka hafa verið
með um hálsinn undanfarið eru úti. Þær veita enga vörn móti
nístandi kuldanum og eru heldur ekkert svo smart. Eini til-
gangurinn með því að vera með svona pallíetturæmu er að
skreyta sig en þá er bara miklu flottara að fá sér fínt hálsmen.
INNI ÚTI
50 27. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Það styttist óðum í að Bachelor-þáttur Skjás eins fari í loftið en
miðað er við dagsetninguna 13.
október. Þessa stundina er verið að
leita að heppilegu húsnæði fyrir
tökur. Á vef Víkurfrétta kemur fram
að aðstandendur þáttarins hafi tekið
glæsilegt íbúðarhúsnæði á leigu við
Bakkaveg í Reykjanesbæ. Um er að
ræða 270 fermetra hús með fimm
svefnherbergjum og stofu með arin
sem myndi væntanlega henta vel
undir rósaafhendinguna. Þá er víst
einnig búið að koma fyrir risastórum
heitum potti sem ætti að rýma allar
skvísurnar og hinn heppna pipar-
svein. Samkvæmt mjög áreiðanleg-
um heimildum blaðsins á íbúi húss-
ins að vera fluttur út en ekki hefur
verið gefið upp hver leigan er, þar
sem það er trúnaðarmál.
Samkvæmt heimildum Frétta-blaðsins var unnið við húsið í
gær og það standsett undir tökur.
Talsmenn þáttarins neituðu að stað-
festa nokkuð og vildu ekkert tjá sig.
Þeir vonast
eftir vinnu-
friði þar
sem vinnsla
við slíkan
þátt sé
mjög flókin
og við-
kvæm. Þeir
munu
einnig leita
til verðandi
nágranna piparsveinsins um að
halda framvindu þáttanna leyndri.
Miklar vangaveltur hafa verið umhverjir séu í fjögurra manna
piparsveinahópnum. Mörg fræg
andlti hafa verið dregin fram við mis-
jafnar undirtektir. Samkvæmt heim-
ildum blaðsins er enginn þeirra
þekkt andlit og því ljóst að ný stjarna
mun fæðast á næstu misserum.
LÁRÉTT
1 örvun 6 skýra frá 7 þurrka út 8 skyldir 9
dýrahljóð 10 ái 12 stykki 14 skjól 15 tveir
eins 16 sem 17 þangað til 18 íþróttafé-
lag.
LÓÐRÉTT
1 kolvetnistegund 2 gil 3 gelt 4 umorðun
5 lík 9 þakbrún 11 brak 13 ryk 14 bý til
voð 17 kringum.
LAUSN
1
6 7
98
10
12 13
1514
16
18
17
11
2 3 4 5
Stór Humar
Medium Humar
Sigin grásleppa
Stór Humar
Medium Humar
Sigin grásleppa
t r r Fréttablaðið greindi frá því í gærað Barði Jóhannsson tónlistar-maður hefði fengið sig fullsaddan
af spurningum Guðmundar Stein-
grímssonar í Kvöldþættinum á
Sirkus á miðvikudag og gengið á
dyr áður en þættinum lauk.
Viðskiptum þeirra Guðmundar
og Barða var þó hvergi nærri
lokið og þeim lenti saman á Öl-
stofunni á fimmtudagskvöldið.
Barða virtist vera meinilla við
Guðmund og ýtti við honum
nokkrum sinnum. „Svo kom bjór-
glas fljúgandi á eftir mér úr þeirri
átt sem hann stóð,“ segir Guð-
mundur, sem skilur hvorki upp né
niður í hegðun Barða. „Hann
hefur kannski ofmetnast á því að
syngja í einhverjum frönskum
spurningaþáttum og útsetja
cover-lög,“ bætir hann við.
Guðmundur segir að þeir hafi
rætt saman um kvöldið þar sem
Barði hafi haldið áfram að gagn-
rýna sig. „Hann ætti kannski að
rifja upp þáttinn sem hann var í
sjálfur, Gnarrenburg, margir
fengu bjánahrollinn þá. Barði
eins og freðin ýsa, minnti dálítið
á Teletubbies,“ segir Guðmundur.
Barði var mjög ósáttur við þær
spurningar sem hann fékk í þætt-
inum. „Hann vildi ræða um tón-
listina og hvernig hefði gengið að
blanda saman ólíkum tónlistar-
stefnum,“ segir Guðmundur. „Ég
veit ekki betur en að ég hafi
spurt hann að þessu í þættinum.
Svörin hans bentu þó til þess að
hann væri enn á máltökuskeiðinu
vegna þess hann virðist eiga í
erfiðleikum með að mynda fleiri
en tvær setningar samfleytt,“
segir Guðmundur. Hann býður
Barða þó hjartanlega velkominn
aftur í þáttinn hvenær sem er.
„Hann má ganga inn og út úr
þættinum eins oft og hann vill
enda hefur hann svo litla nær-
veru að það myndi enginn taka
eftir því hvort sem er.“
Ekki náðist í Barða vegna
málsins þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir.
Kvöldfláttardeilan har›nar
GUÐMUNDUR STEINGRÍMSSON Spark-
ar frá sér og vandar Barða Jóhannssyni
tónlistarmanni ekki kveðjurnar eftir stymp-
ingar á Ölstofunni.
Stærsta verkefnið sem sjónvarps-
stöðin Sirkus ætlar að ráðast í í
haust er raunveruleikaþáttur sem
ber nafnið Ástarfleyið. Mikil
leynd hefur ríkt yfir þættinum en
sögusvið hans verður lúxus-
snekkja við strendur Tyrklands.
„Við erum búin að taka upp kynn-
ingarefni en keppendurnir hafa
enn ekki verið valdir,“ sagði ást-
arkafteinninn Valdimar Örn
Flygenring, sem hefur tekið að
sér þáttarstjórnunina.
Sjö strákar og sjö stelpur
verða valin til þátttöku og er eitt
skilyrðanna að þau séu á lausu svo
það má búast við miklum tilfinn-
ingum og dramatík.
„Þættirnir eru eftir erlendri
fyrirmynd [Love Boat] svo þetta
er allt unnið eftir ákveðinni for-
múlu. Við höldum utan um mán-
aðamótin september/október,“
sagði Valdimar dularfullur. „Ég
verð hálfgerður siðameistari á
staðnum og kem til með að halda
utan um þetta. Ég leiði hópinn og
stjórna því ef farið verður í ein-
hverja leiki eða fólk sent á stefnu-
mót. Svo verð ég þeim bara innan
handar ef eitthvað kemur upp á.“
En af hverju verður hópurinn
við strendur Tyrklands þegar nóg
er af sjó í kringum okkar fallegu
eyju? „Það er miklu exótískara að
vera í þrjátíu til fjörutíu stiga hita
en að vera í gamla vindbelgnum,“
segir Valdimar. „Þetta er svona
sæt og falleg veröld sem flesta Ís-
lendinga dreymir um. Svo er auð-
vitað skemmtilegra að horfa á
fallegt fólk í sól og hita en í kulda-
göllunum,“ segir hann kíminn.
Sirkus tekur á móti umsóknum
frá ungmennum sem vilja taka þátt
í ævintýrinu frá og með 30. ágúst
en umsóknarfrestur rennur út um
miðjan september. Ætlast er til
þess að þátttakendur séu á aldrin-
um tuttugu til þrjátíu ára en áhuga-
samir geta kynnt sér málið á vef-
síðunni www.astarfley.is sem opn-
uð verður í næstu viku. Ekki hefur
verið staðfest hvenær útsendingar
hefjast en ljóst er að þátturinn mun
vekja mikla athygli þegar þar að
kemur. soleyk@frettabladid.is
FRÉTTIR AF FÓLKI
...fær Vala Matt fyrir að vera
alltaf jafn fersk og frábær.
HRÓSIÐ
VALDIMAR ÖRN FLYGENRING: VERÐUR KAFTEINN Á ÁSTARFLEYINU
Fjórtán ástleitin ungmenni
við strendur Tyrklands
LÁRÉTT: 1 Eggjun, 6 Tjá, 7 Má, 8 Aá,
9 Urr, 10 Afi, 12 Stk, 14 Var, 15 Uu, 16 Er,
17 Uns, 18 Fram.
LÓÐRÉTT: 1 Etan, 2 Gjá, 3 Gá, 4 Umritun,
5 Nár, 9 Ufs, 11 Marr, 13 Kusk, 14 Vef,
17 Um.
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR