Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.08.2005, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 27.08.2005, Qupperneq 27
[ SKÓRSpænskir eðalskór frá Salvador Sapena BLS 6 ] SMÁAUGLÝSINGAR Flokkar Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar Góðan dag! Í dag er laugardagur 27. ágúst, 239. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 5.55 13.29 21.01 AKUREYRI 5.33 13.14 20.53 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Galaxyinn hans Guðmundar Þórs Ármannssonar var öskuhaugamatur í Arkansas í Bandaríkjunum þegar Guðmundur fann hann. Nú er hann glæsikerra og sá eini sinnar gerðar á landinu. „Það eru svona átta ár síðan ég keypti þenn- an Ford Galaxy 500 XL. Þá var hann bara hræ. Hann var kominn til Arkansas frá Las Vegas og ég keypti hann af manni sem heitir David. Svo fór ég að gera hann upp,“ segir Guðmundur Þór og horfir ástúðlega á gripinn. Hann kveðst hafa rifið varahluti úr tveimur öðrum bílum sem hann hafi fengið í rusli og sett í þennan. „Vinur minn sprautaði bílinn fyrir mig og ég gerði eitthvað annað fyrir hann. Það er ágætt að hafa vinnuskipti,“ segir hann og neitar því að bíllinn sé búinn að vera honum dýr. „Þetta er ódýrara en golfið,“ fullyrðir hann og bætir við: „Svo er hann búinn að borga sig upp því ég leigi hann út við hátíðleg tækifæri eins og brúðkaup og ek þá sjálfur. Líka í mynda- tökur og myndbönd og hef verið beðið um hann í auglýsingar en átti ekkert að fá fyrir það svo ég spurði bara hvort ég ætti að borga bensínið líka!“ Guðmundur Þór kveðst mikill bílaáhuga- maður og á annan Ford Galaxy, tveggja dyra, sem hefur fylgt honum í þrjátíu ár. En sá rauði á engan sinn líka á landinu. „Þeir þóttu svolítið dýrir þessir bílar enda stórir og innréttingin íburðar- mikil,“ segir Guðmundur Þór, sem fer í bíltúr af og til á eðalvagninum með fjölskylduna innanborðs eða heldur til fundar við aðra bílaáhugamenn. Alls staðar vekur bíllinn at- hygli. „Margir sem labba framhjá honum nema stað- ar til að dást að honum,“ segir eigandinn stoltur. Bíll sem á engan sinn líka Bílaskattar á Íslandi fara yfir 40 milljarða króna á árinu, að því er fram kemur á vef FÍB. Áætlað er að tekjurnar hafi verið um 31 milljarður árið 2004. Aukningin er því um þrjátíu pró- sent sem að mestu má rekja til aukins innflutnings á bílum. Þá bætir hækkun eldsneytisverðs á heimsmarkaði einnig mörgum krónum í ríkiskassann. Enski boltinn er farinn á flug og flugfélögin bjóða nú alls konar boltaferðir. Iceland Ex- press býður til dæmis í sam- starfi við Markmenn ehf. Dag- ana 9. til 11. september ferð til London á leik Chelsea og Sunderland. Ferðin kostar 49.900 krónur. Innifalið er flug, gisting með morgunverði og miði á leikinn. One For You And One For Me er ný netverslun sem selur alls konar tískufatnað. Fókusinn er á götutískuna. For- sprakki heimasíðunn- ar, Deborah Efemini, segist leggja áherslu á að eiga ekki of mörg eintök af hverri flík, til að tryggja að hver og einn geti skapað sinn persónulega stíl. Síðan er mjög lifandi og skipt er um vörur á fjögurra daga fresti. Verð er í enskum pundum, dollurum og evrum og hægt er að fá vörurn- ar sendar heim að dyrum hvar sem maður býr í heiminum. Slóðin er www.oneforyouand- oneforme.com Guðmundur Þór er oft fenginn til að aka brúðhjónum í bílnum rauða. LIGGUR Í LOFTINU [BÍLAR - FERÐIR - TÍSKA] KRÍLIN Eggjakaka er matur sem er kreistur úr hænunum og borð- aður í morgunmat! SMÁAUGLÝSINGAR SÍMI: 550 5000 ÞÚ GETUR PANTAÐ SMÁAUGLÝSINGAR Á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ O.FL. REYNSLUAKSTUR Suzuki Swift er skemmtilegur smábíll BLS 2 LJUBLJANA Lítil stórborg með stórt hjarta BLS 4 FORD GALAXY 500 XL Framleiðsluland: Bandaríkin Árgerð: 1962 Tegund vélar: Thunderbird fjögurra hólfa, 390 kúbik Hestöfl: 335 FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I bílar@frettabladid.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.