Fréttablaðið - 27.08.2005, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 27.08.2005, Blaðsíða 30
Pakkað niður Pakkaðu eins litlu og þú getur og taktu aðeins það sem þú þarft. Ferðin verður þá mun auðveldari fyrir vikið. Ef eitthvað vantar í farangurinn er yfirleitt hægt að útvega sér það á áfangastað og hægt að koma fötum í þvott.[ ] Lítil stórborg me› stórt hjarta Alparnir eru norður af borginni og strandlengja Adríahafsins er skammt frá. Ljubljana, höfuðborg Slóven- íu, er einstaklega vinaleg og notaleg borg. Höfuðborg Slóveníu heitir Ljublj- ana sem þýðir ástkær og þykir það hæfa þessari fallegu og vina- legu borg vel. Ljubljana er ein fá- mennasta höfuðborg Evrópu, smá í sniðum en býr að ríkulegri arf- leifð og hefur allt það sem aðrar höfuðborgir bjóða. Áin Ljubljan- ica rennur í gegnum borgina og niður í vesturhluta Slóveníu. Strandlengja Adríahafsins er í um 150 kílómetra fjarlægð frá borg- inni og Alparnir til norðurs. Borgin er mjög hugguleg með lítilli á og litlum hæðum með hús- um og trjám. Bærinn sjálfur er mjög þéttur, en aðalgatan heitir Slovenska cesta og liggur í gegn- um bæinn í suður í átt frá lestar- stöðinni. Við götuna eru bankar og skrifstofubyggingar, ásamt versl- unum og veitingastöðum. Aðal- gatan liggur að miðbæ gamla hluta borgarinnar þar sem Pres- ernov-torg stendur iðandi af mannlífi, með minnisvarða á því miðju og gegnt því stendur lítil kirkja. Þaðan er hægt að sjá nokkrar brýr sem liggja yfir ána og mikið af veitingahúsum. Í gamla hluta bæjarins eru margar smáar og þröngar götur og stræti þar sem andi fyrri tíma svífur yfir vötnum. Ljubljana er mjög græn borg og þar er mikið af fallegum görðum sem gaman er að ganga um. Þar sem bærinn er ekki mjög stór er nánast ógerlegt að villast þar. Notalegt þykir að rölta þar milli kaffihúsa og versl- ana og heimsækja markaðinn þar sem hjarta borgarinnar slær. Borgin er mjög gömul en Róm- verjar komu þar á fót byggð um árið 50 fyrir Krist og fékk hún að þróast í um 500 ár, eða þar til Hún- ar komu og jöfnuðu hana við jörðu. Skömmu eftir það reisti hópur Slava virki uppi á miðri hæðinni og lítill bæjarkjarni myndaðist í kringum það. Borgin dafnaði og stækkaði fram til ársins 1511 en þá eyðilagði jarðskjálfti stóran hluta hennar. Borgin var byggð upp aftur í endurreisnarstíl. Annar jarðskjálfti skall á árið 1895 og eftir það fékk borgin mikla and- litslyftingu. Árið 1918 varð hún höfuðborg Slóveníu. Á millistríðsárunum breytti arkitektinn Joze Plecnik ásýnd miðbæjarins, og á hann mikinn heiður af ásýnd borgarinnar í dag. Í síðari heimsstyrjöld var Ljublj- ana hertekinn af Ítölum og Þjóð- verjum en vegna gífurlegrar mót- spyrnu borgarbúa var hún girt af með gaddavír. Hún hlaut ekki mik- inn skaða í styrjöldinni og ekki heldur í 10 daga stríðinu 1991. Eft- ir að lýst var yfir sjálfstæði frá Júgóslavíu árið 1991 varð Ljublj- ana aftur höfuðborg Slóveníu og hefur blómstrað æ síðan. ■ GOLF, VEIÐI OG GISTING Gerum tilboð. Efri-Vík ehf 880 Kirkjubæjarklaustur netfang: efrivik@simnet.is • veffang: www.efrivik.is • s: 487 4694 Krókódílakjötið á XL er ljúffengt. Ekta ástralskt – í Danmörku VEITINGASTAÐURINN XL Í ÁRÓSUM BÝÐUR UPP Á FRÁBÆRAN OG FRAMANDI MAT Á HAGSTÆÐU VERÐI. Á Sct. Clemens torv 15 í miðbæ Árósa í Danmörku er stór og voldugur veitinga- staður sem ber það kröftuga heiti XL. Á veitingastaðnum gætir ástralskra áhrifa og er flest á matseðlinum ekta ástralskt. Skammtarnir eru stórir og þetta er svo sannarlega staðurinn til að fá sér framandi og feikigott kjöt. Á matseðlinum er til dæmis emúakjöt, kengúrukjöt, krókódílakjöt og kjöt af villigelti. Sunnudaga til fimmtudags er sérstakt ástralskt hlaðborð frá klukkan 17 á daginn og þá er hægt að gæða sér á öllu því besta sem kokkurinn hefur upp á að bjóða. Grænmetisætur þurfa ekki að óttast því staðurinn býður upp á meira en kjöt. Rækjukokkteill, kræklingur og súpa dagsins eru engir eftirbátar kjötsins. Ekki skemmir fyrir að karókístemning ríkir á staðnum öll föstudags- og laug- ardagskvöld. Þá er bara um að gera að taka didsjerídúið með og fíla sig sem ekta Ástrala – í Danmörku. Lítil á rennur í gegnum borgina og víðsvegar eru fallegar brýr. Ljubljana er falleg borg með mikla sögu að baki. Kaffihús og veitingastaðir finnast í þröng- um strætum gamla bæjarins. LJUBLBLJANA Höfuðborg Slóveníu Íbúar: 275.000 Tákn borgarinnar: Dreki FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G ET TY
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.