Fréttablaðið - 27.08.2005, Side 72

Fréttablaðið - 27.08.2005, Side 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 70,- Þú ræður matseðlinum. 50 02 .V .B s met sy S AEKI re tn I © 395,- 495,- BLANDA BLANK ryðfrítt stál Ø20 sm BLANDA glerskál Ø20 sm ANNONS pottasett 3 stk. ryðfrítt stál 350,- SVEPA glös 12 stk. 1.490,- 1.490,- KONCIS ofnskúffa MIXA eldhúsáhöld 3 stk. REDA plastbox 5 stk. 1.490,- KVITTO skurðarbretti 890,- KAFFE pressukanna 8 bollar 1.290,- INBJUDAN kaffibollar með undirskál 6 stk. 41x32 sm 45x30 sm AFGREIÐSLUTÍMI Laugardaga 10 - 18 Sunnudaga 12 - 18 virka daga10 - 20 NÝR RÉTTUR Kryddbakaður lax með graslaukssósu, kartöflum og grænmeti 490,- NÝR VÖRULISTI Sleggjudómur Nú hefur yfirlögregluþjónn upplýstað Menningarnótt í Reykjavík hafi verið við það að leysast upp í alls- herjar óeirðarástand og að lögreglan hafi átt fullt í fangi með að halda aftur af fjórum óþjóðaklíkum – og er þá ekki verið að vísa í gamla fjórflokka- kerfið sem ennþá þrífst með örlitlum tilbrigðum niðri á þingi – sem gengu um og voru með derring við gangandi vegfarendur, stofnandi til slagsmála við mann og annan. Sextíu á móti ein- um. SVONA dagur eins og síðasta Menn- ingarnótt – og er alltaf gaman að fá einu sinni á ári að tala um dag sem nótt, en hvað um það – svona dagur ætti auðvitað að minna okkur á það að oft og tíðum erum við ekkert sér- staklega skemmtileg sem svona hóp- ur til að koma saman á fjöldasam- komum, Íslendingar. Það hentar okkur ekki alltaf. Skrílslæti eru eitt tærasta form leiðinda ásamt öskrum og nuddi og tuði og barningi og öðru slíku. Og Íslendingar virðast stund- um vera langskólagengnir í ná- kvæmlega þessu. AF HVERJU ætli þetta óþol í þjóð- inni stafi, svo ég spyrji eins og Sir David Attenborough myndi spyrja ef svo vildi til að hann birtist hér aftur og nú til þess að taka saman efni í dýralífsþátt. „Forvitnileg teg- und,“ myndi hann segja og blása þungt út um nasirnar. „Af hverju er þessi tiltekna tegund mannskepn- unnar sem hér býr svona stympinga- gjörn, svona æst en þó svona þurr á manninn, laus við mannasiði og skeytingarlaus um eigin framkomu við aðra? Við skulum skoða málið.“ ER það veðurfarið? Það skyldi þó aldrei vera að gamla veðurfarskenn- ingin frá Frakklandi sé rétt og að í okkur sé stöðugt rok og rigning, norðangaddur, sviptivindar og aðeins einstaka sinnum heiðríkja. Aðrir myndu eflaust vilja kenna sögu þjóð- arinnar og uppruna hennar um. Höfum við ekki alltaf verið óttalegir ólátabelgir? Egill Skallagrímsson var nú ekki beint kurteis. Svo getur líka verið að þetta sé nýtilkomið út af efnahagslegum uppgangi þjóðarinn- ar og við séum almennt orðin of- dekruð og firrt, nýrík í hugsun og at- ferli, útjöskuð, stressuð og uppstökk. Ég veit það ekki. AÐRIR benda á að hér hafi einungis verið um afmarkaða hópa að ræða sem fóru um með ruddaskap á Menningarnótt og ekki megi alhæfa um þjóðina út frá nokkrum svörtum sauðum. Og auðvitað er það svosem rétt, en ef ekki má alhæfa verður vandasamt að tala um nokkuð yfir höfuð, því hver nennir að hlusta á endalausa fyrirvara og neðanmáls- greinar um að þetta og hitt sé vissu- lega ekki alfarið svona og þetta sé meira svona en hinsegin? Í LJÓSI þess að það er eindreginn ásetningur minn að alhæfa um skap- gerð þjóðarinnar í ljósi viðburða á Menningarnótt er endanlegur sleggjudómur minn um málið eftir- farandi: Íslenska þjóðin er snarbiluð. BAKÞANKAR GUÐMUNDAR STEINGRÍMSSONAR ÍSKALDUR EINN LÉTTUR Málum bæinn RAUÐAN!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.