Fréttablaðið - 09.10.2005, Page 66
> Við hrósum ...
... liðum Víkings/Fjölnis og Selfoss sem
unnu frækna sigra um helgina á liðum
Stjörnunnar og HK. Báðum fyrrgreindu
liðunum höfðu verið
spáð tveimur neðstu
sætunum í upphafi
móts og að sama skapi
var hinum tveimur
spáð góðu gengi.
Þetta eru sannarlega
óvænt úrslit og góð
fyrir deildina.
Tap í fyrsta leik
Sigurður Þorvaldsson og Hlynur
Bæringsson töpuðu í fyrsta leik sínum
með Leeuwarden í hollensku
úrvalsdeildinni. Liðið tapaði fyrir
Capitals, 88–81, á útivelli.
sport@frettabladid.is
26
> Við óskum ...
.... Valsstúlkum velfarnaðar gegn
Evrópumeisturum Potsdam en liðin
mætast í fyrri viðureign þeirra í
fjórðungsúrslitum
Evrópukeppni félagsliða
kvenna á Laugardalsvelli í
dag. Þetta er einn stærsti
leikur sem íslenskt félagslið
hefur leikið í seinni tíð.
Valsmenn bi›u lægri hlut á heimavelli í EHF-keppninni í handbolta í gær en
flrátt fyrir fla› eru fleir komnir áfram í keppninni flar sem fleir unnu d‡rmæt-
an sex marka sigur í Finnlandi.
Útileikurinn kom Val áfram
60
SEKÚNDUR
Rakel Dögg er ... handboltakona úr
Stjörnunni.
Garðabær er ... besti bærinn.
Stjarnan er ... flott félag.
Handbolti er ... skemmtilegasta
íþróttin.
Ljóskur eru ... flottar.
Besta handboltakona allra tíma?
Anja Andersen.
Popp eða rokk? Bæði bara.
Aðalsteinn Eyjólfsson er ... frábær
þjálfari.
DHL-deildin er... á uppleið.
Diet, light eða venjulegt? Diet.
Fallegastur? Ég bara hreinlega veit
það ekki.
Justin eða Usher? Justin.
O.C. eða One Tree Hill? One Tree Hill
klárlega.
Djamm eða vídeó? Bara bæði.
MEÐ RAKEL
DÖGG BRAGAD.
LEIKIR GÆRDAGSINS
EHF-keppni karla:
VALUR–SJUNDEA 28–31
Mörk Vals: Baldvin Þorsteinsson 11,
Mohamadi Latoufi 5, Sigurður Eggertsson 4,
Fannar Friðgeirsson 2, Ingvar Árnason 2,
Kristján Þór Karlsson 2, Hjalti Pálmason 2.
Valur vann samanlagt, 61–58.
DHL-deild karla:
STJARNAN–VÍKINGUR/FJÖLNIR 23–25
Mörk Stjörnunnar: David Kekelia 5, Arnar
Theódórsson 5, Björn Friðriksson 4, Þórólfur
Nielsen 3, Kristján Kristjánsson 2,
Gunnlaugur Garðarsson 1, Bjarni
Gunnarsson 1, Björn Óli Guðmundsson 1,
Patrekur Jóhannesson 1.
Mörk Víkings/Fjölnis: Sverrir Hermannsson
6, Sveinn Þorgeirsson 5, Árni Þórarinsson 4,
Björn Guðmundsson 4, Pálmar Sigurjónsson
3, Brjánn Bjarnason 2, Sæþór Fannberg 1.
ÍBV–FH 30–29
Mörk ÍBV: Mladen Cacic 10, Davíð Þór
Óskarsson 8/6, Ólafur Víðir Ólafsson 4, Jan
Vtipel 3, Mikal Dosdalik 3, Goran
Kuznanovski 2/1.
Mörk FH: Andri Berg Haraldsson 7/3, Valur
Örn Arnarson 5, Hjörtur Hinriksson 5, Heiðar
Örn Arnarson 5, Sigursteinn Arndal 3, Finnur
Hansson 2, Linas Kalasauskas 2.
STAÐA EFSTU LIÐA:
FRAM 4 4 0 0 110–96 8
ÍR 5 3 1 1 179–155 7
KA 4 2 2 0 117–108 6
SELFOSS 5 2 1 2 147–160 5
FYLKIR 5 2 1 2 120–118 5
ÞÓR AK. 5 2 1 2 138–135 5
DHL-deild kvenna:
ÍBV–VÍKINGUR 29–27
Mörk ÍBV: Simona Vintila 7/1, Pavla
Plaminkova 5, Ragna Karen Sigurðardóttir 5,
Ingibjörg Jónsdóttir 4, Renata Horvath 3,
Ester Óskarsdóttir 2, Eva Björk Hlöðversdóttir
2, Sæunn Magnúsdóttir 1.
Mörk Víkings: Natasha Damljanovic 4,
Sigrún Brynjólfsdóttir 4, Hekla Daðadóttir 3,
Þórhildur Björnsdóttir 2, Gyða Ingólfsdóttir 2,
Ásta Agnarsdóttir 1, Margrét Egilsdóttir 1.
VALUR–FH 23–26
Mörk Vals: Ágústa Björnsdóttir 9, Arna
Grímsdóttir 4, Drífa Skúladóttir 4, Hafrún
Kristjánsdóttir 2, Anna Guðmundsdóttir 1,
Kolbrún Franklin 1, Sigurlaug Rúnarsdóttir 1,
Rebekka Skúladóttir 1.
Mörk FH: Maja Grönbek 8, Gunnur
Sveinsdóttir 7, Ásdís Sigurðardóttir 5, Guðrún
Drífa Hólmgeirsdóttir 2, Berglind Ósk
Björgvinsdóttir 2, Eva Albrechtsen 2, Þóra
Björg Helgadóttir 1.
GRÓTTA–KA/ÞÓR 32–24
Mörk Gróttu: Ivana Veljkovic 7, Þórunn
Friðriksdóttir 6, Gerður Einarsdóttir 5, Karen
Smidt 5, Arndís María Erlingsdóttir 4,
Karólína Gunnarsdóttir 1, Kristín Þórðardóttir
1, Laufey Guðmundsdóttir 1, Tinna
Jökulsdóttir 1, Hera Bragadóttir 1.
Mörk KA/Þórs: Inga Dís Sigurðardóttir 11,
Jurgita Markevicuit 5, Guðrún Helga
Tryggvadóttir 3, Sandra Kristín Jóhannesdóttir
2, Guðrún Linda Guðmundsdóttir 1, Erla H.
Tryggvadóttir 1, Arna Rut Gunnarsdóttir.
STAÐA EFSTU LIÐA:
VALUR 4 3 0 1 102–84 6
ÍBV 3 2 1 0 88–59 5
STJARNAN 3 2 1 0 83–64 5
SS-bikarkeppni karla:
ÞRÓTTUR VOGUM–STJARNAN 2 25–27
LEIKNIR–KA 21–51
1. deild karla í körfubolta:
ÍS–KFÍ 75–80
Þýska úrvalsdeildin:
KRONAU/ÖSTR.–GUMMERSBACH 28–28
MELSUNGEN–MINDEN 35–31
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði sex
mörk fyrir Minden í leiknum.
WILHELMSHAVENER–PFULLINGEN 27–21
Gylfi Gylfason skoraði tvö mörk fyrir Wilh.
Haukar leika í Meistaradeild Evrópu í Slóveníu í dag:
HANDBOLTI „Þetta er mjög grimmt
lið og þeir eru fljótir að refsa
fyrir hver einustu mistök, skora
mikið úr hraðaupphlaupum. Það
er ljóst að við verðum að eiga
toppleik til að eiga möguleika á
móti þeim. Ég sá þá spila gegn
þessu ítalska liði og þar unnu
þeir öruggan sigur,“ sagði Páll
Ólafsson, þjálfari Hauka, sem
leika í Meistaradeildinni í dag
gegn Gorenje Velenje í Slóveníu
en leikurinn verður sýndur í
beinni útsendingu á Sýn.
„Það er alveg ljóst að við þurf-
um að leika mun betur en við
gerðum í síðasta leik gegn Århus
og ná að stjórna hraðanum betur.
Handboltinn sem þetta sló-
venska lið spilar er mjög harður
og er í svipuðum stíl og boltinn
sem spilaður var í gömlu
Júgóslavíu en þó með smá
dönsku ívafi,“ sagði Páll en hann
segir að leikmenn sínir komi vel
stemmdir í leikinn og engin
meiðsli séu að hrjá hópinn.
Haukar töpuðu fyrsta leik rið-
ilsins á heimavelli gegn danska
liðinu Århus en að auki er ítalska
liðið Torggler Group Meran í
riðli þeirra.
„Það fer vel um okkur hérna í
Slóveníu og allt í góðu lagi, allur
aðbúnaður til fyrirmyndar,“
sagði Páll. Gorenje Velenje er í
efsta styrkleikaflokki og því lík-
legt að á brattann verði að sækja
fyrir Hafnarfjarðarliðið í dag.
Vi› flurfum a› eiga toppleik
9. október 2005 SUNNUDAGUR
■ ■ LEIKIR
14.00 Valur og Potsdam mætast á
Laugardalsvelli í Evrópukeppni
kvenna í fótbolta.
16.15 Stjarnan og Anadolu
mætast í Ásgarði í Garðabæ í
Evrópukeppni kvenna í handbolta.
17.00 Keflavík og Haukar mætast í
Keflavík í Meistarakeppni kvenna í
körfubolta.
19.15 Keflavík og Njarðvík
mætast í Keflavík í Meistarakeppni
karla í körfubolta.
■ ■ LEIKIR
08.55 Hnefaleikar á Sýn. Diego
Corrales og Jose Luis Castillo eru
meðal þeirra sem mætast.
10.55 A1 Heimsbikarinn í
kappakstri á Sýn. Beint frá
Þýskalandi.
11.40 Formúla 1 á RÚV. Upptaka
frá kappakstrinum í Japan.
14.00 Evrópukeppni kvenna í
fótbolta á RÚV. Valur – Potsdam í
beinni.
14.30 Meistaradeildin í
handbolta á Sýn. Gorenje Velenje –
Haukar í beinni.
16.40 Undankeppni HM 2006 á
Sýn. Danmörk – Grikkland
endursýndur.
18.20 Golf á Sýn. World Golf
Championship í beinni.
21.25 Helgarsportið á RÚV.
22.00 Meistaradeildarþátturinn á
Sýn.
22.40 Meistaradeildin í
handbolta á Sýn. Gorenje Velenje –
Haukar endursýndur.
23.55 Golf á Sýn. Forsetabikarinn.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
5 6 7 8 9 10 11
Laugardagur
OKTÓBER
HANDBOLTI Valur tapaði fyrir
finnsku meisturunum í Sjundeå
IF með þriggja marka mun, 28-31,
í Laugardalshöllinni í gær. Þetta
var síðari leikur liðanna í 2. um-
ferð EHF-keppninnar en þrátt
fyrir tapið í gær komast Vals-
menn áfram þar sem þeir unnu
sex marka sigur í fyrri leiknum í
Finnlandi, 33-27. „Við komum í
leikinn til að sigra en náðum því
ekki, þeir voru bara miklu betri
en við bæði varnarlega og sóknar-
lega. Við vorum að gera of mikið
af mistökum þannig að það verður
að teljast mjög gott að við séum
komnir áfram. Vörnin hjá okkur
var mjög slök í byrjun en var
betri í þeim síðari þegar við fór-
um í gömlu góðu 3-2-1 vörnina. Ef
við lítum á það jákvæða þá var
Baldur mjög góður og við vorum
að nota þrjá 19 ára stráka sem
stóðu fyrir sínu. Fannar skoraði
mikilvæg mörk og lokaði vörninni
og Elvar líka,“ sagði Óskar Bjarni
Óskarsson, þjálfari Vals, en liðið
vann viðureignina gegn Sjundeå
samtals 61-58.
Valsmenn voru undir nær allan
leikinn og geta talist heppnir að
aðeins eitt mark skildi liðin að í
hálfleik. Í þeim síðari misstu þeir
Sjundeå aldrei of langt frá sér en
þeir náðu mest fjögurra marka
forystu. Það fór ekki á milli mála
að Valur var lakara liðið á vellin-
um en voru þó með besta leik-
mann hans, Baldvin Þorsteinsson,
sem skoraði ellefu mörk. „Ég hef
ekki verið að spila neitt æðislega
upp á síðkastið og þetta var senni-
lega minn skásti leikur til þessa í
vetur. Við töpuðum en tilgangur-
inn helgar meðalið og við erum
komnir áfram í þriðju umferð.
Vörnin hjá okkur var töluvert
slakari en í leiknum ytra og sókn-
in sömuleiðis. Finnarnir spiluðu
hinsvegar hörkuvörn sem við átt-
um í erfiðleikum með,“ sagði
Baldvin. Á þriðjudaginn verður
dregið í næstu umferð og á hann
sér óskamótherja. „Ég vona að við
fáum eitthvert stórlið í næstu um-
ferð, Gummersbach er í pottinum
og það væri frábært að fá Guðjón
Val og Róbert Gunnarsson á Klak-
ann og fylla Höllina,“ sagði Bald-
vin að leik loknum.
elvar@frettabladid.is
Gunnar Heiðar Þorvaldsson verður með á æfingu í dag:
Gunnar a› ver›a klár en óvissa um Au›un
FÓTBOLTI „Það er farið að líta betur
út með Gunnar Heiðar en það er
enn óvissa með Auðun fyrir þenn-
an leik gegn Svíþjóð,“ sagði Logi
Ólafsson landsliðsþjálfari í gær,
rétt áður en haldið var til Svíþjóð-
ar. Sóknarmaðurinn Gunnar
Heiðar Þorvaldsson gat ekki leik-
ið með í vináttulandsleiknum
gegn Póllandi vegna meiðsla en
útlitið með hann er orðið mun
bjartara og verður hann með á
æfingu hjá landsliðinu í dag.
Gunnar hefur verið í fantaformi í
sænska boltanum að undanförnu
og er markahæsti leikmaður
deildarinnar þar. Hannes Þ.
Sigurðsson sem lék í
sókninni gegn Pól-
landi stóð sig vel og
verður að teljast lík-
legt að hann verði
aftur með A-lands-
liðinu gegn Svíþjóð.
„Það er ekkert
komið í ljós varð-
andi Auðun en hann
er þó farinn að skokka. Það er
samt ekkert hægt að segja meira
fyrr en hann prófar að sparka í
bolta,“ sagði Logi en Auðun fór
meiddur af velli í leiknum gegn
Póllandi eftir að hafa fengið högg
á hnéð. Hann var tæpur fyrir
leikinn vegna
meiðsla á hinu
hnénu og kemur það
í ljós þegar nær
dregur hvort hann
geti leikið gegn Sví-
þjóð. Mótherjar
okkar eru einnig í
meiðslavandræðum
fyrir leikinn en
nokkrar skærustu stjörnur Svía
verða fjarri góðu gamni í leiknum
sökum meiðsla. Íslenski hópurinn
kom til Svíþjóðar í gær og horfði
á mótherja okkar á miðvikudag
leika gegn Króatíu.
elvar@frettabladid.is
GUNNAR HEIÐ-
AR ÞORVALDSS.
AUÐUN
HELGASON
Í STRANGRI GÆSLU Ingvar Árnason, línumaður Vals, er hér í strangri gæslu finnsku
leikmannanna. Sjundeå vann þriggja marka sigur sem dugði þó ekki til. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA