Tíminn - 16.08.1975, Blaðsíða 7
Laugardagur 16, ágúst 1975
TÍMINN
7
(Jtgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
l’órarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Rit-
stjórnarfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri:
Helgi H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrfmur Gisla-
son. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu viö Lindargötu,
simar 18300 — 18306. Skrifstofur I Aðalstræti 7, sími 26500-
— afgreiðslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verð i
lausasölu kr. 40.00. Áskriftargjald kr. 700.00 á mánuði.
Blaðaprent b.f.
Borgarleikhús
Nýverið voru kynntar teikningar af borgarleik-
húsi, sem fyrirhugað er að risi i svonefndum
Kringlubæ, hinum nýja miðbæjarkjarna Reykja-
vikur. Jafnframt hefur verið lögð fram kostnaðar-
áætlun vegna byggingarinnar og hljóðar hún upp á
tæpan milljarð króna. Meginþungi þeirrar fjár-
mögnunar hvilir á herðum Reykjavikurborgar
samkvæmt sérstökum samningi, sem gerður var
við Leikfélag Reykjavikur.
Sjálfsagt kann sumum að þykja, að hér sé
Reykjavikurborg að reisa sér hurðarás um öxl á
sama tima og fjárhagur borgarinnar er svo bág-
borinn að gripa hefur orðið til niðurskurðar ým-
issa áriðandi verkefna.
Þegar um jafn stórt verkefni er að ræða og
byggingu borgarleikhúss, hlýtur ávallt að koma til
álita, hvort skynsamlegra væri að verja fjár-
magninu til annarra verkefna, þvi að i stórri borg
eins og Reykjavik biða hundruð óleystra verkefna,
sem með sanni má segja, að séu ákaflega brýn. í
þvi sambandi má minna á hið geigvænlega ástand,
sem rikir i -málefnum langlegusjúklinga. Einn
milljarður til sliks málaflokks væri vissulega vel
þeginn. Til skólamála vantar umtalsvert fjár-
magn til að geta staðið undir kröfum um nútima
skólahald. Á sviði félagsmála er margt ógert. Til
iþrótta- og æskulýðsmála vantar fé. Fyrir einn
milljarð mætti byggja tiu stór iþróttahús. Tilfinn-
anlegur skortur er á barnaheimilum. Og þannig
mætti lengi telja, þvi að verkefnin eru mörg.
En i þessum efnum sem öðrum verður að gæta
jafnvægis. Hlutverk stjórnenda, hvort sem það er
hjá riki eða borg, er að hafa yfirsýn yfir alla mála-
flokka og gæta þess, að þeim sé öllum sinnt. Leik-
félag Reykjavikur hefur um langan aldur gegnt
þýðingarmiklu hlutverki i menningarlifi höfuð-
borgarinnar. 1 Iðnó við Tjörnina hefur leikhúsfólk
lengstum lagt vinnu sina fram endurgjaldslaust i
þjónustu leikhúsgyðjunnar Thaliu og um leið gefið
samborgurum sinum tækifæri til að sjá leikhús-
verk frægustu leikritaskálda erlendra, auk þess,
sem Leikfélag Reykjavikur hefur samvizkusam-
lega þjónað þvi hlutverki að kynna islenzk leikhús-
verk. Leikarar Leikfélags Reykjavikur hafa löng-
um yljað Reykvikingum um hjartarætur, hvort
sem boðið hefur verið upp á gleðileiki eða harm-
leiki á f jölunum i Iðnó, þvi að þar hafa sannir lista-
menn verið á ferð.
En svo hefur starfsemin vaxið og dafnað, að hið
aldna hús á bökkum Tjarnarinnar er löngu orðið of
litið. Og þó að ýmsir komi til með að sakna starf-
semi Leikfélags Reykjavikur i þessu vinalega
húsi, verður ekki fram hjá þeirri staðreynd kom-
izt, að Leikfélagið verður að hasla sér völl i rýmra
húsnæði.
Nýja borgarleikhúsið verður mjög nýstárlegt út-
lits og á eflaust eftir að setja svip sinn á Reykja-
vik, bæði vegna útlits og þeirrar starfsemi, sem
þar á að fara fram. Að þessu verkefni verður unnið
á næstu árum samhliða öðrum nauðsynlegum
verkefnum á vegum Reykjavikurborgar. En i
þessum efnum verður þó að gæta skynsemi og
haga framkvæmdum þannig, að eðlileg skipting
fjármagns eigi sér stað milli hinna ýmsu mála-
flokka. —a.þ.
ERLENT YFIRLIT
Stofna Azoreyingar
sjálfstætt ríki?
Azoreyjar eru hernaðarlega mikilvægar
HIÐ ÓVISSA ústand, sem
hefur rikt i Portúgal undan-
farna mánuði, hefur m.a. orö-
ið til þess, að risið hefur upp
sjálfstæðishreyfing á Azoreyj-
um, sem hefur að markmiði,
að Azoreyjar verði sjálfstætt
riki. Hreyfing þessi hefur eflzt
að sama skapi og óvissan hef-
ur aukizt i Portúgal. Einkum
virðist óttinn við kommúnist-
iska stjórn i Portúgal hafa
gefið henni byr I seglin. Ýmsir
telja einnig, að Bandarikja-
menn ýti undir hana, -og þó
einkum Azoreyingar, sem
hafa setzt að i Bandarikjunum
og Kanada. Fólksflutningar
hafa jafnan verið miklir frá
Azoreyjum til Bandarikjanna
og Kanada, og er nú talið, að i
þessum löndum búi um 700
þús. manns, sem rekja ættir
sinar til Azoreyja. Ibúar á
Azoreyjum eru hins vegar ekki
nema tæpar 300 þús. Azorey-
ingar, sem hafa flutt til
Bandarikjanna, hafa jafnan
haldiðviðnánum tengslum við
frændfólk sitt á Azoreyjum, og
sent þeim bæði peninga og
aðra fjármuni. Yfirleitt er
talið, að drýgsti hlutinn af
gjaldeyristekjum eyjaskeggja
verði til á þennan hátt.
Vafalaust hafa Bandarikin
mikinn áhuga á, að Azoreyjar
losi um tengslin við Portúgal á
einn eða annan hátt, ef komm-
únistisk stjórn kemst þar til
valda. Meðan óvissa rikir um
stjórnarfar Portúgals, munu
Bandarikjamenn þó telja
hyggilegt að láta sem minnst á
þessu bera. Það gæti hjálpaö
kommúnistum i Portúgal.
Bandarikin hafa augljósra
hagsmuna að gæta I sambandi
við Portúgal, þvi að þeir hafa
þar mikilvægar herstöðvar
samkvæmt sérstökum samn-
ingum við stjórn Portúgals
Herforingjastjórnin i Portúgal
hefur enn ekki hróflað neitt við
þeim. Það er nokkurt dæmi
um hernaðarlegt mikilvægi
Azoreyja, að þegar Bandarik-
in hófu vopnaflutninga loft-
leiðis til Israel i styrjöldinni
1973, fóru þeir fram um Azor-
eyjar.
PORTÚGALAR fundu Azoreyj
ar, sem eru um 1600 km suð-
vestur frá Portúgal, snemma
á 15. öld. Þá voru eyjarnar ó-
byggðar. Portúgalar hófu
landnám þar og hafa eyjarnar
jafnan siðan verið talinn hluti
af Portúgal, enda hafa ibúarn-
ir alltáf verið nær eingöngu
Portúgalar. Þess vegna hefur
t.d. aldrei komið til orða á
vettvangi S.Þ. að lita á Azor-
eyjar sem nýlendur, og þar
hefur aldrei risið upp nein
skilnaðarhreyfing, en siðustu
árin hefur hins vegar borið
talsvert á hreyfingu, sem
hefur beitt sér fyrir þvi, að
eyjarnar fengju nokkra heima
Costa Gomes, forseti Portúgais.
stjórn. Byggðar eyjar eru niu
talsins og samanlagt flatar-
mál þeirra er um 900 fermilur.
Atvinnu eyjaskeggja er nær
eingöngu fiskveiðar og land-
búnaður. Iðnaður má heita
enginn. Eyjaskeggjar hafa
jafnan þótt nokkuð Ihaldssam-
ir i háttum og mjög tryggir
heimalandinu. I þingkosning-
unum, sem fóru fram i Portú-
gal i aprflmánúði siðastliðn-
um, fengu sósialistar og al-
þýðudemókratar um 90% at-
kvæðanna á Azoreyjum, en
kommúnistar sáralitið. Vax-
andi andúð gegn kommúnist-
um hefur komið i ljós á marg-
an hátt að undanförnu.
Azoreyjar og tsland höfðu að
þvi leyti svipaða afstöðu, að
vera utan alfaraleiðar fram til
siðari heimsstyrjaldarinnar.
A striðsárunum sömdu Bretar
um það við Portúgal, að mega
koma upp herstöð þar og var
það eitt aðalverkefni hennar
að fylgjast með ferðum
þýzkra kafbáta. Siðar sömdu
Bandarikin um það við Portú-
gala að mega hafa herstöðvar
þar. Lajes-herstöðin, sem
Bandarikin hafa á
CORVO
«
4 Sanla Cruz
FLORES
CRACIOS A
SAO JORGE
AZO£E.R.hl£
Horta
PICO
TERCEIRA
o
Angra do Herolsmo
AfftlKA
Ponta Delgada
SAO » 1GUEL
atlanten
SANTA Mi 7IA
Víla do Porto
Uppdráttur af Azoreyjum og legu þeirra.
Terceira-eynni er talin mjög
mikilvæg fyrir varnir þeirra á
Suður-Atlantshafi. Þar eru nú
um 5000 hermenn. Þá hafa
Bandarikin minni herstöðvar
þar. Eftir siðari heimsstyrj-
öldina hafa alþjóðlegar flug-
leiðir legið um Azoreyjar og
hafa mörg flugfélög þar
viðkomu fyrir áætlunarflug-
vélar, sem fara um sunnan-
vert Atlantshaf. Frá sjónar-
miði flugsamgangna og her-
varna eru yfirráðin yfir Azor-
eyjum þvi mikilvæg. Banda-
rikin myndu þvi áreiðanlega
ekki una þvi vel, ef þau yrðu
að leggja niður herstöðvar
sinar þar og eiga það jafn-
framt á hættu, að Rússar
fengju einhverja aðstöðu þar.
M.a. vegna þess hefur verið
gizkað á, að bréf það, sem
Gomes forseti Portúgals sendi
Henry Kissinger fyrir nokkr-
um dögum hafi að verulegu
leyti fjaliað um Azoreyjar. Þvi
hafi verið heitið, að ekkert
yrði hróflað við bækistöðvum
Bandarikjanna þar.
AZOREYJAR hafa ekki verið
að ráði heimsóttar af ferða-
mönnum til þessa. Loftslag
þykir þó heilnæmt þar. Senni-
lega á það mestan þátt i þessu,
að þær liggja lengra frá
meginlandi en nokkrar aðrar
eyjar á Atlantshafinu. Eyj-
arnar eru allar eldfjallaeyjar
og oft hafa verið þar jarð-
skjálftar oe eldgos siðan bær
komust i byggð. Hæstu fjöll
eru nokkru hærri en öræfajök-
ull. Náttúrufegurö er þar mik-
il og jarðvegur mjögfrjórog
vel fallinn til ræktunar. Fólks-
fjölgun hefur verið þar mikil,
og hefur það átt rikan þátt i
hinum miklu fólksflutningum
til Bandarikjanna, sem hafa
átt sinn þátt i þvi, að persónu-
legt tengsli eyjaskeggja eru
nú orðin öllu meiri við Banda-
rikin en heimalandið.
Þ.Þ.