Tíminn - 21.08.1975, Síða 2

Tíminn - 21.08.1975, Síða 2
2 TÍMINN Fimmtudagur 21. ágúst 1975 METRABYLG JUST OD REIST í GRÍMSEY SJ-Reykjavík. Nú er unniö að þvi aö koma upp metrabylgjustöð I Grimsey, sem verður starfrækt frá Siglufjarðarradiói. Fram- kvæmd þessi er liður i þvi að veriðer að koma á fót örbylgju- stöðvum ásem flestum stöðvum á landinu, að sögn Sigurðar Þor- kelssonar yfirmanns Tæknideild- ar Póst og sima, en blaðaskrif vegna strands Iivassafells við Flatey á Skjálfanda nú í vetur urðu til að ýta á eftir. Allfullkomin standarstöð með aukabúnaði er fyrir i Grimsey. Metrabylgjustöðvar eru tiltölu- lega nýjar hér á landi, þar sem skip höfðu til skamms tima ekki útbúnað til að hagnýta sér þær. Kostnaðarsamasti þátturinn við að koma upp metrabylgju- stöðinni i Grimsey er að ganga frá lögnum og mastri. Útsölustjórar ÁTVR d fundi í fjdrmdla- rdðuneytinu vegna dvísanamdlsins Gsal-Reykjavik — t gærmorgun áttu fulltrúar i fjármálaráðuneyti fund mcð útsölustjórum Afengis- og tóbaksverzlunar ríkisins um leiðir til lausnar ávisanavanda- málum vinbúðanna — en sem kunnugt er, hafa útsölustjórar lýst þvi yfir i fjölmiðlum, að þeir geti ekki öllu lengur litið á ávisun sem staðgreiðslu, vegna fjölda Sjúkraliðar útskrifast á Akureyri ASK-Akureyri. — Siðastliðinn föstudag útskrifuðust frá Fjörðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri 25 sjúkraliðar, eftir eins árs nám. A lokaprófi varð hæst Heiðdis Norðfjörð, en hún hlaut 9.50 i bóklegu námi og 9.00 i starfseinkunn. Alls hafa nú frá upphafi útskrifast 168 nemendur frá sjúkrahúsinu. Aö sögn Gunnar Sæmunds- dóttur yfirhjúkrunarkonu er stöðug og mikil aðsókn að náminu og komast færri að en vilja. Næsta námskeið hefst innan skamms og sagði Gunnar að þegar væri fullskipað i það. innistæðulausra ávisana sem þeir fá. Að sögn fulltrúa fjármálaráðu- neytisins voru engar endanlegar ákvarðanir teknar á fundinum, en ræddar ýmsar leiðir til lausnar á vandanum. Kvað fulltrúinn aðút- sölustjórunum hefðu verið kynnt- ar ýmsar hugmyndir ráðuneytis- ins i málinu. Útsölustjórar myndu ihuga þær fram að næsta fundi, sem verður að viku liðinni, og svara tillögum ráðuneytisins ell- egar koma fram einhverjar gagn- tillögur. Ekki tókst Timanum að fá upp- gefið i hverju tillögur ráðuneytis- ins væru fólgnar. Auglýst eftir sjónarvottum Ö.B.—Reykjavlk — Mánudaginn 18. ágúst kl. 16.30 var ekið á ellefu ára gamla stúlku við strætis- vagnastöðina á Digranesbrúnni i Köpavogi. Stulkan var að koma út úr strætisvagni er slysið varð, og mun hún hafa handleggs- og fing- urbrotnað og hlotið einhverja minniháttar skurði af völdum ákeyrslunnar. Biður lögreglan i Kópavogi sjónarvotta að gefa sig vinsamlegast fram á lögreglu- stöðinni i Kópavogi. Það er ekki nóg að sigrast á bannsettum óvininum, — það þarf lika að losna við hann — koma honum fyrir kattarnef. Þessi mynd segir okkur sögu erfiðisins við bévaðan hnull- unginn i garðinum, sem eftir mikla fyrirhöfn hefur tekizt að ná upp úr beðinu. Og nú skal ekki talað um grið, út i sjó skal ófétið, og það hvað, sem tautar og raular. Sorp- hreinsuninni er ekki treyst- andi til að leysa slikt verk af hendi, svona verk vinnur maður sjálfur. Þess vegna skal óvinurinn settur á far- kost sigurvegarans, reyrður kyrfilega niður og fluttur niður að flæðarmáli, svo að öruggt sé, hvað um hann verður. — Og láttu mig aldrei sjá þig aftur, bann- settur, og hananú....! Timamynd: Gunnar. Framkvæmdir Kröflu- nefndar ganga vel — Hef áhyggjur af háspennulínunni, segir Ingvar Gíslason alþingismaður BH—Reykjavik — „Orkufram- leiðsla i Kröfluvirkjun getur þvi aðeins hafiz.t á tilsettum tima, þ.e. i árslok 1976, að búið verði að leggja háspennulinuna frá Kröflu œeiIj lí il JÍ Í tt li Stórviðburður i Svartá IndriðiG. Þorsteinsson,rithöfundur,veiddi 16. ágúst sl. fyrsta laxinn, sem fæst ofan við Reykjafoss i Svartá i Skagafirði. Laxinn, sem var átta punda hrygna, hefur þar meö gert 32 lögbýli að laxveiðijöfðum. Sem kunnugt er var byggöur rismikill laxa- stigi I Svartá, 15 metrar á hæð og 196 metra lang- ur. Töldu menn vist að lax hefði gengiö upp fyrir Reykjafoss i fyrra, en enginn veiddist þá. Elliðaárnar. Hann Friðrik Stefánsson hjá Stangveiðifélagi Reykjavikur hafði samband viö Veiöihornið I gær til þess að segja okkur það, að Elliðaárnar stæðu sig með allra bezta móti. Þar voru komnir á land um hádegið i gær 1529 laxar, en á sama degi i fyrra voru þeir 1479. Núna er veitt á 5 stengur i Elliðaánum og til marks um veiðiskap- inn er þaö að segja, að I fyrradag veiddust 44 laxar i Elliðaánum. Norðurá Okkur fannst langt siðan við höfðum frétt nokkuð af Norðurá, en Friðrik hafði ekki tölur þaðan handbærar. Hitt sagði hann okkur, að veiði i Norðurá lyki núna um mánaöamótin — og nokkur veiðileyfi eru enn óseld fram til loka. Fyrsta veiðisagan hefur borizt Veiöihorninu, og erhún að vonum I léttum dúr, en það er auð- vitað Sagan um útlendinginn, sem átti þá ósk heitasta að fá að veiöa lax á Is- landi, áður en hann safnaðist til feðra sinna, svo að hann kemur hingað upp, og fær sér leiösögu- mann og reynir við hverja ána á fætur annarri, það fá allir lax, nema hann. Nú, vinurinn er orðinn harla örvæntingarfull- ur, búinn að vera hérna óratima og flengja hverja ána á fætur annarri, — en þegar hann er oröinn úrkula vonar, gerist kraftaverkið, hann nælir sér i 5 punda lax. Himinlifandi getur hann haldið heim á leið, kemur að visu við i einhverjum þjóðlöndum á leiðinni, og alls staðar segir hann frá laxinum, sem hann hafði veitt á íslandi. En vegna þessa flakks hafði hann ekki tekið laxinn með sér, heldur fengið hann geymdan I frystihúsi einu hérna i Reykjavik. Um siðir kemur karl loks heim til sin, og hann hefur ekki dvalið lengi heima, þegar hann skrif- ar kunningja sinum hér og biður hann um að nálgast laxinn i frystihúsinu og senda sér hann. En þegar farið er að huga að laxinum, er hann horfinn og finnst hvergi, og augljóst mál, að hon- um hefur verið stolið. Þennan vanda var auðvelt að leysa. Vaktmað- urinn i frystihúsinu sneri bara bakinu i kunn- ingja gamla mannsins, meðan hann hirti annan laxúrgeymslunni. En úr þvi að hann gat bara valið, kom strákurinn upp i Islendingnum, svo að hann hirti átján punda lax og sendi gamla manninum! Nú bjóst hann auðvitað við rauðglóandi skömmum, en það var nú eitthvað annað. Sá gamli hafði nefnilega sagt söguna af laxinum sinum það oft, að laxinn hafði alltaf stækkað við hverja frásögn. Þess vegna passaði þessi átján punda alveg prýðilega inn i þá mynd, sem karl var búinn að imynda sér og segja öllum frá, og þótti ekki mikið, þótt fiskurinn hefði stækkað um þrettán pund i flutningnum ! Var laxinn siðan geymdur með viðhöfn inni i frystiskáp karlsins og ósjaldan tekinn út til að sýna hann. Gekk svo upp undir tvö ár, en þá varð ekki lengur komizt hjá þvi að fleygja honum.... til Akureyrar nógu snemma næsta sumar. Kröflunefnd hefur ekkert með linulögnina að gera. Það hefur alltaf verið talað um það, að Rafmagnsveitur ríkisins sæju um það verk.” Þannig komst Ingvar Gislason, alþingismaður, varaformaður Kröfluhefndar, að orði i gær, þeg- ar Timinn ræddi við hann. — Framkvæmdir á vegum Kröflunefndar ganga ágætlega, sagði Ingvar Gislason ennfremur. Nefndinni var falið að koma upp stöðvarhúsi og annast kaup á afl- vélum. Unnið er af kappi að þvi að koma upp stöðvarhúsi við Hliðardal, og stefnt að þvi að gera fokhelt fyrir veturinn. Vélarnar eru i smiðum i Japan og verða til- Skógræktar- menn í Bif- röst um næstu helgi BH—Reykjavík. — Aöalfundur Skógræktarfélags tslands veröur haldinn um næstu helgi að Bifröst i Borgarfirði. Verður fundurinn settur á föstudaginn, 22. ágúst, kl. 10 og stendur föstudag og laugar- dag og lýkur á hádegi á sunnu- dag. Aö sögn Hákonar Bjarnasonar, skógræktarstjóra, verða um 80 fulltrúar á fundinum, en alls munu sitja fundinn um 100 manns, er gestir eru taldir með. Kvað Hákon ýmis mál mundu verðar rædd á fundinum, er varða skógræktina, og myndi þar bera hæst uppeldi og plöntufram- leiðslu, auk þess sem framtiðar- horfurnar i skógræktarmálum yrðu að sjálfsögðu mjög til um- ræðu. búnar til afhendingar á Húsavik um mitt næsta sumar. Ef ekki stendur á fjárveitingum eða ein- hverjar ófyrirséðar ástæður gripa inn i áætlanir okkar, mun Kröflunefnd skila sinu verki i tæka tið. — Hins vegar get ég ekki neitað þvi, að ég hef nokkrar áhyggjur af háspennulinunni, sagði Ingvar Gislason að lokum. Það má ekki dragast að taka fullnaðarákvarð- anir um þá framkvæmd. Rannsókn fíkni- efnamóls Gsal-Reykjavik — Hjá fikniefna- dómstól lögreglunnar er unnið sleitulaust að talsvert umfangs- miklu fikniefnamáli er upp komst fyrir hartnær hálfum mánuði og greint var frá i fjölmiðlum á þeim tima. Ásgeir Friðjónsson, dómari hjá fíkniefnadómstólnum, verst allra frétta af málinu og segir að ekki sé hægt á þessu stigi að greina frá málavöxtum. Er Timinn innti hann eftir þvi, hvort hægt væri að greina frá þvi, hve margir væru viðriðnir þetta mál, sagði Ásgeir, að það væri m,a. eitt þeirra atriða sem enn væru óljós. Samninga- viðræðunum við Svía var frestað Gunnar Flóvenz forstjóri Sildarútvegsnefndar hafði sam- band við Timann i gær vegna for- siðufréttar blaðsins um sildar- sölumál. Kvað Gunnar það ekki vera rétt að slitnað hefði upp úr samningaviðræðum við Svia, heldur hefði samningaviðræðum við þá aðeins verið frestað.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.