Tíminn - 23.08.1975, Síða 8

Tíminn - 23.08.1975, Síða 8
8 TÍMINN Laugardagur 23. ágúst 1975 Örn Erlendsson, frkv.stj. Sölustofnun lagmetis: sem minni hefð er fyrir á slikum atvinnurekstri i landinu. Þetta eru einföld kennslubókarsann- indi, en þau má einnig lesa á fyrstu siðum islenzkrar atvinnu- sögu. Reynsla fyrri ára Eins og kunnugt er, er ísland nú á meðal forystuþjóða i ýmsum greinum sjávarútvegs og fisk- iðnaðar og sennilega eru allir nú á einu máli um, að þjóðin geti verið stolt af islenzkum hraðfrysti- iðnaði og samtökum þeirra, sem að honum standa. Ef litið er i sögu þessarar atvinnugreinar má lesa þar um mikla baráttu að baki þeirrar glæstu myndar, sem að vissu leyti er tákn þjóðarinnar i dag. Hraðfrystiiðnaðurinn byrjaði að feta sig áfram með út- flutning á árunum uppúr 1930 og naut um margra ára skeið veru- legrar opinberrar aðstoðar, sem Fiskimálanefnd veitti, en ekki er ætlunin að rekja þá sögu hér. Þá er ónefnt það mikla starf forystu- manna hraðfrystiiðnaðarins i markaðsmálum, sem unnið var strax uppúr siðari heimsstyrjöld- inni. Þar voru margar tilraunir gerðar og fitjað upp á mörgum nýjungum, sem siðar þótti ástæða til að endurskoða, áður en sú festa og sá árangur náðist i starfsemi iðnaðarins, sem við búum við i dag. Má þar nefna útibú og verk- smiðjur i Evrópu og sleitulaust starf, meðan fulltrúar iðnaðarins voru að ná tökum á Bandarikja- markaði. Til gamans má einnig rifja upp, að það tók sömu aðila mörg ár, margar tilraunir, breyt- ingar og leiðréttingar, áður en fengizt hafði það nafn og útlit sem gæfi vörunum það einkenni, sem viðkomandi voru ánægðir með. sem annað er forsenda hins. S.L. tók þá stefnu að einbeita sér að sölumálum með það i huga, að tryggja framleiðendum sem mest verkefni, til að halda framleiðslu- tækjunum gangandi, meðan almenn uppbygging verksmiðj- anna ætti sér stað. Hér er rétt að minna á, að stofnun eins og S.L., sem byggð er á frjálsri þátttöku framleiðenda, getur ekki haft nema óbein áhrif á það, sem ger- ist úti i verksmiðjunum. Verk- smiðjunum er stjórnað af eigend- unum og þvi þeir en ekki S.L., sem taka ákvarðanirnar. Jafnframt þvi átaki, sem reynt var að gera i sölumálum, beitti stofnunin sér strax á 1. og 2. starfsári fyrir eftirfarandi: — vöruþróun — stöðlun framleiðslunnar — hönnun umbúða og kynningu á samtökunum — tækniaðstoð og ráðgjafaþjón- ustu fyrir verksmiðjurnar — innkaupum umbúða og hjálp- arefna — lánamálum iðnaðarins — samningum við ýmsa þjón- ustuaðila iðnaðarins, svo sem flutningafyrirtæki, tryggingar o.fl. — reglugerð um framleiðslumál iðnaðarins ásamt reglugerð um innri samskipti S.L. og umbjóðenda hennar — reglugerð um hráefnisöflun • Sum þessara vandamála hafa þegar fengið jákvæða lausn, en að lausn annarra er enn unnið. Margt fleira má telja, sem varðar uppbyggingu samtakanna sameiginlega sem og hagsmuni einstakra verksmiðja. Ef litið er yfir starf samtak- anna i dág, er ljóst að tekizt hefir verið á við ýmis verkefni, sum Hefuruppbygging lagmetis- iðnaðar á íslandi mistekizt? þeirra brautryðjendaverkefni, þar sem reynslu og þekkingu skorti, bæði meðal þeirra, sem störfin unnu hjá S.L. og islenzkra þjónustufyrirtækja, sem unnu að verkefnum út á við, (t.d. hönnun umbúða fyrir hina ýmsu markaði ásamt réttum textum). //Hvað er að gerast í lag- metisiðnaðinum?" Með þessari grein er ekki stefnt að neinni allsherjar úttekt á starfi S.L. né mat lagt á hvernig þar hafi til tekizt. Hið siðarnefnda er verkefni annarra. Þessi upprifjun er gerð vegna greinar, sem Páll Pétursson, niðursuðufræðingur, skrifaði i Timanum 30. júli s.l., þar sem hann gerir eftirfarandi grein fyrir erindi sinu: ,,Ég ætla ekki i þessari stuttu grein minni að gera grein fyrir lagmetis- iðnaðinum eins og hann hefir gengiðá undanförnum áratugum, (eins og það komi uppbyggingu lagmetisiðnaðarins ekkert við! Ath.semd min) heldur vil ég aðeins taka fyrir s.l. 3 ár eða þann tima, sem S.L. hefur starfað” (leturbreyting min). Umrædd grein einkennist af sleggjudómum. Hlutirnir eru skoðaðir utanfrá með neikvæðu formerki (flaskan er aldrei hálf- full, alltaf hálftóm), og án þess að tekið sé á raunverulegum vanda- málum né bent á lausn þeirra. Höfundur greinarinnar mótar gagnrýni sina eins og S.L. hefði tekið við grónum og blómlegum atvinnuvegi og bendir fátt i rit- smiði þessari til, að sami maður hafi haft langvarandi afskipti af islenzku atvinnulifi. Undirritaður ætlar ekki að gera langt mál úr þeim staðhæfingum, sem fram voru settar i grein Páls Péturssonar. Skoðun undirritaðs er, að erfitt sé að fá raunhæft mat á þvi uppbyggingarstarfi, sem hér hefir verið unnið, enda þótt 3 ár séu liðin. Vandamál íslenzks út- f lutningsiðnaðar Vegna þeirrar rangtúlkunar, sem kemurfram i greininni, telur Lögmál iðnþróunar Það er mikið og vandasamt verkefni að byggja upp nýja iðn- grein i hvaða landi sem er. í þvi efnahagskerfi, sem við búum við, er hinn eðlilegi þróunarferill þannig, að iðngreinar verða til og þróast sjálfkrafa við þau innri og ytri skilyrði atvinnulifs og við- skipta, sem fyrir eru. Ef innri skilyrði i þjóðfélaginu eru þannig, að eðlilegur og þjóðhagkvæmur iðnaður nær ekki að þróast, er al- gengt að hið opinbera gripi inn i til stjórnunar og veiti nauðsyn- legan hvata og aðstoð, sem þarf til þess, að hin umrædda atvinnu- og iðngrein nái að dafna. Þetta var það sem gerðist i is- lenzkum lagmetisiðnaði árið 1972, er lög voru sett um Sölustofnun lagmetis. Islenzkur lagmetis- ilnaður náði ekki að dafna á blómaskeiði uppbyggingar is- lenzks atvinnulifs af ástæðum, sem ekki verða raktar i þessari grein. Stjórnvöld, undir forystu Magnúsar Kjartanssonar fyrr- verandi iðnaðarráðherra, með einróma stuðningi alþingis, hlutaðist til um, að lagmetis- iðnaðinum yrði veitt sérstök að- stoð um 5 ára skeið og var þar myndarlega að verki staðið. Þungamiðjan i þessari áætlun var stofnun Sölustofnunar lag- metis, sem er sölu- og hagsmuna- samtök iðnaðarins. Þótt slik opinber ihlutun sé nauðsynleg og lofsverð við þær aðstæður, sem fyrir hendi voru, dettur engum i hug að hún ein geri kraftaverk. Uppbygging iðnaðar, hvaða nafni sem nefnist, er verkefni, sem spannar yfir margra ára eða öllu heldur áratuga þróunarskeið. Tekur hún þeim mun lengri tima, Niðursoðin hrogn borin fram með grænmeti og sltrónum. Ég vænti þess, að forsvars- menn islenzka hraðfrystiiðnaðar- ins taki ekki illa upp þótt rifjaðir séu upp þessir punktar i islenzkri atvinnusögu til skýringar máli þvi, sem hér fer á eftir, enda lofar árangurinn þá menn, sem þar lögðu hönd á plóginn. Við getum skoðað fleiri atvinnugreinar; is- lenzkur ullariðnaður hefur um árabil glimt við vandamál varð- andi útflutning og markaðssetn- ingu framleiðslu sinnar erlendis og mér skilst að einnig þar hafi skipzt á skin og skúrir. Margt fleira mætti telja. Starf S. L. Þegar þetta er ritað, eru tæp 3 ár siðan S.L. opnaði skrifstofu sina. S.L. var fyrst og fremst hugsuð sem sölustofnun, en henni var einnig ætlað það hlutverk að veita ýmiskonar þjónustu sem bætt gæti samkeppnisstöðu iðnað- arins, veita forystu i almennri þróun og uppbyggingu iðnaðarins og vera málsvari hans á opinber- um vettvangi. Þegar Sölustofnun- in tók til starfa höfðu að visu verið starfandi niðursuðuverksmiðjur á Islandi um alllangt skeið. Voru alls um 20 slikar skráðar i land- inu. Allar voru þær litlar og illa búnar tækjum, að tveim undan- skildum. Einungis 2 verksmiðjur i stöðugum rekstri, grundvölluðu rekstur sinn á útflutningi. Þetta stafaði fyrst og fremst af þvi, að iðnaðurinn stóðst ekki samkeppni á erlendum mörkuðum. Annars vegar átti það rætur að rekja til ófullnægjandi búnaðar, eins og áður var getið, en hins vegar til ýmissa innri og ytri aðstæðna, sem hömluðu þróun iðnaðarins, Ekki þarf að fjölyrða um hið mikla verkefni, sem beið fulltrúa lagmetisiðnaðarins og S.L., þegar stofnunin hóf starfsemi sina. Það varð þvi að ákveða hvar ætti að byrja, á hverju hinna fjölmörgu vandamála skyldi taka fyrst, enda ljóst.að ekki myndi fært að leysa þau öll i einu. Augljóst var og mikilvægi þeirra vixlverkana, sem eiga sér stað milli uppbygg- ingar sölumála annars vegar og framleiðslumála hins vegar, þar

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.