Tíminn - 26.08.1975, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 2fi. ágúst 1975
TtMINN
17
* JS.
V OöSBHBÍK* ..
FRIÐFINNUR FINNBOGASON EINAR GUNNARSSON
Rciuð spjöld
á lofti
í Keflavík
— þegar Keflvíkingar og
Vestmannaeyingar gerðu jafntefli 0:0
— ÞETTA voru gróf brot, svo að
ég só mér ekki annað fært en að
láta þá yfirgefa völlinn, sagði
hinn ákveðni dómari Grétar
Norðfjörð, sem vfsaði tveimur
ieikmönnum af velli i Keflavik á
lokaminútu leiks Keflvfkinga og
Vestmannaeyinga, sem lauk
með jafntefli 0:0. Það voru þeir
Friðfinnur Finnbogason frá
Eyjum og Keflvikingurinn Ein-
ar Gunnarsson, sem fengu að
sjá rauða spjaldið hjá Grétari.
Aðdragandinn að þessu atviki
var, að Keflvikingar sóttu stift
að marki Eyjamanna og lauk
þeirri sókn með þvi að Ársæll
Sveinsson, markvörður Eyja-
manna, kastaði sér niður og
gómaði knöttinn — á sama and-
artaki kom Einar Gunnarsson,
fyrirliði Keflvikinga, aðvifandi
og spyrnti i knöttinn. Friðfinnur
Finnbogason var ekki alls kost-
ar ánægður með það — og hann
lét hnefana dynja á Einari, sem
féll á völlinn. Grétar var ekki
lengi að átta sig á hlutunum —
hann sýndi Friðfinni rauða
spjaldið og visaði honum af
vellL En þegar hann var nýbú-
inn að sýna Friðfinni spjaldið,
þá reis Einar upp af vellinum —
hljöp á eftir Einari Friðþjófs-
syni, bakverði Eyjamanna og
spyrnti i hælinn á honum, þar
sem hann var á hlaupum burtu
frá Einari Gunnarssyni.— Það
var ekki nóg með að hann
sparkaði i mig, heldur steig
hann ofan á höndina á mér, þar
sem ég lá á vellinum, sagði Ein-
ar Gunnarsson, eftir að Grétar
var búinn að sýna honum rauða
spjaldið, fyrir að sparka á eftir
Einari Friðþjófssyni.
Þetta atvik á lokaminút-
unni, var hápunktur leiksins,
sem var mjög jafn. Eyjamenn
voru þó nokkuð liflegri, en
klaufaskapur þeirra upp við
mark Keflvikinga, kom i veg
fyrir, að þeim tækist að sigra.
Þeir Tómas Pálsson og örn
óskarsson fóru illa með gullin
marktækifæri i fyrri hálfleik,
þegar þeir komust einir inn
fyrir Keflavikurvörnina. Þá
áttu Keflvikingar ágæt tækifæri
upp við mark Eyjamanna, sem
þeir Kári Gunníaugsson, Stein-
ar Jóhannsson og Jón Ólafur
Jónssonnýttu ekki. Ef á allt er
litiö, þá var jafntefli sanngjörn
úrslit f leiknum.
Grétar Norðfjörð fékk góða
aðstoð frá linuvörðunum Bjarna
Pálmasyni og Brynjari Braga-
syni.og slapp vel frá leiknum.
Fyrir utan, að sýna þeimFrið-
finni og Einari rauða spjaldið,
þá áminnti hann hinn skapmikla
bakvörð Eyjamanna, Einar
Friðþjófsson, i fyrri hálfleik.
ASGEIR
GUÐGEIR
Ásgeir.
Guðgeir
Jóhannes
JÓHANNES.
— í sviðsijósinu
um helgina
tsienzku atvinnumennirnir í
knattspyrnu, þeir Asgeir Sigur-
vinsson, Guðgeir Leifsson og
Jóhannes Eðvaldsson, voru i
sviðsljósinu um helgina. Celtic
vann stórsigur (8:0) i leik gegn
Dumbarton i skozku deildarbikar
keppninni. Þrátt fyrir þetta
mikla markaregn tókst
Jóhannesi ekki að skora. Ásgeir
Sigurvinsson og félagar hans i
Standard Liege sigruðu Lierse
(1:0) á heimavelli, og Guðgeir
og félagar hans i Charleroi
gerðu jafntefli (0:0) á heima-
velli gegn La Louviere. Þrjár
umferðir eru nú búnar I 1.
deildar keppninni f Belgiu — og
töpuðu lið Asgeirs og Guðgeirs
fyrstu tveimur leikjunum.
Viðgerð á Lauaar-
dalsvellinum hefst
17. september n.k.
Hvorki gervigras né hitalögn
Endurbætur á Laugardals-
vellinum hefjast 17. september,
eða strax daginn eftir Evrópuleik
Vals gegn skozka liðinu Celtic.
Þetta var ákveðið á fundi hjá
Iþróttaráði Reykjavikur I gær-
morgun. Var ákveðiö að endur-
byggja völlinn, án þess að setja
hitalögn eða gervigras á hann.
Þetta kemur nokkuð á övart,
I þar sem rætt var um þetta mál á
fundi borgarstjórnar Reykja-
vikur ekki alls fyrir löngu — þar
sem lögð var fram tillaga um að
gerð yrði kostnaðaráætlun um
uppbyggingu vallarins með
gervigrasi . og hitalagningu.
Margir vonuðu að Reykjavikur-
borg sýndi stórhug og léti endur-
bæta völlinn með þeim hætti, svo
að treysta mætti meira á hann i
I framtiðinni.
Nú hefur iþróttaráð hins vegar
I ákveðið, að endurbætur á vellin-
LAUGARDALSVÖLLURINN... Valur og Celtic leika sfðasta leikinn á
honum fyrir endurbyggingu
um, verði með þeim hætti, að
einungis drenlagnir verði endur-
nýjaðar og völlurinn tyrfður.
Þess má geta, að borgarráð mun
taka endanlega ákvörðun I
málinu.
SKAGAMENN OG KEFLVÍKINGAR
Ileika ÞVÍ EKKI Á VELLINUM
— gegn mótherjum sínum í Evrópukeppninni
] Akvörðunin um að hefjast eigi
jhanda við endurbætur á Laugar-
j dalsvellinum 17. september,
Ihefur það i för með sér, að Akur-
lnesingar og Keflvikingar geta
Jekki leikið Evrópuleiki sina á
Ihonum. Þeim stendur aftur á
móti til boða að leika Evrópu-
leikina á nýja grasvellinum i
Laugardalnum, sem á næstunni
verður tilbúinn til kappleikja-
halds — en hann tekur 5-6 þús.
áhorfendur.
Skagamenn áttu að leika gegn
Nicosia frá Kýpur á Laugardals-
vellinum 5. október og Kefl-
vikingar gegn Dundee 23.
september. Það getur farið svo,
að Skagamenn og Keflvikingar
leiki sina leiki á heimavöllum.
Marteinn og Árni
hetjur Framara
.. sem sigruðu Víkinga (1:0) ★ Marteinn
skoraði sitt 20. 1. deildarmark
LANDSLIÐSMENNIRNIR Mar-
teinn Geirsson og Arni Stefánsson
voru hetjur Fram-liðsins, sem
sigraði Vikinga (1:0) á Laugar-
daisvellinum. Arni Stefánsson
átti snilldarleik i markinu og hélt
þvi hreinu, og Marteinn Geirsson,
hinn marksækni miðvörður,
tryggði Fram sigurinn með þvi að
senda knöttinn i netamöskva Vik-
ingsmarksins — og skora sitt 7.
deildarmark i ár. Þetta mark
Marteins var hans 20. 1. deildar
mark, en hann skoraði sitt fyrsta
mark 1971, gegn Akureyringum á
Laugardalsvellinum. Hann skor-
aði þá úr vitaspyrnu i leik, sem
Framarar unnu 5:2.
En nóg um það, snúum okkur
að leiknum á sunnudaginn:
Vikingar fengu gullið tækifæri
til að skora, strax i byrjun, þegar
Stefán Halldórsson komst einn
inn fyrir Fram-vörnina. En áður
en Stefán náði að skjóta, kastaði
Arni Stefánssonsér niður og góm-
aði knöttinn af tánum af honum.
Eftir þetta náðu Framarar meiri
tökum á leiknum — og á 33.
minútu hafnaði knötturinn I Vik-
ingsmarkinu. Simon Kristjánsson
átti þá sendingu fram völlinn, og
MARTEINN GEIRSSON.... hefur
skorað 7 deildarmörk I sumar.
knötturinn sveif inn i vitateig Vik-
ings. Diðrik ólafsson hljóp út úr
markinu til þess að hafa hendur á
knettinum —enhonum tókst ekki
að góma knöttinn, sem lenti á
brjóstkassanum á honum, og
hrökk þaðan til Kristins
Jörundssonar, sem skallaði að
onnu marki Vikinga. Ragnar
Gislason, bakvörður Vikingsliðs-
ins, og Marteinn Geirsson háðu
þá mikið kapphlaup um knöttinn
— Marteinn varsterkari á sprett-
inum og spyrnti knettinum yfir
marklinu Vikings, án þess að
Ragnar kæmi vörnum við.
— Mér tókst að halda Ragnari
fyrir aftan mig, sagi Marteinn
eftir leikinn.
Marteinn fékk svo gott tækifæri
til að bæta öðru marki við. Það
var rétt fyrir leikslok, þegar hann
stóð fyrir opnu marki — en þá
brásthonum bogalistin. Vikingar
fengu siðan góð marktækifæri i
siðari hálfleik, en Arni Stefánsson
kom I veg fyrir, að þeim tækist að
skora, og sigur Fram var i höfn.
Arni Stefánsson var bezti
maöur Fram-liðsins, en ungu
leikmennirnir hjá liðinu, þeir
Trausti Haraldsson og Pétur
Ormslev, áttu góða spretti. Hjá
Vikingi áttu þeir óskar Tómasson
og Jóhannes Bárðarson beztan
leik.