Tíminn - 29.08.1975, Qupperneq 1

Tíminn - 29.08.1975, Qupperneq 1
Stjórnlokar Olíudælur Olíudrif Landvélarhf V-Þýzk eftirlitsskip hafa elt varðskipin Gsal-Reykjavik — 1 sambandi viö könnun þá, sem nú er i gangi á vegum dómsm ála ráðuney tis, utanrikisráðuneytis og Land- helgisgæzlunnar, vegna þeirra fuliyrðinga, að vestur-þýzk eftir- litsskip á islandsmiðum gefi togurum sinum upp staðar- ákvarðanir islenzku varðskip- anna, — verður, að sögn ólafs Walters, skrifstofustjóra dóms- málaráðuneytisins, leitazt við að íæra fuiikomna sönnun á, að slikt eigi sér raunverulega stað. — Við höfum oft og mörgum sinnum kvartað við okkar ráðu- neyti undan háttalagi V.-þýzku eftirlitsskipanna, sagði Pétur Sigurðsson, forstjóri Landhelgis- gæzlunnar, i gær. — Eftirlitsskip- inhafa hreinlega elt varðskipin i allt sumar, og við vitum að þau gefa togurum upplýsingar um ferðir okkar, sagði hann enn fremur. Ólafur Walter, skrifstofustjóri dómsmálaráðuneytisins, sagði að þessa dagana væri verið að safna gögnum i málinu, en ekki kvaðst hannhafa á reiðum höndum svör við þvi, hvað gert yrði að lokinni gagnaöflun. — Já, við höfum rökstuddan grun um það, að v-þýzku eftirlits- skipin gefi togurum sinum upp staðarákvarðanir varðskipanna okkar, — en hins vegar er það miklum erfiðleikum bundið að sanna þetta, sagði Gunnar Ólafs- son hjá Landhelgisgæzlunni i við- tali við Timann i gær. Sagði Gunnar, að eftirlitsskipin fylgdust mjög náið með ferðum varðskipanna og veittu þeim oft eftirför. Kvað hann Landhelgis- gæzlumenn oft hafa heyrt skip- stjómarmenn v-þýzku skipanna senda togurunumupplýsingar um varðskipin. Á miðunum kringum tsland eru að öllu jöfnu stödd tvö v.-þýzk eftirlitsskip, þótt stundum komi fyrir að þau séu fleiri, að sögn Gunnars. Tvö brezk eftirlitsskip eru einnig á íslandsmiðum, en Gunnar kvað þau ekki gefa togur- um sinum upplýsingar um ferðir islenzku varðskipanna. — Þetta er bæði ósmekklegt og ruddalegt af skipstjornarmönn- um v-þýzku eftirlitsskipanna, sagði Gunnar. Hann gat þess jafnframt, að það væri tvennt ólikt, hvað Landhelgisgæzlumenn vissu um gerðir Þjóðverjanna, og hvað þeir gætu sannað á þá fýrir rétti. — Hins vegar er það staðreynd, að skipin sigla á eftir varðskipun- um og gefa togurum sinum upp allar stefnubreytingar og hraða- breytingar varðskipanna, sagði Gunnar Ólafsson. Hvallátur í eyði — aðeins þrjár eyjar enn í byggð á Breiðafirði TÍMINN GEFUR ÚT HÁTÍÐAR- BLAÐ í TILEFNI 30 ÁRA AFMÆLIS STÉTTARSAMBANDSINS Timinn hefur gefið út sérstakt blað i tilefni 30 ára afmælis Stéttarsambands bænda, en I kvöld verður afmælisins sér- staklega minnzt með hátiðar- samkomu að Laugarvatni, þar sem aðalfundur Stéttarsam- bands bænda 1975 hófst I morgun. Þetta hátiðarblað Timans er 48 siður að stærð. Meðal efnis þess er ávarp landbúnaðarráð- herra, Halldórs E. Sigurðsson- ar, en hann var einn af fulltrú- um á stofnfundi sambandsins fyrir 30 árum. Asgeir Bjarnason ritar afmæliskveðju frá Búnaðarfélagi Islands, Sæ- mundur Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Stéttarsambands bænda, skrifar yfirlitsgrein um sögu sambandsins, og itarlegt viðtal er við Gunnar Guðbjarts- son, formann Stéttarsambands- ins. Þá er grein um fyrsta for- mann sambandsins, Sverri Gislason i Hvammi, og viðtal við Erlend Einarsson, forstjóra SÍS, um tengsl Sambandsins og bændastéttarinnar. Einnig er i blaðinu fjöldi mynda og linurita, sem skýra islenzkan landbúnað og stöðu hans f islenzku nútima- þjóðfélagi. Loks er i blaðinu listi yfir stærstu bú á landinu. Forsiða hátiðarblaðs Timans FJ-Reykja vik. Aðalfundur Stéttarsambands bænda hefst i dag að Laugarvatni, en þar var stofnfundur sambandsins haldinn fyrir 30 árum. Kjörnir fulltrúar á fundinum eru 46, en auk þeirra hefur stjórn Stéttarsambandsins boðið þeim 26 stofnfélögum, sem enn eru á lifi, til íundarins. Stofnfundur Stéttarsambands bænda fyrir 30 árum var haldinn i húsakynnum Héraðsskólans aö Laugarvatni, sem myndin hér fyrir ofan er af. Aðalfundurinn nú er hins vegar haldinn i húsnæði Menntaskólans að Laugarvatni. Tefur reglu- gerð síldveið- ar fyrir Suð- austurlandi? Ö.B. Reykjavik. — í gær rann út skilafrestur á umsóknum um sildarsöltunarleyfi, er sildarút- vegsnefnd veitir. Leyfin eru ætluð söltunarstöðvum, er hyggjast fullverka síld, sem veiðist fyrir suðvesturlandi, og bátum, sem veitt verður leyfi til sildveiða á þeim miðum. Blaðið hafði samband við Gunnar Flóvenz, forstjóra sildar- útvegsnefndar, og spurðist fyrir um fjölda umsókna. Ekki kvaðst Gunnar vera reiðubúinn að svara þessari spurningu að svo stöddu, þvi að menn hefðu hringt viðs vegar af landinu til þess að fá skilafrest. Sjávarútvegsráðuneytið fram- lengdi umsóknarfrest til handa útgerðarmönnum, sem hyggjast senda báta sina á herpinótaveiðar fyrir suðausturlandi, til 5. sept. vegna reglugerðar, sem Fram- leiðslueftirlit sjávarafurða gaf út fyrir skömmu. Kom reglugerð þessi ýmsum að óvörum, þvi þar er strangt kveðið á um, hvernig sildin skuli verkuð um borð, og er þvi ekki sýnt, hvort allir þeir, er lagt höfðu inn umsóknir til herpi- nótaveiðanna, geta fullnægt ákvæðum reglugerðarinnar. Sildveiðarnar fyrir Suðaustur- landimega hefjast 15. september. Eyfirzku hafa það bænda bezt * o

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.