Tíminn - 29.08.1975, Page 4
4
TÍMINN
Föstudagur 29. ágúst 1975
Þetta er í ættinni
Þessi glæsilega dökka stúlka
heitir Agnes Mugambwa og er
frá Uganda, og getur hún sér
gott orð i London við sýningar-
störf. Hún er frænka Elizabetu
prinsessu frá Toro i Uganda,
sem er lika fræg tizkusýningar-
stúlka. Annars varð Elizabeth
heimsfræg, þegar Amin, ein-
ræðisherra gerði hana að utan-
rikisráðherra, og dáði hana
mjög. Samskipti þeirra enduðu
þó þannig, að öttazt var um lif
hennar, því að hann rak hana úr
embættinu vegna einhvers mis-
sættis milli þeirra og þá hvarf
Elizabeth um tima og enginn
.vissi hvað af henni hafði orðið.
Siðar kom hún fram aftur og var
þá heil á húfi. Agnes segir, að
þótt hún sé nú eftirsótt og mikið
látiö með hana i London I tizku-
heiminum, þá ætli hún samt
ekki að sleppa sinni góðu vinnu
sem bókari hjá stóru fyrirtæki.
— Það er svo mikiö öryggi I þvi
að hafa trausta vinnu, segir
hún.
o
Tvíburar
Þaö er sagt heldur sjaldgæft að
tvö folöld fæðist samtimis, en
hryssan hér á myndinni getur
sannarlega verið stolt, þvi hér
er hún með folöldin sin tvö, sem
komu i heiminn samtimis.
Hryssan er af þvi sem kallað er i
★
myndatextanum Trakehner-
kyn, og hefur verið ræktað i
Þýzkalandi allt frá árinu 1732.
Upphaflega var farið að rækta
þetta hrossakyn i borginni
Trakehner i Austur Prússlandi,
og hélt sú ræktun áfram allt
fram til ársins 1945, þegar rækt-
unin fluttist til Saxlands og
Schleswig-Holstein. Þar er nú
hvað mest af þessu hrossakyni i
dag. *
Brúargjöld íþdgu
góðs mdlefnis
t V.-Þýzkalandi er venjulega
æitlunin að leyfa fólki að nota
götur, hraðbrautir, brýr, jafn-
vel nýju jarðgöngin undir Elbe
nálægt Hamborg, án þess að
greiða gjald fyrir. En nú fyrir
skömmu þegar vigð var ný brú
yfir Neckar i Reutlingen notuðu
borgarfeðurnir sér gamla
reglugerð frá árinu 1822 um að
til þess að mega fara yfir brú
veröi' fólk að borga gjald. Þeir
settu upp gamlan klefa, létu
brúarvarðmann og ungar stúlk-
ur klæðast sögulegum búning-
um og heimtuðu inn brúarpen-
inga af vegfarendum. Tekjun:
um af þessu tiltæki, sem urðu
yfir 10.000 niörk, var siða,n ráð-
stafað til „Fatlaðra barna”.
Myndin sýnir fólkið á brúnni
skim-a eftir nýju fórnarfambi.
DENNI
DÆMALAUSI
,,Þá það ungi maður, ef þú endi-
lega vilt hjálpa til..„" „Hvernig
heldurðu að þetta hjálpi Wilson?”