Tíminn - 29.08.1975, Side 5
Föstudagur 29. ágúst 1975
TÍMINN
5
Gufuaf Isstöðin
við Kröflu
A s.l. vetri þurfti oft sinnis
að gripa til rafmagns-
skömmtunar á Norðurlandi,
og beindust augu manna
meira en ella að raforkumál-
um Norðlendinga af þeim sök-
um. Hætt er við, að Norð-
lendingar verði fyrir raf-
magnstruflunum á komandi
vetri, en upp úr þvi ættu þeir
að geta litið bjartari augum til
framtiðarinnar, þvi að
virkjunarframkvæmdir við
gufuafisstöðina við Kröflu eru
i fuilum gangi, og stefnt er að
þvi, að stöðin geti hafið fram-
leiðslu fyrir árslok 1976.
Akureyringar hafa af þvi
nokkrar áhyggjur, að dráttur
geti orðið á þvi að nýja há-
spennuiinan frá Kröflu verði
lögð til Akureyrar, en það
verk er i höndum Rafmagns-
veitna rikisins. Verður að
leggja mikla áherzlu. á, að sú
linulögn dragist ekki.
Stærsta orkuver
Norðurlands
Blaðið Dagur á Akureyri
gerir v ir k juna rf ra m -
kvæmdirnar við Kröflu að
umtalsefni i leiðara nýiega, og
segir:
,,Ein eftirtektarverðasta
virkjun, sem nú er unnið að i
landinu, er jarðgufuaflsstöðin
við Kröflu i Mývatnssveit. Af
tvennum ástæðum aðallega er
virkjun þessi athyglisverð. i
fyrsta lagi er hér um að ræða
fyrstu stóru jarðgufuvirkjun á
islandi. i öðru lagi er þetta
stærsta orkuver, sem reist
hefur verið á Norðurlandi til
þessa. Raunar verður orku-
verið við Kröflu eitt hið mesta
mannvirki, sem nokkru sinni
hcfur verið reist i Norð-
lendinga f jórðungi. Með
Kröfluvirkjun erhafizt handa
um framkvæmd hér i
fjórðungnum, sem lengi hefur
verið beðið eftir. Hér er um
stórvirkjun að ræða á is-
lenzkan mælikvaröa, 60 mega-
watta stöð, sem fullnægir um
árabil þörfum ibúa Norður-
lands og Austurlands fyrir
örugga og næga raforku og
opnar nýja möguleika varð-
andi raforkunotkun i sýslum
og landshlutum, sem hafa
verið í raforkusvelti undan-
farin ár. Það hlýtur því að
vera Norðlendingum öllum
mikið fagnaðarefni, að ráðizt
hefur verið I að koma upp
þessu mikla og sérstæða raf-
orkuveri. Ber að þakka öllum,
sem unnið hafa að því að koma
þessu máli fram, enda er um
að ræða eitt af mestu fram-
faramálum Norðlendinga.”
-a.þ.
Gifurlegur mannfjöldi hlýddi jafnan á leik Lúðrasveitar Reykjavikur I vesturförinni. Timamynd: G.E.
Lúðrasveitin lék
fyrir dansinum
LGÐRASVEIT Reykjavikur er
nýlega komin aftur úr ferð sinni
tilKanada itilefniaf 100 ára land-
námsafmæli tslendinga á Nýja
tslandi i Manitobafylki i Kanada.
Ferðin stóð yfir i þrjár vikur og
dvaldist hópurinn, alls rúmlega
50manns, lengst af i Gimli. Hópn-
um var tekið forkunnarvel af
heimamönnum, enda eignuðust
Lúðrasveitarmenn marga vini og
kunningja á þessum slóðum þeg-
ar þeir ferðuðust þarna um árið
1972. Flestir þátttakenda núna
dvöldust á einkaheimilum allan
timann sem þessi ferð stóð yfir.
Lúðrasveitin tók virkan þátt i
hátiðahöldum á íslendinga-
daginn, en sú hátið stóð I 3 daga.
Kom Lúðrasveitin fram fimm
sinnum yfir hátlðadagana og tók
auk þess þátt I hátiðaskrúðgöng-
unni, sem var sjónvarpað beint af
CBS sjónvarpsstöðinni I Winni-
peg.
Þá voru haldnir tónleikar
I Lundar i samvinnu við
Þjóðdansafélag Reykjavlkur,
sem hélt þar danssýningu sama
kvöldið. Einnig fór Lúðrasveit
Reykjavlkur til Churchbridge I
Saskatchewanfylki til þátttöku i
90 ára landnámsafmæli landanna
þar. Tvennir tónleikar voru
haldnir I þeirri ferð auk þess sem
Lúðrasveitarmenn léku þar fyrir
dansleik.
Þessi ferð var farin fyrir milli-
göngu Miss Caroline Gunnarsson,
ritstjóra Lögberg — Heims-
kringlu, en orð haföi farið af
Lúðrasveitinni árið 1972 og borizt
til Churchbridge.
Alls var leikið opinberlega 10
sinnum i þessari ferð auk skrúö-
göngunnar og dansleiksins. Vakti
leikur Lúðrasveitarinnar hvar-
vetna athygli og virtist vera
Vestur-Islendingum til mikillar
ánægju.
Þess má að lokum geta að
Lúörasveitin fór þessa ferð á
eigin kostnað en hlaut fyrir-
greiðslu I lánum af hálfu ríkisins.
I ferð Lúðrasveitar Reykjavlk-
Já! Þetta fæst
allt i
byggingavöru-
kjördeildinni.
Hér verzla þei^
sem eru að
byggja eða
þurfa að
endurnýja.
Opið til kl. 7
á föstudögum
Lokað á
laugardögum.
Atvinna
Ráðskonu vantar að veitingahúsinu Vega-
mótum, Miklaholtshreppi.
Upplýsingar gefur Jón Einarsson.
Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi.
YOKOHAMA Y
ur árið 1972 var ferðast meira eða
frá Minneapolis I Bandarikjunum
landveg um Winnipeg, Gimli og
nágrenni til Edmonton, Calgary,
Vancouver og allt til Seattle á
vesturströnd Bandarlkjanna. Þá
var leikið opinberlega 21 sinnum
á 15 stöðum og komið einu sinni
fram I sjónvarpi.
Hljómsveitarstjóri lúðrahljóm-
sveitarinnar er Björn R. Einars-
son.
Veitum alhliöa hjólbaröaþjónustu
Komið með bilana inn í rúmgott húsnæði
mánud.-fimmtud. 8-19
föstudaga 8-22
laugardaga 9-17
Véladeild
Sambandsins
HJÓLBARÐAR
HÖFÐATÚNI 8
SlMAR 16740 OG 38900
Auglýsing um afgreiðslutíma
MATVÖRUVERZLANA
í Reykjavík og nógrenni
Verzlanir vorar verða áfram lokaðar á laugardögum
og gildir þessi ákvörðun til októberloka.
Félag matvörukaupmanna,
Félag kjötverzlana,
Kaupgarður,
Vörumarkaðurinn,
Hagkaup og
AAjólkursamsalan í Reykjavík