Tíminn - 29.08.1975, Side 14
14
TÍMINN
Föstudagur 29. ágúst 1975
LÖ GREGL UHA TARLNN
eftir
Ed McBaines
Þýðandi Haraldur Blöndal
— Lögreglusveit 87, Meyer leynilögreglumaður taíar,
sagði hann.
— Cowper lögreglufulltrúi verður skotinn til bana
annað kvöld — nema ég fái fimm þúsund dollara fyrir
hádegi, sagði mannsrödd.— Ég læt vita meira seinna.
— Hvað þá.... sagði Meyer. En maðurinn var búinn að
leggja á. AAeyer leit á klukkuna. Hún var 4.15 eftir há-
degi.
Þegar Steve Carella leynilögreglumaður kom inn í
skrifstofuherbergi stöðvarinnar kl. 4.30, þennan sama
eftirmiðdag, kallaði Byrnes flokksforingi hann inn á
skrifstofu sína. Byrnes sat við skrifborð sitt. Tveir
gluggar voru á herbergi hans. Byrnes tottaði vindil og
var yf irmannslegur í bragði. Hann var klæddur grárönd-
óttum fötum, ögn dekkri en höfuðhár hans. Bindið var
svart með gulllitum röndum. Skyrtan var hvít og svolítill
eplagrænn málningarblettur á annarri erminni. Á hægri
hönd var hann með skólahring með rauðbrúnum steini,
en giftingarhring á þeirri vinstri. Hann bauð Carella
kaffibolla, og þegar hann jánkaði því boði, hringdi hann
á Miscolo skrifara og bað hann að koma með annan
kaf f ibolla. Því næst bað hann Meyer að segja Carella f rá
simhringingunni í sem gleggstu máli. Meyér var tæpar
tíu sekúndur að skýra frá inntaki símtalsins.
— Er þetta allt og sumt? spurði Carella.
— Já, meira var það nú ekki.
— Einmitt það.
— Hvað heldur þú um þetta, Steve? sðurði Byrnes.
Carella sat á skrif borðskantinum. Borðið var rispað og
illa farið. Carella var hár og grannvaxinn maður. Þessa
stundina leit hann út eins og flækingsræfill. Innan
skamms myndi hann fara að ráfa um myrkar göturnar
og hola sér niður í húsasundi, angandi af brennivíni og
með þá ósk æðsta, að einhver reyndi að kveikja í sér.
Tveim vikum áður hafði verið kveikt í RAUNVERU-
LEGUM flækingi. Þar voru að verki skemmtanaglaðir
unglingar. I síðustu viku varð enn annar f lækingurinn ó-
fús bálköstur þessara villinga. I þetta sinn beið maður-
inn bana. Sökum þessa hafði Carella eytt undanförnum
nóttum liggjándi í húsasundum og skotum. Hann lék
róna og óskaði þess, að reynt yrði að kveikja í sér. Hann
var með þriggja daga gamalt skegg. Hvassir og grófir
skeggbroddarnir á kjálkum hans voru samlitir brúnu
hári hans. En skeggvöxturinn var strjáll, og heild-
arrhyndin var því heldur óf ullkomin. Rétt eins og losara-
leg mynd óreynds listamanns. Augun voru brún. Carella
gældi við þá hugsun, að augnaráð sitt væri skarpt. En
augu hans voru sem augu gamals manns. Tjásulegt
skeggið, margra daga óhreinindi, sem safnazt höfðu á
enni hans og kinnar, og ræfilslegur útgangurinn juku enn
á þessa mynd. ör var á andliti hans, sem virtist vera að
gróa. Þetta var ávöxtur snilldarlegrar andlitsförðunar.
Carella virtist einnig vera lúsugur. Byrnes ók sér og
klóraði, ósjálfrátt. Raunar fór ósjálfráður kláði um alla,
sem í herberginu voru. Carella snýtti sér, áður en hann
svaraði spurningu f lokksforingjans. Vasaklúturinn,
sem hann dró upp úr rassvasanum á skítugum buxunum,
virtist helzt fenginn úr einhverju skolpræsanna. Carella
var með nefrennsli, og snýtti sér því rausnarlega. Það
má nú ganga of langt í leikaraskapnum, hugsaði Meyer
með sér. Carella tróð snýtuklútnum aftur í buxnavasann
og sagði svo:
— Vildi hann tala við einhvern sérstakan?
— Nei. Hann romsaði þessu öllu út úr sér um leið og ég
sagði til nafns.
— Kannski er þetta gabb eitt, sagði Carella.
— Það gæti verið.
— En hvers vegna velur hann okkur? Byrnes var
f ullur efasemdar. Þetta var líka góð spurning. Verið gat
að maðurinn væri EKKI að gabbast. Verið gat að hann
ætlaði að myrða Cowper lögreglufulltrúa, nema hann
fengi fimm þúsund dollara fyrir hádegi næsta dag. En
hvers vegna hringdi hann í lögreglusveit 87? í þessari
ágætu borg voru margar lögregluskrifstofur, sem ekki
var verið að mála í marzbyrjun. Það var að minnsta
kosti vonandi, að svo væri. Á öllum þessum lögreglu-
stöðvum voru leynilögreglumenn, sem ræktu starf sitt af
sömu elju og festu og þessir ágætu menn, sem nú sötruðu
síðdegiskaff ið sitt og látu daginn líða. Allir þessir menn
þekktu lögreglufulltrúann jafn vel og þessir verðir lag-
anna. Hvers vegna varð þá 87. lögreglusveitin fyrir val-
inu?
Þetta var góð spurning. Hún átti það sammerkt með
öllum góðum spurningum, að henni varð ekki fljótsvar-
að. Miscolokom inn með kaffiðog innti Carella eftir þ.ví,
hvenær hann ætlaði í bað. Við svo búið fór hann aftur
■1
íl
■ j]Tí
lllllllllllí
■
l::i
I
Föstudagur
29. ágúst
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.) 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna
8.45 Arnhildur Jónsdóttir les
söguna „Sveitin heillar”
eftir Enid Blyton (5)
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða. Spjallað viö
bændur kl. 10.05.
Morgunpoppkl. 10.25 Morg
tónleikar kl. 11.00: Wieck-
trióið leikur Trió i g-moll
fyrir pianó, fiðlu og selló
eftir Klöru Wieck-
Schumann/Sinfóniuhljóm-
sveitin i Pittisburg leikur
Sinfóniu nr 4 „Itölsku
sinfóniuna” eftir
Mendelssohn.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan „i
Rauðárdalnum” eftir Jó-
hann Magnús Bjarnason
Örn Eiðsson les (23)
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar
(16.15 Veðurfregnir)
16.25 Popphorn.
17.10 „Lifsmyndir frá liðnum
tima” eftir Þórunni Elfu
Magnúsdóttur.Höfundur les
18.00 „Mig hendir aldreineitt”
stuttur umferðarþáttur i
umsjá Kára Jónassonar.
Tónleikar Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 Frá sjónarhóii neytenda.
Þórunn Klemensdóttir hag-
fræðingur talar um mögu-
leika á ódýrari innflutningi.
20.00 Strengjakvartett nr. 2
eftir Benjamin Britten.
Allegri-kvartettinn leikur.
20.30 Um landmælingar og
fornmenningu. Einar Páls-
son flytur erindi.
21.10 Kórsöngur. Kammerkór
finnska útvarpsins syngur
kórlög eftir Vaughan
Williams og Max Reger,
Harald Andersen stjórnar.
21.30 Útvarpssagan: „Og
hann sagði ekki eitt einasta
orð” eftir Heinrich Böll
Böðvar Guðmundsson þýddi
og les ásamt Kristinu Ólafs-
dóttur (8).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. iþróttir.
Umsjón: Jón Asgeirsson.
22.40 Afangar.Tónlistarþáttur
i umsjá Asmundar Jóns-
sonar og Guðna Rúnars
Agnarssonar.
23.30 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Föstudagur
29. ágúst
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Minningar frá steinöld
Bresk fræðslumynd um
frumbyggja á Nýju Gineu
og lifnaðarhætti þeirra.
Einn úr hópi frumbyggja
segir frá æskuárum sinum
og viðbrögðum fólksins,
þegar hvitir menn tóku að
setjast að á meðal þess.
Þýðandi Þórhallur
Guttormsson. Þulur Stefán
Jökulsson.
21.25 Þjóðlagastund Vilborg
Arnadóttir, Heimir Sindra-
son og Jónas Tómasson
syngja þjóðlög og lög i þjóð-
lagastil. Fyrst á dagskrá 18.
janúar 1971.
21.50 Skálkarnir Breskur
sakamálamyndaflokkur. 5.
þáttur. Alice Sheree. Þýö-
andi Kristmann Eiðsson.
22.40 Dagskráriok.