Tíminn - 10.10.1975, Page 14
14
TÍMINN
Föstudagur 10. október 1975.
LÖGREGL UHA TARINN
37
Ed McBain
Þýðandi Haraldur Blöndal
Sautján ára gamall uppgjafa menntaskólaneminn var
farinn að öskra tilvitnanir úr Miranda Escobedo eins og
hann væri lögfræðingur. Genero sagði honum hvað eftir
annað að halda sér saman. Hins vegar var Genero ekki
alveg fyllilega heima í úrskurði hæstaréttar, þrátt fyrir
fregnmiða til allra lögregluþjóna hverfisins. Nú var
hann farinn að óttast að strákurinn vissi eitthvað, sem
honum væri ekki kunnugt um sjálfum. Það gladdi hann
því meira en lítið að heyra fótatak á nýmáluðum tröpp-
unum. Willis og Brown birtust fyrstir. Kling og Haws
f ylgdu fast á eftir. Genero hafði getað kysst þá alla.
— Eru þetta tuddarnir, spurði sá uppflosnaði.
— Haltu þér saman, svaraði Genero.
— Hvað er um að vera, spurði Brown.
— Segðu vini þínum hérna um Miranda Escobedo,
sagði strákurinn.
— Hver ert þú, spurði Brown.
— Hann afhenti hér umslag, sagði Genero.
— Byrjar það enn einu sinni, sagði Haws.
— Hvað heitir þú, drengur minn?
— Láttu mig vita um réttindi mín, sagði strákurinn.
— Segðu mér hvað þú heitir, eða ég hýði þig, sagði
Brown.. — Hvernig lízt þér á þær upplýsingar? Hann var
nýbúinn að sjá hvað hópur ungra þorpara gerði við Car-
ella. Af þeim sökum var hann alls ekki í skapi til að
hlusta á montraus í einhverjum strákgemsa.
— Ég heiti Michael McFadden og svara engum spurn-
ingum án þess að haf a hér lögf ræðing, sagði strákurinn.
— Hefur þú efni á lögmanni, spurði Brown.
— Nei.
— Hal, útvegaðu drengnum lögf ræðing, sagði Brown fil
að villa um fyrir honum.
— Bíðið hægir. Hvað er um að vera. spurði McFadden.
— Ef þú vilt lögfræðing, þá útvegum við þér hann,
sagði Brown.
— Til hvers þarf ég lögmann? Ég gerði ekki annað en
að afhenda hér bréf.
— ÉG veit ekki hvers vegna þú þarft lögfræðing. ÞO
baðst um hann, svaraði Brown. Hringdu á skrifstofu
rikissaksóknarans og útvegaðu þessum grunaða manni
lögfræðing, Hal.
— Grunaða? GRUNAÐA? sagði McFadden alveg
grallaralaus.— Hvern f jandann hef ég gertaf mér?
— Ég veit það ekki, drengur minn. Þú leyfir mér ekki
að spyrja þig neinna spurninga án þess að hafa hér lög-
fræðing viðstaddan, svaraði Brown... — Ertu að útvega
lögfræðinginn, Hal?
Willis var búinn að lyfta símtólinu. En þó hann hlustaði
ekki á neitt merkilegra en sóninn sagði hann: — Beina
línan er upptekin, Art.
— Allt í lagi. Við hinkrum aðeins. Láttu fara vel um
þig, drengur minn. Við útvegum þér lögf ræðinginn hing-
að eins fljótt og unnt er.
— Hvaða læti eru þetta? Ég þarf alls engan lögmann,
sagði McFadden.
— Þú sagðist vilja lögfræðing.
— Já, en ef þetta er ekkert alvarlegt....
— Við vildum aðeins spyrja þig nokkurra spurninga
um umslagið þarna. Það var nú allt og sumt.
— Hvers vegna? Hvað er í því?
— Eigum við ekki að opna umslagið og sýna piltinum
hvað er í þvi, sagði Brown.
— Ég gerði ekki annað en að afhenda það, sagði Mc-
Fadden.
— Eigum við ekki að kanna hvað er í umslaginu, sagði
Brown.. Hann tók með vasaklút sínum á umslaginu og
opnaði það svo með pennahníf. Bréf inu náði hann úr með
töng.
— Notaðu þessa, sagði Kling. Hann tók fram hvita
bómullarhanzka úr efstu skúffunni í skrifborði sínu.
Brown lét á sig glófana. Hann laumaði upp úr sér brand-
ara og hló. Félagar hans tóku undir og sama gerði Mc-
Fadden. En er Brown leit á hann kafnaði hláturinn
skjótt. Brown opnaði bréf ið og lagði það á borðið:
ENDURTEKIÐ:
SAMI SKRÚÐGARÐUR
SAMI BEKKUR
SAMA NESTISSKRÍNA
FYRIR HÁDEGI Á MORGUN
ANNARSSAMA MORÐHÖTUN
— Hvað á þetta að tákna, spurði McFadden.
— Segðu okkur frá því, sagi Brown.
— Ég skil hvorki upp né niður.
— Hver lét þig fá bréfið?
— Hávaxinn, Ijóshærður náungi með heyrnartæki í
eyranu.
— Þekkir þú hann?
— Ég hef aldrei séð hann fyrr.
D
R
E
K
I
K
U
B
B
U
m
■1
Föstudagur
lO.október
7.00 Morgunútvarp Veöur-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
■ Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Björg Arnadóttir les
söguna „Bessi” eftir
Dorothy Canfield i þýðingu
Silju Aðalsteinsdóttur (5).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða. Spjailað við
bændur kl. 10.05. Morgun-
popp kl. 10.25. Morguntón-
leikar kl. 11.00: William
Bennett og Grumiaux-trióið
leika Flautukvartett i D-diir
eftir Mozart/ Suk-trióið
leikur Trió i a-moll op. 50
fyrir fiðlu, selló og pi'anó
eftir Tsjaikovski.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
13.30 Setning Alþingisa. Guðs-
þjónusta i Dómkirkjunni
Prestur: Séra Jónas Gisla-
son. Organleikari: Ragnar
Björnsson. Dómkórinn
syngur. b. Þingsetning.
14.45 Endursögn eftir Anders
Bodelsen.
15.15 Miðdegistónieikar
Ferdinand Frantz og Sax-
neska rikishljómsveitin
flytja tónlist úr „Meistara-
söngvunum i Nurnberg”
eftir Wagner, 'Rudolf
Kempe stjórnar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphorn
17.10 Tónleikar.
17.30 Mannlif i mótun Sæ-
mundur G. Jóhannesson rit-
stjóri á Akureyri rekur
minningar sinar frá upp-
vaxtarárunum i Miðfirði
(7).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 Frá sjónarhóli neytenda
Reynir Hugason ræðir um
litsjónvarp og steró-útvarp.
20.00 Frá fyrstu tónleikum
Sinfóniuhijómsveitar ís-
lands á nýju starfsári i
Háskólabiói kvöldið áður.
Einleikarix Arve Tellefsen.
Stjórnandi: Karsten Ander-
sen. a. „Leiðsla” eftir Jón
Nordal. b. Fiðlukonsert eftir
Carl Nielsen. c. Sinfónia nr.
1 eftir Jean Sibelius. —
Kynnir: Jón M. Arnason.
21.30 „Pegasus á hjólum”
Ljóðaþáttur i umsjá Stefáns
Snævarr. Lesarar með hon-
um: Gerður Gunnarsdóttir
og Birgir Svan Simonarson.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. tþróttir
Umsjón: Bjarni Felixson.
22.40 Afangar Tónlistarþáttur
i umsjá Ásmundar Jónsson-
ar og Guðna Rúnars
Agnarssonar.
23.30 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
lliiiill
Föstudagur
10.október
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Kastljós Þáttur um inn
lend málefni. Umsjónar-
maður Eiður Guðnason.
21.25 Fölnaðar rósir Maia
Plissetsskaya og Bolshoi-
ballettinn dansa. Roland
Petit samdi dansana, en
verkið er byggt á ljóði eftir
enska skáldið William
Blake.
21.55 Skálkarnir Breskur
sakamálamyndaflokkur. 11.
þáttur. Smudger Þýðandi
. Kristmann Eiðsson.
22.45 Dagskrárlok
\
>