Tíminn - 10.10.1975, Side 17
Föstudagur 10. október 1975.
TÍMINN
17
Umsjón: Sigmundur ó. SteinarssonH
Rússar sögðu „Njet
og allt bendir til að Skagamenn mæta Dynamo Kiev í flóðljósum ó AAelavellinum
tSLANDSMEISTARARNIR
frá Akranesi leika að öllum
likindum gegn ,,spútnik”-lið-
inu Dynamov Kiev i flóðljós-
um á Meiavellinum miðviku-
daginn 5. nóvember i Evrópu-
keppni meistaraliða Skaga-
menn hafa nú haft samband
við Sovétmennina — og þeir
byrjuðu á þvi, að grennslast
fyrir um það hvort ekki væri
möguleiki á að breyta leikdög-
um, þannig að fyrri leikurinn
yrði leikinn hér á landi.
Skagamenn sendu út skeyti
þess efnis, að þeir óskuðu euir
breytingum á leikdögum —
þannig að þeir fengjuheima-
leik sinn 18.eða 25. október, og
einnig hvort ekki væri hægt að
breyta leikdögum ytra, ef það
hentaði Sovétmönnum betur.
Svarið sem Skagamenn fengu,
var stuttu og laggott — ,,Njet,
engar breytingar.”
Sovétmenn ætla greinilega
að halda sig við þá leikdaga,
sem settir voru á af UEFA —'
leika í Kiev 22. október og hér
á landi 5. nóvember.
Nú hafa Akurnesingar gert
enn eina tilraun til að fá
breytingar á leikdögum. —
Þeir hafa sent Sovétmönnum
skeyti, þar sem þeir fara fram
á, að fá að leika heimaleik
sinn 1. eða 2. nóvember — um
helgi. Ef forráðamenn
Dynamo Kiev samþykkja það
ekki, þá verða Akurnesingar
að leika á Melavellinum 5.
nóvember — i fljóðljósum.
Hlutverkaskipti hjá Islandsmeisturunum:
Víkingar með nýja ..fall-
byssu" í herbúðum sínum
ÞORBERGUR AÐALSTEINS-
SON, ungur og bráðefnilegur leik-
maður, lék stórt hlutverk hjá
Vikingum, þegar „Austm-bæjar-
risarnir” tryggðu sér Reykja-
víkurmeistaratitilinn — með þvi
að vinna góðan sigur (19:16) yfir
Vesturbæjarliðinu KR. Þegar
stjörnur Vikings-liðsins brugðust
i byrjun leiksins, þá tók Þorberg-
ur að sér aðalhlutverkið og skor-
aði 5 mörk I fyrri hálfleik — og
siðan 2 þýðingarjnikil mörk á
lokamínútum leiksins, eða alls 7 i
leiknum. Það er greinilegt að
þarna er að skjótast fram á
sjónarsviðið ný „fallbyssa”, sem
i framtiðinni á örugglega eftir að
fylla upp það skarð, sem Einar
Magnússon hefur skilið eftir sig I
Vikingsliðinu.
Vikingar höfðu meiri leik-
reynslu, og það bjargaði þeim i
keppninni gegn ungu og ört vax-
andi KR-liði, sem veitti Islands-
meisturunum harða keppni. Það
var ekki fyrr en á siðustu minút-
um leiksins, sem Vikingum tókst
að tryggja sér öruggan sigur —
þegar Viggö Sigurðsson og Siðan
Þorbergur (2) breyttu stöðunni úr
15:15118:15, en leiknum lauk með
sigri Vikings 19:16.
KR-liðið kom skemmtilega á
óvart. — Það leynir sér ekki, að
Geir Hallsteinsson hefur farið
Þorbergur Aðalsteinsson skoraði 7 mörk fyrir „Austurbæjar-
risana", þegar þeir tryggðu sér Reykjavíkurmeistaratitilinn
höndum um liðið, og má glöggt
sjá framfarir i hverjum leik þess.
Það eru ekki eingöngu 1-2 leik-
menn sem skara fram úr eins og
verið hefur, heldur komu ungu
leikmennirnir fram á sjónarsvið-
ið og þeir létu að sér kveða, svo
um munaði. Simon Unndórsson
og Sigurður Páll óskarsson eru
ÞORBERGUR AÐALSTEINS-
SON... sést hér skora eitt af
mörkunum 7, sem liann skoraði
fyrir Vikingsliðið gegn KR.
(Tímamynd Gunnar).
iSigné Leifsson
au Stade Communal
premier
renversa
bráðefnilegir leikmenn — Simon
er kraftmikil langskytta og
Sigurður Páll drjúgur linumaður.
sem skorar skemmtileg mörk úr
hornum. Þá stendur Hilmar
Björnsson fyrir sinu,— Hai::: ger-
ir stundum slæm mistök i sókn, og
Emil Karlssonernú aftur kominn
imarkið —hann styrkir liðið miK-
ið.
Vikingsliðið á greinilega eftir
að-verða gott i vetur. — Það hefur
marga góða leikmenn i herbúðum
sinum. Og það er ekki að efa, að
Karl Benediktsson, þjálfari liðs-
ins, á eftir að láta þá taka fram-
förum. Veikasti hlekkur liðsins er
markvarzlan, og er það mikil
blóðtaka fyrir liðið. að Sigurgeir
Sigurðsson landsliðsmarkvörður
er meiddur — en hann mun ekki
leika með liðinu fyrri hluta vetr-
ar. En á meðan leikmenn Vikings
leika góðan varnarleik og skora
mikið af'mörkum, þá þurfa þeir
ekki neinu að kviða. Flestir leik-
menn Vikingsliðsins eru virkir i
sókninni, eins og sést á þvi að 8 .
leikmenn skoruðu mörk gegn KR
— Þorbergur 7, Viggó 3, Stefán 3.
Páll 2 — hann var tekinn úr um-
ferð — Jón, Ólafur, Sigfús og Er-
lendur, eitt hver.
Hilmar Björnsson skoraði flest
mörk KR-liðsins, eða 7, Simon 4,
Siguröur Páll 3, Þorvaldur og
Kristinn eitt hvor.
Zebre?
situation
i Charleroi S.C. - Waregem
Ásgeir og Guðgeir
sviðsljósinu
i
Þeir eiga hvern stórleikinn af öðrum í Belgíu
ASGEIR SIGURVINSSON og
GUÐGEIR LEIFSSON hafa verið
mikið i sviösljósinu i Belgiu að
undanförnu. Asgeir átti stórleik
með Standard Liege á miðviku-
dagskvöldiö, þegar Liege-liðið
vann upp tveggja marka (2:0)
forskot belgisku meistaranna
Molenbeek og jafnaði 2:2. Asgeir,
sem er talinn einn bezti knatt-
spyrnumaður Belgiu, var pottur-
inn og pannan i leik Standard
Liege — hann lagði upp bæði
mörkin, scm liðið skoraði.
Guðgeir Leifsson og félagar
hans i Charleroi, máttu enn einu
sinni þola jafntefli (1:1) á heima-
velli — I leijí, sem þeir áttu mun
meira i. Það var eitt af sterkustu
liðum Belgiu — FC Malinois, sem
heimsótti Charleroi. Guðgeir er
greinilega farinn að kunna vel við
sig I belgisku knattspyrnunni.
Það sést greinilega i blegfskum
dagblööum, sem skrifuðu mikið
um frammistöðu hans eftir leik-
inn um sl. helgi, þar sem Guðgeir
skoraði mark úr hornspyrnu.
Belgisku blöðin sögðu þá, að Guð-
GUÐGEIR LEIFSSON.
geir hefði verið bezti maður
vallarins —og hann væri búinn að
gjörbreyta Sporting-liðinu, eins
og Charleroi er kallað i Belgiu. 1
einu blaðinu má sjá viðtal við
þjálfara liðsins Jean-Pol Colon-
val. þar sem hann hrósar Guð-
geiri mikið. Colonval sagði um
ASGEIR SIGURVINSSON.
Guðgeir — — Leifsson hefur
örugglega hlaupið 15-20 km i
leiknum. Ég hef sjaldan séð aðra
eins vinnslu á leikvelli.
Hér fyrir ofan sést ein af fyrir-
sögnuni belgisku dagblaðaiuia.
eftir leikinn. sem Guðgeir skoraði
inarkið i.