Tíminn - 21.11.1975, Side 2
2
TÍMINN
Föstudagur 21. nóvember 1975.
Elfa Björk ráðin
borgarbókavörður
HHJ-Rvik. — A borgarstjórnar- Einarsdóttir fékk tvö atkvæði og
fundi i gær voru greidd atkvæði þeir Björn Teitsson og Hilmar
um það hvern ráða skyldi i stööu Jónsson hlutu sitt atkvæöið hvor.
borgarbókavarðar. Féllu atkvæði
þannig að Elfa Björk Gunnars-
dóttir lilaut mikinn meiri hluta
atkvæöa cða ellefu alls. Elsa Mia
Ráðstefna um
húsfriðun
Gsal-Reykjavik — Húsfriðunar-
ráöstefna hefstá morgun kl. 9.30 i
Hátiöasal Háskóla Islands, en að
ráðstefnunni standá Arkitekta-
félag tslands, Samband isl.
sveitarfélaga og umhverfisneind
Reykjavikurborgar.
Ráðstefnan hefst með ávarpi
Birgis tsleifs Gunnarssonar,
borgarstjóra, en að þvi loknu flyt-
ur Dr. Kristján Eldjárn, forseti
tslands, ræðu.
Á ráðstefnunni verða ennfrem-
ur fluttir fyrirlestrar um ýmsa
þætti húsfriðunarmála, en ráð-
stefnunni lýkur á sunnudag.
Umsækjendur voru alls fimm.
Elfa Björk stundaði nám i al-
mennri og enskri bókmennta-
fræði við háskólann : Stokkhólmi
og lauk einnig prófi frá háskólan-
um i verzlunartæknilegri ensku.
Af þvi loknu hóf hún nám við
Stockholms Stads biblioteks
Biblioteksskola, en þar komast
jafnan færri inn en sækja um
skólavist.
bannig var Elfa Björk ein
af tólf umsækjendum sem inn
komust, en 170 sóttu. Að prófi
loknu 1967 starfaði hún við
Borgarbókasafn Stokkhólms allt
til 1974, þegar hún kom heim og
hóf störf við Borgarbókasafn
Reykjavikur, þar sem hún hefur
byggt upp þjónustu safnsins við
fatlaða og blinda, þ.e. „Bókin
heim”. Að undanförnu hefur hún
unnið að þvi að koma upp tal-
bókasafni handa blindu fólki og
sjónskertu.
Ráðstefna um verka-
lýðsmál á vequm SUF
SJ-Reykjavik. Helgina 29.og30.
nóvember efnir Samband ungra
fra msóknarmanna til ráðstefnu
um verkalýðsmál að Hótel Hofi,
Rauðarárstig 18. Þetta er fyrsta
Asgeir Eyjólfsson er formaður
undirbúningsnefndar verka-
lýösráðstefnunnar.
Vængir hefja áætlunar-
flug til Súgandafjarðar
— vetrareinangrun Súgfirðinga rofin
BH—Reykjavik. — Sl. sunnudag
lenti flugvél frá Vængjum hf. i
Rcykjavik á hinum nýja flugvelli
á Suðureyri við Súgandafjörð, og
er þar með hafinn nýr kafli i
stórbættum samgöngumálum við
þetta afskekkta byggðarlag, sem
fram til þessa hefur verið
einangrað að heita má allan vet-
urinn, nema á sjó.
Timinn ræddi af þessu tilefni
viö sveitarstjórann á Suðureyri,
Sigurjón Valdimarsson, og skýrði
hann okkur svo frá, að fulibúin
væri nú 480 metra merkt braut, en
búið væri að byggja undir 525
metra alls. Ætlunin er, að brautin
verði 600 metrar að lengd.
— Þetta skiptir alveg sköpum
fyrir okkur að fá þennan flugvöll,
sem er að heita má við þröskuld-
inn hjá okkur, uppi á hjöllunum,
skammt ofan við bæinn, undir
fjallinu Spilli, sagði Sigurjón. Til
þessa hefur þurft að fara yfir
Bontsheiði og Breiðdalsheiði til
tsafjarðar til þess að komast i
samband við umheiminn, og það
hefur verið timafrekt og erfitt
ferðalag urn vetrarmánuðina, oft
á þrem farartækjum, svo að
minnstur timinn fer i sjálfa flug-
ferðina frá Isafirði. Nú má heita,
að flugvél lendi við húsdyrnar hjá
okkur og við getum stigið um borð
og flogið til Reykjavikur.
Við inntum Sigurjón eftir þvi, á
hvaða dögum yrði flogið milli
Suðureyrar og Reykjavikur.
— Áætlunin er ekki tilbúin
ennþá, en væntanleg næstu daga.
Ég geri ráð fyrir, að flogið verði á
þriðjudögum, fimmtudögum og
laugardögum.
Gáfu tíu milljónir
í sjóð til sér-
menntunar kennara
vanheilla barna
A aldarafmæli Thorvaldsens-
félagsins i hófi á Hótel Borg á
miðvikudagskvöld afhenti for-
maður félagsins, frú Unnur
Ágústsdóttir, mennttamála-
ráðherra skrautritað skjal með
eftirfarandi texta:
„Konur i Thorvaldsensfélaginu
i Reykjavik hafa ákveðið i tilefni
aldarafmælis félagsins að stofna
sjóð, til þess að stuðla að sér-
menntun þeirra, sem kenna og
leiðbeina vanheilum börnum.
Stofnfé sjóðsins er 10 milljónir
króna og ber að ráðstafa þvi og
ávaxta i samræmi við skipulags-
skrá, sem sjóðnum verður sett i
samráði við menntamála-
ráðherra.”
Undir þetta ritar stjórn
félagsins en hana skipa: Unnur
Ágústsdóttir, formaður, Svanlaug
Bjarnadóttir, varaformaður,
Evelyn Þ. Hobbs, ritari, Sigur-
laug Eggertsdóttir, gjaldkeri og
Júliana Oddsdóttir.
Menntamálaráðherra þakkaði
og sagði m.a.:
,,Með þakklátum huga hef ég
móttekið ykkar höfðinglegu gjöf.
Hún skal verða meðhöndluð á
þann hátt, sem þið mælið fyrir
um.
A bak-við slika gjöf er mikill
góðhugur og mikið starf og glögg-
ur skilningur á sárri þörf.
— Mun hér og rætast það, sem
skrifað stendur, að eins og
maðurinn sáir mun hann upp
skera. Margt gott mun leiða af
gjöf þeirri, sem hér er fram
borin.”
— Hefur Hugvallargerðin verið
kostnaðarsöm?
— Það er búið að verja 9
milljónum i flugvöllinn. Fjórar
milljónir voru á fjárlögum 1974 og
fimm á árinu 1975, og nú eru þeir
peningar búnir, en þaðer talsverð
vinna eftir. Það verður ekki gert
meira að sinni fy rr en ný fjárveit-
ing fæst.
Flugvöllurinn kemur auk þessa
að gagni varðandi flugferðir til
Isafjarðar?
— Já, það er flugfélagið Ernir
á tsafirði, sem það annast, og er
ætlunin að það verði skiðaflugvél,
sem flýgur til okkar i vetur,
þrisvar í viku.
— Ég vil að lokum, sagði Sigur-
jón Valdimarsson, sveitarstjóri á
Suðureyri, taka það sérstaklega
fram, að flugsamgöngur þrisvar i
viku við Reykjavik eru byggðar
laginu mikils virði. Hvort unnt
verður að halda þeim uppi svo oft
hlýtur i framtiðinni að ráðast af
þvi, hve mikil flutningaþörfin er,
hversu rika ástæðu Súgfirðingar
sjá til þess að notfæra sér þessa
þjónustu Vængja hf, sem ég tel
hina mikilvægustu.
Sigurjón Valdimarsson sveitar-
stjóri.
ráðstefna um verkalýðsmál,
sem haldin hefur verið i nokkur
ár, á vegum Framsóknarflokks-
ins, og hvetja þeir, sem staðið
hafa að undirbúningi hennar,
menn eindregið til að taka þátt i
henni. Ráðstefnugestum utanaf
landi gefst kostur á að búa á
hótelinu um helgina með sér-
stökum afsláttarkjörum.
Ráðstefnan hefst kl. 10 á
laugardag með þvi að Ólafur
Jóhannesson viðskiptaráð-
herra, formaður Framsóknar-
flokksins flytur ávarp. Þá verða
fimm erindi. Þórarinn
Þórarinsson alþingismaður tal-
ar um Framsóknarflokkinn og
verkalýðshreyfinguna, Egill
Sigurgeirsson hæstaréttarlög-
maður talar um vinnulöggjöf-
ina. Halldór Asgrimsson al-
þingismaður flytur erindi um
skattamál og launþega, Axel
Gislason verkfræðingur um at-
vinnulýðræði og samvinnu-
rekstur, Daði Ólafsson formað-
ur Sveinafélags bólstrara um
skipulagsmál verkalýðs-
hreyfingarinnar og heildar-
kjarasamningana.
Ráðstefnugestir skiptast sið-
an i fjóra umræðuhópa eftir
fjórum siðasttöldu erindunum.
Frjálsar umræður verða einnig.
Og á sunnudag, en þá hefst ráð-
stefnan einnig kl. 10 að morgni,
verður greint frá áliti umræðu-
hópa i fundarlok.
— Ég tel, að mjög sé vandað
til framsöguerindanna á ráð-
stefnunni, sagði Ásgeir Eyjólfs-
son formaður undirbúnings-
nefndar i viðtali við Timann.
Þau mál, sem rætt verður um,
eru öll ofarlega á baugi hjá
verkalýðshreyfingunni nú og
hljóta að koma til athugunar á
næstunni. Ég vil eindregið
hvetja fólk til að nýta sér þetta
tækifæri og býst við þátttakend-
um viðs vegar að af landinu.
Þeir, sem hug hafa á að sækja
ráðstefnuna, eru beðnir um að
hafa samband við skrifstofu
Framsóknarflokksins i sima
24480.
60 FRETTAMENN
FRÁ TÍU LÖNDUM
HHJ — Hérlendis eru nú staddir
50-60 erlendir blaða- útvarps og
sjónvarpsmenn frá 10 löndum
vegna Evrópumeistarakeppni i
Monopoly, sem fram fer á Hótel
Loftleiðum þessa dagana.
Þar á meðal eru menn frá BBC,
Reuters-fréttastofunni, Times,
Guardian, Daily Mirror, Sun og
Playboy, svo að nefndir séu
nokkrir fjölmiðlar. Sá blaðamað-
ur, sem lengst er að rekinn vegna
þessarar keppni, er hingað kom-
inn alla leið frá Astraliu.
15-20 manns keppa um Evrópu-
meistaratitilinn i Monopoly, en að
keppninni hér lokinni verður
Fyrirlestur um
þorskfisk
Næstkomandi mánudag, 24.
nóvember 1975 kl. 20.30 heldur
Ólafur Karvel Pálsson, fiski-
fræðingur, fyrirlestur i stofu 201,
Arnagarði. Fyrirlesturinn fjallar
um rannsóknir á lifnaðarháttum
þorskfisksungviðis i tsafjarðar-
djúpi. Fyrirlesturinn er opinn öll-
um áhugamönnum.
haldið til Bandarikjanna, þar sem
heimsmeistarakeppnin fer fram i
Washington.
Aðalgatan á
Suðureyri
opnuð umferð
BH—Reykjavik. Aðalgatan á
Suðureyri við Súgandafjörð var
nýlega opnuð fyrir umferð, eftir
aö lokið var við að steypa alla
götuna, sem er 260 metrar að
lengd. Að verki þessu var unnið
siðari hluta sumars, en vinna féll
niður um skeið vegna slagveðurs.
Að þvi er Sigurjón Valdimars-
son, sveitarstjóri á Suðureyri
sagði blaðinu i gær var byrjað á
undirbúningi að steypuvinnu við
Aðalgötu i ágúst sl., og var undir-
búningsvinnunni að mestu lokið i
septemberbyrjun, en óheppilegt
tiðarfar i þeim mánuði kom i veg
fyrir frekari framkvæmdir. Hins
vegar hagaði veðri þannig i októ-
ber, að unnt var að steypa, og
gekk það verk mjög vel.
NotiÓ NATIOÍMAL Hl -Top rafhlöð
í vasatölvurnar frá okkur
olivekli
NOVU^
SKRIFSTOFUTÆKNI H.F.
Tryggyagölu — Sími 28511
M
Utiona' Hi-ToP MATIGNAL
M Hí-Top
'lk jjí án^Jife