Tíminn - 22.11.1975, Side 1

Tíminn - 22.11.1975, Side 1
Landvélarhf 268. tbl. —'Laugardagur 22. nóvember—59. árgangur PRIMUS HREYFILHITARAR í VÖRUBÍLA OG VINNUVÉLAR HF HÖBÐUR OUNNARSSOK SKÚLATÚNI 6 -SÍMI (91)19460 • fl „Ég uni ekki slíku kldmhöggi — segir bæjar- stjórinn í Vestmannaeyjum Gsal—Reykjavik. — Ég óskaði strax eftir þvi að þetta mál yrði gaumgæfilega kannaðog bæjar- stjdrn féllst á að skipa sérstaka nefnd i þvi skyni. Ég tel mig ekki geta setið undir svona áburði, sagði Sigfinnur Sigurðs- son, bæjarstjóri i Vestmanna- eyjum, en minnihluti bæjar- stjórnar hefur ásakað hann um misferli varðandi fjárreiður bæjarins. — Ásakanir minnihlutans eru gjörsamlega á misskilningi byggðar, sagði Sigfinnur, og ég stend teinréttur i þessu máli. Hins vegar uni ég ekki sliku klámhöggi, og það gefur auga leið að starfsaðstaðan er erfið, þegar maður hefur slikan áburð á bakinu. Ásakanir minnihlutans eru i þvi fólgnar, að hann telur bæjarstjórann hafa greitt sjálf- um sér fyrirfram i laun um 900 þús. kr. Sigfinnur sagði, að fyrir misskilning hjá starfsmönnum launadeildar bæjarins, hefði ákveðin launaupphæð verið lögð inn á hans reikning, meðan hann var staddur i Reykjavik. — Mitt fyrsta verk þegar ég komst að þessu, var auðvitað að endurgreiða féð, sagði Sigfinn- ur. Nefnd sú sem skipuð var i málið í gær, er skipuð tveimur endurskoðendum bæjarins, svo og kjörnum fulltrúum bæði meiri- og minnihluta bæjar- stjörnar. Þess er vænst að niðurstöður nefndarinnar liggi fyrir i dag. Sigfinnur Sigurðsson bæjar- stjóri hefur stefnt ábyrgðar- manni „Frétta” en það er aug- lýsingablað sem dreift er ókeypis til ibúa Vestmannaeyja, fyrir meiðyrði, en blaðið skyrði frá ýmsum atriðum varðandi þetta mál i gær. Fimmtán brezkir togarar á Þistilfjarðardýpi: Hættu allir veiðum eftir að Týr hafði skorið á vírana hjá Real Madrid — brezku skipstjórarnir hafa lítið álit á dráttarbátunum :* 'r ' _;r ... Brezku skipstjórarnir telja sér litla vernd að dráttarbátunum, þegar varðskipin nálgast, eins og sannazt hefur undanfarna daga. Gsal-Reykjavik. — Varðskipið Týr skar siðari hluta dags i gær á togvir brezka togarans Real Madrid frá Grimsby, þar sem togarinn var að veiðum á Þistilfjarðardýpi. Að sögn tals- manns landhelgisgæzlunnar voru 15 brezkir togarar a þessum slóðum er atburðurinn gerðist, ásamt brezka dráttarbátnum Polaris. Talsmaðurinn sagði, að aiiir togararnir fimmtán hefðu hætt veiðum, eftir að klippunum var beitt. I gærmorguu hvöttu skipstjórnarmenn á einum af brezku dráttarbátunum, skipstjóra brezka togarans Benella að kasta trolli sinu út og hefja veiðar. Lofuðu skipstjóran- um á Benella vernd sinni og sögðu ennfremur, að þrir brezkir togarar myndu einnig verja hann. Varðskip var á þessum slóðum og fór á vettvang. Skipstjórinn á Benella hræddist svo komu varðskipsins, að hann hifði trollið inn i snarhasti og gefur þetta vfsbendingu um það álit, sem brezkir togaraskipstjórar hafa á vernd dráttarbátanna. Svo sem kunnugt er skar varðskiptið Týr á báða togvira Benella i fyrradag og i hefndar- skyni fyrir það reyndi Benella i fyrrakvöld itrekað að sigla á varðskipið en tókst ekki. I Reutersfrétt um atburðinn í gær er það haft eftir flotafulltrúa, sem er um borð i einum dráttar- bátanna, að aðför Týs að Benella sé það hættulegasta sem hann hafi séð i sjónum i 20 ár! I xveuiersiréttinni segir, að Týr hafi reynt að skera á togvira togarans, þegar vörpunni hafi verið kastað. Allir brezku togararnir eru nú komnir á svæði það, sem flota: fulltrúinn i Star Aquarius, skipaði þeim á, að sögn talsmanna land- helgisgæzlunnar. Flugvél landhelgisgæzlunnar for i eftirlitsflug i gær og taldi þá 39 brezka togara hér við landið. Talsmaður landhelgisgæzlunnar sagði i gær, að brezku togararnir væru nú dreifðir á Austfjarða- miðum. Dráttarbáturinn Lloyds- man er nú kominn á miðin og var i gær á Langanesgrunni ásamt dráttarbátunum, Sirius og Aquarius, og eftirlitsskipinu Othello. ÞINGFLOKKAR OG STJÓRN FJALLA UM SAMNINGSDRÖGIN Á MÁNUDAG Gsal-Reykjavik. —Ég mun mæla með þvi við minn þingflokk, að þessir samningar verði gerðir, sagði Einar Ágústsson, utanrikis- ráðherra i samtali við Timann i gærkvöldi, en viðræðunefndin FRAAAKVÆMDIR VIÐ HAFNARGERÐ ALDREI MEIRI EN Á ÞESSU ÁRI Gsal-Reykjavik. — Það ár, sem nú er senn liðið, er mesta fram- kvæmdaár i sögu islenzkra hafnagerða. Framkvæmdir við allar hafnargerðir á landinu, og eru þar meðtaldar fram- kvæmdir við landshafnir og i Reykjavik, munu samkvæmt nýrri áætlun nema nokkuð yfir 2.0 milijarða kr., sagði Ilalldór E. Sigurðsson samgöngu- ráðherra i ræðu, sem hann flutti við stningu aðalfundar Hafna- sambands sveitarfélaga i gær. Halldór kvað 844 millj. kr. af þessari fjárhæð hafa runnið til framkvæmda við landshafnir, og þar af væri Þorlákshöfn langstærst með rúmar 727 millj kr. Af almennum hafnafram- kvæmdum eru framkvæmdir við Grindavik mestar, eða 140 millj. kr, en þær framkvæmdir eru svo sem kunnugt er kostaðar af 6/10 hlutum með lánsfé frá Alþjóðabankanum, eins og framkvæmdirnar i Þor- lákshöfn, sagði sam- gönguráðherra. Hann upplýsti að næstdýrustu framkvæmdirnar i almennum höfnum væru i Neskaupstað, eða vel yfir 100 millj. kr, en hann nefndi hins vegar að endanleg tala væri enn óljós. — Vegna áfalla þeirra, er urðu á staðnum á s.l. vetri af snjó- flóðum, eins og kunnugt er, sagði Halldór, hefur m.a. þurft að velja höfninni þar nýtt stæði, sem gæti dugað til frambúðar, og jafnvel hefur verið nauðsyn- legt að flýta þar hafnargerð, eins og kostur er. Samgönguráðherra sagði að kostnað við þessar framkvæmd- ir hefði að sjálfsögðu þurft að greiðast utan fjárlaga, og hefði það verið gert með tveimur lán- tökum hjá Seðlabanka Islands. Þá nefndi samgönguráðherra, að framkvæmdir við Akur- eyrarhöfn hefðu einnig verið verulega miklar eða fyrir sam- tals 110 millj. kr., og kvað Halldór það hafa verið mögu- legt vegna erlendrar lántöku sem Akureyrarbær hefði tekið til þess að flýta framkvæmdun- um. Þá minntist Halldór E. Sigurðsson á hafnarfram- kvæmdir i Sandgerði, sem hann kváð hafa numið um 100 millj kr. og hafnarframkvæmdir i Karlsey á Breiðafirði vegna þörungaverksmiðjurnnar, en sú framkvæmd nam 101 millj. kr. á þessu ári. — Framkvæmdir á þeim fimm stöðum, sem hér hefur verið getið sérstaklega, nema rétt rúmum helmingi af heildarfram kvæmdum við almennar hafnir. Hinn helmingurinn skiptist á milii 37 staða og nemur mjög misháum upphæðum. Er þá að- eins ótalin Reykjavikurhöfn, en þar var unnið að framkvæmd- um fyrir 40 millj. kr. á árinu. Halldór minntist á hafnar- gerðarefni, og kvað það hafa borið nokkuð oft við á siðastliðn- um árum, að hafnargerðarefni hefði legið langtimum saman ónotað á einstöku stöðum. Kvað ráðherra, ráðuneytið hafa unnið að þvi' s. 1. sumar að tekin yrði upp önnur stefna i þessum mál- um og efnið nýtt, þar semþess væri þörf. Sem dæmi um þetta nefndi Halldór, að Akur- eyrarhöfn hefði lánað efni til stálþils til Neskaupstaðar, og efni i stálbrúsa til Rifshafnar, ,,að sjálfsögðu gegn endur- greiðslu á sama efni á næsta ári”, sagði Halldór. 1 lok ræðu sinnar sagði Halldór E. Sigurðsson: — Ég lýsti ánægju minni yfir þvi, sem áunnizt hefur i hafnar- framkvæmdum á yfirstandandi ári. En ég verð jafnframt að gera fundarmönnum grein fyrir þvi, að úr hraða í framkvæmd- um verður að draga a.m.k. á næsta ári til að treysta stöðu rikissjóðs og draga úr spennu og verðbólgu i efnahagskerfinu. Ég treysti á gott samstarf um þá framkvæmd, þar sem fyllsta hagsýni og aðgæzla verður að ráða ferðinni og það fjármagn, sem til hafna verði varið, komi fyrst og fremst til nota eins fljótt og nokkur tök eru til. sem siðustu daga hefur rætt við Þjóðverja i Bonn, kom lieim i gærdag ineð uppkast að samningi.sein lagður verður fyrir rikisstjórn og þingflokka á inánudag. Eins og greint liefur verið frá, er talið að i þessum samningsdrögum felist, að Þjóðverjum sé heiinilt að veiða 60.000 tonn á islandsmiðum. Timinn spurði utanrikisráðherra, livort hann vildi staðfesta þessa tölu. — Við gerðum samkomulag um það i Bonn, að ekki yrði skýrt frá efni samningsdraganna fyrr en rikisstjórnir beggja landanna hafa fengið tækifæri til að kynna sér samningsdrögin. Ég get þar af leiðandi ekki skýrt frá einstök- um atriðum uppkastsins, en ég legg áherzlu á, að hér er aðeins um drög að ræða. Viðræður islenzku og þýzku nefndanna i Bonn snerust nær einvörðugu um veiðisvæðin. Aður hafði rikisstjórnum landanna tekizt að ná samkomulagi um há- marksafla Þjóðverja hér við land og gildistima samkomulagsins. Samkvæmt nýútkomnum skýrslum Hafrannsóknaráðsins nam afli Þjóðverja árið 1974 á hafsvæðinu kringum Island rúm- um 68 þús. tonnum, þar af veidd- ust af fjórum helztu fiskitegund- unum — karfa, þorsk, ýsu og ufsa — tæplega 62 þús. tonn. Sé gengið út frá þvi sem visu, að i sam- Frh. á bls. 6

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.