Tíminn - 03.12.1975, Blaðsíða 8
8
TÍMINN
Miðvikudagur 3. desember 1975.
■iiHii
iiMBBBB..
■
Áætlanagerð er öruggasta
leiðin til skipulegra og
markvissra vinnubragða
Mó-Reykjavík. Guðmundur G.
Þórarinsson (F) mælti i gær fyrir
tillögu til þingsályktunar um
áætlanagerð i flugmálum. Auk
hans flytja tillöguna þing-
mennirnir Jón Skaftason, Stein-
grimur Hermannsson og Halldór
Asgrimsson.
Alþingi ályktar að fela sam-
gönguráðherra að láta gera
fjögurra ára framkvæmda- og
fjármögnunaráætlunum flugmál.
1 upphafi ræðu sinnar sagði
Guðmundur G. Þórarinsson, að
hugmyndin með flutningi tillög-
unnar væri sú, að gera langtima-
áætlun um uppbyggingu i flug-
málum, svipað og gert er i vega-
og hafnarmálum. Stöðugt væru
flugsamgöngur að aukast, og þvi
mikil nauðsyn áætlanagerðar.
Hins vegar yrði að hafa það i
huga, að áætlanir væru ekki ein-
hlitar. Framkvæmdir yrðu að
fylgja á eftir.
Flutningsmaður taldi áætlana-
gerð öruggustu leiðina til skipu-
legra og markvissra vinnu-
bragða, jafnframt stefnumörkun
I flugmálum. Margt væri óleyst á
þessu sviði, og væri þvi mikill
fengur i' að raða verkefnum i for-
gangsröð. Með þvi væri
tryggt, að það fé, sem veitt væri
til flugmála, nýttist sem bezt.
Ætlazt er til, að áætlunargerðin
nái m.a. til eftirfarandi atriða!
Fjármögnunar.
Flokkunar flugvalla.
Flugvallagerðar.
Flugskýla, flugstöðva og
viðhaldsaðstöðu.
öryggisbúnaðar flugvalla og
flugumferðarþjónustu.
Meðal þeirra fjölmörgu verk-
efna, sem blasa við mætti nefna
flúgvöllinn i Reykjavik. Framtið
hans væri i mikilli óvissu. Þar
vantaði nauðsynlegar öryggis-
ráðstafanir, og mikið væri talað
um það, að nauðsyn bæri til þess
að breyta brautum. Væri þar um
verulegar framkvæmdir að ræða.
Einnig þyrfti að taka upp sam-
Guðmundur G. Þórarinsson
vinnu við Reykjavikurborg, svo
ekki verði þrengt meir að vellin-
um en nú þegar er orðið.
Þessu næst ræddi flutnings-
maður um flugskýlin, sem bæði
eru gömul og léleg , og hefðu
fengið takmarkað viðhald. Einnig
væri viðgerðaraðstaða á flugvél-
um algerlega ófullnægjandi, eftir
að flugskýlið hefði brunnið i
fyrra.
Þá væri öll aðstaða i flug-
stöðinni algerlega ófullnægjandi
og i raun væri flugstöðin ekki
annað en skúr við skúr. Væri þvi
ekki að furða þótt gárungarnir
kölluðu flugstöðina „Skúra-
leiðingar.”
Slökkvilið flugvallarins væri i
gömlum bragga, og þannig mætti
halda áfram að telja fjölmörg
verkefni við Reykjavikurflugvöll,
sem þörfnuðust úrbóta.
Þá væri ekki siður nauðsyn
mikilla aðgerða á Keflavikurflug-
velli og mætti nefna, að aðskilja
þyrfti farþegaflug og flug á veg-
um varnarliðsins. Þar þyrfti að
reisa nýja flugstöðvarbyggingu
og stórbæta viðhaldsaðstöðuna.
Þá væri mikið stórmál fyrir
framtiðina, að skipuleggja Kefla-
vfkurflugvöll og ákveða stað-
setningu flugstöðvar og flug-
skýla.
Auk þessa mætti að sjálfsögðu
nefna fjölmargar nauðsynlegar
framkvæmdir á flestum flugvöll-
um út um allt land.
Þar væri yfirleitt um malar-
velli að ræða og viðhald flugvéla
þvi mjög mikið.
Einnig vantaði öryggistæki við
Resta flugvelliúti á landi.Vantaði
þar bæði öryggissvæði meðfram
og við enda flugvalla, og einnig
ljósabúnað, og aðflugstækja-
búnaður er viðast af frum-
stæðustu gerð.
í þessu sambandi vakti fram-
sögumaður athygli á skýrslu
öryggisnefndar Félags islenzkra
atvinnuflugmanna. Þar er bent á
fjölmörg atriði, sem flugmenn
telja nauðsynlegt að bætt verði
úr.
Þá sagði framsögumaður, að
sjálfsögðu ætti áætlunin einnig að
ná til fjármögnunar bæði hvað
varðar fjárframlög rikissjóðs, og
einnig að tryggja framkvæmdum
i flugmálum tekjustofna. Nefndi
hann i þvi sambandi farþega-
gjaldið, sem i ár væri ætlað að
skilaði rikissjóði 230 til 240
milljónum króna. Taldi fram-
sögumaður, að það gjald ætti að
renna beint til framkvæmda i
flugmálum, en þvi væri ekki varið
til þeirra hluta nú.
Þá vakti framsögumaður at-
hygli á, að heildarfjárframlög til
framkvæmda i flugmálum næmu
núaðeins 252milljónum króna. Ef
farþegagjaldið rynni beint til
Framhald á bls. 19
Þótt óætlanir um Kröflu
virkjun standist þarf að
nota díselorku ó
Norðurlandi 1977
Endurtakið
dagskró
stúdenta
Mó-Reykjavík. Kröfluvirkjun
kom til umræðu á Alþingi i gær,
þegar iðnaðarráðherra Gunnar
Thoroddsen
svaraði fyrir-
spurnum frá
Braga Sigur-
jónssyni.
1 svari ráð-
herra kom m.a.
f r a m , a ð
samningar hafa
verið gerðir um
kaup á tveimur 30 MW velum til
Kröfluvirkjunar eða samtals 60
MW.
Aætlaður kostnaður er:
millj. kr.
Aætlun um framkvæmdir
á vegum Kröflunefndar 4.132
Aætlun Orkustofnunar um
jarðboranir og gufukerfi 1.706
Kostaaður við 132 kV háspennu-
linu til Akureyrar er hér ekki
meðtalinn en hann er áætlaður
510millj.kr. og kostnaður við að-
veitustöð á Akureyri er áætlaður
126 millj. kr.
Einnig kom fram i svari ráð-
h'erra að Orkustofnun hefur ný-
lega gert orkuspár fyrir Norður-
land. Er í öðru tilfellinu gert ráð
fyrir rafhitun á Akureyri, en i
hinu, er gert ráð fyrir hitaveitu
þar.
Samkvæmt fyrra tilfellinu er
aflþörfin 67 MW árið 1977. Nú er
gert ráð fyrir, að fyrri vél Kröflú-
virkjunar verði komin i gang fyr-
irárslok 1976. Með30MW i Kröflu
er uppsett vatnsafl og gufuafl á
Norðurl. 58 MW. Ef norðurlin-
an verður i fyrstu rekin á 60 kV
spennu, má gera ráð fyrir, að
hægt verði að flytja eftir henni 5
MW. Verður þvi aflið samtals 63
MW. Ef aflþörfin verður 67 MW
eins og orkuspáin gerir ráð fyrir,
þarf að nota diselstöðvar þegar
notkun fer yfir 63 MW. Sam-
kvæmt siðara tilvikinu, þegar
gert er ráð fyrir hitaveitu á Akur-
eyri,er aflþörfin 59 MW árið 1977.
Hér má bæta þvi við að ætla
má, að orkunotkun markaðar
sem sveltur hefur verið um lang-
an tima, vaxi mun meir en gert er
ráð fyrir i orkuspám, þar sem
gera má ráð fyrir að ýmis iðn-
fyrirtæki muni stórauka orku-
kaup sin fljótlega eftir að orka er
fyrir hendi.
Verður þvi að koma siðari véla-
samstæðu i notkun áður en langt
liður.
Einnig kom fram i svari ráð-
herra, að heildarkostaaður við
Kröfluvirkjun er orðinn um 1.000
milljónir króna.
Endurtakið
dagskró
stúdenta
1. des.
Mó-Reykjavík. Dagskrá stú-
denta 1. des. kom til umræðu á
Alþingi i gær, þegar Guð-
mundur H. Garðarsson kvaddi
sér hljóðs utan dagskrár.
Beindi þingmaðurinn þeirri
áskorun til útvarpsráðs, að
endurtekin væri umrædd dag-
skrá.
Taldi hann, að nauðsynlegt
væri fyrir skattborgara að fá
að heyra hvaða álit róttækir
stúdentar i Háskóla íslands
hefðu til borgaralegs þjóð-
félags. Vakti hann athygli á
þeim miklu fjármunum, sem
menntun stúdenta kostaði
þjóðfélagið. Taldi þingmaður-
inn, að fjöldi fólks hefði ekki
haft aðstöðu til að fylgjast
með umræddri dagskrá, en
nauðynlegt væri fyrir almenn-
ing að fá að heyra hana til að
geta tekið afstöðu til skoðana
róttækra stúdenta.
Beindi þingmaðurinn þeirri
áskorun til útvarpsráðs, að
endurtekin yrði dagskráin sið-
ari hluta sunnudags.
Einnig tók Jónas Arnason til
máls.
Dýpkunarskipin
anna verkefnum
Mó-Reykjavik. A fundi I samein-
uðu þingi i gær svaraði Halldór E.
Sigurðsson samgönguráðherra
fyrirspurn frá Sigurlaugu
Bjarnadóttur um dýpkunarskip.
1 svari ráðherra kom m.a.
fram, að hafnamálastofnunin
gerir út tvö dýpkunarskip. eða
tæki, dýpkunarskipið „Gretti” og
dæluprammann „Hák”.
Grettir er gamalt grafskip,
keypt til landsins fyrir þrjátiu ár-
um. Hann er samt öflugasta
dýpkunartækið á landinu. Hann
hefur siðastliðin tvö ár unnið við
dýpkun Grindavikur, en þar hefur
verið unnið að hafnargerð undan-
farið, fjármagnað með láni Al-
þjóðabankans. Grettir er mjög
gamalt tæki, en honum hefur ver-
ið haldið vel við. Talið er eðlilegt
að nota hann nokkur ár enn.
Hákur er miklu nýrra tæki.
Hann var keyptur hingað til lands
árið 1967. Hákur hefur reynzt
mjög afkastamikill við hafna-
gerðir og hefur þann kost, að
hann dælir efni þvi er hann dælir
upp á land, þar sem uppfyllinga
er þörf. Hákur er útbúinn með
„Skera” á inntaki dælurörsins,
svo hann getur dælt upp efni úr
höfnum, þar sem dæluskipum án
sliks skera er ókleift að dýpka,
auk þess sem hann ristir minna
en önnur slik skip.
Hákur hefur á þessu ári dælt úr
höfninni á Ólafsfirði, Dalvik, við
Karlsey og úr Ólafsvikurhöfn.
Hákur er nú i allmikilli við-
haldsviðgerð, en dæluútbúnaður
sem þessi þarfnast mikils við-
halds. Þegar þessari viðgerð
verður lokið verður hann jafngóð-
ur og nýr.
Likleg verkefni fyrir Gretti á
næsta ári verða dýpkanir i
Bolungarvik, Skagaströnd, Húsa-
vik og Neskaupstað. Hákur mun
eftir áramótliklega hefja dælingu
i Hafnarf. dæla siðan á
Grundarfirði, á Bildudal og Þing-
eyri, siðan á Hvammstanga,
Sauðárkróki og Hrisey. Einnig
verður stórt verkefni, dýpkun
Þorlákshafnar.
Ef litið er á verkefni næstu ára
ber mest á verkefnum, sem má
leysa með dælingu. Miklu minni
eru þau verkefni, þar sem nota
verður graftæki eins og Gretti.
Sprenginga er þörf en oftast tak-
markað á hverjum stað.
Nú og undanfarið hefur Hafna-
málastofnunin unnið að könnun á
þvi, hvers konar dýpkunartæki
væri hagkvæmast að bæta við
tækjakost stofnunarinnar. Ahugi
beinist einkum að fleka á fótum.
Slikur fleki mundi á margan hátt
henta vel hinum fjölbreytilegu
verkefnum hér á landi. Sem bor-
pallur, pallur fyrir krana við
dýpkanir, vinnupallur við þil-
rekstur og grjótútlagningu og
Halldór E. Sigurðsson
fleira. Segja má að ekkert eitt
tæki hafi jafn marga möguleika
við hafnarframkvæmdir. Verð á
slikum fleka er nú um 150 millj.
kr. Einnig kemur til greina að
hafa sérstakan fleka fyrir gröft
og annan fyrir bortæki.
A vegum Hafnamálastofnunar
var nýlega skoðuð stór fljótandi
grafskófla i Norður-Noregi. Graf-
skófla þessi er mjög öflug og
myndi henta vel við viss verkefni.
Það mun standa okkur til boða að
leigja hana eitt ár, eða svo. Vegna
þess hversu dýrt yrði að flytja
hana hingað yrði það ekki gert
nema þessi umræddu verkefni
yrðu unnin i einu lagi. Þyrftu þvi
að vera til þessara nota töluverð-
ar fjárveitingar sérstaklega.
Kostnaður við gröft slikrar skóflu
virðist vera svipaður og hjá
Gretti.
Nokkur fjöldi dýpkunartækja er
til hér á landi i einkaeign. Hér er
nær eingöngu um dælutæki að
ræða. Ekkert þeirra hefur skera
eins og Hákur. Það hefur komið
sér vel að geta leigt þessi tæki,
þegar Hákur hefur verið bundinn
annars staðar og legið hefur á
takmörkuðum dýpkunum, sem
þessi tæki hafa ráðið við. En það
er nær eingöngu tiltölulega laus
sandur og leir. Reynzt hefur illa
að ætla þeim erfiðari verkefni.
1 dag má segja að Hákur upp-
fylli þá þörf, sem er fyrir dælu-
skip innan ramma þeirrar fjár-
mögnunar hafnargerða, sem er
fyrir hendi. Ef á henni yrði
skyndileg aukning gæti orðið þörf
fyrir fleiri tæki á þessu sviði, en
æskilegt væri að þau gætu leyst
erfiðari verkefni en dælingu
lausra efna.
Að endingu má benda á það al-
mennt, að ekki er réttlætanlegt að
kaupa dýr og afkastamikil tæki til
hafnargerða, nema fjármagn til
hafnargerða sé svo mikið, að þörf
sé fyrir tækin og þau getið unnið
við þau verk, er þau eru miðuð
við.
Fyrsta áfanga
byggðalínunnar
lýkur væntan-
lega í vetur
t svari Iðnaðarráðherra við
fyrirspurn frá Braga Sigurjóns-
syni um Byggðalinuna kom m.a.
fram, að áætlað er að hún flytji
fulllögð með 132 kv spennu allt að
50 Mw milli Suður- og Norður-
lands.
Gert er ráð fyrir að lagning
syðri Hluta hennar, þ.e. frá Anda-
kilsárvirkjun norður i Hrútafjörð.
ljúki I vetur. Lokið er að reisa
staura á verulegum hluta kaflans
frá Hrútafirði að Laxárvatni.
Á næsta ári er áformað að ljúka
þeim kafla, svo og áfanganum frá
Laxárvatni til Varmahlíðar. Þar
verður hún tengd linunni milli
Varmahliðar og Akureyrar Gert
er ráð fyrir að þessum fram-
kvæmdum verði lokið siðla næsta
árs. Yrði þá hægt að reka linuna
milli Andkils og Akureyrar með
132 kV spennu með bráðabirgða-
tengingu.
Erþáeftiraðgera kaflann milli
Grundartanga og Andakils og
hefur verið reiknað með að það
verk yrði unnið árið 1977 og linan
að öðru leyti fullgerð. Þó þarf að
athuga nánar þá timaáætlun.
Skv. upplýsingum Rafmagns-
veitna rikisins var áfallinn
kostnaður við lagningu linunnar
hinn 1. nóvember s.l. orðinn
657,8 millj. kr.
Heildarkostnaður við sjálfa
linulögnina er áætlaður 1300millj.
kr.
Kostnaður við spennistöðvar er
áætlaður um 1100 millj. kr. en þar
er innifalið nokkuð af rafbúnaði
fyrir dreifiveitur i héruðunum.