Fréttablaðið - 07.11.2005, Page 2

Fréttablaðið - 07.11.2005, Page 2
2 7. nóvember 2005 MÁNUDAGUR Dreamweaver MX 2004 Dreamweaver er eitt vinsælasta vefsmíða- forrit á markaðnum í dag enda bæði fjölbreytt og afar einfalt í notkun. Á þessu námskeiði verður farið í helstu grunnatriði Dreamweaver og hvernig má nota það til að búa til vefsíður og halda þeim við. Einnig verður kennd notkun margmiðlunar- efnis og javascript til að krydda vefsíður ásamt faglegri uppsetningu skráa á vefsvæði. Í lok námskeiðsins búa nemendur til full- kláraðan vef og læra hvernig á að setja vefsíður inn á Netið. Sjá nánari lýsingu á heimasíðu skólans. Lengd námskeiðs 31 kennslustund. Kennt er mánudags- og miðvikudagskvöld frá kl 17:30 - 21:00. Hefst 14. nóv. og lýkur 30. nóv. Verð kr. 29.000,- (Kennslubók innifalin) V E F S M Í Ð I Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími: 544 2210 • www.tsk.is • skoli@tsk.is LÖGREGLUMÁL Tveir menn stöðv- uðu pítsusendil sem var akandi í Árbænum um klukkan þrjú aðfaranótt sunnudags og réðust á hann. Meiðsl hans eru þó ekki mikil og þurfti hann ekki að leita læknisaðstoðar. Árásarmennirn- ir unnu einnig skemmdir á bif- reið sendilsins. Að sögn lögreglunar í Reykja- vík var ekki um rán að ræða og er alls óvíst að árásarmennirnir tveir hafi vitað að ökumaðurinn væri pitsasendill. Lögreglunni er því hulið hvað þeim gekk til með árásinni. Árásarmennirnir hafa ekki náðst en málið er í rann- sókn. Lögreglan í Reykjavík segir að talsvert hafi dregið úr því að pítsusendlar verði fyrir árásum en það var nokkuð algengt fyrir nokkrum árum. Líkamsárás í Reykjavík: Ráðist á pitsusendil ������ ��������� ���� ������ ��������� �� ���������� ������ �� ������������������������������ ������������������������������ ���� ������ ������ ������ ����� ����������������������������� �������� ���� ��������� ������� ��� ������� ��� ������� ������ ���� ���� ����� �������� �������� ��� ���������������������� ����� ������������������������������ ��� ��� ������ ����������� ������ ������� �������������� ��� ���� ���������������������������������� �������� ��� ���������� ���� ���� ��������������������������������� ������������������������������ �� ����� ��������� ����������� ����� ������ �������������� ����� ������������������ ����� ���� �������� ��������� SPURNING DAGSINS Eggert, á einkabíllinn fáa vini? „Allir frambjóðendur tóku málstað einkabílsins upp á sína arma svo hann á marga og góða vini.“ Eggert Páll Ólason, formaður samtakanna Vinir einkabílsins, bauð sig fram í sjöunda sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík en hafnaði í því tuttugusta. DÓMSMÁL Krafa Hannesar Hólm- steins Gissurarsonar prófessors um að dómi breskra dómstóla yfir honum verði vísað frá verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Jón Ólafsson a t h a f n a m a ð u r höfðaði einkamál á hendur Hannesi Hólmsteini í Bret- landi eftir að sá síðarnefndi vísaði á vefsíðu sinni í orð- róm þess efnis að Jón hefði komist í álnir með vafasöm- um hætti. Breskur dómstóll úrskurð- aði að Hannes Hólmsteinn hefði gerst sekur um meiðyrði og skyldi greiða Jóni andvirði tólf millj- óna króna. Hannes vill að málinu verði vísað frá á þeirri forsendu að breskir dómstólar hafi ekki lögsögu á Íslandi og hefst munnlegur mál- flutningur í málinu í dag. - bs Hannes Hólmsteinn: Frávísun tekin fyrir í dag HANNES HÓLMSTEINN Var fundinn sekur um meiðyrði af breskum dómstól. NOREGUR Konu sem ætlaði á sal- ernið á heimili sínu í Björgvin brá illilega þegar hún fann 75 sentimetra langa eðlu svamlandi um í salernisskálinni. Þriggja ára sonur konunnar þusti inn á baðherbergið eftir að hafa heyrt óp móður sinnar og sá hvers kyns var. „Þetta var óhugn- anleg upplifun,“ sagði hann við blaðamann Bergenavisen. Úrskurður dýrafræðings um að eðlan nærðist einkum á kjöti varð ekki til að róa konuna. Hún hrósar þó eflaust happi yfir að hafa ekki verið sest á skálina og fundið eðluna læsa í sig tönnun- um. Eðlur af þessari tegund geta haldið niðri í sér andanum í hálfa klukkustund og því gat þessi synt upp í klósettið. ■ Óhugnanlegur fundur: Lifandi eðla í klósettinu NIÐURSTAÐA PRÓFKJÖRS SJÁLFSTÆÐISFLOKKS Í REYKJAVÍK 4.-5. NÓVEMBER FRAMBJÓÐANDI 1. SÆTI ALLS 2. SÆTI ALLS 3. SÆTI ALLS 4. SÆTI ALLS 5. SÆTI ALLS 6. SÆTI ALLS 7. SÆTI ALLS 8. SÆTI ALLS 9. SÆTI ALLS 1 Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson 6424 6424 742 7166 676 7842 278 8120 230 8350 215 8565 168 8733 238 8971 316 9287 2 Hanna Birna Kristjánsdóttir 102 102 6290 6392 1394 7786 734 8520 424 8944 409 9353 295 9648 272 9920 222 10142 3 Gísli Marteinn Baldursson 5193 5193 732 5925 769 6694 405 7099 319 7418 306 7724 259 7983 265 8248 416 8664 4 Kjartan Magnússon 7 7 178 185 5067 5252 1012 6264 876 7140 668 7808 560 8368 572 8940 413 9353 5 Júlíus Vífill Ingvarsson 130 130 2924 3054 1334 4388 859 5247 696 5943 641 6584 528 7112 515 7627 444 8071 6 Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir 10 10 232 242 686 928 3809 4737 937 5674 955 6629 732 7361 680 8041 557 8598 7 Jórunn Frímannsdóttir 5 5 124 129 489 618 2368 2986 1054 4040 1300 5340 1082 6422 1001 7423 844 8267 8 Sif Sigfúsdóttir 5 5 109 114 272 386 451 837 1042 1879 1344 3223 1314 4537 1186 5723 984 6707 9 Bolli Thoroddsen 4 4 112 116 245 361 411 772 2317 3089 777 3866 794 4660 692 5352 748 6100 10 Marta Guðjónsdóttir 5 5 80 85 170 255 337 592 431 1023 1571 2594 815 3409 1001 4410 917 5327 11 Ragnar Sær Ragnarsson 3 3 41 44 113 157 170 327 1101 1428 585 2013 554 2567 583 3150 569 3719 12 Kristján Guðmundsson 4 4 16 20 93 113 168 281 760 1041 458 1499 544 2043 662 2705 762 3467 13 Björn Gíslason 3 3 26 29 83 112 113 225 169 394 308 702 1090 1792 540 2332 565 2897 14 Jóhann Páll Símonarson 4 4 41 45 65 110 68 178 126 304 192 496 266 762 372 1134 957 2091 15 Örn Sigurðsson 5 5 41 46 94 140 131 271 342 613 273 886 253 1139 348 1487 336 1823 16 Davíð Ólafur Ingimarsson 2 2 59 61 44 105 92 197 137 334 205 539 546 1085 363 1448 370 1818 17 Gústaf Adolf Níelsson 1 1 38 39 31 70 69 139 72 211 104 315 117 432 983 1415 225 1640 18 Loftur Már Sigurðsson 2 2 40 42 48 90 51 141 99 240 635 875 197 1072 256 1328 306 1634 19 Birgir Þór Bragason 1 1 15 16 63 79 105 184 275 459 212 671 257 928 289 1217 371 1588 20 Eggert Páll Ólason 4 4 25 29 42 71 54 125 109 234 183 417 632 1049 234 1283 276 1559 21 Benedikt Geirsson 1 1 16 17 47 64 86 150 106 256 159 415 469 884 304 1188 296 1484 22 Steinn Kárason 2 2 26 28 44 72 74 146 168 314 248 562 203 765 295 1060 328 1388 23 Gunnar Dofri Ólafsson 1 1 8 9 21 30 47 77 45 122 63 185 94 279 143 422 577 999 24 Guðni Þór Jónsson 2 2 5 7 30 37 28 65 85 150 109 259 151 410 126 536 121 657 PRÓFKJÖR „Stóra verkefnið núna er auðvitað kosningarnar í vor,“ segir Geir Haarde, formaður Sjálfstæðis- flokksins. „Þarna er mjög sigur- stranglegur listi þar sem saman fara bæði fólk með reynslu og svo nýtt fólk,“ segir Geir. Hann lýsir yfir ánægju sinni yfir því að flokkur sinn þurfi ekki á fléttulistum að halda til að tryggja kjörgengi kvenna. Svandís Svavarsdóttir, sem situr efst á lista Vinstri grænna, er ekki jafn ánægð með framgang kvenna innan Sjálfstæðisflokks. „Ef við horfum á fimm efstu sætin sjáum við bara Hönnu Birnu, enda þótt þetta hafi verið góður sigur fyrir hana,“ segir Svandís. Hún fagnar því að prófkjörinu sé lokið og að nú sé vitað við hvern sé að kljást. „Þetta var meiri peningaaustur en maður hefur áður séð í kringum kosningu á einstaklingum,“ segir Svandís. Steinunn Valdís Óskarsdótt- ir borgarstjóri segir úrslitin að mörgu leyti hafa verið fyrirsjáan- leg. „Ég tel Vilhjálm vel að þessu kominn. Hann er gamall refur í þessum bransa,“ segir Steinunn og bætir við að hún vilji að það bíði betri tíma að fara í rökræður við Vilhjálm. Þetta sé hans helgi og slagsmálin fái að bíða. Stefán Jón Hafstein kveður nokkru fastar að orði í yfirlýs- ingu sem hann sendi frá sér í gær. „Fjórtán ára forystukreppa D-list- ans í Reykjavík er komin á byrjun- arreit.“ Stefán segir að Vilhjálmur fái aðeins einn hveitibrauðsdag. „Núna mætast gamla íhaldið og ný frjálslynd jafnaðarmannastefna sem ég verð fulltrúi fyrir,“ segir Stefán Jón. „Ég held að sjálfstæðismenn séu tiltölulega heppnir með niður- stöðu þessa prókjörs,“ segir Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins. Hann segir að þótt vel hafi til tekist þýði það ekki endilega að flokkurinn muni ná meirihluta í kosningunum. „Ef sú staða kemur upp eftir kosningar í vor að Sjálfstæðis- flokkurinn fái sjö fulltrúa og frjálslyndir nái inn manni tel ég góðar líkur á að Vilhjálmur geti átt gott samstarf við Frjálslynda,“ segir Ólafur F. Magnússon, Frjáls- lynda flokknum. Hann kveður Vilhjálm vera yfirburðamann í borgarstjórnarflokki sjálfstæðis- manna. saj@frettabladid.is VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON ÞEGAR ÚRSLIT NÁLGUÐUST Vilhjálmi var fagnað af stuðningsmönnum með útréttar hendur þegar ljóst var hvert stefndi á laugardagskvöldið. Fjölmiðlar fylgjast með. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Hveitibrauðsdagur Vilhjálms liðinn Geir Haarde segir lista Sjálfstæðisflokks sigurstranglegan og vill virkja nýja flokksmenn. Stefán Jón Hafstein segir Vilhjálm fá einn hveitibrauðsdag. Stefán vill leiða jafnaðarstefnu gegn íhaldi á meðan frjálslyndir biðla til samstarfs. PRÓFKJÖR „Auglýsingin er alveg klárlega í nafni stuðningsmanna minna en ekki í nafni Samfylk- ingarinnar,“ segir Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi Samfylk- ingarinnar, um auglýsingu sem hann birtir nú í fjölmiðlum. Stefán leitast eftir því að verða efstur á lista Samfylkingarinnar í borgar- stjórnarkosningum í vor og birtir nú auglýsingar í þeim tilgangi, en rúmir tveir mánuðir eru til próf- kjörs. Athygli vekur að auglýsingin er merkt Samfylkingunni. Stef- án segir það hafa verið álitamál hvort merkja ætti auglýsinguna eða ekki. „Þegar ég horfði á aug- lýsinguna án merkisins þótti mér þetta líta út eins og einkasprikl þannig að mér fannst betra að hafa merkið með,“ segir Stefán spurður um réttmæti þess að nota merki flokksins á þennan hátt. Stefán bendir á að bæði Ingi- björg Sólrún Gísladóttir og Össur Skarphéðinsson hafi notað merki Samfylkingarinnar á þennan hátt í formannsslagnum fyrir lands- fundinn síðastliðið vor. „Mér þótti að athuguðu máli réttara að merki flokks míns kæmi fram því að ég auðvitað stend fyrir hann og mun taka þátt í prófkjöri með honum,“ segir Stefán Jón. - saj Stefán Jón birtir heilsíðuauglýsingar og vill ná efsta sæti í prófkjöri: Notar merki Samfylkingar STEFÁN JÓN HAFSTEIN Stefán Jón hefur hafið auglýsingar og vonast til þess að ná fyrsta sæti á lista Samfylkingar í prókjöri á nýju ári. FRÉTTABLAÐ- IÐ/RÓBERT

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.