Fréttablaðið - 07.11.2005, Qupperneq 16
7. nóvember 2005 MÁNUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI:
Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI:
550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA:
Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871
�������������������������������
������������������
�
�����������������
�����������������
������������������ ��� ������
���������������������������������
����������������������������������
����������������������������
���������������
�����������������������������
�����������������������������������
���������������������������
�������������������
��������
�����������������������������������������������������������������������������������������
Þáttaskil
Margir telja að afgerandi sigur Vilhjálms
Þ. Vilhjálmssonar í prófkjörinu um
helgina innsigli nýja tíma í Sjálfstæðis-
flokknum. Líklega er það rétt sem Össur
Skarphéðisson segir á vefsíðu sinni að
„með tapi Gísla Marteins og öflugum
sigri Vilhjálms hafi verið settur ákveðinn
punktur aftan við valda-
skeið hins þrönga
og valdamikla
kjarna í kringum
Davíð [Oddsson].“
Heimildir eru
fyrir því að ýmsir
sjálfstæðismenn,
sem kunnu vel
við Gísla Martein,
hafi ekki viljað kjósa
hann vegna þess
að þeim fannst
svo augljóst
að honum væri fjarstýrt frá gömlu valda-
klíkunnni í flokknum. Úr því að Davíð
væri hættur ættu hans menn einnig
að draga sig í hlé, en ekki að reyna að
stjórna áfram bak við tjöldin.
„Meira en frambærilegar“
Auk sigurs Vilhjálms er það glæsilegt
gengi kvenna sem mesta athygli vekur
þegar úrslit prófkjörsins eru skoðuð.
Sjálfstæðismenn ná því að hafa jafnt
hlutfall kynja í efstu sætunum án þess
að setja upp kvótakerfi. Og svo enn
sé vitnað í Össur eru þetta „meira en
frambærilegar“ konur. Hanna Birna
Kristjánsdóttir er bersýnilega efni í
foringja en hún þarf fyrst að ná af sér
ólundarsvipnum sem fer ákaflega í
taugarnar á ýmsum sem flokknum eru
velviljaðir. Skemmtilegasta niðurstaða
prófkjörsins er sigur Sifjar Sigfúsdóttur,
sem náði 8. sæti. Hún hafði sig lítið sem
ekkert í frammi og rak ekki einu sinni
kosningaskrifstofu.
„Gamla íhaldið“?
Líklega hafa vinstri menn haldið með
Vilhjálmi Þ. Í þeirra augum var Gísli
Marteinn á vegum gömlu valdaklíkunnar
sem þeir eru búnir að berjast svo lengi
við. En kannski verður Vilhjálmur enn
hættulegri andstæðingur. Hann höfðar
til breiðs hóps kjósenda, þar á meðal
miðjunnar sem vinstri flokkarnir þurfa á
að halda. Stefán Jón Hafstein bregst við
þessu með því að tala um Vilhjálm sem
fulltrúa „gamla íhaldsins“ sem ekki megi
komast til valda aftur. Kannski virkar
það. Líklegra er þó að syndir R-listans,
sem blasa við hverju mannsbarni í borg-
inni, verði kjósendum ofar í huga þegar
nær dregur kosningum.
gm@frettabladid.is
Stjórnendur Landsvirkjunar virð-
ast starfa eftir þeirri hugmynd
að fyrirtækið sé nokkurs konar
þjóðkirkja og það sé enn ríkistrú á
Íslandi að orku skuli aflað með því
að sökkva landssvæðum undir lón.
Þetta hugarfar sást vel á þeim
ótrúlegu áformum þessara manna
að ætla sér að fara inn í grunnskóla
landsins með sérútbúið kennsluefni
til að koma börnum landsins í skiln-
ing um nauðsyn Kárahnjúkavirkj-
unar. Hingað til hafa Þjóðkirkjan
og Umferðarráð haft slíkan aðgang
að hugskotum íslenskra barna - og
þykir mörgum nóg um slíkan áróð-
ur - og upp á síðkastið er íþrótta-
álfurinn mættur með gulræturnar
sínar - en nú telja sem sé Lands-
virkjunarmenn að fagnaðarerindi
þeirra um hjálpræði stórvirkjana
og uppistöðulóna eigi heima í flokki
með fræðslu um Jesú og hætturnar
í umferðinni og hollustu gulróta.
Væntanlega eiga skólastjórar lands-
ins eftir að senda þetta efni kurt-
eislega til baka - eins og annað slíkt
stórfyrirtækjakvabb - og foreldrar
eiga það varla á hættu að fá einn
góðan veðurdag heim úr skólan-
um lítið öfgafólk í virkjanamálum.
Það er hins vegar sjálft oflætið í
þessari furðulegu herferð á hendur
íslenskum börnum sem óneitanlega
vekur manni nokkurn ugg.
Framferði Landsvirkjunar bend-
ir til þess að þeir ríkisstarfsmenn -
þjónar almennings - sem þar starfa
hafi brenglaða sjálfsmynd. Enn eru
þeir í óða önn að undirbúa Norð-
lingaöldulón jafnvel þótt allt mæli
gegn þeirri framkvæmd og jafn-
vel þótt yfirgnæfandi meirihluti
þjóðarinnar hafi lýst sig fylgjandi
stækkun friðlandsins í Þjórsárver-
um. Um árabil stóð til að sökkva
Þjórsárverum - aðrir möguleikar
væru ekki í stöðunni - en settur
umhverfisráðherra, Jón Kristjáns-
son, kvað upp þann úrskurð 2003 að
lónið skyldi ekki skerða friðlandið
og fylgdu með þær forsendur reikn-
aðar út af Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen að um yrði að ræða
566 metra lón. Þessa tölu drógu
Landsvirkjunarmenn strax í efa þó
ekki væri nema til að fá að sökkva
einhverju af friðlandinu, sennilega
stoltsins vegna: þeir kröfðust þess
að réttur skilningur á úrskurði ráð-
herra kvæði upp á 568 metra lón.
Við fengum að heyra það í síðustu
viku í Speglinum í Ríkisútvarpinu
hvernig Landsvirkjunarmenn tóku
fljótlega eftir úrskurð hins setta
ráðherra að starfa á heimamönnum
í Gnúpverjahreppi þar sem strandað
hefur löngum á samþykki fyrir því
að Landsvirkjun fari sínu fram, allt
frá því að til stóð að sökkva öllum
Þjórsárverum. Þeir boðuðu fundi á
fundi ofan og þeir hringdu - kvölds
og morgna - aftur og aftur og aftur -
og vildu semja um nýjar forsendur:
með öðrum orðum, þeir virtu ekki
úrskurð ráðherrans. Erindi þess-
ara eilífu fundahalda með bænd-
um sem höfðu vitaskuld annað við
tíma sinn að gera var að leiðrétta
þann „misskilning“ Gnúpverja
að halda sig við 566 metrana sem
ráðherra hafði haft sem forsendur
síns úrskurðar. Eins og núverandi
oddviti Gnúpverja, Aðalsteinn
Guðmundsson, lýsti í Speglinum
þessari fundaánauð var augljóst
að Landsvirkjunarmenn voru að
reyna að þreyta menn til uppgjafar.
Og ljótar voru lýsingar Margrétar
Steinþórsdóttur, ekkju Más heitins
Haraldssonar fyrrum oddvita, á
eilífum símtölum Landsvirkjunar-
manna til bónda hennar sem þá var
fársjúkur af krabbameini og þurfti
á öðru að halda en nýjum og nýjum
útskýringum á því að sannfæring
hans um friðun Þjórsárvera væri
byggð á „misskilningi“.
Landsvirkjun situr föst við sinn
keip og leitar leiða til að ganga á
Þjórsárver, neitar að semja frið við
þjóðina í þessu máli. Og enn er ekki
útséð um stækkun friðlandsins í
Þjórsárverum, þrátt fyrir útskurð
samvinnunefndar um miðhálendið
frá því í ágúst þar sem lónum norð-
an friðlands Þjórsárvera var hafn-
að - þrátt fyrir eindreginn þjóðar-
vilja sem fram er kominn um þetta
svæði - þrátt fyrir augljóst nátt-
úruverndargildi svæðisins - þrátt
fyrir alþjóðlegar skuldbindingar
um verndun þess - þrátt fyrir ein-
arða afstöðu Gnúpverja - þrátt fyrir
deilurnar og sárin og klofninginn
sem Kárahnjúkavirkjun vekur enn
- þrátt fyrir aurinn sem fylla mun
þetta lón á aðeins hundrað árum
svo að ekki er hægt að tala hér
um sjálfbæra framkvæmd - þrátt
fyrir aðra virkjunarkosti - þrátt
fyrir háhitasvæði - þrátt fyrir nýja
tækni - í stuttu máli - þrátt fyrir allt
- þá situr Landsvirkjun föst við sinn
keip. ■
Framferði LandsvirkjunarPrófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík yfirskyggði önnur prófkjör og atkvæðagreiðslur um helgina. Það er búin að vera mikil spenna í aðdraganda prófkjörsins eftir að Gísli
Marteinn Baldursson tilkynnti að hann ætlaði gegn sitjandi
leiðtoga flokksins í borgarmálum í Reykjavík, Vilhjálmi Þ. Vil-
hjálmssyni. Eftir þessa baráttu, sem þó hefur farið drengilega
fram á yfirborðinu, er Vilhjálmur Þ. ótvíræður foringi sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík, og finnst mörgum eflaust kominn tími til,
því hann á að baki langan og farsælan feril í sveitarstjórnarmál-
um og leitun á manni sem er með meiri þekkingu og reynslu í
þessum málaflokki, ekki aðeins í höfuðborginni heldur á landinu
öllu.
Sjálfstæðismenn hafa verið í kreppu í Reykjavík eftir að Davíð Oddsson vatt sér yfir í landsmálin með eftirminnilegum hætti. Hvert leiðtogaefnið á fætur öðru hefur komið fram á sjónarsvið-
ið til þess að freista þess að frelsa borgina úr höndum Reykja-
víkurlistans, en án árangurs. Nú er næsta mál á dagskrá, eins
og Vilhjálmur Þ. sagði við birtingu talna úr prófkjörinu, að ná
borginni og þá verður hann borgarstjóri. Eins og staðan er í dag
virðast talsverðar líkur á því að sjálfstæðismenn nái borginni á
ný en þó er rétt að fullyrða ekki neitt, því enn er langt í kosning-
ar og margt getur gerst í borgarmálum fram á vor. Meirihluta-
flokkarnir í borgarstjórn eiga líka eftir að efna til prófkjöra,
nema Vinstri grænir, og þar vegur þungt hvernig úrslit verða
hjá Samfylkingunni.
Þótt Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hafi hlotið yfirburðakosningu, og mun betri en margir höfðu ætlað, er fróðlegt að velta fyrir sér tölulegum staðreyndum varðandi prófkjörið. Þegar upp var
staðið voru um 21 þúsund manns á kjörskrá og ljóst að á þriðja
þúsund hafa gengið í flokkinn, eða verið smalað þangað inn,
frá því landsfundur Sjálfstæðisflokksins var haldinn í október.
Rösklega tólf þúsund manns tóku þátt í prófkjörinu og það verð-
ur að gera ráð fyrir því að allir hinir nýju flokksfélagar séu þar
á meðal. Það eru því æði margir af þeim sem fyrir voru í flokkn-
um sem ekki tóku þátt í prófkjörinu fyrir helgina, og má þó gera
ráð fyrir að fylkingar Vilhjálms Þ. og Gísla Marteins hafi ekkki
legið á liði sínu við að fá skráða flokksmenn í Reykjavík til að
kjósa. Þetta hlýtur að vera forystumönnum flokksins í Reykja-
vík umhugsunarefni - að upp undir helmingur skráðra félaga
fyrir prófkjörið sé óvirkur - jafnvel þótt um það sé að ræða að
velja forystumann. ■
SJÓNARMIÐ
KÁRI JÓNASSON
Gísla Marteini tókst ekki það sem að var stefnt.
Vilhjálmur vel að
sigrinum kominn
Þetta hlýtur að vera forystumönnum flokksins í
Reykjavík umhugsunarefni - að upp undir helmingur
skráðra félaga fyrir prófkjörið séu óvirkir - jafnvel
þótt um það sé að ræða að velja forystumann.
Í DAG
ÞJÓRSÁRVER
GUÐMUNDUR ANDRI
THORSSON
Við fengum að heyra það í
síðustu viku í Speglinum í
Ríkisútvarpinu hvernig Lands-
virkjunarmenn tóku fljótlega
eftir úrskurð hins setta ráðherra
að starfa á heimamönnum í
Gnúpverjahreppi…
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
Mest lesna
vi›skiptabla›i›
G
al
lu
p
kö
nn
un
f
yr
ir
36
5
pr
en
tm
i›
la
m
aí
2
00
5.