Tíminn - 03.01.1976, Side 3
Laugardagur 3. janúar 1976.
TÍMINN
3
Sauðárkrókur um áramótin:
Lögreglumenn
grýttir við störf sín
FB-Reykjavik. Skrilslæti settu
leiðiniegan svip á áramótin á
Sauðárkróki að þessu sinni eins
og reyndar mun einnig hafa verið
undanfarin ár, samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar þar.
Milli 100 og 150 börn og unglingar
tóku þátt i óeirðunum, og i þeim
slösuðust tveir lögregluþjónar,
annar á höfði og hinn á fæti, svo
þeir eru nú báðir frá störfum.
Jón Hallur Jóhannsson
varðstjóri á Sauðárkróki sagði
svo frá, að kveikt hefði verið á
bálkesti um kl. 9 á gamlárskvöld.
Litill sem enginn áhugi hefði virzt
vera á brennunni, en þess i stað
hefðu unglingar tekið að flykkjast
út á aðalgötur bæjarins og bera á
þær ýmiss konar drasl til tál-
munar umferðinni. Meðal annars
var hvolft úr öskutunnum og vir-
ar strengdir yfir göturnar svo
nokkuð sé nefnt.
Þá gekk þetta svo langt, að
kveikt var i rúslinu á götunum.
Ellefu lögreglumenn voru á vakt,
og voru þeir hvað eftir annað
hindraðir i þvi að gegna störfum
sinum. Skrillinn braut að minnsta
kosti 8 rúður, þar af eina i bil.
Spjöllvoru unnin á grindverkum
húsagarða, og grjóti var kastað
Kynvillingurinn í
45 daga gæzlu-
varðhald í
viðbót
Kópavogsbúi sá, sem setið
hefur i gæzluvarðhaldi frá 4.
ágúst i sumar vegna kynvillu-
sambands við börn og ung-
linga, var á gamlársdag úr-
skurðaður i 45 daga gæzlu-
varðhald til viðbótar.
Leó Löwe fulltrúi bæjarfó-
geta i Kópavogi sagði þegar
Timinn spurðist fyrir um mál
þetta i gær, að mál manns
þessa hefði verið sent sak-
sóknara i október og þar lægju
öll málsskjöl enn, og væri ekki
enn búið að ákæra manninn.
Dýnamítþjófar
í gæzluvarðhald
A gamlársdag voru tveir ungir
menn úrskurðaðir i gæzluvarð-
hald i Kópavogi fyrir þjófnað á
dýnamiti.sem þeir höfðu ætlað að
sprengja á gamlárskvöld. Leó
Löwe fulltrúi bæjarfógeta sagði i
viðtali við Timann, að einungis
annar mannanna hefði játað og
meginástæða þess, að mennirnir
voru úrskurðaðir i gæzluvarðhald
hefði verið sú, að óvist var hvort
allt dýnamitið hefði verið komið i
leitirnar.
að lögreglustöðinni, og rúða
brotin þar. Tveir lögreglumenn á
götuvakt urðu fyrir grjótkasti,
eins og fyrr sagði, og slösuðust
þeir nokkuð.
Varðstjórinn sagði að erfitt
væri að gizka á fjölda unglinga,
sem þátt tóku i óeirðunum, en
þarna hefðu að minnsta kosti
verið 100-150 unglingar. Reyndar
voru þeir sem þarna voru á
aldrinum frá 10 til 20 ára og
einnigyngri ogeldri. Augljóslega
voru ákveðnir forsprakkar, sem
stýrðu ólátunum, og þar af sumir
hverjir fullorðnir menn sem
höfðu þau áhrif á unglinga að þeir
mögnuðust mjög, vegna
stuðnings hinna eldri. Sumir
þessara fullorðnu manna, hafa
verið meðal forsprakka undan-
farin ár.
Nokkuð bar á ölvun unglinga,
og jafnvel ungra barna. Allmargt
fólk varfært á lögreglustöðina og
geymt þar misjafnlega lengi, við
erfiðar aðstæður, en aðeins þrir
fangaklefar eru á stöðinni. Að
sjálfsögðu voru börn ekki sett i
fangaklefana, heldur þeir full-
orðnu. Fulltrúar Barnaverndar-
nefndar voru hafðir á lögreglu-
stöðinni, og aðstoðuðu þeir lög-
regluna við að flytja börnin heim
og afhenda þau foreldrum. Það
vildi þó brenna við, að sömu
börnin væru tekin aftur siðar um
nóttina við spellvirki.
Ólátunum var að mestu lokið
upp úr miðnætti, en þó hafði lög-
reglanafskipti bæði af börnum og
unglingum fram undir morgun.
Dansleikur hófst að Bifröst kl. 24
og stóð til kl. 4 á nýársdags-
morgun, og fór hann allsæmilega
fram...
Jón Hallur sagði að lokum, að
hann harmaði það, að slikir at-
burðir skyldu þurfa að koma fyrir
á Sauðárkróki á hverju einasta
gamlárskvöldi, enda teldi hann
að þetta ætti að heyra fortiðinni
til, og væri þessi framkoma blett-
ur á bænum.
— Það er heldur leiðinlegt, sagði
hann, — þegar fólk kemur út á
nýársdagsmorgun, að helztu
götur bæjarins skuli lita út eins og
sorphaugar, eftir að hvolft hefur
verið úr ruslatunnum á þær. Ég
vil einnig bæta þvi við, að lög-
reglan hefur gert itrekaðar
tilraunir til þess að hafa ofan af
fyrir þessum börnum á gamlárs-
kvöld, ef það mætti verða til þess
að stemma stigu við þessum
skrilslátum, en engin félagasam-
tök, né aðrir aðilar virðast hafa
nokkurn áhuga á málinu, og ekki
heldur bæjaryfirvöld.
Þess má að lokum geta, að
ibúar Sauðárkróks eru milli
1700-1800 talsins, svo það er
nokkuð stór hluti ibúanna, sem
tekur þátt i þessum skrilslátum á
gamlárskvöld. Til samanburðar
mætti reikna með að fjöldinn hér i
Reykjavik yrði ekki innan við 10
þúsund, sem lögreglan þyrfti að
kljást við, ef hlutfallið væri
svipað.
Um þrjúleytið i gær varö það óhapp, að dráttarvél féll niður um isinn á
Tjörninni. Starfsmaður iþróttavallanna hafði verið þarna að vcrki, og
hugðist skafa isinn af Tjörninni, svo hann yrði betri fyrir þá, scm vilja
stunda skautaiþróttina. Fór þá svo illa, að dráttarvélin fór niður um is-
inn rétt við tjarnarbakkann við Bjarnargötuna. Maðurinn komst i land
af eigin rammleik og varðckki meint af. (Timamynd Róbert)
Jónas Kristjánsson ásamt styrkþegunum, Birni Bjarman og Jóni Björnssýni. Timamyndir G.E.
„Lukkulegur og undrandi"
— segir Björn Bjarman, sem hlaut styrk úr rithöfundasjóði
Ríkisútvarpsins ásamt Jóni Björnssyni
— sagði Björn Bjarman i viðtali
við Timann, en hann hefur gefið
út tvær bækur smásögurnar 1
heiðinni og skáldsöguna Tröllin.
— Ég taldi mig ekki nógu mikinn
rithöfund til að eiga von á slikri
viðurkenningu.
— Hvort ég er að vinna að rit-
verki núna? Auðvitað er maður
alltaf með eitthvað i takinu. En
það gengur seint. Ég er starfandi
kennari við Vogaskóla og það er
ekki gott að koma þessum tveim
viðfangsefnum heim og saman.
Að visu er ég i hálfu orlofi i vetur
og kenni ekki nema hálfa
kennsluskylduna. —
Jón Björnsson á sér lengri rit-
höfundarferil að baki en Björn
Bjarman. Meðal verka hans er
skáldsagan Valtýr á grænni
treyju, sem hann jafnframt færði
i leikritsgerð, sem komið hefur út
á prenti og flutt hefur veriðá sviði
Þjóðleikhússins.
SJ—Reykjavik. A gamlársdag
var að vanda úthlutað styrkjum
úr Rithöfundasjóði Rikisútvarps-
ins. Að þessu sinni hlutu rit-
höfundarnir Jón Björnsson og
Björn Bjarman þá og komu
200.000 kr i hlut hvers um sig.
Athöfnin fór fram I Þjóöminja
safninu og afhenti Jónas Krist-
jánsson formaður úthlutunar
nefndar rithöfundunum styrkina.
— Ég var ákaflega lukkulegur
og jafnframt undrandi að mér
skyldi vera veittur þessi styrkur,
Frá athöfninni i Þjóðminjasafninu.
Skipstjórinn ó fsafold:
„Skruppum bara heim í jólafrí"
tsafoldin i Slippnum á föstudaginn.
BH-Reykjavik. — Við skruppum
bara heim i jólafri og notuðum
tækifærið til að setja skipið i smá-
klössun i Slippnum, sagði Arni
Gislason. skipstjóri á tsafold HG
209. þegar Timinn hafði samband
við Arna og spurði hvort þcir
ætluðu að vera með á loönuvertið
i ár.
— Nei, við verðum ekki með i ár,
svaraði Arni. Við fengum leyfi i
fyrra en við notuðum það aldrei
og við höfum ekki endurnýjað
það. Við förum héðan beint i
Norðursjóinn og verðum þar og
leggjum upp i Hirsthals. Það er
einsog menn vilji gleyma þvi, að
þetta er danskt skip, danskt at-
vinnubótatæki, þótt áhöfnin sé is-
lenzk, en samkvæmt þvi verðum
við að haga okkur.
Okkur fannst mikið til um, hvað
Timainynd: Gunnar
þetta var myndarlegt skip og
höfðum orð á þvi við Arna.
Þetta er afskaplega gott
veiðiskip, svaraði Árni og ég tel
engan vafa á þvi að hefði það is-
lenzkt skrásetningarnúmer væri
þetta fullkomnasta veiðiskip
flotans á sinu sviði. þ.e.a.s. sem
skilar hráefninu i land, en vinnur
það ekki um borð.
Víðast friðsælt um áramótin
FB-Reykja vik. Aramótin voru
hin friðsamlegustu viðast hvar á
landinu, utan á Sauðárkróki, en
frá þvi er skýrt á öðrum stað i
►blaðinu. t Reykjavik var fátt um
tiðindi hjá lögreglunni, og sömu
sögu var að segja á Akureyri og i
Keflavik. A Xkranesi gerðist
heldur ekkert markvert um ára-
mótin sjálf, en aðfaranótt föstu-
dagsins var þar brotizt inn i sölu-
turn og einhyerju stolið af tóbaki
og sælgæti. Ekki hafði þjófurinn
náðst i gærkvöldi. samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar.