Tíminn - 03.01.1976, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Laugardagur 3. janúar 1976.
Annar i páskum
á mánudegi i ár
Sagnir eru um að fyrr á öldum
hafi Islendingar orðið svo
ruglaðir i langvarandi stórhrið-
um og skammdegismyrkri að
þeir töpuðu timatalinu, og var
þaðekkert grin i þá daga, þegar
guðdómurinn heimtaði
sina tilbreiðslu á kórréttum
helgidögum og lágu þung viður-
lög við ef útaf var brugðið. Til
að koma i veg fyrir stórslys af
þvi tagi fundu reikningsglöggir
menn upp fingrarimið og eftir
það þurfti enginn að óttast að
halda heilagt á rúmhelgum
degi.
Nú er almanakið reiknað af
sprenglærðum sjörnufræðing-
um og ber enginn brigður á
niðurstöður þeirra né spyr
hvaða aðferðum þeir beiti og
hvort fingrarimið sé haft til
hliðsjónar. En allur er varinn
góður og vonandi hefur reikni-
meistari Visis ekki ruglast i
riminu þegar hann færir okkur
þau gleöitiðindi, að annan i
páskum i ár beri upp á mánu-
dag, sem komi á eftir skirdegi,
föstudeginum langa, laugardegi
og sunnudegi.
Loksins kemur fri!
Langþráður mánuður, april.
bað er fri þann 15. sem er skir-
dagur. Þvi næst er íöstudagurinn
langi. laugardagur og sunnudag-
ur. og annar i páskum er á mánu-
degi. ‘
vísm
1976
KATTALÍF
Þrjár myndir úr lifi kattar, sem
þó eru einnig lærdómsrikar
fyrir mennina. Tvifætlur reka
sig stundum á það, að græðgi
hefur tælt þær út á hála braut.
Þannig fór fyrir kisu. Enginn
hafði orðið til að segja henni að
bjúgu eru föst saman á endun-
um. Henni brá voðalega, þegar
hún uppgötvaði það.
DENNI
DÆMALAU5I
Heyrðu, þessi kalli i sjónvarpinu,
sem sagði að það myndi snjóa,
hafðj aldeilis rétt fyrir sér.