Fréttablaðið - 07.11.2005, Side 21

Fréttablaðið - 07.11.2005, Side 21
534 1300 w w w . g l u g g a l a u s n i r . i s Útsýni með stíl Vandað, einfalt og ódýrt Hafðu samband og við komum heim til þín ÞEGAR DYTTAÐ ER AÐ HEIMA FYRIR ER HÆGT AÐ STÓRSLASA SIG EF EKKI ER VARLEGA FARIÐ. HÉR FYLGJA NOKKUR ÖRYGGISRÁÐ. Passaðu að klæðast alltaf hlífðarföt- um, gleraugum, hönskum og ryk- grímu þegar unnið er með efni sem gætu verið hættuleg eins og gler eða málning. Það er líka ráðlegt að vera með grímu þegar verið er að saga, hvort heldur er í tré eða plast. Loftræsting þarf að vera í góðu lagi í herbergjum þar sem verið er að mála og stranglega bannað að reykja á meðan málað er eða staðið nálægt nýmáluðu svæði. Ekki spara í verkfærakaupum. Vandaðri verkfæri eru öruggari og sennilega fljótvirkari. Taktu rafmagnið af við lagfæringar á innstungum og taktu rafmagnstæki úr sambandi. Vertu alltaf í skóm með gúmmísólum við slík tækifæri. Aldrei nota vatn til að slökkva eld í rafmagnstæki og leitaðu helst til fag- manns þegar slík verk ber á góma. Taktu bor- vélina úr sambandi þegar þú skiptir um bor. Ekki klæðast víðum fatnaði við borun eða bera skartgripi sem gætu flækst í bornum. Flest viðgerðarslys verða í eða kringum stiga. Reistu stigann alltaf samkvæmt fyrirmælum framleið- andans og aldrei halla þér til annarrar hliðarinnar. Ekki flýta þér um of og skipuleggðu verkið vel áður en þú hefst handa. Viðurkenndu takmark- anir þínar og ekki óttast að ráðgast við fagmann. Fáðu endilega einhvern til að hjálpa þér. { öryggisráð Öryggið á als oddinn! MÁNUDAGUR 7. nóvember 2005

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.