Fréttablaðið - 07.11.2005, Síða 71
MÁNUDAGUR 7. nóvember 2005 19
NIKE
adidas
SPEEDO
hummel
Confetti
ASICS
Rucanor
Röhnisch
Catmandoo
Nýjar vörur á
hver jum degi!
50-80%
lækkun frá fullu verði
Casall
Upplýsingasími: 511-1055
Opnunartími:
Opið virka daga frá kl. 14:00 til kl. 18:00
Opið um helgar frá kl. 10:30 til kl. 18:00
Fótboltavörur:
Nike, Adidas, Puma – Góð-
ar jólagjafir. Man.Unit og
Arsenal vörur í úrvali.
Fótboltaskór – legghlífar –
búningar – boltar, mjög
mikið úrval
Sundfatnaður:
Nike, Adidas, Speedo
Sundbolir, bikini,
sundskýlur, sundbuxur
(boxer), barnasundföt
Gaddaskór:
Nike, Adidas. Áhugavert
fyrir frjálsíþróttafólk.
Okkar verð Fullt verðSíðustu dagar
frá mánudegi til miðvikudags
Verðdæmi:
Stakar íþróttabuxur 1.600 kr. 3.990 kr.
Nike anorakkar, fóðraðir 3.500 kr. 10.490 kr.
Adidas fótboltaskór, F30 TRX FG 5.000 kr. 9.990 kr.
Nike stuttbuxur 1.400 kr. 3.600 kr.
Rucanor sokkar, 3 í pakka 500 kr.
Adidas innanhússkór, STABIL 4.000 kr./ 7.000 kr.
7.990 kr./ 13.990 kr.
Adidas Nike/Speede sundbolir Frá kr. 1.000
Adidas fótboltaskór barna 2.000 kr. 3.990 kr.
Nike innanhússkór MULTICOURT 2.300 kr. 4.600 kr.
Nike alhliðaskór TERRA SEBEC 4.000 kr. 7.990 kr.
Fire Fly barnaskór 1.200 kr. 3.990 kr.
Barnakuldagallar 3.600 kr. 7.990 kr.
Nike gallar, stór númer 3.500 kr. 11.990 kr.
50%
afsláttur af okkar
verðum á öllum vörum
mánudag til miðvikudag
EFTIRVÆNTING Drengur bíður þess að fá að
sitja í hringekju á fyrsta degi Eid-hátíðar-
innar í hinni fornu borg Balkh í norðurhluta
Afganistan.
Hlaut gull í ferðakynningu
Menntaskólinn í Kópavogi sendi
nýlega tvo nemendur í árlega
fagkeppni nemenda sem hald-
in er í tengslum við aðalfund
Evrópusamtaka hótel- og ferða-
málaskóla sem að þessu sinni
var haldin í Antalya í Tyrklandi.
Nokkrir fulltrúar Menntaskólans
í Kópavogi og Hótel- og matvæla-
skólans tóku þátt í aðalfundinum
en þær Anna Björg Þórarinsdótt-
ir, nemandi á ferðalínu í MK, og
Bylgja Mjöll Helgadóttir bakara-
nemi kepptu fyrir Íslands hönd í
ferðakynningum annars vegar og
eftirréttagerða hins vegar.
Keppnin fer þannig fram að
keppt er í mismunandi greinum
og skipt er upp í tveggja eða fjög-
urra manna lið þannig að hver og
einn fær félaga frá öðrum lönd-
um heims.
Bylgja keppti í félagi við
ítalskan strák og Anna Björg
með stúlkum frá Slóveníu, Hol-
landi og Austurríki. Verkefni
ferðakynningakeppninnar var
að útbúa kynningu á Antalya sem
stúlkurnar gerðu með glærusýn-
ingu og myndbandi sem þær bju-
ggu til sjálfar. Kynningin sló í
gegn og hlaut lið Önnu gullið að
launum.
Þetta er áttunda árið sem MK
sendir nemendur og kennara til
þessarar keppni og hefur árang-
ur íslensku nemendanna verið
mjög góður en hópurinn hefur
snúið heim með ófá silfur- og
gullverðlaun.
Yfir 300 skólar frá 35 löndum
eru í Evrópusamtökum hótel- og
ferðamálaskóla og því ljóst að
samkeppnin er hörð og ekki sjálf-
gefið að ná jafn góðum árangri
og íslensku nemarnir hafa náð.
GULLVERÐLAUNAHAFAR Bylgja Mjöll
Helgadóttir og stöllur hennar frá Slóveníu,
Hollandi og Austurríki þóttu standa sig best
í að kynna Antalya.
BRÁÐNAR Í MUNNI Anna Björg bjó til góm-
sætan eftirrétt ásamt Ítalanum Fabio.
Norðmenn geta brátt kynnt sér
ævi og störf nóbelskáldsins
Halldórs Laxness á eigin tungu
því JPV útgáfa hefur samið um
útgáfu ævisögu skáldsins eftir
Halldór Guðmundsson á norsku.
Bókin kom út hérlendis á síðasta
ári og hlaut höfundurinn Íslensku
bókmenntaverðlaunin fyrir.
Stefnt er að því að bókin verði
gefin út þegar á næsta ári í Nor-
egi undir merkjum Tiden, sem er
dótturforlag Gyldendal-forlagsins
norska sem gaf út verk Laxness,
Sjálfstætt fólk, í norskri þýðingu
á síðasta ári.
Halldór á
norsku
LAXNESS Ævisaga hans verður þýdd á
norsku.
AFMÆLI
Eiður Guðnason sendiherra
er 66 ára.
Jakob Ragnar Möller
hæstaréttarlögmaður er
65 ára.
Joni Mitchell söngkona er
62 ára.
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1867 Marie Curie vísinda-
kona.
1879 Leon Trotsky kommún-
istaleiðtogi.
1913 Albert Camus rithöf-
undur.