Fréttablaðið - 07.11.2005, Page 81
MÁNUDAGUR 7. nóvember 2005 29
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
4 5 6 7 8 9 10
Föstudagur
NÓVEMBER
� � LEIKIR
c 19.00 ÍS og ÍR mætast í
Poweradebikar kvenna.
� � SJÓNVARP
c 16.10 Ensku mörkin á Rúv.
c 17.30 PGA á Sýn. Bein útsending.
c 20.30 Ítölsku mörkin á Sýn
c 21.00 Ensku mörkin á Sýn
c 21.30 Spænsku mörkin á Sýn
c 22.00 Olíssport á Sýn
c 23.50 Ensku mörkin á Rúv.
BBC fréttastofan hélt því fram í gær að Graham Rix yrði næsti stjóri
skoska knattspyrnufélagsins Hearts, sem
Hjálmar Þórarinsson leikur með, og á að
tilkynna um ráðning-
una í vikunni að því
er BBC segir. Rix tekur
við starfinu af George
Burley sem sagði starfi
sínu lausu, sem og fleiri
hæstráðendur, sökum
afskipta eigandans, Vladimir Romanov.
Rix var aðstoðarmaður Gianluca Vialli
með Chelsea og stýrði síðar Ports-
mouth. Hann átti að leika á Ian Rush-
mótinu um helgina en forfallaðist þar
sem hann var augljóslega í samninga-
viðræðum við Hearts.
Handknattleikslið HK hefur fengið 27 ára örvhenta rússneska skyttu,
Maksim Shalimov að nafni, til reynslu.
Honum er ætlað að leysa Tomas Eitutis
af hólmi sem er meiddur og getur ekki
leikið fyrr en í febrúar. Shalimov var
rússneskur meistari fyrir fjórum árum
síðan en hefur síðan leikið á Spáni
og í Slóvakíu að því er fram kemur á
heimasíðu HK.
Patrick Vieira, fyrrum fyrirliði Arsenal, hefur útilokað að hann muni
nokkurn tíma leika fyrir Manchest-
er United og í raun á
hann ekki von á því
að leika aftur í ensku
úrvalsdeildinni. „Ég er
mjög hamingjusamur
hjá Juventus og það er
enginn sannleikur í þeim
sögum að ég sé aftur á leið til Englands
og hvað þá til Man. Utd.,“ sagði Vieira,
sem var seldur á tæpar fjórtán milljónir
punda í sumar.
David Moyes, stjóri Everton, hefur mikinn áhuga
á því að kaupa
danska tröllið
Thomas Gravesen
aftur til félagsins
þegar leikmann-
amarkaðurinn
opnast á ný í janúar. Gravesen var
seldur til Real Madrid í fyrra en honum
hefur gengið illa að festa sig í sessi hjá
félaginu og er líklega til sölu eftir ára-
mót. Gravesen fór á kostum hjá Everton
áður en hann var seldur og margir
stuðningsmenn félagsins myndu fagna
endurkomu hans.
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, virðist ekki kunna að hætta að rífast því
hann er enn að bauna á Arsene Wenger,
stjóra Arsenal, þó flest benti til þess að
þeir væru búnir að leggja niður vopnin.
„Arsene virðist ekki geta sætt sig við
þá staðreynd að líf hans hefur breyst,“
segir Mourinho í vikulegum pistli sínum
í portúgölsku dagblaði. „Hann er frábær
þjálfari en verður að átta sig á stað-
reyndum ef hann ætlar að rífa liðið sitt
upp á ný. Það er örugglega ekki auðvelt
en menn verða að einbeita sér að vinn-
unni og hætta að skipta sér af því hvað
sé að gerast hjá öðrum liðum.“
Breski boxarinn Amir Khan vann auð-veldan sigur á Steve Gethin í þrem
lotum um helgina. Eftir tíu sekúndur
var Gethin í vanda sem hann komst
aldrei úr. Khan ætlar að berjast næst 10.
desember en ekki er búið að velja and-
stæðing fyrir þessa 18 ára stjörnu sem
hefur fengið frekar auðvelda bardaga í
byrjun atvinnumannaferils síns.
ÚR SPORTINU
HANDBOLTI Landsliðsmaðurinn
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði
tíu mörk, þar
af sjö úr vítum,
fyrir félag sitt,
Minden, er það
lagði Concordia
Delitzsch, 38-26,
í þýsku úrvals-
deildinni í gær.
Minden er í fjór-
tánda sæti deild-
arinnar eftir
leikinn.
Kronau/Östringen vann síðan
sigur á Wetzlar, 28-26, en Róbert
Sighvatsson skoraði tvö mörk
fyrir Wetzlar í leiknum - hbg
Þýski handboltinn:
Snorri skoraði
tíu mörk
SNORRI STEINN
Kominn á ról eftir
meiðsli.
GOLF „Mér leið vel á meðan ég var
að spila og það skiptir kylfinga allt-
af miklu máli. Það var síðan ánægju-
auki að ná að setja met með þessum
sigri,“ sagðir Annika Sörenstam
eftir að hún hafi sigrað á golfmót-
inu í Shiga í Japan í fimmta skiptið
í röð, en engum öðrum atvinnukylf-
ingi hefur áður tekist að vinna á
stórmóti fimm sinnum í röð.
Hin sænska Sörenstam lék af
miklu öryggi á mótinu og lék á 21
höggi undir pari vallarins. Jenni-
fer Rosales frá Filippseyjum varð
önnur en hún endaði þremur högg-
um á eftir Sörenstam.
Sörenstam er ákveðin í því að
halda áfram að bæta sig sem kylf-
ingur. „Þessi árangur er líklega sá
magnaðasti á mínum ferli. Þó ég
segi sjálf frá, þá finnst mér þetta
sýna hversu langt ég er búin að ná
í golfinu. Nú er það bara undir mér
komið að halda mér í fremstu röð á
næstu árum.“ - mh
Sörenstam vann stórmótið í Shiga fimmta árið í röð:
Glæsilegt met Sörenstam
ANNIKA SÖRENSTAM FAGN-
AR SIGRINUM Sörenstam lék
af miklu öryggi í Shiga um
helgina og sýndi að hún er
fremsti kvenkyns kylfingur
sem uppi hefur verið.