Tíminn - 18.01.1976, Page 17
Sunnudagur 18. janúar 1976
TÍMINN
17
Landhelgismdlið til umræðu í borgarstjórn:
SJÁLFSTÆÐISMENN
VILDU EKKI STYGGJA
NATO
BH-Reykjavik. — Mjög snarpar
umræftur urftu i borgarstjórn
Reykjavikur á fimmtudags-
kvöldið um landheigismálift.
B o r g a r f u 1 lt r ú a r allra
minnihlutafiokkanna fluttu
harðorða ályktunartillögu, þar
sem m.a. var krafizt stjórn-
málaslita vift Breta og hótaft úr-
sögn úr NATO, ef brezku her-
skipin sigldu ekki tafarlaust út
úr isienzku fiskveiöilögsögunni.
Borgarfulltrúar Sjálfstæöis-
flokksins treystu sér eki til aö
samþykkja þessa tillögu. Var þó
reynt aö koma til móts við
sjónarmiö þeirra. Felldu þeir
tillögu minnihlutaflokkanna, en
fengu þess i stað samþykkta
tillögu, sem gekk skemur. í
þeirri tillögu er krafizt stjórn-
málaslita við Breta, en i stað
þess aöhóta úrsögnúrNATO, er
lagt til, að islenzk stjórnvöld
beiti öllum tiltækum ráöum
innan NATO til ,,að ná fram
fullum sigri okkar i máli
þessu”, eins og segir i
ályktuninni.
Þessi tillaga borgarfulltrúa
Sjálfstæðisf lokksins var
samþykkt með 11 atkvæðum.
Fjórir borgarfulltrúar sátu hjá,
þ.e. Kristján Benediktsson og
borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins, Sigurjón Pétursson,
Adda Bára Sigfúsdóttir og Þor-
björn Broddason.
Tveir af borgarfulltrúum
minnihlutaflokkanna, Alfreð
Þorsteinsson og Björgvin
Guðmundsson greiddu atkvæði
með tillögu Sjálfstæðismanna
að felldri tillögu minnihlutans.
Gerðu þeir svohljöðandi grein
fyrir atkvæði sihu:
„Enda þótt tillaga Sjálf-
stæðismanna gangi mun
skemur en tillaga borgar-
fulitrúa minnihiutaflokkanna,
teljum vift rétt aft greiöa henni
atkvæði aft tillögu minnihluta-
flokkanna feildri.
Æskilegast heffti verið, aft full
samstaöa hefði náðst i borgar-
stjórninni um ályktun i jafn
þýðingarmiklu máli og land-
helgismáiinu. Það tókst hins
vegar ekki, þrátt fyrir tilraun tii
málamiölunar.
Vift erum fylgjandi þátttöku í
samvinnu vestrænna rfkja, en
teljum rétt, aft afstaða islands
til aöildar aft Atlantshafsbanda-
laginu verfti endurskoftuft,
hverfi brezk herskip ekki tafar-
laust úr fiskveiftilögsögunni.”
Sem fyrr segir, urðu mjög
snarpar umræður um þetta mál
i borgarstjóminni. Það kom
strax i ljós, að borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins gátu með
engu fellt
sig.við það
orðalag i
tillögu minni-
hlutans ,,að
tilkynna úr-
s ö g n ú r
NATO, hverfi
herskipin ekki
tafarlaust á
brott” eins og þar segir. Taldi
Birgir ísl. Gunnarsson, borgar-
stjóis að tillaga minnihlutans
væri mistök. Eðlilegra hefði
verið að reyna að ná samstöðu
allra flokka i þessu máli. Taldi
borgarstjóri, að kommúnistar
(þ.e. Alþýðubandalagsmenn)
hefðu ráðið ferðinni i þessu máli
og hann léti hvorki þá né neina
aðra segja sér fyrir verkum i
þessu máli.
1 sama streng
tók Albert Guð-
jundsson. Taldi
hann miður, að
borgarfulltrúar
Framsóknar-
flokksins og
Alþýðuflokksins
hefðu skrifað
undintillöguna.
Sagði hann, að NATO væri
brjóstvörn vestrænna lýðræðis-
rikja, og það væri markmið
kommúnista að notfæra sér á-
stand, eins og nú hefði skapazt
til að tortryggja NATO. Sagði
Albert, að það kæmi ekki til
greina, að Islendingar segðu sig
úr NATO á þessu stigi, en það
væri hins vegar ekki óhugsandi
siðar.
Alfreð Þor-
steinsson
sagðist harma
það, að ekki
skyldi hafa
náðst samstaða
allra flokka i
borgarstjórn
um sameigin-
lega ályktun i
þessu þýðingarmikla máli.
Hann sagðist vilja mótmæla
þeirri einföldun staðreynda,
sem fram hefði komið i máli
borgarstjóra og Alberts
Guðmundssonar. Það væri al-
rangt, að kommúnistar hér á
landi hefðu einhverja forystu i
mótmælum gegn framferði
Breta. Fólk úr öllum flokkum,
til lands og sveita, fordæmdi at-
hæfi þeirra, þ.á.m. fjölmargir
Sjálfstæðismenn, Einnig minnti
hann á, að einn af ráðherrum
Sjálfstæðisflokksins og am\
bassador Islands i Brussel hefðu
sagt i viðtölum, að endurskoða
þyrfti aðildina að NATO, ef
Bretar hyrfu ekki á braut með
herskip sin. Þá spurði Alfreð,
Albert Guðmundsson hvaða á-
stand þyrfti að skapast til að
Albert teldi rétt að endurskoða
afstöðuna til NATO, hvort
Bretar þyrftu að sökkva einu
eða fleiri varðskipum til að
hann skipti um skoðun.
1 ræðu sinni ræddi Kristján
Benediktsson um lengd fyrri
þorskastriða og afskipti NATO
þá. Benti Kristján á, að viö ætt-
um fárra kosta völ á hafinu,
þannig að við myndum ekki
vinna þetta strið þar. ís-
lendingar væru óþolinmóðir
núna, og ástæðan til þess væri
tvenns konar:
1. Bretar eyða þorskstofnin-
um undir vernd herskipa.
2. Bretar eru ósvifnari nú en
þeir hafa verið áður.
Þá b e n t i
Kristján Bene-
diktsson á það,
að við hefðum
hér varnarlið
samkvæmt
veru okkar i
NATO — hins
vegar stæðum
við i striði við
eina voldugustu þjóð þessa
bandalags. Það liti þvi ekki út
fyrir, að það værisama,hvaðan
kúlan kæmi, og vissulega væri
þörf á að gera sér fulla grein
fyrir þvi, hvað þetta varnarlið
hér væri að verja?
— Hafa menn geð i sér að sitja
við hringborðið i fastaráði
NATO, meðan ein aðalþjóðin,
sem þar ræður, er að reyna að
sökkva varðskipum og veiða
undir herskipavernd bróður-
partinn af þeim litla þorski, sem
hér er eftir? sagði Kristján
Benediktsson á einum stað i
ræðu sinni.
Benti Kristján á það, að
samþykkt tillögu minnihluta-
fulltrúanna væri þörf aðgerð.
Luns þyrfti slika samþykkt frá
hinni ihaldssömu borgarstjór- til
að lesa i flugvélinni daginn eftir.
Það væri gott mótvægi gegn
leiðara Morgunblaðsins, en
leiðari blaðsins frá 14. janúar
bar nokkuð á góma. Þar segir,
að við myndum fyrst og fremst
skaða eigin hagsmuni með þvi
að fara úr bandalaginu o.s.frv.
Markús örn Antonsson benti
m.a. á það i sinni ræðu, að ekki
væri minnzt á varnarliðið i til-
lögunni. Þótt við færum úr
NATO, gætum við samið um
varniníandsins, eins og við hef ð-
um raunar gert.
Davið Oddsson benti á það, að
Luns þyrfti aðfá i veganesi góða
tillögu frá borgarstjórn. Sagði
Davið, að það væru hagsmunir
þessara þjóða sjálfra, sem réðu
þvi að þær vildu halda i okkur i
bandalaginu.
Aldan þakkar varðskipsmönnum
A stjórnarfundi Skipstjóra- og haldinn var 11.1. 1976, var eftir-
stýrimannafélags öldunnar, sem farandi ályktun samþykkt
Eitt þekktasta merki á
s^jNorðurlöndumy^þ
RAF-
\SUNN3K
BATTEFÖER
5MNNBK
BATTERIER
GEYMAR
Fjölbreytt úrval af Sönnak rafgeymum
— 6 og 12 volta — jafnan fyrirllggjandi
r7
ARMULA 7- SIMI 84450
einróma. „Stjórn Skipstjóra- og
stýrimannafélags „öldunnar”
sendir áhöfnum varðskipanna
virðingar- og þakklætiskveðjur
fyrir stórkostlega frammistöðu
þeirra i baráttunni við brezku
sjóræningjana. Hins vegar átelur
stjórn „öldunnar” islenzk stjórn-
völd fyrir seinagang i viðbrögð-
um gagnvart ágengni og árásum
Breta á islenzk varðskip og önnur
skip innan islenzkrar fiskveiði-
lögsögu og telur að stórauka ætti
við liðstyrk Landhelgisgæzlunn-
ar.
Stjórn „öldunnar” telur að
þegar i stað skuli slitið
stjórnmálasambandi við Breta og
íslendingar segi sig þegar úr
NATO og loki herstöðinni á
Suðurnesjum.
Stjórn „öldunnar” lýsir fullum
stuðningi við aðgerðir sjómanna
og stuðningsmanna þeirra á
Suðurnesjum og sendir þeim
baráttukveðjur.”
Halogen-ljós
fyrir J-perur -
ótrúlega mikið
Ijósmagn
PERUR f ÚRVALI
NOTIÐ
tAÐBESlA
IILOSSI
Skipholti 35 • Símar:
B-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæöi • 8-13-52 skrifstofa
SÉRSTAKT TILBOÐ
Blaupunkt SJÓNVÖRP
sem ættu að kosta kr. 92.650
seljast gegn staðgreiðslu á
KR. 85.000
Afborgunarskilmdlar: Verð kr. 89.500
Útborgun kr. 30.000
Eftirstöðvar til 8 mdnaða
Blaupunkt
SJÓNVÖRP
Sérstök langdrægni
Tóngæði sérstök
OG SVO OFANGREINT
TILBOÐ
lllllHú
auk eftir
talinna
umboðs
manna
/
. If-'úúernMjon h.f.
REYKJAVÍK - AKUREYRI
Akranes: Verzlunin Bjarg
Borgarnes: Verzlunin Stjarnan
Búðardalur: Einar Stefánsson
Patreksfjörður: Baldvin Kristjánsson
Bildudalur: Verzlun Jóns Bjarnasonar
Bolungarvik: Jón Fr. Einarsson
Sauðárkrókur: Kaupfélag Skagfirðinga
Siglufjörftur: Gestur Fanndal
Húsavik: Bókav. Þór. Stefánssonar
Hornafjörftur: Verzlunin Kristall
Vestmannaeyjar: Vérzlunin Stafnes
Selfoss: G. A. Böðvarsson
Keilavik: Verzlunin Stapafell.