Tíminn - 23.01.1976, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Föstudagur 23. janúar 1976
Eru þær ekki fínar og dömuiegar?
Þessar tvær þýzku telpur sýndu
á tizkusýningu i Köln i Þýzka-
landi, og vöktu hrifningu áhorf-
enda. Bæði þóttu fötin þeirra
falleg og klæðileg, — en þó vakti
framkoma þeirra ekki minni
aðdáun. Þær gengu fram og til
baka eins og þaulvanar fyrir-
sætur, en til öryggis héldust þær
rtú samt i hendur! Þessi tizku-
sýning var i sambandi við ails-
¥
herjar sölusýningu á fötum, og
gerðu kaupmenn miklar
pantanir á telpukjólum, og
segja framleiðendur það stór-
breytingu frá siðustu árum, þvi
að siðbuxnatizkan hefur verið
ráðandi i klæðnaði telpna um
allan heim en nú ætla þær að
fara .að skarta i fallegum kjól-
um
AAiðbæjarkjarni Lvov friðaður
Miðbæjarkjarni úkrainska
bæjarinsLvov, sem grundvöllur
var lagður að á 13. öld, hefur nú
verið friðaður. Þar eru gömlu
verzlanirnar, gömul konungleg
vopnabúr, einstæðar byggingar
frá 16. og 17. öld og ýmis ágæt
dæmi um byggingalist miðalda.
Hefur rikið lagt fram stóra fjár-
hæð til viðgerðar og endurreisn-
ar byggingarsögulega og sögu-
lega merkilegra húsa. Það eru
ekki aðeins hinar gömlu bygg-
ingar, sem aftur munu fá sitt
upprunalega útlit, heldur og
götur og torg.
sinni
Dómarinn fann
ekki „go-go girl"
í orðabókinni
— Vissulega eru þær skemmti-
kraftur stúlkurnar, sem dilla
sér sveigja og beygja eftir
hljóðfallinu fáklæddar og
heillandi, sagði vitnið við
dómarann i réttarhöldum, sem
haldin voru i Bretlandi á
eyjunni Guernsey. Dómarinn
var að reyna að komast til botns
i máli, sem höfðað var vegna
vinveitingaleyfis dansstaðar, er
nefnist „Barbarellas.” Það
höfðu komið fram kærur um
það, að á þeim stað væri veitt
vin eftir löglegan vinveitinga-
tima, en undantekning frá
þessum timamörkum er veitt,
ef svokallaðar „kabaret”-
skemmtanir eru haldnar með
skemmtikröftum og annarri
sviðsetningu. Svo átti að
skera úr um það, hvórt
,,go-go”-stúlkur væru dans-
meyjar (og þar með skemmti-
kraftar) eða ekki. Þær dansa
ekki eins og venjulegar dans-
meyjar heldur standa mest I
stað á palli hjá hljómsveitinni,
eða hljómflutningstækjunum, —
ef um „diskótek” erað ræða, en
hreyfa sig með músikkinn>og'
þykja ómissandi á slikum
stöðum. Dómarinn fór i alfræði-
orðabækur til að fá útskýringu á
i hverju það væri fólgið — að
starfa við það að vera „go-go
girl”, en hvergi fannst skýring,
svo að vitni voru leidd fyrir
hann til að útskýra þessa at-
vinnu stúlkannna. Það sýndist
vist sitt hverjum I málinu, en
komizt var að þeirri niðurstöðu,
að vissulega væru stúlkurnar
skemmtikraftar. Hér sjáum við
mynd af einni af
„Barbarellas”-stúlkunum, sem
nú hafa verið viðurkenndar
fyj-ir dómstólum sem virðulegir
skemmtikraftar á borð við
söng- og dansfólk.
Á lógu nótunum
Heyrzt hefúr, að André Previn
hafi verið sagt upp starfi sem
hljómsveitarstjóri við Sinfóniu-
hljómsveitina i London. Honum
var gefið i skyn, að samningur
hans við hljómsveitina, sem
rennur út 1977, yrði ekki endur-
nýjaður. Hann hefur þess vegna
samþykkt að taka að sér stjórn
Sinfóniuhljómsveitarinnar i
Pittsburgh.