Tíminn - 23.01.1976, Blaðsíða 23

Tíminn - 23.01.1976, Blaðsíða 23
Föstudagur 23. janúar 1976. TÍMINN 23 o N.L.F.Í. átti ekki frumkvæðið. Hún lét þvi miður fleka sig til þátttöku, enáttaðisig. Ogætli það leiki nokkur vafi á, að bezt fari á þvi, að NLFl beini áhuga sinum og körftum að eigin málum. Eða eru verkefnin ekki næg? Og hefur Árni, forstjóri á hæli NLFÍ, sem er höfuðpaur þess- ara furðulegu og óheiðarlegu aðgerða gegn p.fél., ekki nógu að sinna? Og nægan vanda við að glima? Vissi hann hvaða vanda hann var að bæta við sig, þegar hann ákvað að ná eignum p.fél.? Það vissi hann áreiðan- lega ekki, og hefur kannski ekki enn gert sér grein fyrir. — En hrósi hann happi yfir þvi, að hann tapaði leiknum. Hann hefði ekki risið undir tapinu, hefði hann unnið. Ég vil svo óska honum og fé- lögum heilla og heilsu á þessu nýjaári. Svoog, að þeir velji sér heiðarlegri og virðulegri verk- efni undir merki NLFl fram- vegis en ránsskap á starfsemi og eignum annarra. En það var hiö risháa markmið NLFI, sem ná átti „anno” 1975. Hvilikt NLFÍ-markmið! Marteinn M. Skaftfells. 0 Sáttanefnd að óska eftir að rikisstjómin tæki til meðferðar, verið rætt, og væru þau nú i athugun hjá ýmsum aðil- um, þar eð fjölmargra upplýsinga þyrfti að afla áðuren unnt væri að taka ákvarðanir varöandi þau. Þeim aðildarfélögum ASI fjölg- ar með hverjum deginum,sem efna til funda og afla verkfalls- heimilda. Þá hafa vinnuveitendur ákveðið að efna til fundar i næstuviku,þar sem tekin verður afstaða til hugsanlegra verk- bannsaðgerða. Sinfónían: Fyrstu fjölskyldu tónleikar vetrarins gébé-Rvfk. — Fyrstu fjölskyldu- tónleikar vetrarins á vegum Sinfóniuhljómsveitar tslands, verða á morgun, 24. janúar, kl. 14.00. Verður þar flutt létt hljóm- list við hæfi allrar fjöl- skyldunnar. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn, en verði þeirra er mjög stillt i hóf. Meðal viðfangsefna hljóm- sveitarinnar á þessum fjölskyldu- tónleikum verður ' verkið Tobbi túba eftir Kleinsinger. Þetta er saga um túbuna i hljómsveitinni, en Guðrún Stephensen sem þýddi verkið, les söguna með flutningi hljómsveitarinnar. Þá leikur Manuela Wiesler einleik á flautu, i flautukonsert Mozart, og mörg önnur létt hljómsveitarverk verða flutt. — Upphaflega áttu fyrstu fjöl- skyldutónleikarnir að vera i nóvember, s.l., en varð sökum ýmissa ástæðna að fresta þeim þar til nú. Alls verða fluttir þrennir fjölskyldutónleikar i vetur, hinir siðari i marz og april n.k. TUNCSTONE rafgeymar FYRIRUGGJANDI í FLESTAR GERÐIR BIFREIÐA OG DRÁTTARVÉLA ÞÓRf SlMI B1500aÁRMÚLA11 V Ráðstefna um kjördæmismál S.U.F. gengst fyrir ráðstefnu um kjördæmamál sunnudaginn 8. febr. Ráðstefnan verður haldin að Hótel Hofi og hefst kl. 10 ár- degis. Dagskrá: 1. Setning. 2. Avarp: Ólafur Jóhannesson ráðherra 3. Framsöguræður: a. Þróun kjördæmaskipunar og kosningalaga hér á landi.Tómas Árnason alþm. b) Kosningakerfi Inágrannalöndum.Jón Skaftason alþm. c) Einkennijcostir og gallar núverandi kerfis hérlendis. Sigurður Gizurarson sýslumaður c) Valkostir varðandi kjördæmaskipun og kosningalög, Jón Sigurðsson varaform. SUF. 4. Umræður og gerð ályktana. 5. Ráðstefnuslit. Blaðamenn og fundir verkfræðinga AF GEFNU tilefni vill fram- kvæmdastjórn Verkfræðingafé- lags tslands taka fram, að blaða- mönnum er ekki boðið að koma á félagsfundi i Verkfræðingafélagi tslands, nema þegar fundur er sérstaklega undirbúinn og aug- lýstur með tilliti til þess. Fundur úm jarðgufuvirkjun við Kröflu, sem haldinn var 15. þ.m. var undirbúinn með venjulegum hætti, og blaðamönnum var þvi ekki boðið að koma á fundinn. Samkvæmt lögum Verkfræð- ingafélags Islands er félags- mönnum heimilt að taka með sér gesti á fundi, enda fái þeir til þess leyfi framkvæmdastjórnar fé- lagsins. Gestirnir eru þá á vegum hlutaðeigandi félagsmanns og seldir undir sömu lagaákævði og gilda um félagsmenn að þvi er varðar frásagnir af fundinum. I félagslögum segir m.a.: ,,Um- ræður á fundum skulu skráðar af fundarritara i fundargerðarbók. Framkvæmdastjórn getur með samþykki höfunda eða frummæl- enda látið birta i Timariti VFl eða á annan hátt erindi og skýrsl- ur, sem fluttar eru á fundum, eða útdrátt úr þeim og útdrátt úr um- ræðum. An samþykkis fram- kvæmdastjórnar má engar skýrslur birta um það, sem fram hefur farið á fundi.” Framkvæmdastjórn Verkfræö- ingafélags tslands bauð ekki blaðamönnum að koma á um- ræddan félagsfund. Hins vegar voru allmargir fundarmenn gest- ir félagsmanna, þar á meðal blaðamaður, og háðir framan- greindum ákvæðum i félagslög- um. Framkvæmdastjórn Verkfræð- ingafélags Islands vonar, að þessi greinargerð skýri til hlitar mála- vexti i sambandi við umræddan félagsfund og blaðamenn. Eitt þekktasta merki á O^jNorðurlöndumyyþ RAF- SVJNNBK BATTERIEFI SVNN3K BATTEFIEFI GEYMAR Fjölbreytt úrval af Sönnak rafgeymum — 6 og 12 volta — jafnan fyrirliggjandi IB ARAAULA 7 - SIMI 84450 ú Aðstoðarlæknir * m <tt ¥7 Staða aðstoðarlæknis heila- og taugaskurðlækna á Skurðlækningadeiid Borgarspitaians er laus til umsóknar. Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Reykja- vikur við Reykjavikurborg. Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf skulu sendar yfirlækni deildarinnar fyrir 15. febrúar n.k. Frekari upplýsingar veitir yfirlæknirinn. Reykjavik, 20. janúar 1976 Stjórn sjúkrastofnana Reykjavikurborgar. k k m I yj >.v, 1 i V’-'- c‘ »' * .-vi p j í*;.v. ■ -i.A’ Akranes Fraihsóknarfélag Akraness heldur Framsóknarvist i félags- heimíli sinu að Sunnubraut 21, sunnudaginn 25. janúar kl. 16.00. öllunj heitnili aðgangur meðan húsrúm leyfir. Viðtalstímar alþingismanna borgarfulltrúa Framsóknarflokksins Sverrir Bergmann, varaalþingismaður og Guðmundur G. Þórarinsson, varaborgarfulltrúi verða til viðtals að Rauðarár- stig 18, laugardaginn 24. þ.m. kl. 10.00—12.00. Keflavík Keflavik — viötalstlmi.— Bæjarfulltrúar og fulltrúar framsókn- arfélaganna i nefndum bæjarins verða til viðtals laugardaginn 24. janúar frá kl. 16—181 Framsóknarhúsinu Austurgötu 26. Kaffiveitingar. Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna i Keflavík. Aðalfundur FR Aðalfundur Framsóknarfélags Reykjavikur verður haldinn i Hótel Esju miðvikudaginn 28. janúar kl. 20.30. Dagskrá: I. Venjuleg aðalfundarstörf. II. Ræða, Einar Agústsson, utanrikisráð- herra. III. önnur mál. Tillögur um aðal- og varamenn liggja frammi á flokksskrifstofunni. Félag framsóknarkvenna í Reykjavík Aðalfundur félagsins verður að Hallveigarstööum þann 28. jan. n.k. kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. önnur mál Fjölmennið Stjórnin. FUF Reykjavík Aðalfundur félagsins verður haldinn að Rauðarárstig 18 (Hótel Hof) miðvikudaginn 28. janúar kl. 20.30. Dagskrá: I. Venjuleg aðalfundarstörf. II. Lagabreytingar. III. Önnurmál. Stjórnin. Kópavogur Aðalfundur fulltrúaráðs Framsóknarfélag- anna i Kópavogi verður að Neöstutröð 4 fimmtudaginn 29. janúar kl. 8.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Halldór E. Sigurðsson ráðherra flytur ávarp og svarar fyrirspurnum. 3. Önnur mál. Stjórnin. Kanarí- eyjar Þeirsem áhuga hafa á ferðum til Kanarieyja (Teneriffe) i febrú- ar, gefst kostur á ferð hjá okkur 19. febrúar (24 dagar). Góðar íbúðir, góð hótel. Sérstak- ur afsláttur fyrir flokksbundið framsóknarfólk. örfá sæti laus. Þeir, sem eiga pantaða miða, en hafa ekki staðfest pöntun sina með innborgun eru beðnir um að gera það strax, að öðrum kosti eiga þeir á hættu að missa af ferðinni. Haf- ið samband við skrifstofuna aö Rauðarárstig 18, simi 24480. Skrifstofan er opin frá kl. 9-6 virka daga nema laugardaga frá 9- 12.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.