Tíminn - 23.01.1976, Qupperneq 9

Tíminn - 23.01.1976, Qupperneq 9
Föstudagur 23. janúar 1976. TÍMINN 9 Umferðardð bendir d leiðir til varnar gegn umferðarslysum Svo eru börnin i umferöinni sérstakur sorgarkafli. BH-Reykjavik. — Dómsmálaráð- herra fór þess á leit við Um- ferðarráð i nóvember s.l., að ráð- ið benti á leiðir til varnar gegn slysum i umferð, og hefur Um- ferðarráð siðan fjallað um málið, með þeim árangri, að samþykkt hefur verið greinargerð og send dómsmáiaráðherra. Er þar um að ræða 20 hugmyndir um leiðir til varnar gegn slysum i umferð, og eru þær flokkaðar i þrjá meginhluta: hugmyndir, sem framkvæma megi með skömm- um fyrirvara, æskilegar breyt- ingar á umferðarlöggjöf og lögum um meðferð opinberra mála, og loks hugmyndir af ýmsu tagi. I greinargerð Umferðarráðs er vakin athygli á þvi, að á siðasta ári biðu 33 vegfarendur bana i umferðarslysum og 697 slösuðust, þar af voru 3761agðir á sjúkrahús. Telur Um- ferðarráð nauðsynlegt, að þegar verði hafizt handa um samræmd- ar ráðstafanir, sem liklegar eru til að stuðla að auknu umferðar- öryggi i landinu og fækkun um- ferðarslysa. Greinargerðin fer hér á eftir: I. Aðgerðir sem unnt er að fram- kvæma með stuttum fyrirvara og án lagabreytinga eða verulegs kostnaðar. 1. ökuferilsskrá. Lagt er til að ákveðið verði að ökuferilsskrá i spjaldskrárformi skuli haldin i öllum lögsagnarum- dæmum. I skrána verði færð aðild að umferðarslysum og óhöppum, hvort sem aðili er talinn i sök eða ekki. Ennfremur verði færð i skrána alvarleg brot er varða umferðaröryggi, svo sem ölvun við akstur, of hraður akstur, brot á biðskyldu, stöðvunarskyldu eða almennum umferðarrétti og brot á reglum um umferðarljós. Kom- ið verði á fót ökuferilsskrá fyrir allt landið og reglur settar um hvaða tilvik skuli færð i ökuferils- skrá og með hverjum hætti, svo og hvemig haga skuli upplýsinga- skiptum milli aðalskrár og ein- stakra lögsagnarumdæma. öku- ferilsskrá verði notuð til leiðbein- ingar við endurnýjun ökuskir- teina, svo og við ákvörðun um það, hvort ástæða sé að kanna þekkingu manna á umferðarregl- um og aksturshæfni. 2. Könnun á þekkingu á um- ferðarreglum og aksturshæfni. Ef ökuferilsskrá leiðir í ljós að ökumaður hefur itrekað átt sök á umferðarslysi, itrekað gerzt brot- legur gegn umferðaröryggisregl- um, eða á annan hátt sýnt at- hugaverða hegðun i umferð, ber að kanna þekkingu hans á um- ferðarreglum og eftir atvikum aksturshæfni hans sbr. 6. mgr. 27. gr. umferðarlaga og 48. gr. reglu- gerðar um ökukennslu, próf öku- manna o.fl. Æskilegt er að aðilum verði gefinn kostur á námskeiði til upprifjunar á helztu umferðar- reglum áður en til könnunar kem- ur. Leiðbeiningareglur um fram- kvæmd könnunarinnar verði gefnar út til þess að tryggja sam- ræmda framkvæmd i' öllum lög- sagnarumdæmum. 3. ökuleyfissvipting. ökuleyfissviptingu verði beitt mun oftar en nú tiðkast við ein- stök alvarleg umferðarlagabrot, t.d. vitaverðan og gálausan akst- ur. Þá verði teknar upp ökuleyfis- sviptingar i vaxandi mæli gagn- vart þeim ökumönnum, sem oft eru staðnir að alvarlegum um- ferðarlagabrotum, án þess að hvert einstakt þeirra hafi leitt til ökuleyfissviptingar. Verði stuðst við ökuferilsskrá við ákvörðun um bráðabirgðaökuleyfissvipt- ingu og kannað hvort setja megi leiðbeiningar um framkvæmd þessa. 4. Próf i umferðarlöggjöf við end- urnýjun fullnaðarskirteinis. Samkvæmt 6. mgr. 27. gr. um- ferðarlaga er heimilt að ákveða að við endurnýjun fullnaðarskir- teinis skuli hlutaðeigandi gangast undir skriflegt próf i umferðar- löggjöf. 1 2. mgr. 47. mgr. 47. gr. reglugerðar um ökukennslu, próf ökumanna o.fl. er mælt svo fyrir, að áður en ökuskirteini er endur- nýjað skuli umsækjendur ljúka skriflegu prófi 'i umferðarlöggjöf. Skal prófi hagað þannig að próf- taki merki við rétt svör á prófver- efnablöðum er dómsmálaráðu- neytið leggur til. Umferðarráð telur brýnt að ákvæði þetta komi til framkvæmda hið allra fyrsta. Verði hér um að ræða könnun á þekkingu umsækjenda á hé'lztu reglum, er varða umferðarör- yggi. Æskilegt er, að þeim sem ætla að sækja um endurnýjun ökuskirteinis verði gefinn kostur á að sitja stutt námskeið, eftir þvi sem aðstæðurleyfa, þar sem rifj- aðar eru upp helztu umferðar- reglur. 5. Hækkun sekta. Sektir fyrir umferðarlagabrot verði endurskoðaðar og þær hækkaðar verulega frá þvi sem nú er. Umferðarráð telur æskilegt að samræmis gæti i ákvörðun um sektarupphæðir fyrir umferðar- lagabrot i öllum lögsagnarum- dæmum landsins ogleggur þvi til, að rikissaksóknari tilgreini i leið- beiningaskrá, skv. 112. gr. laga um meðferð opinberra mála, á- kveðna sektarupphæö fyrir tiltek- ið brot sem lögreglustjórar geta þó vikið frá eftir málsatvikum. Verði leiðbeiningaskrá rikissak- sóknara birt opinberlega þar sem telja má liklegt að slik birting hafi talsverð varnaðaráhrif. II. Aðgerðir sem krefjast breyt- inga á lögum og reglugerðum. A. Breytingar á lögum um með- ferð opinberra mála. 1. Meðferð umferðarlagabrota. Meðferð mála vegna umferðar- lagabrota verði gerð einfaldari og afgreiðslu þeirra hraðað, þannig að ekki liði langur timi frá þvi brot er framið þar til meðferð málsins er lokið, hvort heldur er hjá lögreglustjóra eða fyrir dómi. Stefnt verði að þvi að sem flest umferðarlagabrot hljóti fullnað- arafgreiðslu með sektargerð lög- reglustjóra. I þvi sambandi verði athugaðar leiðir til þess að gera sektargerðir lögreglustjóra að- fararhæfar, enda verði sakborn- ingi gefinn kostur á að skjóta máli til dómstóla innan tiltekins frests. 2. Sektaheimild lögreglustjóra. Sektaheimild lögreglustjóra, skv. 112. gr. laga um meðferð opinberra mála, verði hækkuð i 60.000 króna sekt, þannig að hún geti náð til fleiri brota á um- ferðarlögum en nú er. B. Breyting á umferðarlögum og reglugerðum. 1. Námskeið fyrir ökukennara- efni. Nýir ökukennarar hljóti ekki löggildingu til ökukennslu fyrr en þeir hafa staðizt ökukennarapróf að undangengnu námskeiði eða skólagöngu. Sett verði reglu- gerðarákvæði um lágmarks- menntun ökukennaraefna. 2. Upprifjunarnámskeið fyrir ökukennara. Stofnað verði til námskeiða i ökukennslu sem öllum núverandi ökukennurum i landinu verði gert að skyldu að sækja. 3. ökukennsluréttindi. Endurskoðaðar verði reglur um endurnýjun ökukennararéttinda. Verði tekið til athugunar hvort réttsé að áskilja að ökukennarar, sem ekki hafa skilað til prófs til- teknum fjölda neménda sæki upp- rifjunarnámskeið. 4. Starfsemi ökuskóla. Settar verði reglur um starf- semi ökuskóla og löggildingu for- stöðumanna þeirra. 5. Almennt bifreiðastjórapróf. Reglugerðarákvæði um fram- kvæmd prófa verði endurskoðuð og prófin gerð strangari. Til greina kemur að löggilda sér- staka próftökustaði á landinu. Tekið verði upp valpróf við fræði- lega hluta prófsins. Námskeið i skyndihjálp verði gert að skilyrði fyrir almennu bifreiðastjóra- prófi. 5. Gildistimi ökuskirteina fyrir byrjendur. Gildistimi bráðabirgðaökuskir- teinis, sem nú er eitt ár, verði lengdur i tvö ár. 7. Endurskoðun umferðarlaga. Umferðarlög verði endurskoð- uð með hliðsjón af breytingum sem unnið hefur verið að annars staðar á Norðurlöndun. 8. Ólöglegar stöður bifreiða. Sett verði i umferðarlög skýr á- kvæði er heimili lögreglu að fjar- lægja á kostnað eigenda ökutæki sem standa ólöglega. 9. Öryggisbúnaður ökutækja. Reglugerð um gerð og búnað ökutækja verði endurskoðuð og tekin upp itarlegri ákvæði um ör- yggisbúnað þeirra. Þetta er mesti umferöarslysa- kafli I gatnakerfi borgarinnar, hluti af Hringbrautinni. Hér hafa orðið fjölmörg banaslys á undanförnum árum. 10. Reglugerð um umferðar- merki. Umferðarráð vekur athygli á, aðávegum umferðarlaganefndar er senn lokið itarlegri endurskoð- un á reglugerð um umferðar- merki. Telur ráðið nauðsynlegt að hinar nýju reglur komi til framkvæmda sem fyrst. III. Aðrar hugmyndir, sem leitt geta til varnar gegn slysum i um- ferð. 1. Notkun bQbelta. Umferðarráð mun á næstunni taka afstöðu til þess, hvort æski- legt sé að lögbjóða notkun bil- belta, svo sem hefur verið gert annars staðar á Norðurlöndum og viðar. 2. Notkun öryggishjálma. Umferðarráð mun innan tiðar taka afstöðu til þess, hvort rétt væri að lögbjóða notkun öryggis- hjálma við akstur bifhjóla og léttra bifhjóla. 3. Umferðaröryggisáætlun. Þær þjóðir sem náð hafa hvað mestum árangri til varnar gegn slysum i umferð hafa gert itar- legar áætlanir um aukið öryggi i umferð. Má sem dæmi nefna um- ferðaröryggisáætlanir Banda- rikjamanna og Svia. Árið 1971 gerðu Norðmenn fyrstu um- ferðaröryggisáætlun sina og hafa gert slikar áætlanir árlega siðan. Tilgangur með gerð og fram- kvæmd umferðaröryggisáætlana er m.a.: a) Að taka saman yfirlit um nauðsynlegustu verkefni á sviði umferðaröryggismála. b) Að tryggja nána samvinnu og samræmd vinnubrögð þeirra sem að umferðaröryggismálum starfa. c) Að timasetja einstakar að- gerðir með gerð almanaksáætl- unar og gera grein fyrir þvi, hvaða aðili eigi frumkvæði og beri ábyrgð á hverri einstakri að- gerð. Umferðarráð telur timabært að samin verði umferðaröryggis- áætlun á svipuðum grundvelli og i nágrannalöndum okkar. Samþykkt á 54. fundi Umferðar- ráðs, 8. janúar 1976. Stórskemmdar og ónýtar bifreiðar eftir umferðarslys. Radarauga lögreglunnar hefur komið upp um ósvifinn akstur I um ferðinni.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.