Tíminn - 23.01.1976, Qupperneq 24
METSÖLUBÆKUR
Á ENSKU í
VASABROTI
f
ki
SÍS-l'ÓIHJH
SUNDAHÖFN
f i-- N
fyrir yóóan nmi
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Austur-Tímor til-
heyrir Indónesíu
— segja ráðamenn í Dili
Reuter/Jakarta. Leiðtogar hreyf-
inga þeirra á Austur-Timor, sem
notifi hafa stuðnings Indónesiu-
stjórnar i barúttunni um yfirráðin
yfir eyjunni, lýsti þvi yfir i gær
við sérlegan sendimann Samein-
uðu þjóöanna, að Austur-Timor
væri nú orðin hluti af Indónesíu.
Arnaldo Dos Reis Araujo, sem
situr i forsæti i bráðabirgða-
stjórninni, sem nú fer með völdin
á Austur-Timor, sagði við fulltrúa
Sameinuðu þjóðanna, Vittorio
Winseare Guiccardi, gamal-
reyndan diplomat, að samein-
ingin við Indónesiu hefði bundið
enda á nýlenduténgslin við Portú-
gal.
Guiccardi og Araujo ræddust
við i Dili, höfuðborg Austur-Tim-
or, en þangað var Guiccardi
sendur af Sameinuðu þjóðunum
til að rannsaka ástand mála á
Austur-Timor. „Enginn þeirra
flokka, sem aðild eiga að núver-
andi samsteypustjórn á
Austur-Timor, vill eiga framtið-
arskipti við Portúgal,” er hermt,
að Araujo hafi sagt.
Fjórir flokkar mynda sam-
steypustjórnina á Austur-Tfmor,
og náðu þeir völdum i viðureign
við Fretelin-sjálfstæðishreyfing-
una, sem einhliða lýsti yfir sjálf-
stæði Austur-Timor fyrir sjö vik-
um, en Austur-Timor var sem
kunnugt er portúgölsk nýlenda.
Moskvuför Kissingers:
SKOÐANA-
ÁGREININGURINN
HEFUR MINNKAÐ
Reuter/Moskva — Henry Kiss-
inger, utanrlkisráðherra
Bandarikjanna, sem nú er i
Moskvu til viðræðna við sovézka
leiðtoga um möguleika á nýjum
afvopnunarviðræðum miili
Bandarikjanna og Sovétrikj-
anna, sagði, er hann kom til há-
degisverðar meö Gromyko,
utanrikisráðherra Sovétrikj-
anna, að árangur hefði náðst i
viðræðum hans við sovézka ieið-
toga. „Viðræðurnar hafa ein-
kennzt af aivarleika,” sagði
Kissinger, ,,en skoðanabilið hef-
ur minnkað.”
Viðræðunum i gær var óvænt
frestað, er Bresjneff flokksleið-
togi hélt fund með æðsta ráði
kommúnistaflokksins, en hófust
svo að þeim fundi loknum, um
kl. 6.
Spánn:
Brátt tilkynnt
breytingar
Reuter/Madrid. Heimildarmenn
innan spænsku stjórnarinnar
skýrðu frá þvi i gær, að Carios
Arias Navarro, forsætisráðherra
Spánar, hefði I hyggju að kunn-
gera innan tiðar áform þau, er
spænska stjórnin hefur á prjónun-
um um breytingar á stjórnarfari
og stjórnarháttum i landinu til
vestrænar fyrirmyndar.
Nk. miðvikudag mun Navarro
leggja eitthvað af umbótatillög-
um stjórnarinnar fyrir spænska
þingið, Cortes, en aðrar tillögur
verða lagðar undir þjóðaratkvæði
á sumri komanda. Heimildar-
menn fréttarinnar tóku fram, að
það væri ætlun stjórnarinnar að
koma stjórnarumbótum þessum
á smátt og smátt.
Talið er liklegt, að umbótatil-
lögur þessar felist m.a. i þvi, að
þingið verði látið spegla pólitisk-
an vilja þjóðarinnar meira heldur
en veriðhefur, en nú er aðeins 1/5
hluti þingsins kosinn beinni kosn-
ingu.
Þá er óg talið liklegt, að löggjöf
um starfsemi stjórnmálaflokka
verði færð meira i frjálslyndisátt,
starfsemi þeirra lög
lögvernduð og þeim heimiluð
þátttaka i kosningum. Ekki er
talið liklegt, að kommúnista-
flokknum verði leyft að starfa.
1 dag verður rikisstjórnarfund-
ur á Spáni, og eru m.a. á dagskrá
hans tillögur um að refsilöggjöf
landsins verði milduð, og tillögur
um úrbætur i efnahagsmálum.
Líbanon:
Kyrrt í Beirut en
átök víða um
íandsbyggðina
Reuter/Beirut, Kalró — Róða-
menn I Miðausturlöndum eru
misjafnlega bjartsýnir á árang-
ur vopnahlés þess, sem tilkynnt
var, að náðst hefði með deiiuað-
ilum I Libanon I gær. Mohamed
Iliad, f ra m k væm da st jóri
Arababandalagsins, kvaðst t.d.
vona, að vopnahléð yrði fljótt
virkt og kæmi I veg fyrir frekari
blóðsúthellingar.
Sadat Egyptalandsforseti
sagði hins vegar, að ástandið I
Libanon væri nú orðið þannig,
að litlar likur væru á friði, og
þvi sem næst hvað sem væri
gæti gerzt þar i landi. Hann
lagði á það áherzlu, að áform
um skiptingu landsins væru ekki
i þágu sameiginlegra hagsmuna
Arabarikja.
Flugvélar libanska flughers-
ins gerðu tvisvar i gær árásir á
vinstri menn, m.a. i fjallahér-
uðunum austur af Beirut, þar
sem vinstri menn segja stöðu
sina mjög sterka.
Talsmenn hægri manna
skýrðu frá þvi, að margir flótta-
mannanna i Saadiyat, suður af
Beirut, hefðu verið fluttir þaðan
til öruggari staða, þar sem vig-
staða kristinna manna er
traustari. Þeir sögðu, að borg-
irnar Kobyiyat og Rahbe, i
Norður-Libanon, sem verið hafa
á valdi kristinna manna, hefðu
orðið fyrir sprengjuárásum af
hálfu vinstri manna og skæru-
liða.
Á meðan vinstri sinnar skýrðu
frá þvi, að þeir væru komnir
langleiðina upp fjallshliðarnar
beggja vegna skarðsins, sem
þjóðleiðin frá Beirut til Austur-
Libanon liggur um, var tiltölu-
lega kyrrt i sjálfri höfuðborg-
inni.
Spenna í Portúgal
— sprengjuárdsir á vinstrí menn!
um hægfara
Jóhann Karl konungur.
Navarro forsætisráðherra.
Reuter/Lissabon. Mikil spenna
rikir nú I Portúgal vegna
spreng jutilræða þeirra, sem mjög
hafa farið i vöxt að undanförnu og
beinzt gegn eigum vinstri manna.
Siðasta sólarhring voru bif-
reiðir i eigu vinstri manna
sprengdar i loft upp viðs vegar
um landið. Þá var sprengju varp-
að úr bifreið á aðalstöðvar portú-
galska kommúnistaflokksins i
Suður-Portúgal. Manntjón varð
ekki, en eignatjón mikið.
í norðurhluta landsins sprungu
sprengjur i tveimur bifreiðum, og
auk þess á heimili og i verzlun, i
eigu vinstri manna.
Tveir háttsettir meðlimir
portúgalska kommúnistaflokks-
ins gengu i gær á fund Francisco
Da Costa Gomes, og er álitið, að
þeir hafi rætt við hann um
sprengjutilræði þessi gegn vinstri
mönnum.
Concorde:
Fyrsta ferdin lofar
— segja brezkir ráðamenn
Reuter/London.Brezka hljóðfráa
risaþotan Concorde, sem i fyrra-
dag fór f fyrsta áætlunarflug sitt,
til Bahrain, kom i gær heim úr
þeirri ferð, og segja talsmenn
brezku stjórnarinnar, að sú ferð
hafi styrkt þá sannfæringu
brezkra ráðamanna, að Concorde
verði brátt tekin i notkun á helztu
flugleiðum heims.
Vélin kom heiifi frá Bahrain
skömmu fyrir hádegi i gær, og
hafði þá verið fjórar klukku-
stundir og 14 minútur á leiðinni,
37 minútum lengur heldur en á
leiðinni til Bahrain, og var orsök
seinkunarinnar mikill mótvindur.
Iðnaðarráðherra Breta, sem
var með i fyrstu fórðinni, sagði,
að brezka stjórnin hefði i hyggju
að reyna til þrautar, hvort ekki
næðust samningar við rikis-
stjórnir annarra landa um
heimild til handa Concorde til
yfirflugs i viðkomandi löndum.
Peter Shore, samgönguráð-
herra Breta sagði i viðtali i gær,
að hann væri sannfærður um, að
Concorde yrði brátt tekin i notkun
á helztu flugleiðum til Norður- og
Suður-Ameriku. „Fjárhagsleg
framtið Concorde byggist á þvi,
Tyrkland:
Herstöðva-
viðræður
í febrúar
Reuter/Ankara — Utanrikis-
ráðherra Tyrklands fer i næsta
mánuði til Bandarikjanna til
viðræðna við þarlenda ráða-
menn um möguleikana á þvi, að
bandarisku herstöðvarnar i
Tyrklandi verði opnaðar að
nýju.
Mikið ber á milli i skoðunum
ráðamanna þessara tveggja
landa um það, hversu mikið
Bandarikjamenn eigi að greiða
Tyrkjum i hernaðaraðstoð,
verði stöðvarnar opnaðar að
nýju. Stöðvunum var lokað
vegna ákvörðunar bandariska
þingsins um vopnasölubann til
Tyrklands. Tyrkir krefjast 1,500
milljón dollara tryggingar fyrir
þvi, að vopnasölu banninu verði
ékki komið á aftur.
Ibarruri
vill flytjast
til Spánar
Reuter/Moskva. Hinn aldni
spænski kommúnistaleiðtogi,
Dolores Ibarruri, hefur farið
þess á leit við spænsk stjórn-
völd, að henni verði heimilað
að flytjast aftur til Spánar
eftir 36 ára útlegð. Ibarruri er
nú 80 ára að aldri.
Hún hefur að mestu dvalið i
Sovétrikjunum öll útlegðarár-
in og hafa engar hömlur verið
lagðar á ferðarfrelsi hennar
þaðan.
góðu
að bandariska stjórnin veiti henni
lendingarleyfi i Bandarikjun-
um,” sagði ráðherrann.
Þá kvaðst hann og vona, að
fyrirhugaðar viðræður Breta og
Frakka við sovézku stjórnina um
rétt til handa Concorde til að
fljúga yfir Sovétrikin á leiðinni til
Tókió, myndu bera árangur.
Brezk blöð fóru yfirleitt viður-
kenningarorðum um fyrsta fiug
Concorde, en sum þeirra veltu
þeirri spurningu fyrir sér, hvort
hér væri um hagkvæmt fyrirtæki
að ræða.