Tíminn - 07.02.1976, Qupperneq 7
Laugardagur 7. febrúar 1976.
TÍMINN
7
Otgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
í>órarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Rit-
stjórnarfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri:^
Helgi H. Jónsson. Augiýsingastjóri: Steingrlmur Gisla-
son. Ritstjórnarskrifstofur i Edduhúsin í viö Lindargötu,
■ simar 18300 — 18306. Skrifstofur I Aðalstræti 7, simi 26500
. — afgreiöslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verö j
lausasölu ir. 40.00. Áskriftargjald kr. 800.00 á mánuöi.
BlaöaprentK'.rr
Byggðasjóður
í grein eftir Tómas Árnason alþingismann, sem
nýlega birtist hér i blaðinu, er rætt um hina miklu
eflingu Byggðasjóðs, sem er byggð á málefnasamn-
ingi núv. rikisstjórnar. í grein Tómasar segir m.a. á
þessa leið:
„Eitt mikilvægasta ákvæðið i málefnasamningi
núverandi rikisstjórnar er að verja skuli 2% af
útgjöldum á fjárlagafrumvarpi til Byggðasjóðs.
Stjórnarandstæðingar hafa haft mikla tilhneigingu
til þess að gera litið úr þessu ákvæði. En hvaða áhrif
hefur þetta á möguleika Byggðasjóðs til útlána?
Ef fyrst er litið á árið 1975 og borin saman fram-
lög til Byggðasjóðs samkvæmt lögum um
Framkvæmdastofnunina eins og þau voru og siðan
samkvæmt ákvæðum stjórnarsamnings núverandi
stjórnarflokka verður útkoman þessi: í fyrra tilfell-
inu hefðu framlögin úr rikissjóði orðið 100 millj. kr.
og skattgjald af álbræðslu i Straumsvik til Byggða-
sjóðs 95 millj. kr., eða samtals 195 millj. kr.
Samkvæmt stjórnarsamningi núverandi stjórnar-
flokka voru framlög rikisins til sjóðsins á árinu 1975
860 millj. kr. Litum svo á árið 1976 og gerum sam-
bærilegan samanburð. Ef engin brey ting hefði verið
gerð á um framlag úr rikissjóði hefði það verið
áfram 100 millj. kr., eins og ákveðið var i lögum um
Framkvæmdastofnun rikisins á sinum tima. Ál-
gjaldið til Byggðasjóðs myndi nema á þessu ári um
100 millj. kr. svo samtals hefði þetta numið 200
millj. kr. Á fjárlögum er hins vegar ákveðið
framlag til Byggðasjóðs á árinu 1976 að upphæð
1.123 millj kr.
Það liggur þvi ljóst fyrir, að árin 4975 og 1976
hefðu framlög til Byggðasjóðs numið samkvæmt
hinni eldri skipan um 400 millj. kr., en samkvæmt
ákvæðum stjórnarsamningsins um 2000 millj. kr.
Það þarf ekki að eyða mörgum orðum að þvi
hversu öflugur Byggðasjóðurinn verður, þegar
hann hefur starfað undir þessum kringumstæðum i
nokkur ár. Sjóðurinn þarf ekki að starfa ákaflega
mörg ár til þess að eflast svo mikið, að hann geti i
vaxandi mæli tekið að sér fjármögnun enn stærri
verkefna heldur en hann hefur þegar unnið að.”
Tómas Árnason segir i greinarlokin:
„Fyrir áramótin lýsti forsætisráðherra þvi yfir,
að rikisstjórnin myndi leggja fram frumvarp til
laga um breytingar á Framkvæmdastofnun rikis-
ins. Með slikri lagasetningu þarf að lögfesta það
ákvæði stjórnarsamnings núverandi stjórnar-
flokka, að 2% af útgjöldum á fjárlagafrumvarpi
skuli renna til Byggðasjóðs. Stefna núverandi rikis-
stjórnar er að efla Byggðasjóðinn, svo að hann geti i
vaxandi mæli tekizt á við afleiðingarnar af hinni
stórkostlegu byggðaröskun, sem orðið hefir i land-
inu á undanförnum áratugum. Þó margt fleira komi
til er sterkur Byggðasjóður snar þáttur i öflugri
byggðastefnu.”
Ofbeldi Breta
Brezka stjórnin hefur nú tekið þann kost, að beita
ofbeldi vegna þess, að íslendingar verja friðunar-
svæði innan fiskveiðilandhelginnar, heldur en að
setjast að samningaborði. Þannig hefur siðasta
sáttaboði íslendinga verið svarað. íslendingar eiga
nú ekki annan kost, en að heyja þorskastrið eftir
þvi, sem getan leyfir. Ef til vill geta Bretar eitthvað
eyðilagt þorskstofninn, en það verður aldrei lengi.
Þróunin er öll með íslendingum og ósigur Breta og
skömm verða þvi meiri, sem þeir halda þorska-
striðinu lengur áfram. Þ.Þ.
ERLENT YFIRLIT
Lopez verður
forseti Mexikó
Sami fiokkur hefur stjórnað AAexikó í hóifa öld
MEXIKÓ er þaö riki
rómönsku Ameriku, sem hef-
ur búiö viö stööugast stjórnar-
far og örasta efnahagsþróun.
Slöan 1929 hefur sami flokkur-
inn, Byltingarflokkurinn svo-
nefndi, fariö þar meö völd.
Flokkurinn var upphaflega
róttækur vinstri flokkur, og
vann sér ekki minnst frægö i
upphafi fyrir þjóönýtingu oliu-
námanna, sem þá voru i eigu
Bandarikjanna. Meö aldrinum
hefurhannsmámsaman færzt
til hægri, en er þó enn fylgj-
andi róttækum afskiptum
rikisins á sviöi efnahagsmála.
Óneitanlega hafa oröiö meiri
framfarir undir forustu hans
en annars staöar i rómönsku
Ameriku, en efnahag er hins
vegar enn mjög misskipt,
enda þött útrýming fátæktar
sé eitt helzta takmark hans.
Þrátt fyrir þaö, aö flokknum
hafi tekizt aö halda völdum
nær samfleytt i hálfa öld, hef-
ur engum foringja hans tekizt
aö ná einræöisvaldi i skjóli
hans. Astæöan er m.a. sú, aö
svo var ákveöiö i upphaíi, aö
enginn mætti vera forseti
lengur en I eitt kjörtimaþil,
sem er sex ár. Þessari reglu
hefur veriö fylgt og fráfarandi
forsetar venjulega dregiö sig i
hlé eftir aö þeir hafa látiö af
forsetaembættinu. Þaö hefur
hins vegar þótt sjálfsagöur
réttur fráfarandi forseta, aö
mega ráöa vali eftirmanns
sins, en þeim rétti hefur fylgt
sú skylda, aö reyna aö vanda
þaö val sem bezt og láta ekki
persónuleg sjónarmiö ráöa.
Þetta þykir hafa tekizt furöu
vel, og eiga sinn þátt I hinum
langa stjórnarferli Byltingar-
flokksins, jafnhliða þvi, aö
hannhefur komiö sér upp svo
traustu flokkskerfi, aö engum
andstööuflokki hefur tekizt aö
reisa rönd viö þvi.
NÚVERANDI forseti
Mexikó er Luis Echeverria
Alvarez. Hann var kjörinn for-
seti 5. júli 1970 og hófst kjör-
tlmabil hans 1. desember þaö
ár. Hann lætur þvi af völdum
l. des. næstkomandi, en for-
setakosningar fara fram I júli-
byrjun i sumar. Echeverria
haföi veriö innanrikisráöherra
áöur en hann varö forseti og
þá þótt harður i horn aö taka,
m. a. I sambandi viö stúdenta-
óeiröir, sem uröu i Mexikó-
borg 1968 og torvelduöu undir-
búning Olympiuleikanna þar.
Yfirleitt hafði þvi veriö spáö,
að hann yröi ihaldssamur for-
seti, en sú hefur ekki orðiö
raunin. Hann hefur beitt sér
fyrir ýmsum róttækum fram-
Luis Echeverria
en hann hefur veriö fjármála-
ráöherra i stjórn Echeverria.
Lopez hefur ekki tekiö veru-
legan þátt i flokksstarfinu, en
hefur unniö aö stjórn ýmissa
rlkisfyrirtækja og unnið sér
gott orö sem hygginn og dug-
andi fjármálamaður. Eche-
verria virðist lita svo á, aö
Mexikó þarfnist nú einkum
traustrar leiðsagnar á sviði
atvinnumála og fjármála, en
verulegt atvinnuleysi er nú i
Mexikó, og mikil verðbólga
eins og viöast annars staðar. 1
kosningastefnuskrá þeirri,
sem Byltingarflokkurinn hef-
ur birt fyrir nokkru, er þvi
heitiö, að tryggja atvinnu fyrir
4.5 millj. manna til viðbótar
þvi, sem nú er, og auka hag-
vöxtinn i 8% úr 6%. Þetta á
sem sagtað gera á næsta kjör-
timabili. Af þvi mun heldur
ekki veita, þvi aö fólksfjölgun
er mikil i Mexikó, eins og ráöa
má af þvi, að af 50 millj. ibúa
eru 50% innan 18 ára aldurs.
Sföan ákveðiö var i septem-
ber siðastl. að Lopez yrði for-
setaefni Byltingarflokksins
hefur hann feröazt fram og
aftur um Mexikó til að kynna
sig og sjónarmiö sin. Hann
segistekkiætla aö gera neinar
stórbreytingar, heldur halda
áfram umbótastarfi Eche-
verria. Þróun er betri en bylt-
ing, segir hann. Stefna min er
hvorki til hægri eða vinstri,
heldur beint fram. Hann telur
sig miðjumann f stjórnmálum,
ef svo mætti kveða að orði.
Ýmsir spá þvi, að hann muni
ekki fylgja eins róttækri
stefnu i utanrikismálum og
Echeverria, eða a.m.k. reyni
hann að auka samvinnuna við
hinn volduga nábúa Mexikó i
norðri, Bandarikin. Viss ná-
búakritur hefur oft veriö þar á
milli, eins og haft er eftir ein- «
um forseta Mexikó: Vesalings 6
Mexikó, svo langt frá Guði, en
nálægt Bandarikjunum!
1 forsetakosningunum 1970 p
fékk Echeverria 85% greiddra
atkvæða. Lopez segist stefna n
aðþvi að fá ekki minna fylgi. 1
samræmi við það vinnur hann
nú að kosningu sinni. Allt þyk-
ir benda til, að Byltingar-
flokkurinn verði sigursæll nú '
sem fyrr, en á væntanlegu
kjörtimabili Lopez nær hann g
þvi marki, að hafa stjórnaö
Mexikó i meira en hálfa öld. |
Þ.Þ. 1
kvæmdum á sviöi efnahags-
mála og félagsmála. Jafn-
framt hefur oröið veruleg
breyting á utanrikisstefnu
Mexikó i stjórnartiö hans.
Mexikó fylgdi oftast Banda-
rikjunum aö málum áöur fyrr,
en I stjórnartiö Echeverria
hefur veriö tekin upp náin
samvinna við riki þriöja
heimsins og Mexikó látiö á sér
bera sem eitt af forusturlkjun-
um i fylkingu þeirra. Stundum
hefur veriö gizkað á, aö Eche-
verria stjórnist hér aö vissu
leyti af persónulegum sjónar-
miöum, þvi aö hann hafi öör-
um þræöihug á aö gefa kost á
sér sem framkvæmdastjóri
Sameinuöu þjóöanna, þegar
kjörtimabili Waldheims lýkur.
José Lopez Portillo
ECHEVERRIA ákvaö á
siðastl. hausti hver ætti aö
vera frambjóðandi Byltingar-
flokksins í forsetakosningun-
um næsta sumar, en þaö þykir
jafngilda þvl, aö vera tilnefnd-
ur næsti forseti Mexikó. Ekk-
ert þykir benda til þess, aö
Byltingarflokkurinn haldi ekki
velli inæstu forsetakosningum
og þingkosningum. 1 vaii sinu
getót Eheverria fram hjá öll-
um þeim stjórnmálamönnum
flokksins, sem helzt höföu ver-
ið tilnefndir sem likleg for-
setaefni, en valdi gamlan
skólabróöur sinn og persónu-
legan vin, Jose Lopez Portillo,