Fréttablaðið - 14.11.2005, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 14.11.2005, Blaðsíða 2
2 14. nóvember 2005 MÁNUDAGUR SKÓLAMÁL Alls vantar 68 starfmenn á leikskólum höfuðborgarsvæð- isins samkvæmt síðustu úttekt Menntasviðs Reykjavíkurborgar. Þar af vantar 54 leikskólakennara, 3,5 stöðugildi í sérkennslu og tvo deildarstjóra. Einnig vantar fólk í eldhús, skilastöður og afleysingar. Fæst starfsfólk vantar í Fossvog- inn og Háaleitishverfi en flest í Breiðholtið. Enn fremur bíða um 60 börn í borginni eftir leikskóla- plássi en í Árbæ og Grafarholti hafa öll börn verið tekin inn, að einum leikskóla frátöldum. Hingað til hefur þurft að mæta manneklu með því að stytta opnunartíma leikskólanna en að sögn Gerðar G. Óskarsdóttur, sviðsstjóra mennta- sviðs Reykjavíkurborgar, er þess ekki þörf lengur. Tekist hefur að manna um 30 stöð- ur frá því í haust, þar af fimm á síðustu þremur vikum. Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leikskólakennara, telur kjör leikskólakennara valda mann- eklunni. „Mér fannst Þorgerður Katrín, og raunar flestir sem tóku þátt í umræðunni á Alþingi, benda á rót vandans sem er fyrst og fremst kjörin,“ segir Björg. Í utandagskrárumræðu Alþingis á fimmtudag deildu menn um hvar ábyrgðin lægi. Katrín Júlíus- dóttir, þingmaður Samfylkingar, sagði helming þeirra sem sóttu um í Kennaraháskóla Íslands hafa fengið frávísun vegna fjár- skorts og úr því þyrfti ríkið að bæta. Þorgerður Katrín benti hins vegar á að um 400 menntaðir leik- skólakennarar störfuðu annars staðar en í leikskólum og að það væri sveitarfélaganna að skapa viðunandi starfsumhverfi svo að fleiri kysu að starfa við leikskóla- kennslu. Björg telur að fólk sé loks að átta sig á vandanum en það sé auðvitað ekki nóg að tala um hlut- ina heldur verði einnig að standa við þá. Kjarasamningar leikskóla- kennara verða ekki lausir fyrr en á næsta ári og því sé lítið hægt að gera að svo stöddu. Björg segir þó að stuðlað verði að því að kjara- málin verið kosningamál í næstu sveitarstjórnarkosningum. mariathora@frettabladid.is Líkamsárásir í Reykjavík Lögreglu- þjónar þurftu að hafa afskipti af fimm minni háttar líkamsárásum og sex voru teknir vegna ölvunaraksturs í Reykjavík í fyrrinótt. Tveir ökumannanna höfðu endað ferð sína í árekstri. Engin slys urðu á fólki. Þrír settir inn Þrír gistu fangaklefa lögreglunnar í Reykjanesbæ í fyrrinótt, tveir vegna slagsmála en einn vegna ölvunar. Lögreglan var tvívegis kölluð að sama skemmtistaðnum vegna áfloga og handtók einn mann en honum var sleppt skömmu síðar. Bifreið skemmd Skemmdarverk voru unnin á bíl í Reykjanesbæ aðfaranótt sunnudags en honum hafði verið lagt í bílastæði. Lögreglan stöðvaði einnig tvo ökumenn þar sem þeir uppfylltu ekki skilyrði laga til aksturs, annar var ölvaður en hinn hafði ekki enn fengið ökuleyfi. LÖGREGLUFRÉTTIR ÖLDRUNARMÁL „Við höfum lagt allt of mikla áherslu á það að aldraðir búi á stofnunum en of litla áherslu á það að aldraðir geti búið í sínu eigin húsnæði og fengið þjónustu þar,“ sagði Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, á mið- stjórnarfundi í Kópavogi á föstu- dag. Halldór talaði þar fyrir nýjum áherslum í þessum málaflokki. „Fyrir nokkrum árum þótti það sjálfsagt að margir einstaklingar byggju saman á herbergi en svo er ekki lengur. Við gerum aðrar kröfur og það er eðlilegt að við gerum þær kröfur að aldraðir geti búið út af fyrir sig,“ sagði Halldór. Hann sagði enn fremur að unnið yrði að því með sveitarfélögunum að hrinda þessari þróun af stað. Halldór kallaði einnig alla þjóðina til ábyrgðar í málefnum aldraðra. „Ríkið getur aldrei séð algjörlega um aldraða; við eigum öll aldraða ættingja og við sem þjóðfélag og sem einstaklingar berum ábyrgð gagnvart þessu fólki okkar. Að það geti gerst að fólk geti látist heima hjá sér og ekki fundist svo dögum skipti er smánarblettur á okkar samfélagi,“ sagði Halldór Ásgrímsson. - jse Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra boðar breyttar áherslur í málefnum aldraðra: Aldraðir geti búið út af fyrir sig ALDRAÐIR Á STOFNUNUM Forsætisráðherr- an sagði að bæði ríkið sem og þjóðfélagið í heild yrði að lyfta grettistaki í málefnum aldraðra. HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Á miðstjórnarfundi Framsóknar. MEÐFERÐARMÁL „Við höfum lagt inn tilboð í Ljósafossskóla en ég held að það sé búið að yfirbjóða okkur,“ segir Guðmundur Jónsson forstöðumaður Byrgisins. Allri starfsemi var hætt í Ljós- afossskóla í Grímsnesi í fyrravor og hún flutt í Minni-Borg. Saman- lagt er húsnæðið 1.200 fermetrar og er þar með talið íþróttahús. „Þetta er fyrst og fremst hugs- að fyrir vistmenn okkar á fram- haldsskólaaldri sem og unglinga sem ekki geta sótt skóla heima fyrir vegna ástands foreldra og gætu því sótt skóla hjá okkur,“ segir Guðmundur. Margrét Sigurðardóttir, sveit- arstjóri í Grímsnes- og Grafn- ingshreppi, vildi ekki um það segja hvort einungis yrði farið eftir upphæð tilboðanna eða hvort tekið yrði til mats hvaða starfsemi myndi fara fram í skólanum. „Fundur verður haldinn á mið- vikudag og þá verður farið yfir tilboðin,“ segir Margrét og bætir við: „Við höfum þegar hafnað tveimur tilboðum og ég hef grun um að okkur eigi eftir að berast mun fleiri.“ Guðmundur segir brýna þörf á því að bæta úr húsnæðisskorti Byrgisins. „Á tveimur og hálfu ári, eða frá því við fórum úr Rock- wille, hafa 28 manns látist en þetta er fólk sem við þurftum að hafna vegna húsnæðisskorts. Auk þess fjölgar ungu fólki á biðlista hjá okkur.“ - jse Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps hefur hafnað tveimur tilboðum: Byrgið vill kaupa Ljósafossskóla Þjónustumiðstöð Ómönnuð Börn sem bíða stöðugildi Árbær og Grafarholt 11 12 Breiðholt 14 4 Grafarvogur og Kjalarnes 11,5 23 Fossvogur og Háaleitishverfi 6,75 0 Miðbær og Hlíðarhverfi 11 2 Vesturbær 13,5 17 Samtals 67,75 58 Um sextíu börn bíða eftir leikskólaplássi Enn vantar um 68 starfsmenn á leikskóla höfuðborgarsvæðisins og um 60 börn bíða eftir leikskólaplássi. Formaður Félags leikskólakennara segir vandann liggja í launakjörum sem augljóslega þurfi að bæta. Vandinn er mestur í Breiðholtinu. BJÖRG BJARNADÓTTIR Formaður Félags leikskólakennara segir kjörin valda því að starfsfólk vanti í leikskólana. ENN VANTAR AÐ MANNA 68 STÖÐUGILDI Á LEIKSKÓLUM HÖFUÐBORGARINNAR Alls bíða 58 börn eftir því að komast á leikskóla borgarinnar. Hér má sjá börn á Mánagarði. GUÐMUNDUR JÓNSSON Í BYRGINU Guðmundur segir að um 50 til 80 manns vermi biðlista eftir plássi hjá Byrginu. Hann segir að ungu fólki stór fjölgi og meðalaldur vistmanna sé kominn úr 45 árum í 26 á fáum árum. ������ ��������� ���� ������ ��������� �� ���������� ������ �� ������������������������������ ������������������������������ ���� ������ ������ ������ ����� ����������������������������� �������� ���� ��������� ������� ��� ������� ��� ������� ������ ���� ���� ����� �������� �������� ��� ���������������������� ����� ������������������������������ ��� ��� ������ ����������� ������ ������� �������������� ��� ���� ���������������������������������� �������� ��� ���������� ���� ���� ��������������������������������� ������������������������������ �� ����� ��������� ����������� ����� ������ �������������� ����� ������������������ ����� ���� �������� ��������� ÍRLAND, AP Forsætisráðherra Írlands, Bertie Ahern, gaf það út í gær að hann myndi ekki hefja stjórnar- myndun með Sinn Fein, stjórnmála- armi Írska lýðveldishersins, eftir næstu kosningar. Kosningar verða í Írlandi árið 2007 en nú þegar hefur Ahern útilokað þennan möguleika. Ahern segir að það séu ekki tengsl Sinn Fein við IRA sem útiloki samstarf heldur sé það hin vinstri sinnaða efnahagsstefna flokksins sem geri það að verkum að flokkur Aherns, Fianna Fail, geti ekki starf- að með Sinn Fein. Fimm menn Sinn Fein sitja á þinginu í Dublin en þeir vonast til að rúmlega tvöfalda þann fjölda í næstu kosningum. - sha Forsætisráðherra Írlands: Vill ekki starfa með Sinn Fein MYNDAR EKKI STJÓRN Gerry Adams, leið- togi Sinn Fein, mun eins og málin standa í dag ekki mynda stjórn ásamt Bertie Ahern, leiðtoga stærsta flokks írlands, Fianna Fail. SPURNING DAGSINS Magnús, heldur þú að heilararnir erfi þetta við þig? Ég hef allavega ekki fundið fyrir nein- um stökkbreytingum enn. Magnús Karl Magnússon blóðmeinafræð- ingur sagði að heilarar gætu ekki haft áhrif á erfðauppbyggingu líkamans en undanfarið hefur Fréttablaðið sagt frá heilurum sem segjast geta gert það. FRAMSÓKN Framsóknarmenn hafa áhyggjur af stöðu flokksins sam- kvæmt skoðanakönnunum. Þetta kom fram á eftir ræðu formanns á miðstjórnarfundi Framsóknar- flokksins á föstudag. Flokkurinn mælist með aðeins þriggja pró- senta fylgi í borginni en þyrfti um 10 prósent til að koma manni inn. Hjálmar Árnason, formaður þingsflokksins, kynnti aðgerðaá- ætlun til að gera flokksinn sýni- legri og bæta ímynd hans. „Við höfum verið að vinna góð verk en erum ekki að njóta þess,“ segir hann. - ghs Framsóknarflokkurinn: Hafa áhyggjur af litlu fylgi HJÁLMAR ÁRNASON Formaður þingflokks Framsóknarflokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.