Fréttablaðið - 14.11.2005, Qupperneq 68
14. nóvember 2005 MÁNUDAGUR
FRÉTTIR AF FÓLKI
Skoski stórleikarinn Sean Connery verður heiðraður á AFI-hátíðinni fyrir
framlag sitt til kvikmyndanna. Connery
er þekktastur fyrir leik sinn sem James
Bond en hann fékk einnig Óskarsverð-
launin fyrir bestan leik í aukahlutverki
í kvikmyndinni The Untouchables. Að
sögn Howard Stringer, talsmann AFI-
samtakanna, hlýtur Connery verðlaunin
fyrir að hafa skapað sér
feril sem sé merkilegri
en stærsta hetjan sem
hann lék. Connery fær
verðlaunin þó ekki
afhent fyrr en á næsta ári
en meðal annarra sem
hefur áskotnast þessi
verðlaun eru Clint
Eastwood, Robert
De Niro og Steven
Spielberg.
Johnny Depp segist ekki sjá eftir því að hafa hagað
sér eins og villidýr á sínum yngri árum.
Leikarinn veit þó að vafalaust hefði
honum orðið meira úr verki ef dóp og
brennivín hefðu ekki haldið honum í
heljargreipum fyrstu tvo áratugi fullorð-
insára sinna. Depp hætti allri neyslu eftir
að Vanessa Paradis ól honum dóttur
fyrir sex árum. „Það kom að þeim
tíma þar sem ég hafði
bara fengið nóg og
sennilega var það
í kringum óléttu
Paradis,“ sagði Depp
á dögunum. „Ég geri
mér grein fyrir því að
ég var sennilega
einhver allra heim-
skasti maður
á jörðinni en
þessi reynsla
hefur mótað
og gert mig
að þeim
manni sem ég
er í dag.“
Oprah Winfrey ætlar aldrei
að giftast unnusta sínum Steadman
Graham. Henni finnst bónorð hans
vera næg sönnun á ást hans til hennar.
Steadman og Winfrey hafa verið saman
í sautján ár og Oprah segist ekki sjá
tilganginn í að ganga inn
kirkjugólfið. Oprah
tekur þó skýrt fram
að hann hafi beðið
hennar. „Eftir að
hann fór niður á
hnén komst ég yfir
þessa giftingarhug-
leiðingar mínar.
Ég er enda viss um
að samband
okkur stríði
gegn öllum
hefðbundnum
hugmyndum
um hjónaband.“
Biðlað í beinni
Framleiðsla Arrested Development, einhverra bestu gamanþátta seinni
tíma, er í uppnámi eftir að skammsýnir
skriffinnar á sjónvarpsstöðinni FOX,
sem framleiðir þáttinn, ákváðu að stytta
þriðju þáttaröðina úr 22 þáttum í 13. Er
uggur í mörgum sem þykir þetta teikn
um að sjónvarpsstöðin ætli að hætta
framleiðslu þáttanna fyrir fullt og allt.
Arrested Developement hafa hlotið einróma lof gagnrýnenda og víðar.
Þeim hefur hins vegar ekki gengið
nógu vel að ná til amerískra áhorf-
enda. Þeir hafa þó nú þegar fest sig
í sessi sem „költ“-sjónvarpsþættir og
munu lifa sem klassískt sjónvarpsefni
um ókomna framtíð, en FOX virðist
ekki þykja nógu mikil réttlæting fyrir
áframhaldandi framleiðslu. Arrested
Development er á dagskrá Stöðvar tvö á
föstudagskvöldum.
Á ýmsu hafa ástfangnir tekið upp á til að ganga í augun
á sínum heittelskuðu en flestir láta sér nægja blóm, smá
súkkulaði, kampavín og kertaljós þegar þeir fara niður á
hné og bera upp bónorðið. Öðru hvoru sjáum við myndir af
mönnum sem skella bónorðinu upp á flennistór neonskilti
á íþróttaleikvöngum. Hver getur líka sagt nei fyrir framan
tugi þúsunda? Það hefur ekki verið mikil hefð fyrir þessu
hér á landi en það virðist vera að breytast.
Frosti Logason & Unnur Birna
„Jú komiði sæl, þetta er Frosti og
þið eruð að hlusta á X-ið. Vel á
minnst, Unnur villtu ekki
giftast mér.“ Svona gæti
bónorð Frosta Logasonar til
Unni Birnu Vilhjálmsdóttur
hljómað og við hin fengjum
að heyra þegar fegurðar-
drottningin hringdi inn með
tárin í augunum og játaðist
heitmanni sínum.
Það yrði heldur ekki ama-
leg brúðkaupsveisla. Veislu-
stjórar yrðu Elín Gestsdóttir
og Þorkell Máni, umboðsmað-
ur Mínuss. Strákarnir myndu
síðan spila fyrir dansi og
hápunktinum yrði náð þegar
Svala Björgvins, Krummi og
Bryndís Guðjónsdóttir myndu
syngja saman.
Ásgeir Kolbeins & Ragnheiður Guðfinna
„Þetta er íslenski listinn og hér kemur Josh Groban
í tilefni af því að ég, Ásgeir Kolbeins, vil ganga að
eiga Ragnheiði Guðfinnu.“ Ekki amalegt bónorð
það. Hún myndi að sjálfsögðu fljúga utan um
hálsinn á honum (Allar sjónvarpsstjörnurnar
eru jú uppi á Lynghálsi).
Brúðkaupsveisla þeirra myndi náttúr-
lega slá öll met því Ásgeir er jú góður
vinur Loga Bergmanns og ef það
er einhver sem hefur reynslu
af fjölmiðlabrúðkaupum þá
er það hann. Skítamórall
myndi spila í kirkjunni
og jafnvel að Two
Tricky færu
með Júróvision
s l a g a r a n n
Angel. Fyrir
dansi myndu
Í svörtum
fötum og
Írafár slá
saman í
stórt band og
trylla lýðinn.
Það má heldur
ekki gleyma að
það verður Breezer
á kantinum.
Jón Ólafsson & Hildur Vala
Það er föstudagskvöld og öll þjóðin hefur
komið sér vel fyrir framan viðtækið. Ein-
hverjir hafa poppað og sitja með börnun-
um sínum uppi í sófa. Allt í einu birtist Jón
Ólafsson á skján-
um, klæddur í
smóking, skellir
sér á skeljarn-
ar og biður
Ido l - s t jörnu
Íslands, Hildi
Völu. Þjóðin fer
á annan endann
og látunum má
líkja við þegar
Friðrik krónprins
og Marie Donalds-
son opinberuðu ást
sína.
Það þarf varla
að taka það fram að
brúðkaupið verður í Smáralindinni. Jói og
Simmi verða að sjálfsögðu veislustjórar og gott ef Bubbi lætur ekki sjá
sig með gítarinn. Hápunktinum verður þó náð þegar allir bestu Idol-
keppendurnir stilla strengi sína saman og syngja Oh Happy Day.
Svavar Örn & Daníel Örn
Þessir fríðleikspiltar eru hvers manns hugljúfi og því er ekki
spurning að þjóðin vill fá að vita hvenær þeir ætli að láta vígja
sig saman. Idol Extra þátturinn er framleiddur fyrir það
sem er óvenjulegt og á meðan Svavar fylgdist með Jóni
biðja Hildar Völu þá fengi hann sömu flugu í hausinn.
Reyndar fengjum við ekki að sjá bónorðið í beinni
heldur á Sirkus en það dregur ekki úr
glæsileikanum eða hugmyndafluginu.
Veislan yrði náttúrlega mögnuð
enda hefur Svavar eignast urmul-
inn allan af frægum vinum í
gegnum starf sitt sem hár-
hönnuður Stöð 2. Allar helstu
sjónvarpsstjörnur myndu
mæta á svæðið, Inga Lind
Karlsdóttir og Svan-
hildur Hólm yrðu
veislustjórar. Þeir
sem fá ekki boðs-
kort í þetta brúð-
kaup eru ekki á A-
listanum. Þetta er
brúðkaup sem við
viljum sjá í beinni.
Viltu giftast
mér?
Vilhjálmur Vilhjálmsson & Guðrún Kristjánsdóttir
Kosninganóttin er löng og ströng.
Borgarstjórnarkosningar hafa
aldrei verið jafn spennandi. Að
lokum tilkynnir Páll Magnússon
í beinni frá RÚV að Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi unnið borgina.
Mikill fögnuður brýst út og leið-
togi flokksins í borginni stígur á
stokk. Er hægt að
f u l l k o m n a
kvöldið eitt-
hvað frek-
ar en með
b ó n o r ð i
í beinni?
Þá fyrst
fær Sjálf-
s t æ ð i s -
f l o k k u r-
inn að sjá alvöru fögnuð.
Brúðkaupsveislan yrði ein sú allra glæsileg-
asta í manna minnum. Dóttir leiðtogans, Jóhanna
Vilhjálmsdóttir, myndi stýra veislunni af
stakri snilld og ekki myndi það skemma
fyrir að goðsögnin úr Seðlabankanum,
Davíð Oddsson, kæmi og flytti stutta
tölu. Gísli Marteinn færi með gam-
anmál um kosningabaráttuna sem
var náttúrlega bæði „drengileg“ og
„heiðarleg“.
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
OG ER OPINN ALLA DAGA FRÁ KL. 8–22.
Breyttur
afgreiðslutími
í Skaftahlíð 24
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
4
4
1
6
Virka daga kl. 8–18.
Helgar kl. 11–16.