Fréttablaðið - 14.11.2005, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 14.11.2005, Blaðsíða 4
4 14. nóvember 2005 MÁNUDAGUR SKIPULAGSMÁL Ágreiningur er um byggingu nýrrar brúar yfir Ölfusá en tvær tillögur liggja fyrir í nýju aðalskipulagi Árborgar fyrir tíma- bilið 2005-2025. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út eftir viku. Sveitarstjórnarmenn í Árborg og Hraungerðishreppi vilja byggja brú yfir miðja Efri-Laugardæla- eyju, eins og gert er ráð fyrir í núgildandi aðalskipulagi, en Vega- gerðin mælir með að brúin verði byggð nálægt ferjustað Laugar- dælaferju. Málamiðlunartillaga gerir ráð fyrir að vegurinn sveig- ist nær bænum þegar yfir brúna er komið. Syðri leiðin er talin stuðla að betri innbyrðis tengslum og dreif- ingu umferðar til strandbyggðar og dreifbýlis. Sú staðsetning er einnig talin geta haft heftandi áhrif á þróun byggðarinnar og skorið byggðarkjarnana sundur. Í báðum tillögum skerðist golfvöll- urinn, meira þó samkvæmt nyrðri leiðinni, en ef brúin og vegurinn færast fjær Selfossi fær bærinn meira byggingarland. Gert er ráð fyrir að kostnaður við tvær brýr, yfir í Efri-Laugar- dælaeyju og þaðan aftur í land, verði 700-800 milljónir króna en kostnaður við hina tillöguna yrði 450-500 milljónir. Heildarmun- urinn er því um 300 milljónir króna. Sveitarstjórnarmenn styðja syðri leiðina og telja að sú leið kæmi betur út fyrir byggðina á Selfossi, umferðin yrði eðlilegri og það takmark næðist frekar að flytja þungaflutninga út fyrir bæinn. Jón Rögnvaldsson vegamála- stjóri segir að Vegagerðin hafi mælt með nyrðri leiðinni þar sem undirstöður brúarinnar yrðu öruggari ef til jarðskjálfta kæmi en það hafi líka haft áhrif að sá kostur hafi verið talinn ódýrari. Guðmundur Kr. Jónsson, formaður skipulagsnefndar Árborgar, segist ekki eiga von á öðru en að brú yfir Efri-Laugar- dælaeyju yrði samþykkt. Hann telur að framkvæmdin komist á vegaáætlun eftir 2012. ghs@frettabladid.is Heimamenn og Vegagerð deila um nýja Ölfusárbrú Sveitarstjórnarmenn vilja fá nýja brú yfir Ölfusá yfir miðja Efri-Laugardælaeyju því þá færist þungaflutn- ingar frekar yfir á nýju brúna. Vegagerðin telur legu norðanmegin öruggari og ódýrari. MÖGULEIKAR Á ÚTFÆRSLUM Tvær tillögur liggja fyrir um byggingu brúar yfir Ölfusá. Leið eitt liggur yfir Efri-Laugardælaeyju en leið tvö liggur fjær þéttbýlinu á Selfossi. Samkvæmt mála- miðlunartillögunni er gert ráð fyrir brúnni yfir eyjuna og að vegurinn sveigist svo nær bænum. Leið vegagerðarinnar Leið sveitarstjórnar Málamiðlunartillaga GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 11.11.2005 Gengisvísitala krónunnar 61,82 62,12 107,62 108,14 72,32 72,72 9,697 9,753 9,339 9,395 7,549 7,593 0,5236 0,5266 88,04 88,56 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 102,5038 HÚSNÆÐISLÁN Íslandsbanki ætlar ekki að hækka vexti á íbúðalánum eins og Landsbankinn gerði fyrir helgi. Haukur Oddsson, fram- kvæmdastjóri Viðskiptabanka- sviðs, segir að þessi ákvörðun sé þó ekki bundin við ákvarðanir Íbúðalánasjóðs. „Við ætlum að sjá til,“ segir hann. „Það er ljóst að efnahags- legar forsendur eru fyrir hækkun en við getum ekki vísað viðskipta- vinum bankans á dyr.“ - ghs Vextir á íbúðalánum: Íslandsbanki hækkar ekki PAKISTAN, AP Tvö alvarleg rútuslys áttu sér stað í norðurhluta Pakist- ans, Muzaffarabad, í gær. Í fyrra slysinu valt rúta niður af brú með þeim afleiðingum að að minnsta kosti ellefu manns létu lífið og fjöldi særðist. Seinna slys- ið átti sér stað nokkrum klukku- stundum síðar en þá létust tíu manns. Slysin áttu sér stað á því svæði þar sem margir stórir jarðskjálft- ar hafa riðið yfir að undanförnu. Sökum þeirra hafa vegir lokast eða einfaldlega eyðilagst vegna jarðskriðs. Að sögn lögreglu á þessu svæði voru rúturnar stút- fullar og segja vitni að fólk hafi jafnvel setið ofan á þökum rút- anna en slíkt er mjög algengt í Pakistan. - sha Rútuslys á jarðskjálftasvæðum: Á þriðja tug létust í slysum Í SÁRUM Hugað að sárum konu eftir rútuslys í Muzaffarabad í Pakistan í gær. Fréttablaðið/AP HÉRAÐSDÓMUR Fyrirtaka í Baugs- málinu fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag og verður þá væntanlega ákveðið hvenær aðalmeðferð verður í ákæru- liðunum átta sem eftir standa í Baugsmálinu. Þetta er fyrsta fyrirtaka í málinu eftir að Hæstiréttur vísaði 32 ákærulið- um af 40 frá dómi í haust. Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, segir að í dag verði væntanlega tekin ákvörðun um framhaldið. Hann segist ekki vita hver tíma- ramminn sé. Verjendur hinna sex ákærðu sakborninga vilji ljúka þessu eins fljótt og tækni- lega sé hægt en hann viti ekki hvort ákæruvaldið hafi sömu afstöðu. „Okkur er ekki kunn- ugt um afstöðu ákæruvaldsins,“ segir hann. - ghs Fyrirtaka í átta ákæruliðum í Baugsmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur: Aðalmeðferð ákveðin í dag Innanlandsflug niðri vegna ís- ingar Innanlandsflug lá niðri til klukk- an fjögur síðdegis í gær vegna ísingar í lofti. Ísingarviðvörun hafði borist um ellefuleytið á laugardagskvöld. Flug til Akureyrar og Egilsstaða hófst síðdegis í gær og voru flugvélar enn á lofti þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld. FLUGSAMGÖNGUR Plast bráðnaði á eldavél Plast var skilið eftir á heitri eldavélarhellu í íbúð í Vesturbænum í gærdag. Íbúðin sem var á Aflagranda hafði fyllst af reyk þegar slökkviliðið kom á staðinn og var reykræst í kjölfarið. Engar skemmdir urðu á innanstokksmun- um en reykjarlykt var mikil. SLÖKKVILIÐIÐ FYRIRTAKA Í BAUGSMÁLINU Fyrirtaka er í Baugsmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þrír af sex ákærðum eru úr Baugsfjölskyldunni. Hér má sjá Jóhannes Jónsson og börn hans, Jón Ásgeir til hægri og Kristínu vinstra megin við Jóhannes.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.